Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jóhann Halldórs-son fæddist á Fá- skrúðsfirði 24. okt. 1942. Hann lést að kvöldi miðvikudags- ins 18. ágúst síðast- liðins. Foreldrar hans voru hjónin Anna Erlendsdóttir (1924-1998), frá Brekkuborg í Fá- skrúðsfirði, og Hall- dór Jónsson (1919- 1982), sjómaður og útgerðarmaður, frá Hafnarnesi. Systir Jóhanns er Brynja, f. 1944, gift Haraldi Benediktssyni skipstjóra. Eitt barna Önnu og Halldórs lést í frumbernsku 1947. Uppeldisdóttir þeirra er Erna Þórsdóttir, f. 1963 (dóttir Brynju), gift Halldóri Hjörleifs- syni. Fjölskyldan fluttist frá Fá- skrúðsfirði til Vestmannaeyja 1951 og bjó þar æ síðan, lengst á Boðaslóð 16. Jóhann kvæntist 21. nóv. 1964 Aðalbjörgu Jóhönnu Bernód- usdóttur (Lillu), f. 28. maí 1944, dóttur Bernódusar Þorkelssonar (1920-1957) skipstjóra og Aðal- bjargar Jóhönnu Bergmundsdótt- ur (1919-2003) sem bæði voru fædd í Eyjum og kennd við húsið Borgarhól. Börn Jóhanns og Að- albjargar eru 1) Anna Dóra, f. 9. júní 1962, forstöðumaður Líkams- ræktarstöðvarinnar Hressó í Eyj- um; maður hennar er Vignir Sig- urðsson, f. 8. apríl 1966, sjómaður, dóttir þeirra er Ann- ika, f. 14. sept. 1988, en fyrir á Anna Dóra soninn Jóhann Braga Stefánsson, f. 20. júní 1984. 2) Jó- hanna, f. 3. apríl 1968, kennari við Varmalandsskóla, hún á soninn Gabríel Kárason, f. 22. júlí 1996. 3) Heimir, f. 28. júní 1972, kerfisfræðing- ur, sambýliskona hans er Ásdís Har- aldsdóttir, f. 11. jan. 1979, rannsóknar- lögreglumaður, þau eiga tvo syni, Ísak, f. 19. júlí 1999 og Bóas, f. 20. maí 2004, en fyrir á Heimir dótturina Söru, f. 12. febr. 1991. 4) Birgit, f. 28. okt. 1979, námsmað- ur, sambýlismaður Guðmundur Tómas Sigurðsson, f. 2. des. 1980, flug- maður; þau eiga soninn Tómas Tinna, f. 1. jan. 2004. Jóhann lauk skyldunámi við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja 1957. Hann fór ungur til sjós, varð vélstjóri 1962 og síðar skip- stjóri eftir að hann lauk námi við Stýrimannaskólann í Vestmanna- eyjum 1972. Hann rak útgerð frá 1966, fyrst í félagi við aðra, frá 1968 með Herði Jónssyni skip- stjóra, en síðar einn, eða frá 1980. Uppistaðan í útgerð hans var Andvari VE 100, nú rækjuskip, en auk þess gerði Jóhann út aðra minni báta og tók þátt í ýmiss konar öðrum atvinnurekstri tengdum sjávarútvegi í Vest- mannaeyjum. Hann starfaði í samtökum útvegsmanna í Eyjum, var um árabil í stjórn Báta- ábyrgðarfélags Vestmannaeyja, virkur í Útvegsbændafélagi Vest- mannaeyja og sótti aðalfundi Landssambands íslenskra útvegs- manna. Hann var enn fremur lengi félagi í Oddfellow-reglunni. Útför Jóhanns fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ó, elsku pabbi, mér verður orða vant. Það eru ekki til nógu stór lýs- ingarorð til þess að segja frá þér. Þú varst einfaldlega flottastur. Ég var svo stolt af þér. Þú varst lang- skemmtilegasti pabbi sem hægt var að hugsa sér. Þegar ég var barn öf- unduðu aðrir krakkar mig af þér. Þú varst sá eini sem nenntir að gera hlutina með okkur. Koma með í fót- bolta í útilegunni og setja upp krik- ket-völlinn. Búa til alls konar keppn- ir til að gera tilveruna