Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 11
SKREIÐARVINNSLA á Íslandi er ekki í hættu
vegna nýrra heilbrigðisreglna Evrópusambandsins
(ESB) enda munu íslensk stjórnvöld ekki gangast
undir reglur sem hindra aldagamlar hefðir í matvæla-
vinnslu. Undanfarið hefur verið nokkur umræða í
Noregi um hvort að skreiðarverkun kunni að vera í
hættu sökum nýrrar reglugerðar ESB.
Þetta kemur fram í Stiklum, vefriti viðskiptaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins. Grétar Már Sigurðsson,
skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, segir í samtali við Stiklur að hann telji
ástæðulaust að hafa áhyggjur að því að endurskoðuð
matvælalöggjöf Evrópusambandsins muni herða að
skreiðarverkun hér á landi.
„Umræða um nýjar heilbrigðisreglur Evrópusam-
bandsins í Noregi virðist við fyrstu sýn vera nokkuð
úr samhengi við efni reglugerðarinnar. Við erum að
skoða þessa reglugerð nánar, en hún er fyrst og
fremst safn eldri reglna á þessu sviði. Ég tel afar ólík-
legt að reglugerðin hafi áhrif á skreiðarverkun hér á
landi, enda eru í henni sérstök ákvæði um undanþág-
ur fyrir hefðbundnar verkunaraðferðir. Ef svo ólík-
lega vill til að gerðar yrðu athugasemdir við skreið-
arverkun þá er ljóst að það kæmi ekki til greina að
íslensk stjórnvöld gangist undir reglur frá ESB sem
banna hefðbundnar verkunaraðferðir sem eiga sér
aldalanga sögu hér á landi,“ segir Grétar Mar.
Ný reglugerð ESB samansafn eldri reglna
„Evrópusambandið samþykkti endurskoðaða mat-
vælalöggjöf í apríl síðastliðnum. Nýja reglugerðin
tekur fyrst og fremst saman eldri reglur á þessu
sviði.
Stjórnvöld í EFTA-ríkjunum eiga nú í viðræðum
við Evrópusambandið um hvort taka eigi upp þessar
nýju reglur í EES-samninginn. Í þeim viðræðum er
meðal annars tekin afstaða til þess hvort nauðsynlegt
er að aðlaga reglugerðina sérstökum aðstæðum í
EFTA-ríkjunum.
Því er ekki hægt að segja til um hvort og þá hvenær
endurskoðuð matvælalöggjöf Evrópusambandsins
muni taka gildi hér á landi.
Verðmæti skreiðarútflutnings
284 milljónir króna
Hér á landi er aðeins borðuð ein tegund skreiðar,
þ.e. harðfiskur, en öll önnur skreið er framleidd til út-
flutnings. Verðmæti skreiðarútflutnings Íslendinga
nam um 284 milljónum króna á síðasta ári. Mest er
flutt út til ríkja í vestanverðri Afríku en eitthvað til
Ítalíu,“ segir í fréttabréfinu.
Skreiðarvinnsla ekki
í hættu vegna ESB
Morgunblaðið/Ómar
GENGIÐ hefur verið frá samningi
um kaup Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar hf. á nóta- og togveiðiskipinu
Júpíter II FD-235 ásamt veiðarfær-
um af P/F Driftin í Færeyjum. Fram
kemur í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands að kaupverð sé trúnaðarmál.
Skipið verður afhent félaginu innan
skamms. Ekki er alveg ljóst til hvaða
veiða verður haldið, en líklegast er þó
að kolmunni verði fyrir valinu, verði
veiðin farin að glæðast. Magnús
Helgason, framkvæmdastjóri HÞ,
segir að margt geti þó breytzt á
skömmu tíma og gefi norsk-íslenzka
síldin sig innan lögsögunnar eða í
Síldarsmugunni verði að sjálfsögðu
farið á þær veiðar.
Hinn færeyski Júpíter var smíðað-
ur árið 1978. Hann er með sjó-
kælitanka um borð og ber alls um
1.560 tonn. Hraðfrystistöðin hefur um
árabil gert út nótaskipið Júpíter ÞH,
sem er 47 ára um þessar mundir.
Magnús segir að hitt skip félagsins,
Þorsteinn, verði á síld í haust, en þar
er flakað og fryst um borð. Þessi kaup
muni styrkja rekstur félagsins og
gera því kleift að gera meiri verðmæti
úr þeim aflaheimildum sem það hafi
yfir að ráða.
Nýr Júpíter
til Þórs-
hafnar
Leysir af hólmi nærri 50
ára skip með sama nafni
VILHELM Þorsteinsson EA hefur nú lokið
fyrsta síldveiðitúr haustsins og var í gær bú-
inn að taka um 1.150 tonn af stórri síld á Hal-
anum. Hann var þá á leið til Akureyrar með
530 til 540 tonn af flökum og 150 tonn af síld í
bræðslu, sem flokkaðist frá við vinnsluna.
Birkir Hreinsson, stýrimaður, var nokkuð
sáttur við gang mála í gær. Sagði að veiðin
hefði dugað ágætlega fyrir vinnsluna, en af-
köstin eru um 120 til 140 tonn af flökum á
sólarhring. Hann sagði að síldin væri mjög
stór, 350 til 400 grömm, en hún væri fremur
horuð og töluvert af átu í henni.
Vilhelm hefur verið drjúgur við síldveið-
arnar á þessu ári. Í janúar var farinn einn
túr sem skilaði um 1.000 tonnum upp úr sjó.
Í sumar veiddu skipverjar 17.000 tonn af
norsk-íslenzku síldinni og gerði það gæfu-
muninn að aflanum var skipað um borð í
flutningaskip á miðunum. Nú eru skipverjar
búnir að taka 1.150 tonn af íslenzku sum-
argotssíldinni og gera þeir ráð fyrir að vera
að síldveiðum til áramóta.
Tvö önnur frystiskip eru nú komin á Hal-
ann, Guðmundur VE og Hákon EA. Jóna
Eðvalds SF kom kom við á Halanum á föstu-
daginn og tók eitt hal. Hún kom með 180
tonn af síld til Hafnar í Hornafirði í gær-
morgun og er þetta fyrsta síldina sem landað
er á vertíðinni. Fram kemur á fréttavefnum
Horni.is. að þetta er stór og falleg síld sem
hafi fengist í einu kasti með flottrollinu á
Halanum. Halldór Jónasson skipstjóri segir
að þeir hafi stoppað í sex tíma á miðunum og
aðeins tekið þetta eina hal en þá hafi verið
komin bræla.
Jóna Eðvalds lenti í vitlausu veðri fyrir
sunnan landið og spilltist aflinn verulega.
Vilhelm með 540
tonn af flökum
ÚR VERINU
SIR John Bourn, ríkisendurskoðandi Bret-
lands og gestaprófessor við London School
of Economics, flytur fyrirlestra á morg-
unmálþingi, um opin-
bera stjórnun og stjórn-
sýsluumbætur í Bret-
landi. Málþingið verður
haldið fimmtudaginn 16.
september, á Grand-
hóteli í Reykjavík.
Bretland hefur staðið
framarlega í þeirri
hreyfingu umbóta í op-
inberri stjórnsýslu sem
staðið hefur í á annan
áratug á Vesturlöndum. Mörg nýmæli sem
voru þróuð þar hafa verið tekin upp í öðr-
um löndum. Meðal þess sem Bourn fjallar
um er: hvað merkir vönduð opinber stjórn-
un í Bretlandi og hvaða aðferðum beita
stofnanir þar í stefnumótun, markmiðs-
setningu og mati á árangri? Hvernig er
tryggð ábyrgð stofnana og stjórnenda í
Bretlandi. Loks mun Sir John Bourn fjalla
um þau umbótamál sem efst eru á baugi í
Bretlandi um þessar mundir, einkum í
heilbrigðis- og menntakerfi.
Tími mun gefast til fyrirspurna og um-
ræðna.
Sir John Bourn hefur verið ríkisend-
urskoðandi Bretlands frá árinu 1988. Hann
hefur sem slíkur staðið að útgáfu fjölda
skýrslna til breska þingsins um árangur og
skilvirkni hins opinbera í Bretlandi, hjá
ráðuneytum og opinberum stofnunum. Sir
John Bourn er með doktorspróf frá Lond-
on School of Economics í hagfræði. Hann
er með víðtæka starfsreynslu innan
breskra stjórnkerfisins, m.a. í fjármála-
ráðuneyti og varnarmálaráðuneyti. Auk
þess að vera gestaprófessor hjá London
School of Economics, er hann eftirsóttur
fyrirlesari og heldur árlega fjölda fyrir-
lestra víða um heim.
Málþingið fer fram á ensku, er opið öllu
áhugafólki um stjórnsýslu meðan rými
leyfir og er aðgangur ókeypis. Málþings-
stjóri verður Páll Skúlason háskólarektor.
Húsið er opnað kl. átta en dagskráin hefst
upp úr hálfníu og lýkur um kl. 10.30.
Ræðir opin-
bera stjórnun
og stjórn-
sýsluumbæt-
ur í Bretlandi
Sir John Bourn
FRAMKVÆMDIR við byggingu starfs-
mannaþorps Fjarðaáls-Alcoa á Reyðarfirði
ganga vel. Þorpið, sem er um 1 km utan við
þéttbýlið á Reyðarfirði, mun hýsa um eða yfir
1.800 manns sem koma til með að vinna við
byggingu álversins. Það rís á 14 hekturum
lands, með stækkunarmöguleika upp í 17
hektara.
Fyrstu húsin í þorpinu eru að rísa þessa
dagana, en áætlað er að fyrsti áfangi þorpsins,
vinnubúðir fyrir 100 manns, verði tilbúinn
snemma í vetur. Síðar í vetur á að vera komin
aðstaða fyrir 250 manns, fyrri hluta sumars
2005 fyrir 800 manns og 1.200 manns síðari
hluta sumars 2005. Búið á að vera að byggja
upp fyrir 1.500 starfsmenn á fyrri hluta árs
2006 og 1.800 manns þegar liðið er á sumarið
2006. Frá þeim tíma og fram á árið 2007 verð-
ur þorpið stækkað ef þörf er á, en fyrir árslok
2007 verða búðirnar tæmdar og fjarlægðar.
Bechtel ásamt undirverktökum reisir
starfsmannaþorpið, en fyrirtækið Compass
Group mun reka vinnubúðirnar og sjá um alla
þjónustu í þeim.
Framkvæmdir við vinnubúðir vegna álvers á Reyðarfirði komnar á skrið
Fyrstu húsin rísa í starfsmannaþorpi
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Umsvif á Reyðarfirði: Bygging 1.800 manna vinnubúða vegna smíði álvers í fullum gangi.
GÓÐ veiði hefur verið á Nesveið-
um Laxár í Aðaldal nú í haust.
„Ég hef verið hér við leiðsögn í
ellefu ár og man ekki eftir öðru
eins. Við erum að fá upp í 14 laxa
á dag og marga stóra. Ég þakka
þetta því að nú eru menn að
sleppa laxi um alla Laxá og auk
þess er aðeins veitt á flugu í allri
ánni. ,“ sagði Árni Pétur Hilm-
arsson, leiðsögumaður og stað-
arhaldari í Árnesi, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Alls hafa veiðst um 350 laxar á
Nesveiðunum og á tíunda hundr-
að í Laxá allri. Fyrir tveimur
dögum veiddist stærsti laxinn af
Nesveiðunum í sumar, u.þ.b. 22
punda 104 cm hængur sem tók
Collie Dog-túpu á Beygjunni í
Knútsstaðalandi. Veiðimaðurinn
var Jón Benediktsson sem sagði í
samtali við Morgunblaðið að lax-
inn færi uppstoppaður upp á
vegg. Alls hafa tíu laxar á bilinu
100 til 104 cm veiðst. Hefð er fyr-
ir því á Nesveiðum að bóka í
ensku pundum og því eru hærri
tölur í veiðibók þar heldur en ef
íslensk kg væru notuð. Lax Jóns
er því skráður þar 25 libs.
