Morgunblaðið - 14.09.2004, Page 28

Morgunblaðið - 14.09.2004, Page 28
MINNINGAR 28 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sveinn VíðirFriðgeirsson skipstjóri fæddist í Háteigi við Stöðvar- fjörð 13. júlí 1932. Hann lést á hjúkrun- arheimilinu Garð- vangi 6. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru Friðgeir Þorsteins- son frá Óseyri við Stöðvarfjörð og Elsa Jóna Sveinsdóttir frá Bæjarstöðum við Stöðvarfjörð. Systk- ini Víðis eru Örn, Þórólfur, Guðríður, Björn og Guð- jón sem er látinn. Víðir kvæntist Nönnu Ingólfs- dóttur 24. desember 1953. Þau hófu búskap á Stöðvarfirði og á Eiðum. Hann stundaði nám í skipstjórnarfræðum í Neskaup- stað veturinn 1958–1959 og út- skrifaðist með skipstjórnarrétt- indi frá Sjómannaskólanum í Reykjavík árið 1964. Hann hóf snemma að taka þátt í öllum hefð- bundnum störfum til lands og sjávar og stundaði sjómennsku með föður sínum og bræðrum frá unga aldri. Víðir starfaði við sjáv- arútveg og tengd störf alla sína starfsævi, sem háseti, stýrimaður, skipstjóri og útgerðarmaður. Hann var vinsæll og fengsæll skipstjóri. Síðustu árin rak hann eigið fyrirtæki ásamt konu sinni Nönnu. Víðir hafði lifandi áhuga á þjóðmálum og stjórnmálum. Hann hafði brennandi áhuga á íþrótt- um, stangveiði, bridge og ferða- lögum og sinnti þessum áhuga- málum af alkunnri eljusemi og krafti. Útför Víðis fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15. Jarðsett verður í Fossvogs- kirkjugarði. bjuggu síðar á Fá- skrúðsfirði, í Reykja- vík, Keflavík og Garði. Börn þeirra eru: 1) Þröstur Ingólf- ur, sambýliskona Sig- urlaug Hrund Svav- arsdóttir. Börn Þrast- ar eru Svavar Berg- dal, Víðir Ingólfur, Sigrún Birta og Óli Stefán. Stjúpdætur hans eru Anna María og Petra María. 2) Friðgeir Fjalar, sonur hans er Hjörvar. 3) Bjarnþór Elís, börn hans eru Ómar Örn og Sif. 4) Elsa Kristín, sem er látin. Víðir ólst upp í foreldrahúsum á Stöðvarfirði og stundaði nám á Stöðvarfirði og við Alþýðuskólann Það er mánudagur, þungbúið veð- ur, drungi yfir öllu eins og næstu dag- ana. Það var eitthvað sem hvíldi þungt á þér þennan eftirmiðdag. Þér var mikið í mun að segja okkur mömmu eitthvað, þú margreyndir að koma því frá þér en því miður brast röddin og ég fann vonbrigði þín þegar við skildum þig ekki. Þetta sat í mér. Seinna mun ég kannski komast að raun um hvað lá þér svo þungt á hjarta. Ég var ekki fyrr kominn heim um kvöldið þegar síminn hringdi. Nú var komið að leiðarlokum, reyndar svo stutt eftir að við náðum ekki suð- ur í tæka tíð til að kveðja. Stóri skellurinn kom fyrir fjórum árum. Höggið var miskunnarlaust og óvægið, byrðin var þér þung í skauti. Vonbrigðin og sorgin voru mikil og mér fannst þú miklum órétti beittur. Samt sýndirðu undraverðan styrk og æðruleysi meðan minnsti kraftur var enn til staðar. Á þessu síðasta kvöldi starfsævinnar var fótunum kippt undan þér og öllum framtíðaráform- um. Morgundagurinn átti að vera upphaf nýs tíma. Ný og glæsileg íbúð, húsbíllinn klár og endurbættur – nú skyldi ferðast og farið í veiði. En skjótt skipast veður í lofti. Allt breyttist á einni nóttu. Nú er barátt- unni lokið. Í