Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 41
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 41
VÍKINGUR H. Ólafsson píanóleik-
ari er styrkþegi ársins 2004 úr
Minningarsjóði Jean Pierre Jacquil-
lat en afhending fór fram í gær í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
Styrkupphæðin nemur 600 þúsund
krónum. Örn Jóhannsson, formaður
stjórnar sjóðsins, afhenti Víkingi
styrkinn með þeim orðum að alls
hefðu 18 umsóknir borist. „Margt
hið efnilegasta fólk en sá sem skar-
aði fram úr að þessu sinni var Vík-
ingur H. Ólafsson.“
Í máli Arnar kom fram að hlut-
verk sjóðsins er að styrkja tónlist-
arfólk til að afla sér aukinnar mennt-
unar og reynslu á sviði tónlistar.
„Það er jafnframt hlutverk sjóðsins
að halda nafni Jean Pierre á lofti en
hann var aðalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands 1980–1986.
Jean Pierre lést 10. ágúst sama ár.“
Víkingur stundar framhaldsnám í
píanóleik við hinn virta tónlistar-
skóla Juilliard í New York og hefur
lokið 2 árum af 4 í námi sínu en
kveðst stefna ótrauður á meira nám
eftir það. „Það er stórkostlegur heið-
ur og mikil hvatning að fá þennan
styrk og er hreinlega eins og víta-
mínsprauta. Mann langar til að
leggja sig enn meira fram og standa
sig enn betur, og peningarnir koma
sér vel því námið er dýrt,“ sagði Vík-
ingur í samtali við Morgunblaðið eft-
ir athöfnina.
Víkingur lék sl. vetur með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á tónleikum í
Háskólabíó og geta tónlistarunn-
endur hlakkað til þess að hann mun
leika á einleikstónleikum í Salnum í
Kópavogi 7. janúar næstkomandi.
Tónlist | Veitt úr minningarsjóði
Jean Pierre Jacquillat
Morgunblaðið/ÞÖK
Víkingur H. Ólafsson tekur við styrknum úr Minningarsjóði Jean Pierre
Jacquillat úr hendi Arnar Jóhannssonar formanns stjórnar sjóðsins.
Hvatning til að
standa sig betur
ALLT útlit er fyrir að samningur
Landsbankans við Kling og Bang
gallerí um starfsemi og rekstur
listasmiðjunnar Klink og Bank í
gamla Hampiðjuhúsinu við Braut-
arholt verði framlengdur um allt að
ár. Sagt var frá því hér á síðum
blaðsins fyrr í sumar að samning-
urinn rynni út 1. september nk.,
samhliða því sem húsnæði lista-
smiðjunnar að Brautarholti skipti
um eigendur. Um þessar mundir
standa yfir viðræður milli bankans,
væntanlegra eigenda húseign-
arinnar við Brautarholt og fleiri að-
ila. Allt útlit er fyrir að sam-
komulag náist á næstu dögum sem
mun fela í sér að Klink og Bank
geti starfað með óbreyttum eða
svipuðum hætti í allt að ár í viðbót.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum verður húsnæðið
að Brautarholti í eigu verktaka frá
og með 1. september nk. sem hafa
uppi áform um að rífa húsið í
ókominni framtíð. Verktakarnir eru
hins vegar reiðubúnir að fresta
áformum sínum um ár til þess að
Klink og Bank geti starfað þar
áfram.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er mikil ánægja hjá forsvars-
mönnum Landsbankans með sam-
starfið við Kling og Bang gallerí
um rekstur og starfsemi Klink og
Bank. Að mati bankans hefur starf-
semi Klink og Bank gengið afar vel
og nýtur hún velvilja víða, m.a. hjá
borgaryfirvöldum, yfirvöldum
menningarmála, listamönnum og
listvinum. Í Landsbankanum er því
mikill áhugi fyrir því að Klink og
Bank fái að lifa lengur í gamla
Hampiðjuhúsinu. Fram kemur hjá
heimildarmönnum Morgunblaðsins
að vilji allra aðila er til þess að
starfsemi Klink og Bank verði ekki
einvörðungu bundin húsnæðinu í
Brautarholtinu. Samstarfið mun
geta tekið á sig aðra mynd á öðrum
stað ef tækifæri opnast.
