Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 40
DAGBÓK
40 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nickell vinnur Spingold í New
York.
Norður
♠ÁG1095
♥KG864
♦3
♣Á8
Vestur Austur
♠D6 ♠K8432
♥103 ♥9
♦Á10754 ♦K86
♣K1092 ♣DG74
Suður
♠7
♥ÁD752
♦DG92
♣653
Spingold-útsláttarkeppnin er sá við-
burður sumarleikanna sem jafnan
vekur mesta athygli, enda keppa þar
sterkustu sveitir Bandaríkjamanna,
margar hverjar styrktar með stórspil-
urum frá Evrópu. Í upphafi hefja 64
sveitir keppnina og eru spilaðir langir
útsláttarleikir þar til ein sveit stendur
uppi ósigruð. Sveit heimsmeistaranna
undir forystu Nick Nickells vann
keppnina í ár – sem varla kemur á
óvart – en hitt var óvæntara að sveit-
in skyldi lifa af hrakfarir í fjórðungs-
úrslitum gegn sveit Georges Jakobs. Í
þeim leik skuldaði Nickell-sveitin 71
IMPa þegar lagt var upp í síðustu 16
spila lotuna. Varla er fræðilega hægt
að vinna upp slíkt forskot, en
Meckstroth/Rodwell og Hamman/
Soloway áttu stjörnuleik og unnu lot-
una 84-2! „Það er alltaf gaman að
vinna, en þessi sigur kom virkilega á
óvart,“ sagði Meckstroth eftir leikinn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Nic-
kell-sveitin bjargar sér á síðustu
stundu í slæmri stöðu, en það er ein-
mitt sérkenni sannra meistara að
halda ró sinni þegar illa gengur og
snúa vörn í sókn (áhugamenn um fót-
bolta þurfa ekki annað en rifja upp
leik Arsenals og Middlesbrough á
sunnudaginn – sem Arsenal vann 5-3
eftir að hafa verið 1-3 undir).
Spilið að ofan kom upp í síðasta
fjórðungi í leik Nickells og Jakobs.
Liðsmenn Jakobs spiluðu fjögur
hjörtu á öðru borðinu, en Meckstorth
og Rodwell höfðu meiri metnað:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- Pass Pass
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 6 hjörtu ! Allir pass
Rodwell var við stýrið og fékk út
tígulás og síðan tromp í öðrum slag.
Spilið leysist nokkurn veginn af sjálfu
sér með því að trompa spaða og tígul
á víxl og Rodwell var ekki í vandræð-
um með að ná í tólf slagi: 1430 og 13
IMPar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eitthvað óvænt mun sennilega koma
upp í vinnunni hjá þér í dag. Tölvuvand-
ræði og aðrar óvæntar uppákomur munu
líklega reyna á þolinmæði þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu sérlega vel að börnunum í kring-
um þig í dag því ungu fólki er óvenju
hætt við óhöppum. Þú gætir einnig
klúðrað ástarmálunum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú vilt alls ekki láta segja þér fyrir verk-
um í dag og því ertu óvenju uppreisn-
argjörn/gjarn gagnvart fjölskyldu þinni.
Eitthvað óvenjulegt gæti gerst á heim-
ilinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er hætt við að óþolinmæði þín skapi
einhvers konar hættu í dag og því skaltu
fara sérlega varlega í umferðinni hvort
sem þú ert akandi eða gangandi. Þú gæt-
ir einnig hitt óvenjulegan einstakling.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Farðu varlega í innkaupunum í dag. Það
eru miklar líkur á því að eitthvað ófyr-
irsjánlegt komi upp varðandi fjármálin
hjá þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Eitthvað mun sennilega koma þér á
óvart í samskiptum þínum við aðra í dag.
