Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 38
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞÚ HEFUR EKKI ÁHYGGJUR AF
MJÖG MÖRGU, ER ÞAÐ NOKKUÐ?
JÚ,
ÉG HEF
ÁHYGGJUR
AF HLUTUM EINS OG HVAÐ ÞÚ
ÆTLAR AÐ HAFA Í MATINN
VÁ!
FUGLAR!
ÞEIR FLJÚGA YFIR ÖLLU
SAMAN OG TÝNAST ALDREI...
ÞEIR NOTA STJÖRNURNAR OG
SÓLINA TIL ÞESS AÐ RATA
SUMIR
ÞEIRRA!
OJ! OOOJJJ! OOOOJJJJJJJ!! OOOOOOJJJJJJ!!!
Svínið mitt
MÉR FINNST EINS OG ÉG SÉ
FRÆGUR MÁLARI.
MÁLVERKIN MÍN EIGA EFTIR
AÐ SELJAST
© DARGAUD
VERTU NÚ
KYRR
RÚNAR!
SMÁ ATRIÐI HÉR ...
OG ÞAR ...
FRÁBÆRT,
ALGJÖR
SNÍLD ÉG
KAUPI!!
ÞETTA ER MEIST-
ARAVERK
FALLEGIR LITIR
STÓR-
KOSTLEGT
TREYSTU
MÉR
HVAÐ
KOSTAR
ÞETTA
ÉG VERÐ
FRÆG! ÉG
VERÐ FRÆG!
SVONA RÚNAR
HVERNIG ÁTTI ÉG AÐ
VITA ... TILBOÐ Á
SVÍNAKJÖTI
Dagbók
Í dag er föstudagur 27. ágúst, 240. dagur ársins 2004
Víkverji dvaldist ádögunum austur á
Héraði í því frábæra
veðri, sem heimamenn
sögðu honum að væri
oftast þar, sól og 20
stiga hita upp á hvern
dag. Ekki amalegt
sumarleyfisveður. Í
góða veðrinu vildi fjöl-
skyldan auðvitað fara í
sund, fór bæði í sund-
laugina á Egilsstöðum
og á Hallormsstað.
Þetta eru fínar laugar,
ekki sízt sú á Egils-
stöðum, en einn stóran
galla eiga þær þó sam-
eiginlegan. Sturturnar þar eru alveg
kolómögulegar; kaldar og kraftlitlar.
Víkverji lítur svo á að almennileg
sturta sé óaðskiljanlegur hluti af
góðri sundferð og skorar því á Hér-
aðsbúa að laga hjá sér sturturnar.
x x x
Undanfarið hefur mátt lesa fréttirum að 114 húsbílar séu á ferð
um landið. Það hefur fylgt sögunni
að ökumenn húsbílanna ferðist í
minni hópum á vegunum en hittist
svo á næturstað á kvöldin, þannig að
ekki sé hætta á að óslitin röð húsbíla
tefji umferð og valdi hættu. Þetta er
til fyrirmyndar, en þessu var ekki að
heilsa með hátt í 70
húsbíla, sem Víkverji
mætti á dögunum
vestur á Ströndum.
Lestin sú ætlaði engan
enda að taka og allir
óku lúshægt (þar á
meðal húsbílar með
nöfnum á borð við
Snarfari og Sprettur),
enda var víst leið-
sögumaður í miðjum
hópi, sem útvarpaði
frásögn af því, sem
fyrir augu bar. Á eftir
halarófunni komu svo
saltvondir ökumenn,
sem sáu enga mögu-
leika á að komast fram úr allri röð-
inni á fremur mjóum og lélegum
vegi.
Á norðanverðum Ströndunum var
svo ekki hægt að komast spönn frá
rassi dagana á eftir án þess að allt
væri fullt af húsbílum; búnir að
leggja undir sig tjaldstæðið í Tré-
kyllisvík, fastir í mölinni á bílastæð-
inu við sundlaugina í Krossnesi og
svo framvegis. Víkverja fannst þessi
ferðamáti ekki til fyrirmyndar og
honum er reyndar fyrirmunað að
skilja hvað fólk fær út úr því að fara í
ferðalag með 100 eða 200 öðrum á
tugum bíla. En án vafa hafa hús-
bílaeigendur gaman af þessu.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hafnarborg | Ljósmyndir og skartgripir eru viðfangsefni þriggja sýninga
sem opnaðar verða í listamiðstöðinni Hafnarborg á morgun, laugardag.
Fimm danskir skartgripahönnuðir hönnuðu skart fyrir 18 þekktar danskar
konur sem ljósmyndarinn Linda Hansen tók portrettmyndir af. Skartgrip-
irnir eru sagðir endurspegla persónuleika kvennanna, innri og ytri fegurð.
Þá opnar danska listakonan Astrid Kruse Jensen sýningu á ljósmyndum
sínum í kaffistofu Hafnarborgar og eru sýningarnar opnar alla daga nema
þriðjudaga frá 11–17.
Persónulegir skartgripir
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama mann-
inn: „Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar.“ (Mk.. 2, 5.)