Morgunblaðið - 14.09.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 14.09.2004, Síða 4
HÓPUR erlendra blaðamanna var viðstaddur ásamt utanrík- isráðherra Íslands og sendiherra Íslands í París er 22 tonna ísjaki var hífður upp úr Jökulsárlóni í gær og í frystigám. Fyrirtækið Ístak sá um að ná jakanum úr lóninu og flytja hann til Reykjavíkur og ber því vissulega nafn með rentu. Jakinn á nú langt ferðalag fyrir höndum en hann mun verða til sýnis fyrir utan vísindahöllina Palais de la Découv- erte í París í tengslum við viðamikla Íslandskynningu sem hefst þar í borg 27. september nk. Leið ísjakans lá frá Breiða- merkurlóni á athafnasvæði Eimskips. Þaðan verður hann fluttur 16. september áleiðis til Rotterdam í Hollandi og það- an á vörubíl til Parísar. Áætlað er að ferðalagið taki enda sama dag og sýningin hefst í París. Ísjakinn mun standa við vísindahöllina til 3. október en frá þeim degi er framtíð hans óráðin. Fyrsti áfangi tókst vel „Ísinn er farinn af stað og þetta tókst mjög vel, miklu betur en við þorðum að vona,“ sagði Sigríður Snævarr, sendiherra í París, í samtali við Morgunblaðið í gær. Jakinn var sérvalinn til verkefnisins og þurfti aðeins að „snyrta“ hann til áður en hægt var að setja hann á flutningabílinn. Meginmarkmið Íslandskynningarinnar er að efla ímynd Ís- lands í Frakklandi með því að kynna íslenska menningu, sér- þekkingu og atvinnulíf. Kynningin verður undir yfirskriftinni Islande, de glace & de feu, eða Ísland, ísinn og eldurinn. Því er vel við hæfi að ísjaki, upprunninn á Íslandi, sé hafður til sýnis til að vekja athygli á viðburðinum. „Það er þó ekki ísjakinn sem slíkur sem er í aðalhlutverki, heldur hugvitið sem notað er til flutninganna sem og samtakamátturinn sem felst í því að flytja hann alla þessa leið,“ segir Sigríður og bendir á að Ísland sé eina sjálfstæða ríkið í Evrópu þar sem finna megi ís- jaka og geti tekist á við það verkefni að flytja þá milli landa. Ísjakinn verður til sýnis við aðalinngang vísindahallarinnar og mun hann smám saman bráðna eftir því sem líður á sýn- inguna. Talið er að hann muni bráðna um 10% á fyrstu þrem- ur dögum. „Það verður því heilmikið eftir af honum. Stærðin út af fyrir sig er reyndar ekki aðalatriðið heldur sú upplifun að geta snert ísjaka í miðri París.“ Sigríður segir að Íslandskynningin verði auglýst mjög vel í París. Blaðamenn sem hingað komu til að fylgjast með upp- hafi ferðar ísjakans voru að hennar sögn ánægðir með uppá- tækið og heillaðir af Íslandi. „Við eigum von á því að þetta veki mjög mikla athygli því ísjaki hefur aldrei áður verið fluttur til Parísar.“ Sigríður segir að jakinn sé nokkurs konar samnefnari um þann samtakamátt sem að baki Íslandskynningunni liggur, en hún er unnin í nánu samstarfi íslenskra og franskra ráðu- neyta. „Frakkarnir segja íslenska listamenn sérstaka vegna þess að hugarorkan, náttúruorkan og sköpunarkraftur fara saman, segja að þeir taki sína sköpun úr krafti náttúrunnar,“ segir Sigríður um viðhorf Frakka til íslenskrar listar. Sigríður segir að enn sé óvíst hvað verði um ísjakann eða það sem að eftir af honum verður að Íslandskynningunni lok- inni. Hún er þess þó fullviss að eftirspurn eftir jakanum verð- ur mikil. Stórt hlutverk bíður 22 tonna ísjaka úr Jökulsárlóni en hann er á leið til Parísar Táknrænn fyrir hugvit og nána samvinnu Morgunblaðið/RAX Sigríður Snævarr sendiherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra fylgdust með flutningunum. FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HARRY Harrysson stangaveiði- maður veiddi í síðustu viku gríð- arstóra hrygnu í Arnarhólshyl í Hofsá í Vopnafirði. Harry sagði í samtali við Morg- unblaðið að laxinn hefði verið 23,5 pund, veginn 11,8 kg. Þetta var 100 cm hrygna, belgmikil og hrikaleg. Þetta er stærsti vegni lax úr ís- lenskri laxveiðiá það sem af er sumri, en í júlí var 23 punda hrygna vegin lifandi í háf á bökk- um Norðurár og síðan sleppt. Ekkert verður fullyrt um raun- verulega þyngd nokkurra um og rétt yfir eins metra langa hænga sem veiðst hafa, m.a. í Vatnsdalsá og á Nessvæðum Laxár í Aðaldal og verið sleppt. Hofsárlaxinn er því metlax sumarsins til þessa. Á myndinni er Harry með lax- inn í fanginu, en hrygnan stóra tók hálfrar tommu langa rauða Frances-túpuflugu. Sá