Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRIÐUR Í NAJAF
Ali al-Sistani, andlegur leiðtogi
sjíta, og uppreisnarklerkurinn Moq-
tada al-Sadr sömdu í gær um að
koma á friði í hinni helgu borg Najaf
en þar hafa liðsmenn þess síð-
arnefnda og bandarískir hermenn
barist í meira en þrjár vikur. Verða
Najaf og systurborgin Kufa vopn-
laust svæði og mun allur erlendur
her og aðrar vopnaðar sveitir hverfa
burt. Íraska bráðabirgðastjórnin
hefur fallist á samkomulagið.
Vextir lækka
Vextir á útlánum Íbúðalánasjóðs
verða 4,35% í septembermánuði sem
er 0,05 prósentustigum lægra en á
nýjum íbúðalánum bankanna og 0,15
prósentustigum lægra en vextir á
útlánum sjóðsins eru nú. Lífeyr-
issjóðir íhuga nú einnig lækkun
vaxta á sjóðfélagalánum sínum og
hefur Lífeyrissjóður sjómanna þeg-
ar ákveðið að lækka vexti um rúm-
lega hálft prósentustig, í 4,3%.
Blair á Íslandi
Cherie Blair, lögmaður og eig-
inkona Tonys Blair forsætisráð-
herra Bretlands, verður sérstakur
gestur á málþinginu Konur, völd og
lögin, sem fram fer í Háskólabíói í
dag. Frú Blair kom til landsins í gær
en með henni í för er fjögurra ára
sonur þeirra hjóna, Leo.
Lausn í sjónmáli?
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra telur möguleika vera á
lausn í deilu Íslendinga og Norð-
manna í síldveiðimálum eftir fund
utanríkisráðherra landanna í gær.
Halldór ætlar að vera í sambandi við
norskan starfsbróður sinn á næstu
dögum og freista þess að koma við-
ræðum á skrið.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Úr verinu 11 Viðhorf 28
Viðskipti 12 Minningar 28/36
Erlent 16 Dagbók 38/40
Höfuðborgin 19 Víkverji 38
Akureyri 19 Staður og stund 40
Suðurnes 20 Listir 41/43
Austurland 20 Leikhús 42
Landið 21 Fólk 46/49
Daglegt líf 22 Bíó 46/49
Neytendur 23 Ljósvakamiðlar 50
Umræðan 24/25 Veður 51
Bréf 25 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"#$
"
!
"
#
$
%&' (
)***
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað Ragnhildi Arnljótsdóttur,
lögfræðing, í embætti ráðuneytis-
stjóra félags-
málaráðuneytis-
ins til fimm ára
frá og með 15.
september.
Ragnhildur hefur
undanfarin tvö ár
starfað sem
fulltrúi félags-
málaráðuneytis-
ins og heilbrigðis-
og trygginga-
málaráðuneytis-
ins í sendiráði Íslands í Brüssel.
„Ég var ánægð þegar ég gerði mér
grein fyrir því að þessi ráðning færi í
faglegan feril. Þarna voru margir
hæfir umsækjendur þannig að ég er
að sjálfsögðu ánægð með niðurstöð-
una. En fyrst og fremst er ég ánægð
með að fá þetta tækifæri, að fá að
starfa með þessu fjölmarga góða
fólki sem er þarna fyrir og sem ég
hef fengið tækifæri til að kynnast í
starfi mínu í Brüssel undanfarin tvö
ár. Starfsemi í stjórnarráði er í eðli
sínu sérstök og ég hef kynnst henni
og starfsemi Alþingis undanfarinn
áratug. Ég hlakka til að fá að starfa
áfram á þessu sviði,“ segir hún.
Ragnhildur er fædd árið 1961. Á
árunum 1995-2002 starfaði hún í heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytinu,
fyrst sem deildarstjóri og síðan sem
skrifstofustjóri almennrar skrifstofu
frá 1999. Einnig hefur hún starfað
sem lögfræðingur í nefndadeild á
skrifstofu Alþingis, hjá barnavernd-
arnefnd Reykjavíkur og verið fram-
kvæmdastjóri Lögfræðingafélags
Íslands. Þar á undan starfaði hún hjá
Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og
dagskrárgerðarmaður.