Mok í Víðidal
Um helgina voru komnir yfir
1.600 laxar úr Víðidalsá og um-
skiptin frá síðasta sumri alger,
en þá veiddust aðeins 588 laxar.
Þetta er mesta veiði sem náðst
hefur úr ánni síðan metveiði varð
sumarið 1988, en þá veiddust
2.018 laxar að sögn Ragnars
Gunnlaugssonar á Bakka. Dæmi
um mokveiðina er maður sem
veiddi 36 laxa á eina stöng á
tveimur dögum fyrir skemmstu.
Veiði lýkur hinn 19. september,
en lokahollið er bleikjusinnað og
veiðir ævinlega lítið af laxi. Veið-
in á silungasvæðinu hefur einnig
verið með ágætum, alls um 900
fiskar, mest sjóbleikja, en einnig
slangur af sjóbirtingi og 28 laxar.
Vatnsdalsá líka fín
Alls hafa 700 laxar veiðst á
laxasvæði Vatnsdalsár og 170 til
viðbótar á silungasvæði árinnar,
auk þess sem fleygt er að einhver
holl hafi gleymt að skrá talsvert
af laxi. Þetta er því fast að 900
laxa veiði og miklu meira en í
fyrra, en veitt er til 25. sept-
ember. Lægri tala en í Víðidal og
Miðfirði stingur í stúf, en að sögn
Péturs Péturssonar eru fyrir því
ýmsar ástæður og ein þeirra sé
ekki minna af laxi, það sé fiskur í
haugum í ánni. Dæmi um veiðina
að undanförnu má nefna að þrír
félagar voru komnir saman með
19 laxa eftir tvo daga af þremur
og voru margir stórir.
Ævintýri á silungasvæði
Veiðimenn sem voru á sil-
ungasvæði Miðfjarðarár um
helgina duttu í lukkupottinn. Það
var ekki nóg með að þeir veiddu
um 54 vænar sjóbleikjur, heldur
glöddu þá sjö laxar að auki, sem
flestir voru grálúsugir.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Jón Benediktsson með stórlaxinn.
Stórlaxaveisla á Nesveiðunum
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hefur skipað fulltrúa Bif-
hjólasamtaka lýðveldisins, Snigl-
anna, í Umferðarráð. Var Dagrún
Jónsdóttir tilnefnd til setu í ráðinu af
hálfu Sniglanna en varamaður henn-
ar er James Alexandersson.
Fram kemur í tilkynningu frá
samgönguráðuneytinu að Sniglarnir
hafi í gegnum tíðina unnið ötullega
að fræðslu og áróðri í því skyni að
fækka slysum og óhöppum þar sem
bifhjólafólk kemur við sögu. Þetta
starf hafi skilað sér í mikilli fækkun
bifhjólaslysa. Á undanförnum árum
hafi bifhjólaslysum fækkað hér á
landi þrátt fyrir að bifhjólum hafi
fjölgað sem og þeim dögum sem þau
eru skráð. Árið 1992 voru skráð 113
bifhjólaslys, en árið 2001 var talan
komin niður í 61.
Þrátt fyrir ofangreinda þróun láti
að meðaltali þrír bifhjólamenn lífið í
umferðarslysum á hverju ári. Það
sem af sé árinu hafi 16 manns látist í
umferðinni, þar af tveir bifhjóla-
menn.
Snigill
skipaður
í Umferð-
arráð