Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 25
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 25 MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 5171020 Opið: mán. - föstud.11-18 laugard.11-15 Spennandi gjafavörur og húsgögn Sími 594 6000 Bæjarflöt 4, 112 R.vík Fjöldi lita og gerða Marley þakrennur Sjáum einnig um uppsetningu SMÁRALIND - KRINGLUNNI MARGAR GERÐIR - VERÐ FRÁ 6.995 NÝ SENDING FRÁ OG BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is UMRÆÐAN um jafnréttismál hef- ur að undanförnu einkennst af hugtakaruglingi og grundvall- armisskilningi á fyrirbærinu já- kvæð mismunun. Þennan misskiln- ing er nauðsynlegt að leiðrétta og hef ég gert a.m.k. tvær tilraunir til þess á opinberum vettvangi, í Speglinum á Rás 1 hinn 20. apríl og í Fréttablaðinu 24. apríl. Enn kom sami misskilningur fram í máli jafnréttisráðherra í dæg- urmálaútvarpi Rásar 2 þriðjudag- inn 24. ágúst og af því tilefni er þetta áréttað hér. Það er jákvæð mismunun þegar einstaklingur af því kyni sem hall- ar á er ráðinn í starf, að upp- fylltum lágmarksskilyrðum, jafnvel þótt hæfari einstaklingur af hinu kyninu sé meðal umsækjenda. Þannig mætti veita karli starf leik- skólakennara að uppfylltri lág- markshæfni, jafnvel þótt hæfari kona sæki um. Sama hugmynd liggur að baki umræðunni um að veita tilteknum fjölda karla skóla- vist í kennaranámi jafnvel þótt hæfari konur séu meðal umsækj- enda, en sú hugmynd hefur verið viðruð í þeim tilgangi að fjölga körlum í stéttinni. Þetta eru tvö dæmi jákvæðrar mismununar sem tíðkast víða, t.d. í Bandaríkjunum, Noregi og ekki síst í Svíþjóð þar sem beiting slíkra ákvæða fer eftir ströngum skilyrðum. Í jafnrétt- isumræðunni hérlendis er þessari jákvæðu mismunun þráfaldlega ruglað saman við ákvæði jafnrétt- islaga um bann við mismunun. Meginreglur íslensku laganna hafa verið skýrðar þannig að þegar val stendur milli tveggja JAFN- HÆFRA einstaklinga skuli veita starfið einstaklingi af því kyni sem er í minnihluta. Enginn afsláttur er því gefinn í samkeppni um hæfni. Þetta má kalla forgangs- reglu jafnréttislaganna. Þessi túlk- un er viðtekin og þykir sjálfsögð og eðlileg leið til að leiðrétta kynjahlutföll í nútímasamfélögum. Jákvæð mismunun hefur hins veg- ar ekki hlotið brautargengi á Ís- landi og er almennt ekki viðhöfð hér í jafnréttisstarfi. Hugmyndum um hana var hreyft á Alþingi 1980 og olli miklum deilum. Þá gerði nefnd félagsmálaráðherra tillögu um jákvæða mismunun árið 1988 og kom hún fram í frumvarpi um endurskoðuð jafnréttislög árið 1989. Hugmyndin fékk litlar und- irtektir og náði ekki fram að ganga. Þessi hugtakaruglingur stendur jafnréttisumræðunni og framþróun jafnréttis fyrir þrifum. Með honum er ýtt undir þá algengu rangtúlkun að konur á Íslandi njóti nú sér- meðferðar á kostnað hæfari karla, í krafti jafnréttislaganna. Með þessu bréfi er skorað á ráðherra jafnrétt- ismála að leggja sitt af mörkum til þess að réttur skilningur sé lagður í grundvallarhugtök þess mála- flokks sem hann ber ábyrgð á. ÞORGERÐUR EINARS- DÓTTIR, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands Opið bréf til Árna Magnússonar ráð- herra jafnréttismála Frá Þorgerði Einarsdóttur: ÞÆR eru ófáar kannanirnar sem sýna mikilvægi þess að for- eldrar sýni áhuga á því sem börn- in okkar taka sér fyrir hendur. Hvaða fullorðnum einstaklingi þykir ekki gott að fá viðurkenningu