Á þeim tíma sem Klink og Bank
hefur starfað hefur starfsemin vak-
ið mikla athygli, bæði hér- og er-
lendis. Þannig hefur verið skrifað
um fyrirbærið í erlendum list-
tímaritum auk þess sem margir
þeirra erlendu listamanna sem
komið hafa til landsins hafa lagt
leið sína í Brautarholtið til að
skoða Klink og Bank. Aðspurður
hvernig bankinn meti ávinning sinn
af þessu svarar talsmaður bankans
að það sé ómetanlegt. „Þetta er
náttúrlega ómetanlegt, bæði í hefð-
bundnum skilningi þess orðs en
líka er það ómælanlegt. Annars
hefur bankinn í sjálfu sér ekki
reynt að setja einhverjar mælistik-
ur á þetta. Hann er bara ánægður
og stoltur yfir því að taka þátt í
svona vel heppnuðu verkefni með
fólki sem augljóslega hefur dug til
að halda úti svona metnaðarfullri
starfsemi og skynjar ábyrgð sína.
En við höfum alltaf lagt mikla
áherslu á ábyrgðina, því bankinn er
á margan hátt að setja ásýnd sína
og orðspor í þeirra hendur.“
Samningsaðilar afar jákvæðir
„Mér finnst auðvitað fremur erf-
itt að tjá mig um málið á meðan
samningar eru ekki endanlega
komnir í höfn,“ sagði Nína Magn-
úsdóttir, hússtýra Klink og Bank,
þegar blaðið leitaði viðbragða hjá
henni. „Ég get þó sagt að allir
samningsaðilar eru afar jákvæðir
og því allt útlit fyrir að Klink og
Bank muni starfa með svipuðum
eða óbreyttum hætti í núverandi
húsnæði við Brautarholt næsta ár-
ið. Okkur er auðvitað mjög umhug-
að um að halda hér áfram þeirri
starfsemi sem verið hefur og það
hefur vitaskuld mikla þýðingu fyrir
listamenn sem eru með sína vinnu-
aðstöðu hér í húsinu ef við getum
haldið áfram í ár í viðbót,“ segir
Nína.
Spurð hvort starfið sem í húsinu
hafi verið síðustu mánuði sé í sam-
ræmi við það sem skipuleggjendur
lögðu upp með og hvort þau hafi
fengið það út úr starfseminni sem
stefnt var að svarar Nína því ját-
andi. „Við lögðum náttúrlega upp
með að vera opin og sjá hvað þetta
fyrirkomulag hefði upp á að bjóða.
Það komu hérna saman meira en
hundrað listamenn og það í sjálfu
sér bjó til starfið í húsinu. Þannig
varð til sannkallað orkuver af sköp-
unargleði. Ég held að við getum
tvímælalaust verið mjög ánægð
með útkomuna eftir þetta samn-
ingstímabil og það má segja að við
förum með þá reynslu inn í næsta
tímabil.“
Listir | Útlit fyrir að samningur Landsbankans og Kling og
Bang um Klink og Bank verði framlengdur um ár
Vel
heppnað
verkefni
Morgunblaðið/Jim Smart
Samstarfssamningur Landsbankans og Kling og Bang var undirritaður í
byrjun árs. Fremst eru Nína Magnúsdóttir og Björgólfur Guðmundsson, þá
Sigurjón Þ. Árnason, Halldór J. Kristinsson, Erling Klingenberg, Kristinn
Már Pálmason, Hekla Dögg Jónsdóttir og Viðar Hákon Gíslason.
silja@mbl.is
Fréttasíminn
904 1100