hjarta mínu geymi ég hlýjar og bjartar minningar. Þú varst góður pabbi, stór og sterkur, alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd, bið- lund verkmannsins lítil yfir óloknum verkum, ekkert mátti bíða morguns. Tilhlökkunin þegar þú komst heim eftir langa útiveru á sjónum, allar ferðirnar á völlinn, sumarbústaður- inn við Meðalfellsvatn, ferðir í Húsa- fell og austur á Stöðvarfjörð, til Dan- merkur og suður til Kanaríeyja … Á allar þessar perlur glóir nú í fjöru- borði minninganna um góðan föður sem ég sakna sárt. Bjarnþór. Ég á eftir að sakna þín svo mikið, elsku afi minn. Það er svo sárt að þú skulir vera farinn. Minningarnar sem ég á með þér úr æsku eru svo marg- ar. Þú varst fyrsti leikfélaginn sem ég eignaðist. Það fyrsta sem ég man eft- ir í lífi mínu eru stundirnar í pössun hjá þér og ömmu. Ferðalögin okkar saman, austur á Ekru, uppí Húsafell og sérstaklega til Kanaríeyja þar sem ég og þú lékum okkur að því að leita uppi kakkalakka og köngulær og fara svo í kapp hver væri á undan að kremja þær. Og þar sem þú varst sjómaður kom auðvitað að því að yngsta barnabarn- ið vildi verða það líka. Níu ára gamall grátbað ég um að vera tekinn með á sjóinn og þú varðst við því. Þetta reyndist vera upphaf míns sjómannaferils og jafnframt endirinn þar sem við vorum ekki komnir meira en í tíu mínútna fjarlægð frá Grinda- víkurhöfn þegar þú þurftir að kalla í ömmu í talstöðina til að biðja hana um að koma að sækja mig í Hafnir þar sem ég grét og ældi til skiptis af sjó- veiki. Þegar þú svo hættir á sjónum og byrjaðir að smíða kom það ekki á óvart hver var fyrstur til að suða um vinnu. Eftir að hafa eytt mörgum stundum í bílskúrnum í Hraunholtinu með þér við að smíða var það sann- kallaður draumur þegar þú leyfðir mér að koma að vinna á verkstæðinu. Það hefur örugglega ekki verið auð- velt að hafa mig í vinnu. 12 ára gamall og vildi gera allt en sérstaklega þó að keyra lyftarann. Þegar þú lést það eftir mér endaði það reyndar oft með því að gafflarnir stungust inní vegg eða rafmagnstaflan hrundi niður við að verða á vegi mínum. Ég man að það var bara eitt sem komst að í huga mér þegar ég horfði á þig með kaffibollann í vinstri hönd, naglabyssuna í hægri og vindilinn á milli tannanna: Ég ætla að verða einsog afi. Það var hræðilegt að horfa á svona vinnusaman og dugmikinn mann liggja veikan á hjúkrunarheimili síð- ustu árin. Þú vildir ferðast og hamast en varst þess í stað bundinn við hjóla- stól. Ég vona að þar sem þú ert núna þá líði þér betur. Ég vona líka að við hittumst einhvern tímann aftur, elsku afi minn. Ég skal passa ömmu fyrir þig á meðan. Ég vil það, Guð, að þú geymir afa minn vel, því að hann á allt það besta skilið. Ómar Örn. Ég vil byrja á því að þakka Guði fyrir allt gott fólk í lífi mínu. Ein af þeim persónum er Víðir, eiginmaður Nönnu, eldri systur minnar, en þau bæði áttu stóru hlutverki að gegna í bernsku og æsku og gáfu mér mikinn stuðning og kærleika. Það tengdust með okkur hjartans bönd, sem verða ekki rofin. Einstaka væntumþykju hef ég alltaf borið til þeirra, því þau hafa gert líf mitt svo mikið ríkara. Víðir og