Þú gætir fundið fyrir óþolinmæði í garð
maka þíns. Reyndu að koma sjón-
armiðum þínum á framfæri án þess að
vera með ásakanir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að íhuga hvort eirðarleysið sem
hrjáir þig sé merki um óuppfylltar þarfir
þínar. Reyndu að komast að því hvað það
er sem þú vilt í raun og veru.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt örugglega hitta áhugaverða
manneskju í dag eða þá að einhver sem
þú þekkir kemur þér á óvart. Á hvorn
veginn sem það verður ætti dagurinn að
verða áhugaverður.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Yfirmaður þinn mun hugsanlega færa
þér óvænt tíðindi í dag. Reyndu að hafa
stjórn á viðbrögðum þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óhefðbundnar hugmyndir vekja áhuga
þinn í dag. Þú gætir einnig heyrt eitt-
hvað áhugavert í fréttunum. Þetta er
einn af þeim dögum þegar allt getur
gerst.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Væntingar annarra til þín munu líklega
koma þér í opna skjöldu í dag eða þá að
eitthvað stendur ekki undir væntingum
þínum. Bíddu með mikilvægar ákvarð-
anir fram í næstu viku.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er mikil spenna í loftinu í dag. Til-
finningar sem hafa verið að safnast upp
geta auðveldlega komið upp á yfirborðið.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru raunsæ og umhyggjusöm og mjög
meðvituð um umhverfi sitt. Það verða
miklar breytingar á lífi þeirra á árinu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 auðmenn, 8 sam-
tala, 9 gyðja, 10 dý, 11
krús, 13 róin, 15 annálað,
18 dreng, 21 tryllt, 22
skokk, 23 sundfuglinn, 24
máttarstólpa.
Lóðrétt | 2 ger, 3 jarða, 4
duglegur, 5 fram-
leiðsluvara, 6 saklaus, 7
lögun, 12 aðferð, 14 kyn,
15 ílát, 16 látbragðinu, 17
himingeimurinn, 18 litlir,
19 hnykks, 20 þekkt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 strók, 4 flekk, 7 pípar, 8 lyfin, 9 lem, 11 röng, 13
æður, 14 æskir, 15 hrós, 17 alda, 20 ára, 22 leynt, 23 umb-
un, 24 sytra, 25 staur.
Lóðrétt | 1 sýpur, 2 ræpan, 3 kurl, 4 fálm, 5 erfið, 6 konur,
10 eykur, 12 gæs, 13 æra, 15 hólks, 16 ólyst, 18 labba, 19
annar, 20 átta, 21 aurs.
Myndlist
Norræna húsið | Samsýningunni 7–Sýn úr
Norðri lýkur á sunnudag. Það eru 7 norræn-
ar listakonur sem standa að sýningunni. Op-
ið kl. 12–17 alla daga, nema mánudaga.
Klink & Bank | Brautarholti 1. Sýningin Lög
ör verður opnuð á neðri hæð í gallerísins kl.
17.30 í dag. Um er að ræða samsýningu Evu
Weingartner, Alex Ratcliffe og Þóru Gunn-
arsdóttur.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sýningunni
Nýri veruleikar, finnsk samtímaljósmyndun,
lýkur á sunnudag. Opið virka daga kl. 12–19,
um helgar kl. 13–17.
Listasafn Íslands | Sumarsýningunni Um-
hverfi og náttúra lýkur á sunnudag. Safnið
er opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Söfn
Árbæjarsafn | Listmunahornið.
Úlfar Sveinbjörnsson sýnir hluti rennda úr
tré. Sýningin stendur til 31. ágúst.
Skemmtanir
Ari í Ögri | Dúettinn Acoustics skemmtir.
Búálfurinn | Hólagarði. Hermann Ingi jr
skemmtir.
Catalína | Hamraborg 11, Kópavogi, Trúba-
dorinn Addi M spilar.
Classic | Ármúla 5. Hljómsveitin No ordinary
Fish spilar.
Gaukur | á Stöng. Sex volt.
Grandrokk | Hjálmar, Reggae-session kl. 23.
Hverfisbarinn | Dj. Andri
Kaffi Mörk | Akranesi. Gummi Jóns með
tónleika kl. 22 föstudaginn 27. ágúst.
Kringlukráin | Mannakorn.
Laugavegur 22 | Uppi: Honky Tonk
Leikhúskjallarinn | Johnny Dee.
Odd-Vitinn | Akureyri. Karaoke-kvöld.
Players | Kópavogi. Í svörtum fötum
Sjallinn | Ísafirði. Dans- og tískusýning.
Sýndir verða dansar frá dansnámskeiði
Svenna frá kl. 19 til 21. Nýnemadjamm Há-
skólans frá kl. 24, Sent spilar.
Vélsmiðjan | Akureyri Dans á rósum leikur.
Mannfagnaður
Akureyrarvaka | Hátíðin sett í Lystigarð-
inum kl. 21–23. Veitt verða verðlaun fyrir fal-
legustu garðana. Fjölbreytt dagskrá víðs-
vegar um garðinn. Atriði frá Leikfélagi
Akureyrar. Andy Brooks flytur kántrítónlist í
anda Johnny Cash og fleira á vegum Al-
þjóðastofu, Dúettinn Matriksur, Inga Eydal
og Arna Vals syngja og talandi Lóa Hildi-
gunnar leynist meðal blóma.
