Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 23
Hjónin Friðrik V. Karlssonog Arnrún Magn-úsdóttir hafa rekið veit-ingastaðinn Friðrik V á
Akureyri sl. þrjú ár og hefur stað-
urinn verið í sókn frá þeim tíma.
Friðrik V var opnaður 25. júlí 2001
á 31. afmælisdegi Friðriks, sem er
matreiðslumeistari staðarins, „en
konan er forstjóri“, bætir hann við.
Friðrik lauk námi í Reykjavík fyrir
10 árum en hefur frá þeim tíma
starfað á helstu á veitingahúsum á
Akureyri og að auki flakkað víða er-
lendis. Hann sagði að rekstur Frið-
riks V hefði gengið ljómandi vel og
um 40% viðskiptavina eru heima-
menn. Þegar hann lauk námi fyrir
10 árum voru kjötréttir allsráðandi
á matseðlinum en í dag er hlutfallið
á milli fisk- og kjötrétta það sama
hjá honum.
Friðrik sagði þrjú atriði skipta
höfuðmáli fyrir matreiðslumann.
Hann þarf að vita sem mest um það
hráefni sem hann er að vinna með,
hvenær það er best og hvað hentar
með því. Í öðru lagi fagleg vinnu-
brögð, þekkja hefðirnar á bak við
hráefnið, hvernig það er
eldað. „Ef þessi
tvö atriði eru í
lagi, kemur að
hjartanu. Þú þarft
að hafa ástríðu og
getað eldað með
hjartanu.“
Súkkulaðibúð-
ingurinn vinsæll
Spurður um vinsæl-
asta rétt staðarins
sagði Friðik að aðeins
einn réttur hefði verið á
matseðlinum frá upphafi
og að hann yrði aldrei
tekinn af matseðilnum.
„Þetta er eftirréttur, heit-
ur súkkulaðibúðingur og
það er krafa kvenkyns-
viðskiptavina að hann sé á mat-
seðlinum. Karlmönnum finnst hann
þó líka góður. Einnig er svokallaður
sælkeraseðill vinsæll. Það er fimm
rétta matseðill sem fólk treystir mér
til að ákveða. Ég kem með matinn á
borðið og kynni fyrir fólki hvað það
er að fara að borða.“
Friðrik hefur farið utan í janúar
undanfarin ár, til þess að kynnast
matarmenningu annarra þjóða, á
Englandi, Ítalíu og Spáni, og er
Friðrik V lokaður í um tvær vikur á
meðan. Einnig hefur hann fengið til
sín bæði innlenda og erlenda gesta-
kokka. „Það hefur fallið í góðan
jarðveg og þá skiptir engu máli á
hvaða árstíma þeir koma, það er
alltaf fullt.“
Erlendis hefur hann unnið sem
gestakokkur, heimsótt matvælafyr-
irtæki og sótt námskeið í kokka-
skólum. „Það er alveg nauðsynlegt
fyrir mig að fara í þessar ferðir og
þetta heldur manni á tánum.“ Frið-
rik hefur einnig verið duglegur að
miðla af reynslu sinni. „Ég hef hald-
ið 5–10 matreiðslunámskeið á ári,
fyrir ýmsa hópa og staðið fyrir nám-
skeiðum í konfektgerð.
Þá er starfræktur mjög virtur
klúbbur hér innanhúss, Mat-
reiðsluklúbbur karlmanna. Til að
komast í klúbbinn þarf viðkomandi
karlmaður að vera orðinn tvítugur,
hafa skrifleg meðmæli frá konu um
að hann geti eitthvað í eldhúsinu og
þá má alls ekki koma á bíl á fundi.
