Morgunblaðið - 14.09.2004, Síða 1
Reuters
Börn í flóttamannabúðum í Darfur-héraði.
Í HVERJUM mánuði deyja um 6.000 til
10.000 manns af völdum sjúkdóma og átaka í
flóttamannabúðum í Darfur-héraði í Súdan,
að sögn Davids Nabarros, sem stjórnar hjálp-
arstarfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinn-
ar (WHO).
„Þessar tölur eru háar,“ sagði Nabarro.
„Þær eru hærri en tölurnar sem við fengum í
stríðunum á Austur-Tímor, Balkanskaga og í
Írak 1991. Þær eru sambærilegar við tölurnar
í Rúanda þegar ástandið þar var slæmt.“
„Á meðal hinna látnu eru mjög mörg börn,“
sagði Nabarro og bætti við að algengustu
dánarorsakirnar væru niðurgangssýki vegna
mengaðs vatns, hitasótt og lungnabólga.
„Okkur finnst það mikið áhyggjuefni að dán-
artíðnin skuli enn vera svona há hálfu ári eftir
að neyðarástandið skapaðist. Starfsemi WHO
og annarra stofnana hefur ekki komist á þann
skrið sem við hefðum viljað. Við stöndum
okkur ekki sem skyldi af einhverjum ástæð-
um.“
Dánartíðnin í Darfur er þrisvar til sex sinn-
um hærri en við eðlilegar aðstæður.
Um 1,2 milljónir Darfur-búa hafast við í
129 flóttamannabúðum í héraðinu á svæði
sem er á stærð við Frakkland. Yfir 200.000 til
viðbótar hafa flúið til grannríkisins Tsjads.
Dánartíðnin í Darfur-héraði í Súdan er enn há þrátt fyrir hjálparstarfið
Allt að tíu þúsund
deyja á mánuði
Genf. AP.
Hrútaber og
grænir fingur
Guðmundur Haukur tínir ber og
sultar á hverju hausti | Daglegt líf
Meira en
nóg að gera
Steingrímur Guðmundsson lék inn á plötu
með Incredible String Band | Menning
ALI Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi
Írans, hvatti í gær til íslamskrar einingar
gegn Bandaríkjunum sem hann sagði stefna
að algjörum yfirráðum yfir Mið-Austur-
löndum.
„Bandaríska herveldið
ræðst á íslamska heim-
inn undir því yfirskini að
barist sé gegn hryðju-
verkastarfsemi og notar
vígorð eins og frelsi og
lýðræði en úthellir blóði
Íraka, Afgana og Palest-
ínumanna,“ sagði Kham-
enei. „Bandaríkin beita
hryðjuverkum, yfirgangi
og valdi í stað samningaviðræðna og sætta
sig aldrei við neitt minna en algjör yfirráð
yfir íslamska heiminum og Mið-Austurlönd-
um.“
Hvatt til
íslamskrar
einingar
Khamenei segir Banda-
ríkin vilja drottna yfir
Mið-Austurlöndum
Teheran. AFP.
Ali Khamenei
LOKSINS stytti upp í Reykjavík eftir þrálátar
rigningar og þá var ekki að sökum að spyrja,
menn og málleysingjar flykktust út í sólina og
sprettu úr spori. Seppi kunni sér ekki læti og
ólmaðist sem ákafast í hundaólinni með til-
sjónarmann sinn í eftirdragi á línuskautum.
Fast á hæla þeim kom fulltrúi hjólreiðamanna
og steig fák sinn kröftuglega og hafði ekki
gleymt öryggishjálminum frekar en daman.
Morgunblaðið/Kristinn
Á fullri ferð
KAÞÓLSKIR prestar í Króatíu krefjast nú
þess að fá sérstakar greiðslur til að geta
ráðið einkabílstjóra þar sem þeir segjast
ekki geta ekið sjálfir vegna strangra laga
sem sett voru til að stemma stigu við ölv-
unarakstri.
„Við viljum aðeins fara eftir lögunum og
þess vegna ætlum við ekki að aka eftir að
hafa bragðað messuvín. Við getum ekki
ekið vegna þess að við þurfum að dreypa á
víni, það er hluti af altarisgöngunni,“
sagði í yfirlýsingu frá prestunum.
