Morgunblaðið - 27.08.2004, Side 21
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 21
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
56
70
08
/2
00
4
E-kortshafar fá 2,5% endurgreiðslu
af því sem keypt er í Debenhams.
Nýtt og freistandi
í Debenhams
Þegar þú klæðist vönduðum og vel sniðnum kvenfatnaði frá
Dominique er vaxtarlag ekkert vandamál. Þessar frábæru
vörur, í stærðum 40-56, fást nú hjá Debenhams og auka
enn á ótrúlega fjölbreytt vöruúrval í kvenfatadeild.
Njóttu þess
að vera þú sjálf
Hrunamannahreppur |
Húsakynni við Gull-
fosskaffi hafa nýlega
verið stækkuð veru-
lega. Tekinn hefur ver-
ið í notkun 300 fer-
metra veitingasalur. Öll
aðstaða til veit-
ingareksturs við Gull-
foss er því orðin mjög
góð.
Árið 2000 byggðu
hjónin Elva Björk
Magnúsdóttir og Svav-
ar Njarðarson 150 fer-
metra veitingaskála
skammt frá Sigríð-
arstofu og hófu þar
veitingarekstur. Strax í upphafi
gekk reksturinn vel og þeim var
ljóst að þörf var fyrir slíka þjónustu
við Gullfoss. Árið eftir byggðu þau
50 fermetra viðbyggingu og nú
hafa þau byggt 310 fermetra við
húsið, rúmgóðan veitingasal og
snyrtingar.
„Við vorum fyrstu veturna í
Reykjavík og lokuðum yfir vetr-
artímann en ákváðum síðan að
byggja hús í Brattholti og flytja
hingað austur og hafa opið allt ár-
ið,“ segir Svavar en hann er fæddur
og alinn upp í Brattholti en jörðin á
land að Gullfossi. „Við erum með
rúmgott eldhús hér sem er búið nýj-
um tækjum, þar er allt sem til þarf
fyrir svona rekstur. Við bjóðum
uppá fjölbreyttan matseðil, hér er
hægt að fá m.a. súpur samlokur,
kaffi og kökur, öl og sælgæti. Veit-
ingar sem hægt er að afgreiða fljótt
og íburðarmeiri máltíðir.“
Svavar segir að gamla góða kjöt-
súpan sé gríðarlega vinsæl. Það sé
enda lagt mikið í hana. Grænmetið
er keypt hér í uppsveitunum og
lambakjötið í næsta sláturhúsi.
Í Gullfosskaffi er minja-
gripaverslun þar sem úrval er mik-
ið, íslensku handverki er haldið sér
til aðgreiningar en ágætt úrval er
einnig af því. Að sjálfsögðu er mik-
ið úrval póstkorta og plakata þar
sem myndir af þessum einstaka
fossi eru í fyrirrúmi. Þá segir Svav-
ar að í vetur sé ætlunin að fegra og
snyrta við veitingaskálann. Þar
verði að vanda vel til. Að Gullfossi
komi gífurlegur fjöldi fólks á
hverju ári sem teljist í hundruðum
þúsunda. „Þessi einstaka nátt-
úruperla er öllum ógleymanleg sem
hana líta,“ segir Svavar, veit-
ingamaður við Gullfoss.
Nýr veitingasalur í Gullfosskaffi
Góður staður: Gullfosskaffi tekur nafn af náttúruperlunni kunnu.
Gamla góða
kjötsúpan vinsæl
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundson
Vertarnir: Elva Björk og Svavar í versluninni.
LANDIÐ