Kvikmyndir
Iðnó | Tangóhátíð. Í kvöld verða frumsýndar
tvær nýjar kvikmyndir um tangó kl. 22.30;
stuttmyndin Past bedtime eftir Kristínu
Hauksdóttur og heimildarmyndin Blue
Tango in Buenos Aires eftir Alexöndru
Prusa. Leikstjórar myndanna verða við-
staddir sýningu þeirra. Uppl. um hátíðina eru
veittar í Kramhúsinu og á tango.is.
Háskólabíó | Kvikmyndahátíðin
Bandarískir Indí-Bíódagar stendur til 6.
september. Size me.
Heimildahátíð | á Akureyrarvöku. Hafn-
arstræti 94 (áður Sporthúsið) frá kl. 11–24 á
morgun. Heimildarmyndasýning þar sem
sýndur verður fjöldi gagnrýninna mynda. Kl.
11–13.05: „What I’ve learnd about US Foreign
Policy“. Kl. 13.15–15.35: „The Truth and Lies
of 9–11. Kl. 15.45–17: „Deadling Iraq“. Kl.
17.10–18: „Israel’s Seacret Weapon“. kl.
18.15–19.15: „Plan Colombia“. Kl. 19.25–
19.55: Lögregluofbeldi í Genóa. Kl. 20–
20.55: „Hugo Chavez – Inside the Coup“. Kl.
21.05–21.55: „Operation Saddam – Am-
ericas Propaganga War“. Kl. 22–24: „Painful
Deceptions“.Sjá nánari dagskrá á www.gag-
nauga.is
Fréttir
Skátastarf | Opið hús verður hjá skátafélög-
um víðsvegar um land, á morgun, kl. 14–16.
Nýir félagar verða innritaðir og starfsárið
kynnt. Sjá nánar á www.skatar.is.
Smáralind | Krakkadagar standa til sunnu-
dags. Bárður og Birta koma í heimsókn. Á
morgun skemmta Solla stirða, Halla hrekkju-
svín og Maggi mjói úr Latabæ. Pétur Pan,
með íslensku tali, verður sýnd í Smárabíói.
Regnbogabörn | Kynning á vetrarstarfi
Ragnbogabarna í gamla bókasafninu í Hafn-
arfirði kl. 17–19. Jón Páll ráðgjafi kynnir við-
talsþjónustuna, fyrirlestra, námskeið o.fl.
Einnig mun Alda Ármanna myndlistarkona
opna sýningu. Boðið verður uppá veitingar.
Málstofa
Háskólabíó | Opin málstofa kl. 8.30–12.30.
Henk Ten Have, forstöðumaður deildar fyrir
siðfræði vísinda og tækni í UNESCO, fjallar
um alþjóðlega yfirlýsingu UNESCO um
erfðafræðilegar upplýsingar og um lífsið-
fræði. Einnig verða tveir opnir fyrirlestrar,
annar um traust og erfðavísindi, og hinn um
erfðafræðilega ráðgjöf fyrir sjúklinga.
Fundir
GA-Samtök | spilafíkla. Fundur kl. 20 í Víði-
staðakirkju.
Félag einhleypra | fundur annað kvöld kl.
20.30 á Catalínu.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa og bað kl. 9,
bingó kl. 14. Hárgreiðsla, fótaaðgerð. Haust-
námskeið Yoga hefst fimmtudag 2. sept. kl.
9, postulínsmálning, kennsla hefst 7. sept. kl.
13 og myndlist 10. september kl. 13, skráning
hafin.
Árskógar 4 | Bað kl. 9, pútt kl. 10–16. Bingó
Ásgarður | Glæsibæ. Dagsferð 3. september.
Krýsuvík, Strandarkirkja, Flóinn. Nokkur
sæti laus, skráning á skrifstofu FEB.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla kl. 8–16, bað
kl. 8.30–12.30, handavinna kl. 9–16, spil kl.
13–16.
Dalbraut 18–20 | Hárgreiðsla kl. 9–16.45,
bað kl. 9–12, pútt.
Dalbraut 27 | Handavinnustofan kl. 8–16,
verslunin kl. 10–13.
Garðabær | félagsstarf aldraðra. Opið í
Garðabergi kl. 13–17.
Gerðuberg | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar,
kl. 10 létt ganga um Elliðaárdalinn frá há-
degi, spilasalur opinn.
Gjábakki | Fannborg 8. Brids kl. 13.15.
Gullsmári | Gullsmára 13. Félagsþjónustan
er opin virka daga kl. 9–17.
