Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 19
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 19 RÍKISENDURSKOÐUN telur að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri standist fyllilega samanburð við Landspítala – háskólasjúkrahús og hliðstæð bresk sjúkrahús, þegar met- in séu afköst og gæði þeirrar þjón- ustu sem veitt sé. Uppbygging á hús- næði sjúkrahússins hafi hins vegar verið ómarkviss undanfarin ár og al- mannafé illa nýtt. Þá hafi ekki tekist að halda kostnaði við rekstur sjúkra- hússins innan ramma fjárlaga. Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendur- skoðunar á sjúkrahúsinu er leitast við að meta starfsemi þess á árunum 1999–2002. Sérstaklega er horft til skilvirkni, afkasta og gæða þeirrar heilbrigðisþjónustu sem veitt er, en einnig til almenns rekstrar, stjórnun- ar og rannsókna. Til samanburðar er tekið mið af starfsemi Landspítala – háskólasjúkrahúss og nokkurra breskra sjúkrahúsa. Í skýrslunni kemur fram, að á Ak- ureyri sé almenn heilbrigðisþjónusta í meginatriðum í höndum sjúkrahúss og heilsugæslu. Þetta sé í raun annað fyrirkomulag en í Reykjavík þar sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar gegni stóru hlutverki. Þar leiti hver íbúi að jafnaði um fjórum sinnum oft- ar til sjálfstætt starfandi sérfræðinga en íbúar Akureyrar gera að meðal- tali. Fram kemur í úttektinni að ef Reykvíkingar notuðu þjónustuna í svipuðum mæli og Akureyringar myndi kostnaður vegna sérfræði- lækna lækka úr 1,7 milljörðum króna í um 400 milljónir eða um 1,3 millj- arða króna. Heilbrigðisyfirvöld verði að meta hvaða fyrirkomulag tryggi best hag- kvæmni og jöfnuð og stýra þróun heilbrigðiskerfisins í þá átt. Það meg- infyrirkomulag sem sé á Akureyri eigi sér stoð í ýmsum fyrirmælum stjórnvalda. Það hefur þann kost að vera einfalt og auðveldi það yfirsýn um þjónustuna og skipulagningu hennar. Árið 1994 var tekin fyrsta skóflu- stunga að nýju viðbótarhúsnæði sjúkrahússins. Vegna fjárskorts hafði aðeins ein af fjórum hæðum hússins verið innréttuð í lok árs 2002 og stóð það því að mestu ónotað. Þá hefur komið í ljós að vegna hönnunar nýtist húsnæðið afar illa fyrir legudeildir eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Rík- isendurskoðun segir, að óljóst sé hver beri ábyrgð á þessu ómarkvissa upp- byggingastarfi og þeirri fjársóun sem því tengist, en endanlega hljóti hún að liggja hjá fjárveitingavaldinu og heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að skilvirkni Fjórðungs- sjúkrahússins breyttist lítið á árun- um 1999 til 2002 þegar miðað sé við þann mannafla sem var til ráðstöfun- ar. Vegna launaþróunar innan sjúkrahússins fékkst hins vegar hlut- fallslega minni þjónusta miðað við þá fjármuni sem varið var til starfsem- innar í lok tímabilsins en í byrjun þess. Segir stofnunin, að ástæðu þessa megi þó fremur rekja til ytri aðstæðna en frammistöðu stjórnenda sjúkrahússins. Ríkisendurskoðun segir, að al- mennt sé ekki ástæða til að gera at- hugasemdir við afköst og eininga- kostnað Fjórðungssjúkrahússins. Hlutfallslega veiti það álíka mikla þjónustu miðað við fjármuni og mannafla og Landspítalinn og bresku sjúkrahúsin sem horft var til. Þá hafi samanburður einnig leitt í ljós að sjúklingum Fjórðungssjúkrahússins reiddi í fleiri tilvikum betur af eftir aðgerð en sjúklingum hinna sjúkra- húsanna. Þetta gefi til kynna að það veiti almennt góða þjónustu. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur lent í sömu stöðu og aðrar inn- lendar sjúkrastofnanir að útgjöld hafa aukist umfram fjárheimildir. Þyngst vegur aukinn launakostnaður en lyf og lækninga- og hjúkrunarvör- ur hafa einnig hækkað umtalsvert. Þá segir Ríkisendurskoðun, að ljóst sé að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verði að taka mið af þeim miklu umskiptum sem hafi orðið á rekstrarumhverfi þeirra, t.d. vegna tæknibreytinga, fólksflutninga og aukinna krafna um gæði þjónustu. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið þurfi hins vegar að stýra þeirri þróun á markvissan hátt þannig að veitt sé góð þjónusta á sem hag- kvæmastan hátt hverju sinni en til- viljanir séu ekki látnar ráða ferðinni. Þá kemur fram í úttektinni að einn af helstu möguleikum FSA til að þróa starfsemi sína sé að styrkja enn frek- ar hlutverk sitt sem bakhjarl og sam- starfsaðili smærri sjúkrahúsa á Norður- og Austurlandi. „Með því opnast leið til að veita fjölbreyttari þjónustu á þessum stöðum og nýta betur mannafla,“ segir í úttektinni. Ríkisendurskoðun um Fjórðungssjúkrahúsið Stenst fyllilega samanburð varðandi gæði og afköst AKUREYRI Mosfellsbær | Varmárskóli mun í vetur starfrækja leikskóladeild frá leikskólanum Reykjakoti. Alls verða þar 16 leikskólabörn í umsjá og kennslu hjá leikskólakennurum. Um er að ræða börn sem hafa verið í leikskólum bæjarins, flest í Reykjakoti, og eru þau öll 5 ára. Að sögn Gunnhildar Sæmunds- dóttur, leikskólafulltrúa í Mos- fellsbæ, hafa miklar umræður átt sér stað meðal skólafólks, yf- irstjórnar fræðslumála og foreldra um það hvort og með hvað hætti mætti styrkja og þróa starf meðal elstu leikskólabarnanna. Vilji kom fram hjá hópnum til að fara nýja leið og var að sögn Gunnhildar ákveðið að nýta það besta frá báð- um skólastigum, þ.e. leik- og grunnskóla, til að móta nýja nám- skrá fyrir 5 ára börn í Mosfellsbæ. Gæti ýtt undir mikla þróun Gunnhildur segir leikskóladeild í grunnskólanum gefa kennurum beggja skólastiga mikla möguleika á samvinnu og samstarfi. Í nám- skránni verður lögð áhersla á læsi hvers konar, undirbúning og örvun fyrir formlegt lestrarnám, stærð- fræði og talnaskilning, sam- skiptaþjálfun og rökhugsun. Þá verður lögð áhersla á tjáningu, framkomu og skapandi starf. „Þetta er þróunarverkefni sem bæði leikskóla- og grunnskólafólk mun koma að,“ segir Gunnhildur og bætir við að hópurinn muni hittast reglulega í vetur, skoða framvind- una og taka púlsinn á verkefninu og bæta í og draga úr eftir því sem þurfa þykir. „Við munum meta þetta í vetur bæði með tilliti til áframhalds fyrir næstu fimm ára börn og ekki síður með tilliti til fyrsta bekks í grunnskóla, hvaða undirbúning þau börn hafa fengið. Þetta er ekki bundið við þennan aldur heldur ætti þetta að geta ýtt á undan sér upp aldursstigann.“ Krakkarnir í leikskóladeildinni eru hinir hressustu með nýbreytnina. Leikskóladeild í Varmárskóla HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ                    5 6  4   %3    7  8    7 9 + 8  ':   8   (   4 (    ' ; '   <8  6 !  ! %/  6 %22%; 6  8    <8 !  ! 3  6 %22- =    '>  ( 7    (  8  < ; 6     9'>   '> ( ' !    ' '> <  6 >    8  6>  $ (     8   (   !   6 <!   8  + 8 ! ; ? 7   0; 4' ;   3   (    < 9  ; <      &    %22-;  <  <    8 :     ' '   $      ( ' 6  + 8 !          !" #  $  ,     '      >  4322    &    %22-    '    @'  + 8 ! ; ?   0; / '  (     '   9   <      '   <8  %1 (> %22- " #   %  &   %'( Bílskúrshurðir Iðnaðarhurðir Sími 594 6000 Bæjarflöt 4, 112 R.vík BIFREIÐASMÍÐI! Starfsmenn óskast! Áhugasamir umsækjendur hafi samband við Sigurjón Magnússon, framkvæmdastjóra, í síma 862-2295 eða skili skriflegum umsóknum með upplýsingum um starfsferil og menntun á netfanginu sigurjon@mtbilar.is Ó L A F S F I R Ð I MT bílar ehf. í Ólafsfirði óska að ráða starfsmenn í bifreiðasmíði. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og reynslu á sviði bifvélavirkjunar, bílasmíði, vélvirkjunar eða blikksmíði. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. MT bílar ehf. er ungt og vaxandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í smíði slökkvibifreiða og sjúkrabíla fyrir innanlandsmarkað og útflutning. Ein með öllu Spektro www.islandia.is/~heilsuhorn SENDUM Í PÓSTKRÖFU Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889, fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Árnesapóteki Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. Multivitamín, steinefnablanda ásamt spirulínu, Lecthini, Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum. ERFIÐLEIKAR hafa verið í rekstri Vélaverkstæðis Dalvíkur og ríkir nokkur óvissa með framtíð fyrirtæk- isins. Að sögn Ólafs Sverrissonar framkvæmdastjóra er framtíð fyrir- tækisins til skoðunar „en þetta leið- indastaða sem uppi er“. Öllum starfsmönnum Vélaverk- stæðis Dalvíkur, um 10 manns, var sagt upp störfum í vor og eru ein- hverjir þeirra hættir en aðrir að vinna sinn uppsagnarfrest. Fyrirtækið er bæði með bíla- og vélaverkstæði og hafa starfsmenn verið að vinna á heimaslóðum og einnig fyrir Sam- herja og Slippstöðina á Akureyri. Ólafur sagði að breytingar á útgerð- arháttum á Dalvík, þar sem minna er um landanir og þar með viðgerðar- verkefni, og samdráttur á Akureyri hefðu haft mikið að segja varðandi samdrátt í rekstri fyrirtækisins. Óvissa um reksturinn flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.