Prestarnir sögðust óska eftir sem svar-
ar 870 milljónum króna á ári til að allir
kaþólskir prestar í landinu, sem eru alls
um 2.000, fengju bílstjóra í fimm klukku-
stundir á dag.
Samkvæmt nýjum lögum, sem tóku gildi
í ágúst, mega menn ekki aka bílum í
Króatíu fari áfengismagnið í blóðinu yfir
0,05%.
Prestar vilja
einkabílstjóra
Zagreb. AFP.
♦♦♦
Íþróttir í dag
Evrópudraumur Wengers HK
og Haukum spáð sigri Völler
ánægður með Montella
STOFNAÐ 1913 250. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
FRÍSTUNDAHEIMILI eða skóla-
dagheimili í Reykjavík verða hvorki
opin lengur né þjónusta við skóla-
börn aukin þótt til verkfalls grunn-
skólakennara kunni að koma 20.
september. Foreldrar hafa spurst
talsvert fyrir hjá frístundaheimilun-
um um hvort breytingar verði á
starfseminni ef til verkfalls kemur,
en ljóst er að svo verður ekki. Heim-
ilin munu samt bjóða upp á hálfs-
dagsvist eftir sem áður.
Foreldrar eru áhyggjufullir og
svartsýni þeirra fer dagvaxandi.
„Maður hefur það á tilfinningunni
að lítið hafi þokast í samkomulags-
átt og kannski gerist ekkert fyrr en
verkfall skellur á,“ segir Guðbrand-
ur Guðmundsson, formaður For-
eldra- og kennarafélags Engja-
skóla.
„Við höfum reynt að láta ástandið
ekki hafa áhrif á starf félagsins og
valda ekki óþarfa áhyggjum hjá
börnum og foreldrum. Manni finnst
dapurlegt að í kjaradeilum sé ekki
hægt að tala saman fyrr en allt er
komið á síðasta snúning,“ segir
hann. Ekki hefur verið tekin afstaða
til þess hvað verður gert til að gæta
barna ef til verkfalls kemur, en
stjórn félagsins mun ræða það mál á
fundi sínum í dag, þriðjudag.
Guðbjörg Þórisdóttir, skólastjóri
Breiðagerðisskóla, segir bera á
ákveðnum verkfallsótta en leyfir
sér að vera bjartsýn á að samningar
takist. Ekki segist hún verða mjög
vör við að samningastaðan hafi mik-
il áhrif á kennara. Þeir einbeiti sér
að starfi sínu og sinni því af kost-
gæfni eins og venjulega. Dæmi er
um að fyrirtæki ætli að grípa til sér-
stakra aðgerða komi til verkfalls.
Þannig hefur Íslandsbanki boðið
starfsmönnum að koma með börnin
í vinnuna þar sem haft verði ofan af
fyrir þeim í umsjón starfsfólks.
Fundi kennara og viðsemjenda
þeirra lauk hjá sáttasemjara í gær
án þess að vísbendingar kæmu fram
um að samningur væri í sjónmáli.
Deiluaðilar hittast aftur á fundi með
sáttasemjara klukkan 11 í dag.
Skóladagheimilin ein-
göngu opin eftir hádegi
Þjónustan/4
Dæmi um að fyrirtæki ætli að grípa til sérstakra aðgerða komi til
verkfalls Deiluaðilar hittast á fundi með ríkissáttasemjara í dag
JOHN Kerry, forsetaefni demókrata, gagn-
rýndi George W. Bush Bandaríkjaforseta í
gær fyrir að hafa ekki beitt sér fyrir því að
þingið framlengdi tíu ára bann við því að
einstaklingar ættu öflug árásarvopn sem
notuð eru í hernaði.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti undirritaði
lög um bannið árið 1994 eftir nokkur fjölda-
morð í bandarískum skólum og veitingahús-
um. Bannið féll úr gildi í gær eftir að þingið
neitaði að framlengja það.
Bush kvaðst styðja bannið en beitti sér
ekki fyrir því að repúblikanar, sem eru í
meirihluta á þinginu, féllust á að framlengja
það. Kerry sakaði forsetann um að setja
hagsmuni byssueigenda ofar hagsmunum
lögreglunnar og fórnarlamba skotárása.
Umdeilt vopna-
bann fellur úr gildi
Washington. AFP.
♦♦♦