Morgunblaðið - 14.09.2004, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
– kraftur til flín!
VI‹
GERUM
GOTT
BETRA
KB ÍBÚ‹ALÁN
LÆKKUM Í 4,2%
FASTA VEXTI
AFTURVIRKIR
GJALDEYRISTEKJUR af erlend-
um ferðamönnum fyrstu 6 mánuði
ársins námu tæpum 14,9 milljörðum
króna, en voru tæplega 13,9 millj-
arðar á sama tíma í fyrra, samkvæmt
tölum frá Seðlabankanum. Aukning-
in á milli ára er því um 1 milljarður í
krónum talið eða 11,3%.
Fargjaldatekjur á fyrri helmingi
þessa árs voru tæpir 5,5 milljarðar
og er það nánast sama tala og í fyrra.
Neysla erlendra ferðamanna hér á
landi jókst hins vegar töluvert miðað
við fyrstu sex mánuði ársins 2003.
Keyptu erlendir ferðamenn vörur og
þjónustu fyrir tæpa 9,4 milljarða á
fyrri hluta ársins, en fyrir rúma 8,4
milljarða króna á sama tíma í fyrra.
Fleiri ferðir en styttri
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
segir í tilkynningu frá Ferðamála-
ráði ánægjulegt að erlendir gestir
séu að kaupa hér vörur og þjónustu
fyrir um 1 milljarði meira en árið áð-
ur. Erlendum gestum hafi fjölgað
um 15% og eyðsla þeirra aukist um
11,3% en þróunin sé sú að ferðum
fjölgar en þær styttist, sem leiði til
styttri dvalar og þar með minni
eyðslu hvers gests á dvalarstað.
Í upplýsingum Seðlabankans
kemur einnig fram að ferðaútgjöld
Íslendinga erlendis hafi numið rúm-
um 21,7 milljörðum króna fyrstu sex
mánuði ársins, en hafi verið rúmir
17,2 milljarðar króna á sama tíma í
fyrra. Aukningin nemur því um 4,5
milljörðum króna á milli ára.
Gjaldeyristekjur af
ferðamönnum aukast
Morgunblaðið/RAX
Milljarður Gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum á fyrri helmingi
ársins eru um milljarði meiri en á sama tíma í fyrra.
● BRESK samkeppnisyfirvöld hafa
fyrir sitt leyti lagt blessun sína yfir
kaup Baugs Group á bresku skart-
gripakeðjunni Goldsmiths. Baugur
keypti ásamt Kaldbaki hf., Feng hf.
og Bank of Scotland meirihluta í
Goldsmiths í maí sl. fyrir 14,4 millj-
arða króna í samstarfi við stjórn-
endur félagsins.
Kaup á Goldsmiths
samþykkt
● BAUGUR hefur selt allan hlut sinn
í skosku verslanakeðjunni House of
Fraser, en félagið átti 10,1% hlut í fé-
laginu. Á sama tíma seldi skoski
kaupsýslumaðurinn Tom Hunter
hluti sína í félaginu en söluverð hluta
Baugs og Hunter var samtals 55,6
milljónir punda, eða 113 pens hver
hlutur. Hlutur Baugs hefur því selst á
nálægt 27 milljónir punda og hagn-
aður af sölunni má ætla að sé á
bilinu 10–11 milljónir punda eða
1,3–1,4 milljarðar króna.
Kaupandi hlutanna er Dresdner
Kleinwort Wasserstein, breskur fjár-
festingarbanki í eigu Dresdner-bank-
ans þýska. Bréf House of Fraser
lækkuðu um rúm 9% í kauphöllinni í
London í gær.
Talsmaður Baugs í Lundúnum seg-
ir ástæðu sölunnar þá að verið sé að
innleysa góðan hagnað af góðri fjár-
festingu. Þetta hafi verið mjög góð
fjárfesting. Baugur hyggist nú ein-
beita sér að félögum sem það eigi
ráðandi hlut í og minnka óbeinar fjár-
festingar.
