Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 33 ✝ Rúnar Búi Jök-ulsson fæddist í Reykjavík 6. mars 2004. Hann lést 12. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Rúnars Búa eru Vala Ósk Ólafsdóttir, f. 31.10. 1982 og Jökull Viðar Harðarson, f. 10.10. 1978. Bróðir Rúnars Búa er Viktor Ingi, f. 21.5. 2002. Foreldrar Völu Óskar eru Erna Björg Baldursdóttir, f. 19.12. 1958 og Ólaf- ur Ingi Óskarsson, f. 25.6.1958. Fósturforeldrar Jökuls Viðars eru Magnea Ingólfsdóttir, f. 24.7. 1947 og Viktor Hjálmarsson, f. 27.5. 1946. Foreldrar Jökuls Viðars eru Margrét Þorkelsdóttir, f. 25.7. 1952, maki Eiríkur Þorláksson, f. 30.11. 1953 og Hörð- ur Magnússon, f. 15.8. 1957, maki El- ísabet Þorsteinsdótt- ir, f. 14.3. 1959. Bræður Völu eru Baldur, f. 20.5. 1977, Ólafur Unnar, f. 19.1. 1989 og Óskar Markús, f. 19.5. 1995. Hálfsystur Jökuls sammæðra eru Eva Dögg, f. 30.7. 1974 og Alma, f. 17.11. 1991. Hálfsystkini Jökuls samfeðra eru Þorsteinn Búi, f. 2.1. 1982, Kristín Ásta, f. 26.5. 1987, Hallgrímur Þór, f. 27.4. 1989 og Gunnar Pét- ur, f. 29.9. 1991. Útför Rúnars Búa verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. Elsku hjartans litli Rúnar Búi. Við glöddumst við þitt bjarta bros. Við þökkum fyrir þá birtu og gleði sem þú færðir okkur á þinni stuttu ævi. Hvíl í friði. Afi og amma. Elsku litli frændi, Lífið er hverfult og það sárt er að horfa á eftir litlum manni eins og þér, sem áttir allt lífið framundan. Við sem sitjum eftir og lítið skiljum, vonum að þér líði vel á nýjum stað og biðjum góðan guð að passa vel uppá þig. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín; líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. (Steingrímur Thorsteinsson.) Elsku Jökull, Vala og Viktor Ingi. Megi allt gott umvefja ykkur og hjálpa á þessum erfiðu tímum. Hadda frænka og Hreiðar Nói. Mér fannst svaka vænt um frænda minn sem brosti alltaf út að eyrum þegar hann sá mig. Ég vildi að hann hefði ekki farið frá okkur. Rúnar Búi, ég skal alla tíð reyna að passa Viktor Inga, pabba þinn og mömmu þína. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Þinn frændi, Óskar Markús. Okkur var mjög brugðið föstu- dagsmorguninn 13. ágúst, þegar við fengum hringingu og okkur var til- kynnt að hann Rúnar Búi væri dá- inn. Það var svo margt sem flaug um hugann, en fátt sem hægt var að segja. Hvernig mátti það vera að hann Rúnar Búi litli væri dáinn? Hvernig getur lífið verið svona ósanngjarnt? Við hittum Rúnar Búa ekki svo oft á hans stuttu ævi. En þrátt fyrir það fannst okkur við alltaf eiga svolítið í litla gaurnum alveg eins og í Viktori Inga, og það var alltaf gaman að sjá bræðurna þegar við komum í heim- sókn, hvort sem það var í Mos- fellsbæinn, á Laugarvatn eða í nýju íbúðina í Ljósheimum. Rúnar Búi var stór og mannalegur strákur og við töluðum stundum um að við mættum eiga von á að hann færi að hlaupa um gangana, þótt hann væri aðeins nokkurra mánaða gamall. Elsku Vala Ósk, Jökull og Viktor Ingi. Við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur og fjölskyldur ykkur á þessum erfiðu tímum. Ykkar vinkonur Bára Huld og Oddný. Þess minnist ég, að mér og þessum heimi kom misjafnlega saman fyrr á dögum. Og beggja mál var blandið seyrnum keimi, því báðir vissu margt af annars högum. Svo henti lítið atvik einu sinni, sem okkur, þessa gömlu fjandmenn sætti: að ljóshært barn, sem lék í návist minni, var leitt á brott með voveiflegum hætti. Það hafði veikum veitt mér blessun sína og von, sem gerði fátækt mína ríka. Og þetta barn, sem átti ástúð mína, var einnig heimsins barn og von hans líka. Og við, sem áður