Morgunblaðið - 27.08.2004, Page 20
MINNSTAÐUR
20 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skólatölvurnar
eru komnar
í Odda
Tölvukaupalán Íslandsbanka
Verð 5.595 kr. á mánuði með
tölvukaupaláni Íslandsbanka.
M.v. 35 mánaða lán,
meðalgreiðsla.
Fartölvutaska fylgir að auki
með tölvukaupalánum
Íslandsbanka.
HP Compaq nx9105 15”
Verð: 159.900
MP3
geisla-
spilari fylgir
Verslun Odda • Höfðabakka 3 • Sími: 515 5105 • www.oddi.is
Grindavík | Beitarhólf fyrir fé Grindvíkinga
verður girt af í nágrenni Krýsuvíkur og jafn-
framt verður sett bann við lausagöngu búfjár í
landi Grindavíkur. Með því verður lausaganga
búfjár bönnuð á öllum Reykjanesskaganum og
í meginhluta Landnáms Ingólfs.
Vegagerðin greiðir kostnað
Í gær var skrifað undir samning Grindavík-
urbæjar, Hafnarfjarðarbæjar og Vegagerðar-
innar um uppsetningu beitarhólfs. Hólfið er
ætlað fyrir fé Grindvíkinga en kemur að hluta
til inn á land Hafnfirðinga í Krýsuvík. Vega-
gerðin kostar uppsetningu hólfsins og Land-
græðslan hefur umsjón með því. Andrés Arn-
alds, fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, segir
að Vegagerðin sjái sér hag í því að taka þátt í
samningum af þessu tagi því mun ódýrara sé
að koma upp beitarhólfum en girða meðfram
vegunum. Með þessu eina hólfi hafi Vegagerð-
in getað losnað alveg við fé af Reykjanesbraut-
inni, Grindavíkurvegi, Kleifarvatnsvegi og fyr-
irhuguðum Suðurstrandarvegi.
Andrés kveðst ánægður með þessa niður-
stöðu. Unnið hafi verið að því í tuttugu ár að
banna lausagöngu búfjár á Reykjanesskagan-
um. Grindavík hafi verið eftir, eitt sveitarfélag-
anna, og ánægjulegt að hægt sé að friða svona
mikið land. Með tilkomu þessa beitarhólfs
verði einnig hægt að taka upp tugi kílómetra af
eldri girðingum sem séu til lýta í landinu.
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grinda-
vík, telur að fjáreigendur séu orðnir sáttir við
að hafa fé sitt í beitarhólfi. Bændur á lögbýlum
og tómstundabændur í þorpinu eiga samtals
um 500 vetrarfóðraðar kindur. Ólafur segir að
áfram verði farið í göngur og fénu smalað til
réttar í Grindavík og vonast til að réttas-
temmningin haldist.
Auðveldar landgræðslustarf
Í sumar hefur verið unnið við uppgræðslu í
fyrirhuguðu beitarhólfi til að undirbúa jarð-
veginn fyrir næsta ár og er fyrirhugað að halda
því starfi áfram á næstu árum. Andrés Arnalds
segir að hluti landsins sem fer undir beitarhólf-
ið sé illa farinn en með landgræðslustarfi á
vegum sveitarfélaganna í sumar og næstu ár
megi bæta ástandið mikið. Hann segir að víða á
Reykjanesskaganum sé gróðureyðing og hafi
lengi verið og kærkomið að fá þetta stóra svæði
alveg friðað fyrir beit búfjár.
Unnið er að undirbúningi þess að koma fé úr
Selvogi og Ölfusi í beitarhólf. Eftir það verður
bann við lausagöngu búfjár í meginhluta Land-
náms Ingólfs eins og lengi hefur verið stefnt
að. Andrés segir að þessar aðgerðir muni auð-
velda Landgræðslunni, sveitarfélögunum,
skógræktarfélögum og öðru áhugafólki upp-
græðslu og plöntun trjáa á Reykjanesi.
Bann við lausagöngu búfjár á öllum Reykjanesskaganum og meginhluta Landnáms Ingólfs
Girt beitarhólf fyrir
fé Grindvíkinga
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Réttir: Þótt féð verði afgirt verður áfram farið í göngur og fé smalað til Þórkötlustaðaréttar.
SUÐURNES
AUSTURLAND
Kverkfjöll | Ferðafélög Fljótsdalshéraðs og
Húsavíkur hafa látið bora neysluvatnsholu í
Kverkfjöllum. Boraðar voru tvær holur. Sú
fyrri gaf ekki árangur, en úr síðari holunni,
sem er um 1 km vestan við Sigurðarskála
koma 35 sekúndulítrar vatns á 38 m dýpi.
Jarðboranir sáu um verkið.
Þórhallur Þorsteinsson hjá Ferðafélagi
Fljótsdalshéraðs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að borunin stæði undir væntingum.
Næst væri að grafa niður vatnslögn að skál-
anum, koma fyrir vatnstanki og kaupa rafstöð,
en dæla þarf vatninu upp úr holunni. Búast má
við að heildarkostnaður nemi á bilinu þremur
til þremur og hálfri milljón króna.
Áður notast við yfirborðsvatn
Unnið verður í framkvæmdinni í haust og
næsta vor og stefnt að því að vatnsveitan verði
tilbúin fyrir ferðamannatímabilið næsta sum-
ar.
Sigurðarskáli í Kverkfjöllum hefur fram að
þessu notast við yfirborðsvatn í 3,5 km fjar-
lægð, en slíkt uppfyllir ekki lengur skilyrði
heilbrigðisyfirvalda, segir Þórhallur.
„Það hefur verið frekar ótryggt þótt alltaf
hafi sloppið til að væri nægt vatn. En nú eru
heilbrigðiskröfur orðnar miklu strangari en
verðar upplýsingar fyrir jarðvísindamenn,
vegna sýnatöku úr borholunum. Bæði Orku-
stofnun og Háskólinn á Akureyri hafa sýnt því
áhuga, að sögn Þórhalls. Þess má og geta að í
vor var við Sigurðarskála komið fyrir full-
komnu hreinlætishúsi með salernum og sturt-
um, sem leysir af hólmi eldri og mun minni að-
stöðu.
áður var. Við erum til dæmis á núna að ganga
frá vatnsveitum við alla skála Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs.“
Gefur vísindamönnum
nýjar upplýsingar
Þórhallur segir þetta í fyrsta skipti sem bor-
að er í Kverkfjöllum og því fáist nú umtals-
Vatn í Sig-
urðarskála
Ljósmynd/Þórhallur Þorsteinsson
Borað í Kverkfjöllin: Ferðafélögin létu bora eftir neysluvatni við Sigurðarskála og fengu vatn.
Reyðarfjörður | Búið er að hleypa umferð á
nýtt hringtorg innan við þéttbýlið á Reyðar-
firði, skammt innan við Kollaleiru og mun
þetta vera fyrsta hringtorgið sem byggt er
á Austurlandi.
Einar Þorvarðarson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á Austurlandi, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hringtorgið
væri meðalstórt. „Það verða fjórir armar út
frá torginu“ segir Einar. „Þegar ekinn er
Norðfjarðarvegur frá Egilsstöðum geta
menn valið þrjár leiðir. Fyrst til suðurs,
kallað Hjallanes sem er nýtt iðnaðarhverfi
sem kemur á nesinu. Sú leið verður í fram-
tíðinni tenging til Fáskrúðsfjarðar. Við
reiknum með að þar komi ný tvíbreið brú á
Sléttuána sem verði byggð alveg úti undir
sjó. Næsta tenging liggur niður á hafnar-
svæðið á Reyðarfirði, á svokallaða hjáleið
sem við höfum verið að gera neðan við
byggðina og ætlast er til að stórir flutn-
ingabílar fari þar um. Þriðji armurinn er
svo þjóðvegurinn sem liggur áfram í gegn-
um Reyðarfjörð.“
Einar segir torgið virka sem hraða-
hindrun og deila umferðinni með öruggum
hætti. „Verkið eins og verið er að vinna
þetta núna, torgið og tengingarnar inn á
nema í heildina á bilinu 20 til 25 milljónum
króna“ segir Einar og á ekki von á að fleiri
hringtorg verði byggð eystra í bráð.
Fyrsta hringtorgið
á Austurlandi