skemmtilegri meðan aðrir fullorðnir lágu á melt- unni. Minningarnar streyma, þær gætu fyllt þykka bók. Að missa þig núna. Alla tilveruna skók. Ég mun sakna þín alltaf. Hvað get ég sagt. Svo mikilfenglegur persónuleiki sem þú varst. Og sögurnar þínar og gull- kornin þín finnst mér núna vera dýr- mætasta eignin mín. Minningin þín mun að eilífu lifa með þeim. Greiðvikni, hjálpsemi, mann- gæska og gjafmildi voru samofin þér. Þú gerðir allt fyrir alla og það gleði gaf þér. Leiftrandi húmor, kaldhæðni og skot voru yndislegir þættir sem ávallt fylgdu þér. Og ólatari mann er vart hægt að hugsa sér. Nenntir að gera hlutina og gerðið það með bros á vör. Þú kunn- ir svo sannarlega að lifa lífinu. Þú gerðir það flott. Þú varst fyndinn og skemmtilegur. Þú elskaðir lífið. Náttúruna og sport. Þú elskaðir veiði af öllum sortum. Jeppinn og jöklarnir vöru hluti af þér. Hver ger- ir nú allt þetta skemmtilega með mér? Þú elskaðir hafið og bátinn þinn. Þú elskaðir börn og að leika þér með þeim. Öll börn sem við þekktum soguðust að þér. Þú varst ótrúlegur maður. Þú varst svo mik- ilvægur mér. Ég þakka fyrir allar stundirnar sem ég átti með þér. Í framtíðinni skal ég gera eins og þú. Lifa lífinu lifandi. Njóta þess að vera hér og nú. Ég vildi núna að ég hefði oftar sagt þér hvað þeir voru mikils virði. Þessir tímar með þér. Og ég hefði oftar faðmað þig og kysst. Synd að við skulum oft ekki skilja fyrr en við höfum misst. Nú segi ég orðin sem sagði ei við þig. Ó, elsku pabbi, ég elska þig. Lítið tár lekur á brauðið. Látlaust hugsa um þig. Aldrei aftur auðið. Að þú kyssir mig. Hjartað harmþrungið, stolt Ég hafði þig. Hefur heiminum hvolft. Hvað verður um mig? Sjálf ég, litla sálin, sem treysti á þig. Þegar þutu upp vandamálin. Þú leystir fyrir mig. Tíminn tifar leið sína þú skilur tóm eftir þig. Í minningu þína. skal ég standa mig. Þín dóttir Jóhanna. Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður, og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Takk fyrir allt, pabbi minn, þinn Heimir. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Sorgin hitti mig í hjartastað, hann pabbi minn er dáinn. Það er oft sagt að maður geti ekki valið sér foreldra, aðeins vini. Ég hefði samt valið hann pabba, bæði sem pabba og vin. Mikið þykir mér erfitt að hugsa um framtíðina án hans, hafa hann ekki við hlið mér. Hann var svo stór hluti af mínu lífi. Ég gleðst svo innilega yfir því að ég, Gummi og Tómas Tinni fluttum til hans og mömmu núna í maí og feng- um að eyða sumrinu með honum. Sá tími er mér ómetanlegur, ógleyman- legur og dýrmætur. Að sjá hann með Tómasi Tinna, litla afastrákn- um eru ómetanlegar minningar. Hann var svo mikill afi. Þegar hann labbaði inn um dyrnar um kvöldmat- arleytið, eftir sína daglegu sundferð, voru hans fyrstu orð „Hvar er hann?