stærsti í sumar til þessa FRÍSTUNDAHEIMILI eða skóladagheimili í Reykjavík verða hvorki opin lengur né þjón- usta við skólabörn aukin, þótt til verkfalls grunnskólakennara kunni að koma 20. sept- ember. Foreldrar hafa spurst talsvert fyrir hjá frístundaheimilunum hvort breytingar verði á starfseminni, ef til verkfalls kemur, en ljóst er að svo verður ekki. Heimilin munu samt bjóða upp á hálfsdagsvist eftir sem áð- ur. Björn Finnsson er forsvarsmaður frí- stundaheimilanna í Fellahverfi og segir fyrir liggja lögfræðiálit frá Reykjavíkurborg þar sem tekin séu af öll tvímæli í þessum efnum. „Það gengur ekki að aðrir gangi í störf kenn- ara, en við munum hins vegar hafa sömu not af skólahúsnæði og verið hefur, því aðrir starfsmenn, en kennarar verða ekki í verk- falli. Við munum því sem áður hafa fullan að- gang að íþróttasal, eldhúsi, tölvusal eða kennslustofum eftir atvikum.“ Guðbrandur Guðmundsson, formaður for- eldra- og kennarafélags Engjaskóla, segir foreldra áhyggjufulla og svartsýni þeirra fari dagvaxandi. „Maður hefur það á tilfinning- unni að lítið hafi þokast í samkomulagsátt og kannski gerist ekkert fyrr en verkfall skellur á. Við höfum reynt að láta ástandið ekki hafa áhrif á starf félagsins og valda ekki óþarfa áhyggjum hjá börnum og foreldrum. Manni finnst dapurlegt að í kjaradeilum sé ekki hægt að tala saman fyrr en allt er komið á síðasta snúning,“ segir hann. Ekki hefur ver- ið tekin afstaða til þess hvað verður gert til að gæta barna ef til verkfalls kemur, en stjórn félagsins mun ræða það mál á fundi sínum í dag, þriðjudag. „Við höfum vonað að ekki kæmi til verkfalls en allir eru að verða æ svartsýnni. Ég óttast að verkfallið kunni að verða langt, því eftir því sem mér heyrist ber mikið í milli meðal deiluaðila.“ Leyfir sér að vera bjartsýn Guðbjörg Þórisdóttir, skólastjóri Breiða- gerðisskóla, segir starfslið sitt ekki undirlagt af neinum verkfallsótta þótt stutt sé í yfirvof- andi verkfall. „Það ber á ákveðnum verkfallsótta en engu að síður finnst mér kennarar hér við skólann aðskilja kjarabaráttu sína frá faglegu skóla- starfi á aðdáunarverðan hátt,“ segir Guð- björg. „Ég ætla þó að leyfa mér að vera bjartsýn á að samningar takist og einbeiti mér að daglegum störfum með starfsgleði og tilhlökkun að leiðarljósi. Kennarar hér halda kjarabaráttunni mjög vel utan við skólastarf- ið. Í hreinskilni sagt verð ég ekki mjög vör við að samningastaðan hafi mikil áhrif á kennara. Þeir einbeita sér að starfi sínu og sinna því af kostgæfni eins og venjulega. Sú staðreynd liggur fyrir að verkfall hefur verið boðað ef ekki nást samningar. Innst inni vonast kennarar eftir samningum, því þeir vilja ekki verkfall þótt þeir vilji bætt kjör. Það er mikið vinnuálag á þeim og þeir skila bæði mikilvægu og góðu starfi. Ég vildi gjarnan að dregið yrði úr vinnuálagi á þeim með því að kennsluskylda yrði minnkuð en vægi stjórnunar og sam- vinnu aukið.“ Dæmi er um að fyrirtæki ætli að grípa til sérstakra aðgerða komi til verkfalls. Þannig hefur Íslandsbanki boðið starfsmönnum að koma með börnin í vinnuna þar sem haft verði ofan af fyrir þeim í umsjón starfsfólks. Skólabörn geta ekki farið í frístundaheimilin fyrr en eftir hádegi Þjónustan verður ekki aukin KARLMAÐUR, sem ákærður er fyrir innflutning á 325 grömmum af kókaíni til landsins 2. desember sl. ásamt félaga sín- um, játar innflutning á þeim 165 grömm- um sem fundust á honum í Leifsstöð, en neitar því að smyglið hafi átt sér stað í ágóðaskyni. Honum var birt ákæra í gær. Ákærði kveðst hafa staðið einn að inn- flutningnum en ekki hefði verið um sam- vinnu milli hans og meðákærða að ræða. Játning hans var á sömu lund og með- ákærða sem játaði sinn hlut er málið var þingfest fyrir tæpum mánuði. Við komuna frá Amsterdam 2. desem- ber sl. voru mennirnir báðir í íþróttagöll- um sem voru kirfilega merktir Íslandi og með íslenskum fána en þeir tengdust báð- ir hnefaleikafélögum. Við skoðun kom í ljós að þeir höfðu báðir falið smokka með kókaíni í endaþarmi. Mennirnir eru, auk fíkniefnasmyglsins, ákærðir fyrir tollalagabrot með því að hafa flutt með sér vörur ætlaðar til iðk- unar hnefaleika en framvísað lægri reikn- ingi en raunverulegum. Játar kók- aínsmygl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.