Baugur selur hlut sinn
í House of Fraser
● Microsoft-ráðstefna verður haldin
á vegum Microsoft á Íslandi og hefst
hún miðvikudaginn 15. september.
Fjöldi erlendra og innlendra fyrirles-
ara fjallar um upplýsingatækni jafnt
fyrir stjórnendur fyrirtækja, tækni-
menn og forritara. Dagskrá og skrán-
ing er á www.microsoft.is
Á MORGUN
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
! "# $
"%
& '"% ("
) ("
*"% (" & '"%
+!'
+!%
! '#
,#
, " !
-./!
-. ! "#($
0
' ! "# 1'#2 . & '"%
'#'!
3. "
3'( 4 5"($
3 6 $ 74 / "
8("
)'%(
)#"
*9 :" 4 ""
;</!
-&
-9'% "" '" -' 1'# -'"%
-:' -'. / 6 /$
="#
=6## "#. "
> "" ' "
7.$ .. 2-:(!#
! " #$
(
!'% ?6
*"% 9. & '"% =: :
>6## "# 1'# & '"%
-9
$!
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
!6 "#
6 $!
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
@
AB
@
AB
@ AB
2
@ AB
@
AB
@
AB
@
AB
@ 2
AB
2
@
AB
2
2
@ 2
AB
@ 2AB
2
2
@ 2AB
2
2
2
2
2
2
2
@ 2AB
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
@ AB
3! '%
%# "
= '( 9 ' %# C
) -'
$ $ $ $ $ $
$ $ $ 2
$
2
$ 2
$ 2
$
2
$ 2
2
$ 2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
$
2
2
2
2
2
2
2
2
> 9 D5 $ $
=3$ E /#"' '%
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
VERIÐ er að klára hvernig staðið
verður að fjármögnun kaupa Norð-
urljósa hf. á 34,99% hlut CVC á Ís-
landi ehf. í Og Vodafone hf., að sögn
Skarphéðins Berg Steinarssonar,
stjórnarformanns Norðurljósa.
Hann sagðist í samtali við Morgun-
blaðið í gær ekki vilja tjá sig frekar
um það á þessu stigi hvernig að fjár-
mögnuninni verður staðið.
Bjarni Þorvarðarson, stjórnarfor-
maður Og Vodafone, og fram-
kvæmdastjóri CVC, segir að haldinn
verði hluthafafundur í félaginu fljót-
lega. Norðurljós hafi nú þegar óskað
eftir því að fundurinn verði haldinn.
Norðurljós keyptu liðlega 1,2 millj-
óna hluti í Og Vodafone síðastliðinn
föstudag á genginu 4,2. Kaupverðið
var því um 5,1 milljarður króna.
Lokaverð hlutabréfa Og Vodafone
í Kauphöll Íslands í gær var 4,0
krónur á hlut, og hækkaði það um
12% frá lokaverðinu síðastliðinn
föstudag, en þá var það 3,57.
Fjármögnun
kaupanna í
Og Vodafone
á lokastigi
LANDSFRAMLEIÐSLA er talin
hafa aukist um 6,4% að raungildi á
öðrum ársfjórðungi þessa árs, borið
saman við sama fjórðung árið áður.
Segir Hagstofan að þetta sé mun
meiri hagvöxtur en verið hafi á und-
anförnum ársfjórðungum.
Hagstofan segir, að hagvöxturinn
á 2. ársfjórðungi hafi líkt og á 1. árs-
fjórðungi einkennst af miklum vexti
í einkaneyslu og fjárfestingu. Einka-
neysla hafi nú vaxið um 6,5% sem sé
litlu minni vöxtur en var á 1. árs-
fjórðungi. Sem fyrr megi rekja meg-
inhluta þessa vaxtar til kaupa á inn-
fluttri neysluvöru og til útgjalda
erlendis. Mikil aukning hafi verið í
fjárfestingu á 2. ársfjórðungi eða
21%. Samneyslan jókst um 2,2% og
segir Hagstofan, að það sé hægari
vöxtur en verið hafi undanfarin ár
þegar vöxturinn var 3–4%.