“ Hann sá ekki sólina fyrir honum, hann elskaði hann svo mikið og Tómas Tinni elskaði afa sinn svo mikið. Barnabörnin hafa ekki aðeins misst heimsins besta afa, heldur hef- ur mamma misst manninn sinn til 40 ára og við systkinin yndislegasta pabba sem gengið hefur á þessari jörð. Söknuðurinn er svo mikill. Hann var svo mikill öðlingur, það er ekkert í þessum heimi sem hann hefði ekki gert fyrir fjölskylduna. Það var alltaf svo lítið mál að biðja hann um eitthvað, hann var alltaf boðinn og búinn. Pabbi hafði svo marga góða eig- inleika, hnyttinn og kaldhæðinn húmor, lífsgleði, vinnusemi og hlýj- an faðm. Það eru ekki til orð yfir hve duglegur hann var, aldrei féll honum verk úr hendi. Gummi sagði oft að það væri ekkert frí að fara með hon- um í sumarfrí. Við vorum varla sest niður, þegar hann kom með setn- ingar eins og „Jæja, eigum við að fara að slá blettinn?“ eða „Eigum við að mála þakið?“ Alltaf vildi hann vera að. Pabbi hafði gaman af útivist, veiði, fjallaferðum. Aldrei naut hann sín betur en uppi á jökli, í Grenlæk eða uppi í sumarbústað. Ég hugsa að hann hefði viljað enda lífið í Gren- læk, þann stað elskaði hann svo mik- ið. Heimir og Jóhanna voru farin að smitast af áhuga hans á nátturunni, og oftast fór annað hvort þeirra með honum. Hann var svo stoltur af því. Pabbi var ekki maður mikilla orða, en maður fann þó hve mikið honum þótti vænt um okkur öll. Hann var maður verka. Ást hans til mömmu var mikil, hann færði henni morgunmat í rúmið á hverjum ein- asta morgni, hann vaskaði alltaf upp, hélt alltaf á töskum fyrir hana, það má segja að hann hafir dýrkað jörðina sem hún gekk á. Hann sagði alltaf „Hún mamma þín er alveg meiriháttar“. Hann pabbi elskaði sjóinn og allt sem í honum var. Ég veit ekki hve marga bryggjurúnta við höfum farið, hann þekkti alla báta með nafni og sögu þeirra. Hann var nýbúinn að kaupa nýtt og stærra skip, missti aldrei áhugann þótt ald- urinn færðist yfir. Það hvarflaði aldrei að honum að hætta í útgerð, það var það sem hélt honum gang- andi. Mikið er ég stolt af því að hafa verið dóttir hans, ég vona bara að ég hafi eitthvað af hans eiginleikum í mér, því þá veit ég að ég er góð manneskja. Hann var manna bestur, ég sakna hans svo mikið. Elsku pabbi, ég lofa að segja Tómasi Tinna frá því hve góður þú varst við hann, hve mikið þú dekr- aðir hann og af hve miklu hann er að missa. Þú áttir Tómas Tinna með okkur Gumma. Minning þín lifir í hjarta okkar allra. Pabbastelpan Birgit. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem.) Það var sólfagur sumardagur og karlinn ég var að fagna 78 ára af- mælinu mínu þegar helfregnin barst mér, mig setti hljóðan. Jóhann Hall- dórsson hefði orðið 62 ára 24. októ- ber nk. Annálað hraustmenni sem stakk sér til sunds næstum daglega og synti í vetur svokallað „Guðlaugs- sund“ sér til gamans. Að hann skyldi finnast látinn í uppáhalds veiðihyln- um sínum við Grenlæk voru undur. En vegir Drottins eru margvíslegir, við krufningu kom í ljós að bana- meinið var blóðtappi í hjarta en Guð valdi svo sannarlega rétta staðinn, þennan stað og þetta umhverfi dáði Jói. Í þetta sinn var hann ásamt Heimi syni sínum og félaga hans. Búið var að grilla morgunveiðina og strákarnir voru að laga til og slá blettinn við veiðihúsið og fl. Jóhann brá sér einn upp í veiðistaðinn sinn þar sem þeir fundu hann látinn, seinna um daginn. Fyrir rúmum fjörutíu árum tók amerísk fólksbifreið af Chrysler