Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hefur þú nokkuð verið að nota hann, Dísin mín, ég finn bara hvergi drullusokkinn minn. Á samráðsfundi heil-brigðis- og félags-málaráðherra Norðurlandanna á Egils- stöðum á dögunum og fundi forsætisráðherra skömmu áður kom fram eindreginn vilji til að sam- ræma stefnu í áfengismál- um landanna og var ákveð- ið að taka upp þráðinn á aukafundi í Kaupmanna- höfn í október nk. Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra sagði af þessu tilefni: „Það eykst stöðugt þrýstingur á Norð- urlöndin frá umhverfinu að slaka á þessu, lækka tolla og lönd sem liggja að Norðurlöndunum hafa lækkað sína tolla.“ Vandamálið væri m.a. fólgið í landamæraverslun með áfengi á Norðurlöndunum og til nærliggj- andi ríkja. Að sama skapi hefur verið á það bent að offramleiðsla er á léttu víni víða í Suður-Evrópu. Með sameiginlegri áfengisstefnu séu Norðurlandaþjóðirnar að reyna að skapa mótvægi við stefnu Evrópusambandsins um frekari lækkun tolla. Álögur á áfengi hér á landi eru með því hæsta sem þekkist og hærri en víðast hvar á Norðurlönd- unum ef marka má tölur frá Sam- tökum ferðaþjónustunnar. Sam- tökin bentu nýverið á að áfengisgjald af einum lítra af létt- víni (12% styrkleiki) er hæst á Ís- landi, rúmar 500 krónur, en að sama skapi rétt um eða yfir 200 krónur í Svíþjóð og Finnlandi og innan við 100 krónur í Danmörku. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri SAF, segir að sam- tökin vilji stórlækkun á áfengis- gjaldi og að Íslendingar búi við sama rekstrarumhverfi og ná- grannaþjóðirnar. Á fundi viðskipta- og hagfræði- deildar HÍ og Félags íslenskra stórkaupmanna í vor undir yfir- skriftinni: „Eru skattar á áfengi of háir á Íslandi?“ sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur að lækki verð á áfengi um 10% megi gera ráð fyrir að neyslan aukist um 15– 20%. Óbeinn kostnaður vegna áfengisneyslu næmi að líkindum um 8,5 milljörðum á ári en tekjur ríkissjóðs af áfengisgjaldi væru 11,2 milljarðar. Ráða engu um áfengisverð Örn Stefánsson, innkaupastjóri áfengis hjá ÁTVR, segir að í um- fjöllun um áfengi sé yfirleitt ekki tekið tillit til þess að stofnunin hafi ekkert með verðlagningu að gera. Álögur ÁTVR séu ákveðnar af fjármálaráðuneytinu. Áfengisgjaldi er skipt upp í þrjá flokka: Í sterku víni er styrkleiki vínsins og flöskustærð margfölduð með 66,15 kr. (Dæmi: 66,15*40(%) *0,75(cl)=1995 kr.) og fæst þá áfengisgjald á tiltekna vöru. Í bjór eru 2,25% dregin frá styrkleika bjórsins (styrkleiki pilsners) og margfaldað með 58,7 kr. og flöskustærð (t.d. 0,5 l) og í léttvíni eru 2,25% dregin af styrk- leika vínsins og margfaldað með 52,8 kr. og flöskustærð. Þá bætist við álagning ÁTVR í smásölu sem er 13% á léttvín og bjór og 6,85% á sterk vín, miðað við 22% styrk- leika, en í áfengisgjaldinu er miðað við 15%. Við bætist 24,5% virðis- aukaskattur. Örn segir að vaxandi samkeppni sé meðal heildsala í sölu á bjór og nú síðast á svo- nefndu kassavíni (rauðvíni og hvít- vín í kössum). Svigrúm til lækk- unar á áfengi er því eins og sakir standa í höndum birgjanna og þar gætir samkeppni í ákveðnum teg- undum bjórs og léttra vína sem sum hver hafa lækkað í verði. Í fjármálaráðuneytinu fengust þau svör að engin áform væru uppi um lækkun áfengisgjalds og að áfengisgjald á léttvín og bjór hefði í raun lækkað um 30% að raungildi frá 1998. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn- ir á SÁÁ, líkti áfengisgjaldi, á fyrr- nefndum fundi viðskipta- og hag- fræðideildar og FÍS í vor, við spilliefnagjald, og minnti á að hugsunin að baki gjaldinu væri sú að þeir sem neyttu áfengis tækju þátt í kostnaðinum sem af neyslu áfengis hlytist. Hvort heldur sem álögur á áfengi lækka á komandi árum eða ekki, eru flestir sammála um að æ erfiðara verður fyrir Norðurlöndin að réttlæta áfengisstefnu sína og háa tolla. Fréttaskýring | Verðlagning á áfengi Neysluvara eða spilliefni? Ráðherrar Norðurlandanna vilja stilla saman strengi í áfengismálum Áfengisgjald á léttu víni hefur lækkað. Álögur með því hæsta sem þekkist  Álögur á áfengi á Íslandi eru með því hæsta sem þekkist. Verð á flösku af argentísku rauðvíni (13% að styrkleika) sem kostar út úr verslun ÁTVR kr. 1.290 skipt- ist sem hér segir: Innkaupsverð og heildsöluálagning birgja kr. 484,60, áfengisgjald kr. 425,70 og skilagjald kr. 9,73. Ofan á þetta reiknast 13% álagning ÁTVR í smásölu og að lokum bætist við 24,5% virðisauka- skattur. kristjan@mbl.is "      #  $  # %&     #$$%% %&% "    " '$%  &  ( " $)$* ""$ ")% +( ",  $) -!$, &  '   $ ") .   &/0 ""$ ") '  $ ") .   &/0 ""$ ") (  ) $ ") .   ""$ ") &/0 (  $ ") .   ""$ ") &/0 % % % %  % % % %                          Verð: 39.900kr. 2 fyrir 1 * ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 56 49 08 /2 00 4 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. Haustsólin Örfá sæt i - bó kaðu stra x! Kynntu þér málið á www.urvalutsyn.is eða í síma 585-4000. Tilboðið gildir í brottfarir 31. ágúst - 16. sept. Einungis valdir gististaðir á tilboði. Fleiri en tveir? Verð á mann er óháð fjölda í gistingu. til Portúgal, Mallorca eða Costa del Sol á mann í stúdíói í 7 nætur. Aukavika: 19.900 kr. Verð: 46.900kr.* á mann í íbúð í 7 nætur.Aukavika: 24.900 kr. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.