sam- starfsmanna eða yf- irmanna sinna, fyrir vel unnið starf? Á sama hátt sækjast börnin eftir við- urkenningu foreldra sinna. Viðurkenn- ingin þarf hins vegar ekki bara að vera fólgin í klappi á bak- ið, t.d. þegar vel gengur í íþróttum eða í skólanum. Það að foreldrar taki virkan þátt í lífi barnsins er vænt- anlega ein sú mik- ilvægasta viðurkenn- ing sem hvert barn getur fengið. Hinn 29. ágúst mun Skíðasamband Íslands standa fyrir fyrirlestri þar sem fjallað verður um æfingar og þjálf- un barna og unglinga í skíða- íþróttinni. Farið verður yfir æf- ingar, skipulag og uppbyggingu þeirra og hvernig staðið hefur ver- ið að þjálfun barna og unglinga í skíðaíþróttinni í Noregi hin síð- ustu ár. Fyrirlesarar verða þeir Einar Witteveen og Jørund Li frá Noregi og verður fyrirlesturinn haldinn á ensku. Einar og Jørund hafa mikla reynslu af störfum sín- um fyrir Norska skíðasambandið og einnig hafa þeir haldið fyrirlestra víða um heim, fyrir Al- þjóðaskíðasambandið. Fyrirlesturinn er opinn öllum áhuga- sömum um börn og unglinga án gjalds og skráningar, á meðan húsrúm leyfir. Með því að fá þessa tvo herramenn til landsins vill Skíða- samband Íslands leggja sitt af mörkum til að auka þátttöku foreldra í leik og starfi barna sinna. Foreldrar eiga að hafa skoðanir á því hvernig æfingum og þjálfun barna sinna er háttað. Með því að mæta á fyrirlestur SKÍ, gefst foreldrum tækifæri á að kynna sér hvað nágrannaþjóðir okkar eru að gera fyrir börn og unglinga. Við hjá Skíðasambandi Íslands vonumst til að fylla fund- arherbergi ÍSÍ í Íþróttamiðstöð- inni Laugardal nk. sunnudag kl. 12.00 með áhugasömum foreldrum sem vilja taka virkan þátt í lífi barna sinna. Allar nánari upplýs- ingar eru á www.ski.is Foreldrar – sýn- um áhuga á því sem börnin okkar eru að gera! Friðrik Einarsson fjallar um þjálfun barna og unglinga í skíðaíþróttinni Friðrik Einarsson ’Á sama hátt sækjast börnin eftir viðurkenningu foreldra sinna. ‘ Höfundur er formaður Skíða- sambands Íslands. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jón Steinsson: „Það er eng- in tilviljun að hlutabréfa- markaðurinn í Bandaríkjun- um er öflugri en hlutabréfamarkaðir annarra landa.“ Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af markmiðum með stofnun þjónustumiðstöðva er bætt aðgengi í þjónustu borgar- anna.“ Jónas Gunnar Einarsson: „Áhrifalaus og mikill meiri- hluti jarðarbúa, svokallaður almenningur þjóðanna, unir jafnan misjafnlega þolinmóð- ur við sitt.“ Jakob Björnsson: „Mörg rök hníga að því að raforka úr vatnsorku til álframleiðslu verði í framtíðinni fyrst og fremst unnin í tiltölulega fá- mennum, en vatnsorkuauðug- um, löndum ...“ Tryggvi Felixson: „Mikil ábyrgð hvílir því á þeim sem taka ákvörðun um að spilla þessum mikilvægu verðmæt- um fyrir meinta hagsæld vegna frekari álbræðslu.“ Stefán Örn Stefánsson: „Ég hvet alla Seltirninga til kynna sér ítarlega fyrirliggj- andi skipulagstillögu bæjaryf- irvalda ...“ Gunnar Finnsson: „Hins vegar er ljóst að núverandi kerfi hefur runnið sitt skeið og grundvallarbreytinga er þörf ...“ Eyjólfur Sæmundsson og Hanna Kristín Stefánsdótt- ir: „Öryggismál í landbúnaði falla undir vinnuverndarlög og þar með verksvið Vinnu- eftirlitsins.“ Jakob Björnsson: „Með því- líkum vinnubrögðum er auð- vitað lítil von um sættir.“ Á mbl.is Aðsendar greinar ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.