fyrr með grimmd í geði gerðum hvor öðrum tjón og falli spáðum, sáum það loks í ljósi þess, sem skeði, að lífið var á móti okkur báðum. Nú ölum við ei lengur beiskju í barmi né byrgjum kala neinn í hjörtum inni, því ólán mitt er brot af heimsins harmi, og heimsins ólán býr í þjáning minni. (Steinn Steinarr.) Elsku Vala, Jökull, Viktor Ingi og fjölskylda. Hlýjustu samúðarkveðj- ur. Hugur okkar er með ykkur. Ásdís, Jón Daði og fjölskylda. Elsku litli Rúnar Búi. Við þekktumst eiginlega ekki neitt, en samt finnst mér ég hafa þekkt þig þessa 5 mánuði sem þú átt- ir í þessu lífi. Ég og Erna Björg amma þín, vinnum saman í Lands- bankanum og þegar þú fæddist, hringdi amma þín til mín og sagði mér að fæddur væri lítill drengur. Síðan fengum við að sjá myndir af þér. Svo kom skírnin þín og margar myndir fengum við að sjá úr henni, mikið varstu í fallegum skírnarkjól. Þú komst í Landsbankann í nokkur skipti að heimsækja ömmu þína. Þegar þú komst síðast, þá vorum við „kerlingarnar“ allar að kjá í þig. Þér fannst við greinilega alveg óskaplega „skemmtilegar“ því þú brostir alveg út að eyrum. Elsku litli Rúnar Búi, þegar stórt er spurt, er lítið um svör. En af hverju þú, sem rétt varst að byrja líf- ið? – Guð hefur greinilega vantað fal- legan engil í barnakórinn sinn, og þú varðst fyrir valinu í þetta sinn. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti þér, af Guðrúnu langömmu þinni og Baldri langafa þínum og vefja þau þig örmum sínum. Kæra Vala Ósk, Jökull, Viktor Ingi, Erna Björg mín, Óli og aðrir aðstandendur, ég bið góðan Guð að gefa ykkur styrk til þess að komast yfir þennan mikla missi. Vertu Guði falinn um alla eilífð, litli engill. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Innilegar samúðarkveðjur frá gjaldkerum í Landsbanka, Aðal- banka. Helga Nielsen. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Elsku Vala Ósk, Jökull og Viktor Ingi. Við sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum góð- an guð um að veita ykkur styrk í sorginni. Erla Dögg og Fannar Geir. Litli frændi minn hann Rúnar Búi var voða sérstakt kríli. Stundum grét hann en suma góða daga hló hann allan daginn. Ég átti mjög mikið í Rúnari Búa því ég hélt honum undir skírn. Þegar almættið tók hann og ég frétti af þessum sorglega atburði, þá varð ég alveg stífur og gat varla hreyft mig. En við vitum öll að honum líður vel núna. Ég veit að Drottinn mun vernda og passa hann og fjölskyldu hans að eilífu. Ólafur Unnar Ólafsson. Þegar við mæðgurnar liggjum úti í snjónum í vetur, búum til engla og horfum upp í himininn, ætlum við að senda þér fingurkoss þegar við sjáum stjörnuhrap. Þá vitum við nefnilega að þú ert að vinka okkur og við lofum að vinka á móti, brosa og senda þér þúsund kossa. Perla Karen, litla kisuskottið okk- ar, verður örugglega með okkur og það verður bara gaman hjá okkur öllum. Við biðjum svo Guðs engla að gæta þín á himnum og umvefja þig ást og hlýju, elsku litla hjarta. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ásta Karen og Hekla Karen. RÚNAR BÚI JÖKULSSON ✝ Kristján Ásgeirs-son fæddist á Fagranesi á Langa- nesi 5. febrúar 1926. Hann lést á heimili sínu að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn 20. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Svan- hvít Halldórsdóttir, f. á Syðri-Brekkum 9. maí 1893, d. 15. apríl 1983 og Ásgeir Torfason, f. á Geita- felli í Reykjahverfi 2. ágúst 1896, d. 28. september 1969. Kristján var elstur fjögurra systk- ina, en eitt þeirra er látið. Kristján kvæntist 29. desember 1959 eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólínu Ingibjörgu Leósdóttur frá Svalbarðsseli í Þistilfirði, f. 29. desember 1940. Börn þeirra eru: 1) Svanhvít, f. 18. september 1957, maki Jóhannes Jónasson, f. 23. janúar 1955. Dætur þeirra eru: a) Anna Guðrún, f. 16. nóvember 1979, maki Jóhann Ægir Halldórs- son, f. 14. júlí 1974. Dætur þeirra eru Svanhvít Helena, f. 7. febrúar 2001 og Elísabet Emma, f. 29. október 2002. b) Ól- ína Ingibjörg, f. 22. desember 1980, sam- býlismaður er Bene- dikt Líndal Jóhanns- son, f. 8. mars 1972. c) Sveinbjörg Eva, f. 25. júlí 1985, sam- býlismaður er Almar Marínósson, f. 2. júní 1981. d) Aðalbjörg Steinunn, f. 11. maí 1990. 2) Sveinbjörg, f. 11. júlí 1959, d. 9. desember 1967. 3) Lena Steinunn, f. 4. febrúar 1961, börn hennar eru Kristján, f. 15. febrúar 1982 og Ingibjörg Þórunn, f. 23. október 1996. 4) Eva, f. 28. októ- ber 1962, maki Sigurður Ómar Jakobsson, f. 11. nóvember 1955. Dætur þeirra eru Kristín, f. 10. ágúst 1990 og Auður, f. 25. októ- ber 1993. 5) Ásgeir, f. 13. maí 1968, maki Halla Rún Halldórs- dóttir, f. 6. ágúst 1979. Dætur þeirra eru Ingibjörg Sara, f. 3. júní 2001 og Birta Rún, f. 11. júní 2003. Útför Kristjáns verður gerð frá Þórshafnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku afi minn. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur, en þetta er víst lífsins gangur. Þú hefur fengið hvíldina. Það var alltaf gaman að koma til Stjána afa og ömmu Línu á pósthús- inu. Þegar maður var búinn að basla upp brattann stigann smellti maður einum kossi á afa sem sat oft við borðstofuborðið. Svo beið maður spenntur eftir því að afi myndi banka spilastokknum í borðið, það þýddi að við værum að fara að spila ólsen ól- sen! Svo spilaði maður lengi við afa sem hikaði ekki við að stríða manni með því að svindla aðeins eða breyta reglunum. En svo lærði maður kúnst- ina að svindla af honum, en hann sá alltaf í gengum mann, hann bara hló að því! Ég man sérstaklega eftir einu skipti sem ég spilaði við hann. Þá vann hann mig nokkur skipti í röð en ég gafst ekki upp, ég ætlaði sko að vinna. Þetta þótti honum ekki leið- inlegt, því ég var svo tapsár. Loksins náði ég að vinna hann og vann nokkur skipti í röð, þá stóð hann upp og sagði að þetta væri orðið gott. Þá kom í ljós hvaðan ég hafði þann eiginleika að vera tapsár. Svo var rosalega gaman að vera með honum í vörubílnum þeg- ar hann var bílstjóri. Hann afi minn var alveg yndislegur maður. Stríddi manni stundum með því að bjóða manni tóbak í nefið en maður gretti sig bara og afþakkaði pent. Elsku afi, ég mun alltaf sakna þín. Það er erfitt að kveðja þig en ég veit að þú munt alltaf vaka yfir mér. Guð blessi þig. Þín afastelpa, Sveinbjörg Eva. KRISTJÁN ÁSGEIRSSON Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, frú FJÓLA VALDÍS BJARNADÓTTIR húsmóðir, verður jarðsungin frá Digraneskirkju mánu- daginn 30. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Freyja Sverrisdóttir, Helgi Eiríksson, Kristín Valdís Sigurðardóttir, Bjarni Þór Guðmundsson, Bjarni Sigurðsson, Kristín Bessa Harðardóttir, Ingibjörg Erna Sigurðardóttir, Sveinbjörn Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRA SVANA SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Klapparstíg 7, Reykjavík, sem lést mánudaginn 23. ágúst verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðju- daginn 31. ágúst kl. 13.30. Sigrún Sigurðardóttir, Hermann Ólason, Gylfi Sigurðsson, Súsanna Jónsdóttir og ömmubörn. Lokað Vegna jarðarfarar HARALDAR KRISTJÁNSSONAR fyrrverandi kaupmanns verður verslun okkar lokuð í dag frá kl. 13-16. Kjötborg, Ásvallagötu 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.