Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 49 ÞÓTT Medúlla, ný plata Bjarkar Guðmundsdóttur, komi ekki út fyrr í næstu viku eru þegar farnir að birt- ast dómar um hana í erlendum fjöl- miðlum. Gagnrýnin er almennt já- kvæð og segir á einum stað að um sé að ræða dásamlegt verk og Björk haldi enn völdum sem einn hæfi- leikaríkasti og sérstæðasti listamaður sinnar tegundar Kanadíska tímaritið Eye gefur Me- dúllu 5 stjörnur af 5 mögulegum og segir hana einlæga og frumstæða en alls ekki leiðinlegt og heildaráhrifin af óðum til náttúrunnar og frelsisins veki gleði. Blaðið segir að platan verði seint leikin í samkvæmum. Jafnvel sé hægt að flokka hana undir sinfóníur og líklega sé það eðlilegt skref fyrir Björk. Hún sé ávallt klædd eins og óperusöngkona og nú hafi hún sent frá sér plötu við hæfi. Vefurinn Soundgenerator.com gef- ur Medúllu 9 stjörnur af 10 og segir að um sé að ræða þroskaða en um leið afar tilraunakennda plötu. Hún sé framsækin og mjög ákveðin. Hún sé yfirveguð og nákvæm og hljómi með mismunandi hætti við hverja hlustun. Breska blaðið The Observer gefur plötunni 4 stjörnur af 5 og segir að mjög fáir popptónlistarmenn búi yfir þeim hæfileikum, að plötur þeirra beri sterk persónueinkenni en hljómi um leið öðruvísi en nokkuð annað sem gert hafi verið á jörðinni. Hafi ein- hver efast um að Björk sé í þessum hópi muni þessi ótrúlega plata sýna þeim fram á annað. Observer segir að fjögurra laga kafli sem hefjist á lag- inu „Where Is The Line“ sé einn sá besti sem heyrst hafi á plötum Bjark- ar. Meðal þessara laga er „Vökuró“ eftir Jórunni Viðar og lagið „Who Is It“ sem Observer spáir miklum vin- sældum. „Það er synd að platan nær ekki öll þessum gæðum. En sem bet- ur fer er þar nóg af slíku til að koma manni gegnum þá hluta sem hljóma eins og köttur með hárkúlu, þjóð- arleiðtogi í astmakasti, ET að nota raddruglara og árekstur rapparans Biz Markie og jólasálmakórs King’s háskóla í Cambridge,“ segir blaðið Breska blaðið The Times er ekki alveg eins hrifið og gefur plötunni 3 stjörnur af 5. Gagnrýnandi blaðsins segir, að það sé ekki alltaf auðvelt að vera aðdáandi Bjarkar sem búi ekki aðeins yfir mest töfrandi rödd í popp- tónlist heldur haldi hún fast við að gera nýjar hljóðatilraunir á plötum sínum. Á síðari árum hafi aðdáendur Bjarkar átt í erfiðleikum með að fylgja henni eftir á æ víðara tónlist- arsviði. Þótt það sé virðingarvert að selja ekki hugsjónir sínar sé kjána- legt af jafn hæfileikaríkum listamanni að vilja ekki selja plötur. Það hafi orð- ið raunin með Vespertine, sem kom úr 2001. The Times segir að milli sér- kennilegra hljóða á Medúllu heyrist í hinni klassísku, vinsældalistavænu Björk. Vandamálið sé, að eftir því sem Björk nálgist meira laglínur langi menn meira til að hlusta á göm- ul lög á borð við „Big Time Sensua- lity“. TENGLAR ..................................................... www.bjork.com Tónlist | Medúlla Bjarkar fær góða dóma Einlæg og tilraunakennd AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Ofurskutlan Halle Berry er mætt klórandi og hvæsandi sem Catwoman sem berst við skúrkinn Laurel sem leikin er af Sharon Stone. KRINGLAN Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20. 47.000 gestir ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.20 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6 og 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 6 og 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i 14 ára. Þeir hefðu átt að láta hann í friði. ir f tt l t í fri i. Sló rækilega í gegn í USA KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6 og 8. KRINGLAN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. AKUREYRI Sýnd kl. 10. MEÐ ÍS LENSKU TALI ÁLFABAKKI ýnd kl. 8 og 10.20. B.i 14 ára. KRINGLAN Sýnd kl. 10. B.i 14 ára.  G.E. sland í bítið/Stöð 2  Kvikmyndir.com .K., Skonrokk SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA. I I I I Í I I . ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 FrumsýningFrumsýning Frumsýning Frumsýning Frábær rómantísk gamanmynd með Julia Stiles. Hvað ef draumaprinsinn væri raunverulegur prins? Jason Bourne er kominn aftur og leitar hefnda í frábærum hasartrylli. Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin átakaatriði. Spennandi ævintýramynd í anda „Spy Kids“ myndanna. Spennandi ævintýramynd í anda „Spy Kids“ myndanna. HALLE BERRY ER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.