Mikill vöxtur einkaneyslu og fjár-
festingar á 2. ársfjórðungi leiddi til
8,7% aukningar þjóðarútgjalda, sem
eru samtala neyslu og fjárfestingar.
Innflutningur jókst um 12,9%, og
þar vógu fjárfestingarvörur þungt,
og útflutningur jókst um 7,4%.
Útlutningsvöxtur ánægjulegur
Greiningardeild Íslandsbanka
segir að vöxtur útflutnings sé
ánægjulegur. „Um er að ræða 7,4%
vöxt en ekki hefur mælst meiri vöxt-
ur í útflutningi í um tvö ár. Lítill sem
enginn vöxtur hefur verið í útflutn-
ingi síðustu misserin og ytri skilyrði
fyrirtækja í greininni á margan hátt
erfið. Í því ljósi er afar ánægjulegt
að sjá þennan vöxt núna,“ segir í
Morgunkorni greiningardeildar Ís-
landsbanka.
Morgunblaðið/Steinunn
Framkvæmt á fullu Fyrsta skóflustunga að Fjarðaáli í Reyðarfirði.
Landsframleiðsla
upp um 6,4%
!
"
#
$ $$ $$$ $ $ $$
MEÐ nýjum samningi SPRON við
norska afsláttarklúbbinn Hotel Ex-
press getur SPRON tryggt viðskipta-
vinum sínum 50% afslátt af hótelgist-
ingu í 135 löndum. Viðskiptavinir
SPRON greiða 2.600 króna árgjald
fyrir alþjóðlegt afsláttarkort Hótel
Express, en handhafar Fyrirtækja-
korta og Platínukorta hjá SPRON fá
kortið ókeypis. Aðrir en viðskiptavinir
SPRON geta fengið kortið í gegnum
umboð Hotel Express International
fyrir 14.900 kr. á ári.
Meðlimir í afsláttarklúbbnum eru
3,5 milljónir um víða veröld og er
hægt að velja úr tveggja til fimm
stjörnu hótelum. Þar á meðal eru hót-
elkeðjur eins og Sheraton, Golden
Tulip, Hilton, Radisson og fleiri. Hér á
landi eru 25 hótel í samstarfi við Hotel
Express International og bjóða þau
eins og önnur samstarfshótel fastan
50% afslátt gegn framvísun kortsins.
„Ástæðan fyrir því að við göngum
til samninga við Hotel Express er sú
að með því getum við boðið viðskipta-
vinum okkar þau fríðindi sem þessi
klúbbur felur í sér,“ sagði Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, í
samtali við Morgunblaðið. „Fyrir okk-
ur vakir auðvitað það að bjóða við-
skiptavinum okkar meiri verðmæti
við að eiga viðskipti við SPRON í
þeirri hörðu samkeppni sem ríkir á
markaðnum.“
Talsmenn SPRON sögðu á blaða-
mannafundi þegar nýja afsláttarkort-
ið var kynnt, að ekki væri um það að
ræða að SPRON ætlaði sér að nið-
urgreiða kortið, en Kristján Þór
Harðarson, framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs SPRON, sagði að afla þyrfti
viðskipta í þúsundatali til að þau
stæðu undir sér.
SPRON kynnir
nýtt afsláttarkort
Morgunblaðið/Árni Sæberg
; %F
-GH
A
A
=-?
IJ
A
A
KK
,+J
A
A
)J
; !
A
A
LK?J IM 8"!
A
A
● VIÐSKIPTI í Kauphöllinni námu um
9,5 milljörðum króna í gær. Mest
voru viðskiptin með bréf KB banka,
eða fyrir um 730 milljónir króna. Úr-
valsvísitalan hækkaði í gær um
0,87% og er nú 3.558,68 stig.
Erlendar vísitölur hækkuðu flestar
í gær. Var RTS vísitalan rússneska
sú eina í Evrópu sem lækkaði.
Mest verslað með
bréf KB banka