Félagsmenn eru þegar um 50 talsins
og komast færri að en vilja.“
Hráefnið úr nágrenninu
Friðrik leggur mikla áherslu á að
nota það hráefni sem fæst á Ak-
ureyri og í næsta nágrenni í sína
matargerð, bláskel úr Eyjafirði,
fisk, lambakjöt og fleira. „Þá held
ég áfram að leita út í náttúruna eftir
hundasúrum, villtum sveppum, berj-
um, rabarbara, kryddjurtum og ís-
lenskum kartöflum. Nú er kartöflu-
vertíð í gangi og smælki er það
besta sem maður fær.“ Friðrik sagð-
ist vera rétt staðsettur, í mekka
matvælaframleiðslu í landinu. „Það
eru í raun forréttindi að fá að gera
það sem maður vill gera, í sínum
heimabæ og ég tala nú ekki um þeg-
ar maður hefur fólkið með sér.“
Friðrik gefur lesendum uppskrift
að carpaccio sem hann bjó til eftir
Ítalíuferð en carpaccio var fyrst bú-
ið til 1961 á veitingastaðnum Harrys
bar í Feneyjum af matreiðslumann-
inum Giuseppe Cipriani. Réttinn
nefndi hann eftir frægum ítölskum
listmálara sem hét Vittore Carpac-
cio og var þekktur fyrir að nota
rauða málningu. Þunnt skornu
rauðu ungnautasneiðarnar, sem
Giuseppe raðaði á disk, minntu
hann á málverk eftir Vittore. Frið-
rik notar hins vegar kindakjöt í
þessar þynnur, sem að hans mati
hentar mjög vel.
VEITINGAHÚS|Friðrik V á Akureyri
Eldað af ástríðu
Freistandi:
Carpaccio
réttur Frið-
riks V.
Karlssonar.
krkr@mbl.is
Hjónin: Arnrún Magnúsdóttir og Friðrik V. Karlsson
Morgunblaðið/Kristján
Kindaþynnur með lime-
legnu salati og
parmesanosti
(fyrir fjóra)
1 kinda innanlærisvöðvi
½ dl góð ólífuolía
3 til 4 kvistir ferskt blóðberg
(timjan)
2 til 3 kvistir fersk bergminta
(origano)
örlítið sjávarsalt, mulið
nýmulinn svartur pipar
4 bollar blandað salat
1 lime
60 gr parmesanostur
Nuddið kryddjurtunum, piparn-
um og olíunni á vöðvann setjið í
djúpan bakka, saltið örlítið og
geymið í kæli yfir nótt áður en vöðv-
inn er eldaður örsnöggt þannig að
hvergi sjáist hrátt en eldunarröndin
á samt ekki að vera stærri en 2 mm
þegar kjötið er sneitt. Setjið vöðv-
ann í frysti í 2 til 3 tíma þannig að
auðveldara sé að skera hann þunnt,
hann á samt ekki að frjósa í gegn,
skerið vöðvann þunnt þvert á og
raðið þynnunum á disk, hellið mjórri
rönd af ólífuolíunni yfir, skolið sal-
atið vel í köldu vatni og þerrið.
Kreistið lime safa yfir, örlítið af
ólífuolíu salti og sykri, setjið salatið
ofan á þynnurnar og að lokum er
parmesanosturinn rifinn yfir og
rétturinn borinn fram.
Höfum kaupanda að einbýlishúsi í Lundunum. Eignin má kosta
frá 24 - 26 millj. Kaupandi á glæsilegt raðhús í Móunum. Uppl
veitir Sigurður Karl í síma 866 9958.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Höfum traustan kaupanda að nýlegu einbýlishúsi eða húsi í bygg-
ingu. Eignin má kosta frá 35-45 millj. Eignin þarf að vera yfir 220
fm að stærð. Nánari uppl veitir Sigurður Karl í síma 866 9958.
GARÐABÆR - ÁSLAND
GARÐABÆR - LUNDIR
SKIPTI Á RAÐHÚSUM Í MÓUNUM
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Grétar, sími 696 1126.
SELTJARNARNES - VESTURBÆR
Mér hefur verið falið að leita eftir ein-
býlishúsi á Seltjarnarnesi eða í vesturbæ
Reykjavíkur fyrir ákveðinn kaupanda,
sem búinn er að selja og getur boðið
sterkar greiðslur.
Verð allt að 33,0 millj.
Áhugasamir vinsamlegast hafi sam-
band og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396,
lögg. fasteignasali.
ÍBÚÐ ÓSKAST Í
TJARNARMÝRI - GRÆNAMÝRI
SELTJ.NESI
Mér hefur verið falið að leita eftir 3ja herb.
íbúð við þessar götur. Um er að ræða
fjársterka aðila sem eru tilbúnir að veita
ríflegan afhendingartíma sé þess óskað.
Verðhugmynd 17-18 millj.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband
og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Höfum verið beðin að útvega traustum kaupanda
200-300 fm einbýlishús eða raðhús í Fossvogi,
Kópavogi, Garðabæ eða Seltjarnarnesi.
Sterkar greiðslur í boði.
Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir,
fasteignasali.
SÉRBÝLI ÓSKAST
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn