Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Tveir dagar til stefnu! Það má enginn missa af þjóðargjöfinni á fimmtudag! Skráðu þig strax í netklúbbinn á icelandexpress.is Ferðaþjónusta Iceland Express, Sími 5 500 600, icelandexpress.is EKKI AUKIN ÞJÓNUSTA Skóladagheimili í Reykjavík munu ekki hafa opið lengur eða auka þjón- ustu við skólabörn þótt til verkfalls grunnskólakennara komi hinn 20. september. Foreldrar eru áhyggju- fullir og svartsýni þeirra eykst með degi hverjum. Pútín herðir tökin Vladímír Pútín, forseti Rússlands, kynnti í gær breytingar á stjórn- kerfinu og fela þær í sér að tök mið- stjórnarvaldsins í Kreml verða hert. Forsetinn sagði þetta nauðsynlegt til að efla hryðjuverkavarnir. Vilja fund með ráðherra Stjórn Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur óskað eftir fundi með Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra til að ræða byggða- og atvinnumál á svæðinu, m.a. virkj- anir eins og Skatastaðavirkjun. Há dánartíðni í Darfur Á hverjum mánuði deyja um 6.000 til 10.000 manns af völdum sjúk- dóma og átaka í Darfur-héraði í Súd- an, að sögn Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar í gær. Dánartíðnin þar er allt að sex sinnum hærri en við eðlilegar aðstæður. Y f i r l i t Kynningar – Morgunblaðinu fylgir auglýsingablaðið Vestnorden arts & crafts 2004. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #      $         %&' ( )***                             „ÞAÐ segir sig nú sjálft að menn væru ekki að halda kaupstefnu á borð við þessa nítján ár í röð nema hún skilaði ferðaþjónustunni ein- hverju,“ segir Magnús Oddsson ferðamálastjóri, en hin árlega vest- norræna kaupstefna var sett í Borg- arleikhúsinu í gær. Kaupstefnan er að þessu sinni haldin í Laugardals- höllinni og lýkur henni á morgun. „Það er ljóst að hér fá menn tæki- færi til að kynna í sameiningu þetta norðursvæði fyrir hugsanlegum kaupendum. Við sjáum að verulegur vöxtur hefur verið í ferðaþjónustu á Íslandi á undanförnum árum, jafnvel umfram það sem er að gerast að meðaltali í heiminum, og það er ljóst að þessi kaupstefna á sinn þátt í því, ásamt auðvitað öðru. En kaupstefnan myndi ekki skila neinu ein og sér ef söluaðilar væru ekki að bjóða vöru og þjónustu sem félli markaðnum í geð. En þess má geta að kaupstefnan hef- ur einnig átt sinn þátt í að auka fag- mennsku í vinnubrögðum og bæta söluferlið hjá ferðaþjónustuaðilum þar sem þeir verða ávallt að vera til- búnir með sitt framboð fyrir komandi sumar í september ár hvert.“ Efla þarf menningartengda ferðaþjónustu Julia Pars, upplýsingafulltrúi ferðamálaráðs Grænlands, er ein þeirra sem oft hefur sótt vestnor- rænu kaupstefnuna auk þess að taka þátt í skipulagningu stefnunnar þeg- ar hún var haldin á Grænlandi. Að- spurð segir Pars þátttökuna í kaup- stefnunni gífurlega mikilvæga fyrir grænlenska ferðaþjónustu. „Því hér höfum við möguleika á að komast í samband við hugsanlega kaupendur. Það er ekki síst mikilvægt fyrir Grænland sökum þess að grænlensk stjórnvöld hafa lagt aukna áherslu á ferðaþjónustuna á síðustu árum og gripið til ýmissa aðgerða til að fjölga þeim ferðamönnum er leggja leið sína til Grænlands.“ Spurð hverjar séu helstu áherslurnar í grænlenskri ferðaþjónustu segir Pars þærfyrst og fremst vera á þá sérstæðu náttúru sem Grænland hefur upp á að bjóða, en á síðustu árum hefur aukin áhersla verið lögð á menningar- tengda ferðaþjónustu. „Við verðum alltaf æ betur vör við að ferðamenn hafa meiri áhuga á að upplifa það sem hefur með menningu landsins að gera. Þannig að ein aðaláskorunin sem við stöndum frammi fyrir í dag er að efla menningartengda ferða- þjónustu.“ Kaupstefnan eykur fagmennsku Morgunblaðið/Golli Allt var á fullu í gær við uppsetningu vestnorrænu kaupstefnunnar sem hefst í Laugardalshöll í dag. RÚMLEGA fertugur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mán- aða fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir að hafa áreitt unglingsstúlku og unga konu með tíðum símtölum þar sem hann viðhafði „klámfengið og kynferðislegt tal“ eins og segir í dómnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn fyrir að hafa frá 20. september 2002 til 4. janúar 2003 sært blygðunarsemi 14–15 ára gam- allar unglingsstúlku. Maðurinn við- hafði kynferðislegt og klámfengið tal í flestum þeim 89 símtölum sem stúlkan svaraði. Í einni viku í mars 2003 hringdi maðurinn átta símtöl í rúmlega tvítuga stúlku og hélt upp- teknum hætti, viðhafði kynferðislegt og klámfengið tal. Maðurinn játaði brot sín. Hafði áður hlotið dóm Við ákvörðun refsingar tók Ingv- eldur Einarsdóttir héraðsdómari m.a. tillit til þess að maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir kynferðis- brot. Árið 1998 hlaut hann tólf mán- aða fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur var átta ára þegar brotið var framið en brotin gegn hinni stúlkunni áttu sér stað tvisvar til þrisvar á ári á sex ára tímabili þegar stúlkan var sex til tólf ára gömul. Sigríður Friðjónsdóttir sótti málið fyrir hönd ríkissaksóknara en Brynj- ólfur Eyvindsson hdl. var til varnar. Fangelsi fyrir kynferðisbrot Áreitti unga stúlku með símtölum EVRÓPSKUR fjárfestir hefur ósk- að eftir formlegum viðræðum við bæjaryfirvöld á Akureyri um að reisa álþynnuverksmiðju sem yrði allt að þrisvar sinnum stærri en sú sem japanska fyrirtækið Japan Capacitor Industrial hafði í hyggju að reisa en hætti við í byrjun ársins. Verði af framkvæmdum má ætla að um 150 ný störf kynnu að skapast við verksmiðjuna. „Við fórum dálítið langt með þess- ar viðræður fyrr á árinu við japanska fyrirtækið en þegar slitnaði upp úr þeim höfðum við samband við flest fyrirtæki í þessari grein. Þetta er í raun lítill heimur og framleiðendur ekki mjög margir,“ segir Magnús Ásgeirsson, framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Hann segir menn hafa fundið fyrir áhuga. Tiltekið fyrirtæki í Evrópu hafi síðan sent fyrirspurnir og sýnt áhuga og hafi nú óskað eftir form- legum viðræðum og segir Magnús að þessar viðræður verði hafnar sem fyrst. Evrópska fyrirtækið sé að horfa á heldur stærri verksmiðju en japanska fyrirtækið hafði áform um að reisa. Magnús segir aðstæður á Akur- eyri henta þessari framleiðslu vel. „Þeir þurfa talsvert af rafmagni og hreinu vatni til kælingar og gera kröfu um aðgengi að vel menntuðu og stöðugt vinnuafli þannig að þetta passaði vel við það sem við höfum reynt að markaðssetja.“ Eins og nafnið gefur til kynna eru álþynnur framleiddar úr áli. Þær eru settar í sýruböð, vafðar upp í vafn- inga og renna í gegnum verksmiðj- una líkt og í stórri prentsmiðju. Þynnurnar eru notaðar í svonefnda rafeindaþétta, sem eru í öllum raf- magnsvörum. Þær eru svipaðar við- komu og álpappír en eilítið þykkari og stífari. Viðræður um að reisa álþynnuverksmiðju Verksmiðjan stærri en sú sem Japanir höfðu áform um GRUNUR er um íkveikju og skemmdarverk við íbúðarhús á bænum Brekku í Hvalfirði í gær- morgun. Einn maður var í húsinu þegar eldurinn kom upp og hringdi hann í lögreglu. Hann slapp ómeiddur, en skemmdir urðu tölu- verðar. Fólk á bænum Bjarteyjarsandi, sem er þar skammt frá, kom fljót- lega á brunastað og aðstoðaði við slökkvistarf. Eldurinn kom upp í bílskúr á neðri hæð hússins og barst í bifreið sem brann til kaldra kola. Lögreglan í Borgarnesi og Slökkvilið Akraness fóru á vett- vang ásamt sjúkraflutningamönn- um frá Akranesi. Reykskemmdir urðu á efri hæð hússins, auk þess sem rúður sprungu. Enginn hefur verið handtekinn vegna brunans, en málið er í rannsókn lögregl- unnar. Grunur er um íkveikju Í dag Sigmund 8 Forystugrein 22 Úr verinu 11 Viðhorf 24 Viðskipti 12 Minningar 24/29 Erlent 13/14 Dagbók 32/34 Höfuðborgin 16 Listir 36/39 Akureyri 16 Af listum 37 Austurland 17 Fólk 38/41 Landið 17 Bíó 38/41 Daglegt líf 18/19 Ljósvakar 42 Umræðan 20/21 Veður 43 Bréf 21 Staksteinar 43 * * *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.