Ragnhildur Arnljótsdótt-
ir skipuð ráðuneytisstjóri
Ragnhildur
Arnljótsdóttir
TVEIR stjórnarmenn í Sparisjóði
Hólahrepps mótmæla ráðningu Vil-
hjálms Baldurssonar, núverandi for-
stöðumanns fyrirtækjasviðs Byggða-
stofnunar, í stöðu sparisjóðsstjóra.
„Þegar litið er á vinnubrögð við brott-
hvarf fyrrverandi sparisjóðsstjóra,
sem bolað var burt vegna krafna full-
trúa Kaupfélagsins, er okkur nú full-
ljóst að búið var að semja um þessa
ráðningu löngu fyrirfram. Við ótt-
umst að með ráðningu þessa manns
verði sparisjóðurinn í raun orðinn
deild í Kaupfélagi Skagfirðinga,“ seg-
ir í yfirlýsingu Sverris Magnússonar
og Valgeirs Bjarnasonar. Auglýsingin
hafi því verið hrein sýndarmennska.
Auk þeirra eiga sæti í stjórn spari-
sjóðsins þeir Sigurjón Rafnsson og
Jón Eðvald Friðriksson, sem tengjast
KS, og Magnús D. Brandsson, sem á
að sitja sem hlutlaus aðili fyrir hönd
Sambands íslenskra sparisjóða. Mikl-
ar deilur hafa verið um stjórn spari-
sjóðsins milli gömlu stofnfjáreigend-
anna, sem Sverrir og Valgeir eru
fulltrúar fyrir, og stjórnenda KS.
Hefur meðal annars komið til úr-
skurðar Fjármálaeftirlitsins um at-
kvæðisrétt einstakra manna á aðal-
fundum.
Sigurjón Rafnsson, aðstoðarkaup-
félagsstjóri KS, segir fjarri lagi að bú-
ið hafi verið að ákveða hver yrði ráð-
inn sparisjóðsstjóri eins og haldið sé
fram í yfirlýsingunni. Ekki sé heldur
rétt að búið sé að ráða sparisjóðs-
stjóra. Formanni stjórnarinnar hafi
verið falið að ganga til samninga við
einn aðila og óskað var eftir trúnaði.
Sá trúnaður hafi ekki verið haldinn.
Harma vinnubrögðin
„Við hörmum þessi vinnubrögð og
biðjum aðra umsækjendur afsökunar
að vera plataðir til að sækja um starf-
ið. Við drögum í efa að hér sé löglega
að staðið og áskiljum okkur rétt til að
láta reyna á hvort svo sé,“ segir í yf-
irlýsingu tvímenninganna. Valgeir
Bjarnason segir koma til greina að
fara dómstólaleið en verið sé að skoða
alla möguleika með aðstoð lögfræð-
ings.
Hann segir að 13 hafi sótt um stöð-
una og hægt var að ná sátt um annan
umsækjanda að hans mati. Þessi sem
verði ráðinn sé of nátengdur Kaup-
félagi Skagfirðinga og því ekki fulltrúi
allra stofnfjáreigenda. Sigurjón segir
það fjarri lagi og eigi sér enga stoð í
raunveruleikanum.
Á síðasta ári var ágreiningur uppi í
Sparisjóði Hólahrepps um atkvæðis-
rétt stjórnenda og stjórnarmanna í
dótturfélögum KS, sem eignaðist
verulegan hlut af stofnfé sjóðsins þeg-
ar það var aukið á árunum 2000 og
2001. Vildu gömlu stofnfjáreigend-
urnir að stofnfé í eigu stjórnendanna
yrði talið til virks eignarhlutar KS og
þessir aðilar færu ekki með nema 5%
atkvæða á aðalfundi eins og lög um
fjármálafyrirtæki og samþykktir
sparisjóðsins segðu til um. Dóttur-
félög KS eiga um 40% af stofnfé
sparisjóðsins og einstaklingar sem
því tengjast milli 8–9% samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Var
ágreiningnum vísað til Fjármálaeft-
irlitsins sem taldi ekki tilefni til að
skerða atkvæðisrétt stjórnendanna.
Þeir færu því með sinn atkvæðisrétt
óháð virkum eignarhluta KS.