gerð að venja komur sínar á Kirkju- veginn um kvöldmatarleytið og flauta smá. Þannig hófst ástarsaga Jóa Halldórs og heimasætunnar í Borgarhól. Jóhann Halldórsson bar nokkur nöfn meðal bæjarbúa, Jói á Andvara, Jói hennar Lillu, Jói út- gerðarmaður. Alls staðar þar sem Jói kom að málum fóru hlutirnir að gera sig. Jóhann var þekktur fyrir orðheldni og góðmennsku. Barna- gæla var hann með eindæmum og margir afalingar eiga eftir að furða sig á því að sjá aldrei afa á bílnum. Mörg góðverk þeirra hjóna verða ekki tíunduð hér, en margur illa staddur samferðamaður og kona þakka með fögrum hugsunum með bænum. Þau hjónin ráku útgerð sína af skörungsskap og rausn. Þegar kvótakerfið fór að sverfa að íslensk- um útgerðum fór Jóhann í farar- broddi fyrir því að menn nýttu sér færi sem gáfust erlendis og sigldi þá Andvari undir erlendum veiðifánum. Þegar menn sáu að þetta gekk vel runnu fleiri þessa slóð. Svona maður var Jóhann Halldórsson, hann var óhræddur við að ryðja veginn. Í fjöl- skyldulífinu var Jóhann alsæll með glæsilega eiginkonu, fjögur mann- vænleg börn og sjö barnabörn. Á Höfðaveginum eru nú daprir dagar, ég votta Lillu og börnunum mína dýpstu samúð og kveð með orðum séra Matthíasar. Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að eigi geti syrt eins sviplega og nú; og aldrei svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú. Vertu sæll, vinur, það eiga margir eftir að sakna þín. Magnús Magnússon (Maggi Magg). Miðvikudaginn 18. ágúst fengum við að finna fyrir því hve bilið milli lífs og dauða er ótrúlega stutt. Hann Heimir minn var staddur í veiði austur í Grenlæk með pabba sínum og Eika vini þeirra. Ég talaði við þá um kvöldmatarleytið og þá heyrði ég svo innilega á Heimi hvað lífið var yndislegt. Gott veður, mikil veiði og þeir félagar höfðu átt góðar stundir saman. Tæpum tveimur tímum síðar fæ ég annað símtal frá Heimi, greinilegt var að eitthvað hræðilegt hafði gerst. Já, Jói var allur, horfinn frá okkur á sviplegan hátt. Mín fyrstu kynni af Jóa og Lillu voru sumarið ’96 þegar ég og Birgit urðum vinkonur. Ég sá þá strax að þarna voru sómahjón á ferð, ekki grunaði mig þá að þetta ættu eftir að verða tengdaforeldrar mínir. Jói var um margt sérstakur mað- ur. Þegar ég segi sérstakur þá meina ég það á jákvæðan hátt því hann var einstakur, það finnst ekki annað svona eintak. Góðmennskan uppmáluð, hann mátti ekkert aumt sjá. Hann var mikill húmoristi og hvernig hann gat orðað hlutina var með ólíkindum. Til dæmis kallaði hann kjúkling skíthoppara, hrís- grjón hvítan rottuskít og salat var bara óétandi gras og pizzur kallaði hann pappaspjöld, maður gat ekki annað en brosað út í annað þegar maður heyrði Jóa orða hlutina á sinn hátt. Það var nú alltaf brandari í fjöl- skyldunni varðandi starf Jóa en við sögðum hann vera eina „atvinnu- hringlarann“ á Íslandi. Titilinn fékk hann þegar eitt barnabarnið spurði afa við hvað hann ynni eiginlega. Jói varð hugsi í smá stund en sagði svo „ég er bara svona að hringla“. Málið var það að þó að Jói hefði ekki unnið „venjulega“ vinnu í mörg ár þá var alltaf brjálað að gera hjá honum, við að „hringla“. Enda var maðurinn með eindæmum „nenninn“ ef það má orða það svo. Hann nennti bara öllu. Svona afi sem nennti að gera allt með barnabörnunum sínum. Ég dvaldi hér í Eyjum í júní sl. með strákana mína og á þeim tíma sá ég Ísak varla því hann var svo mikið að „hringla“ með afa Jóa. Hann fór með krakkana út á sjó á sjóstöng, í sundlaugina, í fjallgöngu upp á Klif, svo var farið í pottinn á hverju kvöldi, þeir slógu blettinn, fóru bryggjurúnta, fóru upp á rusla- hauga. Hann hafði nógan tíma og þolinmæði og fannst bara svo skemmtilegt að gleðja litlar sálir. Hann var ótrúlegasti afi sem ég hef á ævinni kynnst enda er missir barnabarnanna mikill. Hann leyfði þeim að gera allt með sér. Enda sog- uðust börn gjörsamlega að honum og hundar líka. Mjög sérstakt að sjá það. Það var bara eitthvað svo góð- legt við Jóa. Í jeppanum var hann alltaf með disk í spilaranum en sá mest spilaði var líklegast diskurinn með Vil- hjálmi Vilhjálms enda er uppáhalds- lag afastrákanna þina Ísaks og Gabríels „Bíddu pabbi“. Nú í þinni síðustu veiðiferð var það Cat Ste- vens sem varð fyrir valinu. Jói var mikill ævintýramaður og veiðimaður af Guðs náð. Þeir Heimir fóru saman í margar skemmtilegar jeppaferðir, þeir fóru alltaf saman á Hveravelli að veiða rjúpuna í jóla- matinn, nú síðustu ár hafa þeir líka farið saman á hreindýraveiðar og ekki má gleyma paradísinni ykkar Grenlæk. Ég er þess fullviss að ef þú hefðir mátt velja þér stað til að deyja á þá hefðir þú valið Grenlæk. Þegar þú talaðir um þennan stað gastu ekki haldið aftur af brosinu. Settir upp svipinn þinn sem ég kalla alltaf montsvipinn. Þennan montsvip settirðu upp við mörg tækifæri, t.d. þegar við töluðum um Lillu þína, þegar þú talaðir um börnin ykkar Lillu gastu ekki falið það hve stoltur þú varst af þeim öllum fjórum, þú ljómaðir líka þegar við töluðum um barnabörnin ykkar. Svo má nú ekki gleyma gamla jeppanum þínum sem við keyptum af þér og gerðum upp. Þú varst ekkert smá montinn með hann, V 47. Talan 47 var líka þín tala og mun minna á þig alla tíð. Alltaf gafstu þér tíma til að labba yfir til okkar þegar þú varst í bæn- um. Þú sýndir okkur svo sannarlega hve vænt þér þótti um okkur. Þú varst stór hluti af okkur öllum, hlekkurinn í fjölskyldunni, svona allt í öllu. Sorgin er sár og sársaukinn þarf sinn tíma en minningin um Jóa okk- ar lifir með okkur alla tíð. Ég bið góðan Guð að vaka yfir þér um leið og ég þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og mínum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég á svo gríðarlega margar minn- ingar um Jóa sem ég get ekki komið á blað. Við Heimir munum þó segja strákunum okkar hve yndislegur afi þeirra var. Ég veit að Heimir mun halda í hefðirnar og taka strákana okkar með sér í þessar ferðir sem Jói hafði farið með hann í. Ég kveð þig að sinni Jói minn um leið og ég óska þér góðrar veiðar þarna hinum megin, ég veit að þú ert að gera það sem þér fannst skemmtilegast. Guð gefi Lillu styrk í sorginni og okkur hinum sem syrgjum Jóa sárt. Þín tengdadóttir, Ásdís Haralds. JÓHANN HALLDÓRSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.