Hraunbær 105 | Pútt, bað, fótaaðgerð og
hárgreiðsla kl. 10–11, bingó kl. 14.
Hraunsel | Flatahrauni 3. Húsið opnað kl. 9,
kl. 13 brids, kl. 14–16 pútt á Hrafnistuvelli.
Hvassaleiti 58–60 | Fótaaðgerð, hár-
greiðsla.
Hæðargarður 31 | Vinnustofa kl. 9–16.30,
hárgreiðsla, ganga kl. 9.30. Laugardags-
ganga kl. 10 á morgun laugardag.
Kópavogur | Félag eldri borgara. Félagsvist í
Gjábakka kl. 20.30.
Langahlíð 3 | Hárgreiðsla kl. 10, verslunin kl.
10–12, leikfimi kl.11, “opið hús“ spilað á spil kl.
13.
Norðurbrún 1 | Ganga kl. 10–11, boccia kl. 10,
leikfimi kl. 14, hárgreiðsla kl. 9–5.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30 hannyrðir, kl. 13.30
sungið við flygilinn við undirleik Sigurgeirs,
kl. 14.30–16 dansað við lagaval Sigvalda.
Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár-
greiðsla kl. 9–16, morgunstund kl. 9.30–10,
handmennt kl. 9.30–16, leikfimi kl. 10–11,
fótaaðgerð kl. 10–16, bingó kl. 13.30–14.30.
Sléttuvegur11 | Opið í ágúst frá kl. 10–14.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10.
Grafarvogskirkja | Al-Anon fundur kl. 20.
Boðunarkirkjan | Hlíðarsmára 9. Sam-
komur laugardaga kl. 11. Bænastund þriðju-
daga kl. 20. Biblíufræðsla allan sólarhring-
inn á Útvarp Boðun FM 105,5.
Staðurogstund
idag@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund á forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Flott föt fyrir
konur á aldrinum
25-90 ára
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 e6 4. d4 cxd4
5. Rxd4 a6 6. Rxc6 bxc6 7. Bd3 d5 8.
O-O Rf6 9. De2 Be7 10. Ra4 O-O 11.
Hd1 Dc7 12. e5 Rd7 13. Bf4 c5 14. c4 d4
15. Be4 Hb8 16. Hd3 g6 17. He1 He8
18. b3 Bf8 19. Hh3 Bg7 20. Rb2 a5 21.
Dg4 Rf8 22. a4 Bb7 23. Bc2 Dc6 24.
Bd2 Rd7 25. Rd3 Ha8 26. f3 Dc7 27.
Dh4 h5 28. g4 Bxe5 29. gxh5 Bf6 30.
Dg4 g5 31. Bxg5 Kh8 32. Rf4 Be5 33.
Kf1 Ha6
Staðan kom upp í A-flokki mótsins í
Pardubice sem lauk fyrir nokkru í
Tékklandi. Tékkneski stórmeistarinn
Vlastimil Babula (2569) hafði hvítt
gegn Alexander Zubarev (2479). 34.
Rg6+! fxg6 35. hxg6+ Kg8 36. Dh4
Bg7 37. Dh7+ Kf8 38. Bh6 Rf6 39.
Dh8+ Rg8 40. Bxg7+ og svartur gafst
upp enda verður hann mát eftir 40...
Dxg7 41. Hh7 Dxh8 42. Hf7#.
Hvítur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
NÝR sýningarsalur hefur verið opnaður í
Rammamiðstöðinni, Síðumúla 34. Fyrsti
listamaðurinn opnar sýningu í salnum kl.
16 í dag. Það er Birna Smith sem sýnir ný
olíuverk frá þessu ári og er þetta hennar
fjórða einkasýning.
Sýningin ber nafnið „Í kyrrðinni“ og er
einkum um að ræða landslags- og húsa-
myndir. Birna segir að fyrir sér sé það al-
gjör hugleiðsla og heilun að mála og við-
fangsefnið sæki hún yfirleitt til
náttúrunnar. „Ég hef selt mikið af myndum
út fyrir landsteinana, út um allan heim
nánast og það þykir mér mjög vænt um og
meðal annarra festu Jóakim Danaprins og
Alexandra kona hans kaup á mynd eftir
mig,“ segir listamaðurinn.
Sýningin verður opin virka daga frá kl. 9–
18. En í tilefni af opnun salarins verður
sýningin opin til kl. 20 í kvöld og á morg-
un, laugardag, frá kl. 13–17. Sýningin
stendur til 11. september.
Olíumyndir í nýjum sýningarsal