Vill efla sparisjóðinn
Sigurjón telur að þessar deilur
muni ekki halda áfram. Það sem vaki
fyrir öllum stofnfjáreigendum sé að
efla þessa fjármálastofnun heima í
héraði – ekkert annað. Hann getur
ekki ímyndað sér hverjar forsendurn-
ar eru fyrir þessum deilum. „Maður
reynir bara að vinna af heilindum fyr-
ir sparisjóðinn. Það nær ekkert
lengra,“ segir Sigurjón.
Miklar deilur hafa risið á ný um Sparisjóð Hólahrepps
Ráðningu sparisjóðs-
stjóra mótmælt
ENDURFJÁRMÖGNUN
eldri íbúðarlána á ekki ein og
sér að leiða til hækkunar á
vaxtabótum þar sem ein-
göngu höfuðstóll þeirra lána
sem tekin voru til öflunar eig-
in húsnæðis og greiðslur af
þeim eru stofn til útreiknings
vaxtabóta, samkvæmt upplýs-
ingum Indriða H. Þorláksson-
ar, ríkisskattstjóra.
Indriði sagði aðspurður að
endurfjármögnun íbúðalána
væri stofn til vaxtabóta að
svo miklu leyti sem þau eru
ekki hærri en eftirstöðvar
þeirra lána sem verið er að
endurfjármagna og tekin
voru vegna íbúðakaupa.
Indriði sagði að ef til dæm-
is eftirstöðvar af láni sem
tekið var til öflunar eigin hús-
næðis væru fimm milljónir
með verðbótum væri hægt að
taka jafnhátt lán til að greiða
það upp og vextirnir af því
reiknuðust sem stofn til
vaxtabóta, en það sem væri
umfram ætti ekki að falla
undir vaxtabótaákvæðið.
Endurfjár-
mögnun
breytir
ekki vaxta-
bótum
ÞRJÁR ungar stúlkur gáfu Barna-
og unglingageðdeild Landspítalans
leikföng, tölvuleiki og spil að verð-
mæti 72.231 krónur í gær.
Stelpurnar, þær Sandra Sif
Smáradóttir, Snædís Gígja Snorra-
dóttir og Áslaug Benediktsdóttir
söfnuðu fénu í ágúst með því að
halda tombólur á Eiðistorgi.
Þær segja að mjög ánægjulegt
hafi verið að afhenda leikföngin og
sjá afrakstur alls erfiðisins.
Rosalega gaman
„Það var rosalega gaman.
Starfsfólkið vissi ekki af þessu og
varð mjög ánægt,“ segir Áslaug.
Vistmenn á deildinni voru ekki á
staðnum þegar stúlkurnar afhentu
leikföngin en fengu að sjá dótið
seinna um daginn.
Sigríður Ásta Eyþórsdóttir, yf-
iriðjuþjálfi á BUGL, segir að
deildina muni mikið um að fá leik-
föngin og eins hafi skipt miklu
máli að finna fyrir hinni fallegu
hugsjón stelpnanna, sem voru til-
búnar að leggja svona mikið á sig.
„Þetta var alveg frábært og al-
veg sérstaklega gaman þegar
krakkar eru tilbúnir að leggja
svona mikið á sig fyrir börn sem
líður illa,“ segir Sigríður.
Auk þess að styrkja góð málefni
eiga stelpurnar sér ýmis áhugamál
utan skóla. Sandra er að byrja að
æfa djassballet og hefur einnig æft
söng. Hún segir að Birgitta Hauk-
dal sé í mestu uppáhaldi hjá sér og
að hún hlusti mikið á lög með
henni. Áslaug og Snædís spila báð-
ar á fiðlu auk þess sem Ásdís æfir
körfubolta með KR og Snædís
stundar frístældans og er í skát-
unum.
Sandra segir að þeim hafi geng-
ið best um verslunarmannahelgina
því þá hafi verið svo mikið að gera
í vínbúðinni á Eiðistorgi og margir
keypt af þeim í leiðinni. Stelp-
urnar eiga afgang af dótinu og
stefna á að endurtaka leikinn
seinna og safna auknu fé í þágu
góðra málefna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sandra Sif, 11 ára, Snædís Gígja, 12 ára og Áslaug, 12 ára, afhentu Barna-
og unglingageðdeild LSH leikföng að verðmæti 72.231 krónur í gær.
Gáfu BUGL rúmlega
72 þúsund krónur