Nanna giftu sig ung og stofnuðu bú á Stöðvarfirði og þar mynduðu þau fallegt og hlýtt heimili með börnunum sínum fjórum. Á með- an foreldrar mínir og fjölskylda bjuggu enn á Stöðvarfirði, vildi ég helst alltaf vera nálægt Nönnu og Víði, og lét þau reyndar aldrei í friði. Þau voru svo fín, skemmtileg, góð og nærgætin og mér fannst þau líka svo falleg og spennandi í alla staði. Ég vissi ekki af neinu kvikmynda-pari, sem maður var farinn að fylgjast með, svo glæsilegu. Foreldrar mínir og við yngri systkinin fluttum til Siglufjarðar 1954, og það var erfitt að skiljast frá Nönnu og Víði. Gleðilegt var, að mér var síðan leyft að vera hjá þeim tvö sumur í sveit, sumur sem voru barmafull af gleði, sól, fegurð og hamingju. Mér leið vel og ég kynntist hamingjuríku hjónabandi sem var ánægja að upplifa. Það var eitthvað ekta og gott sem þau áttu og er svo eftirsóknarvert fyrir flesta. Þetta voru auðvitað Guðs gjafir eins og öll fallegu og vel gerðu börnin þeirra, þau Þröstur, Fjalar, Bjarnþór og Elsa Kristín. Víðir og Nanna önnuðust mig sem bestu foreldrar, systkin og vinir, og leyfðu mér að njóta lífsins með þeim. Ég minnist þess að hafa skrifað Nönnu og Víði bréf og trúað þeim fyr- ir leyndarmálum mínum. Ég fann að þeim gat ég treyst og ég vissi að þau skildu mig og myndu aldrei gera lítið úr mér og ég fann að hér var um gagnkvæma væntumþykju og virð- ingu að ræða. Nú er Víðir horfinn á undan okkur til Guðs, en hann lifir áfram með okk- ur í hjörtum okkar og anda. Ég mun reyna að halda minningu hans lifandi með því að iðka það sem hann kenndi mér. Víðir var gleðiboði og lét sig varða náungann. Þar sem hann var, þar var hlýtt og notalegt. Hann hafði lag á að skapa gott andrúmsloft í kringum sig, þar sem öllum gat liðið vel, en við vitum að sums staðar er kalt. Víðir var skemmtilegur og fynd- inn, hann kom manni til að brosa og létti manni í lund. Hann var einnig frábærlega vel að sér, var hlýr og nærgætinn og hafði sérstaka per- sónutöfra. Elsku Víðir. Ég þakka þér af öllu hjarta fyrir hlýjar endurminningar. Þú og Nanna eruð alltaf í hjarta mínu. Elsku Nanna mín, Þröstur, Fjalar og Bjarnþór. Guð gefi ykkur styrk og huggun í sorg og söknuði, og verndi ykkur og blessi alla tíð. Megi Víðis góðu kostir verða okkur öllum til eftirbreytni og gleði. Guðbjörg Ólöf Björns- dóttir-Larsson. SVEINN VÍÐIR FRIÐGEIRSSON  Fleiri minningargreinar um Svein Víði Friðgeirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Ey- steinn Björnsson, Hjálmar Árnason. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, VALGERÐUR ANNA EYÞÓRSDÓTTIR, (Lóa), Melabraut 10, Seltjarnarnesi, sem lést á líknardeild Landakotsspítala laugar- daginn 4. september sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. september kl. 15.00. Hafdís Eiríka Ófeigsdóttir og aðstandendur. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR (Dúru), Kirkjuvegi 11, Keflavík. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana af alúð og hlýju í veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Jón A. Valdimarsson, Bjarni Valtýsson, Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Viðar Pétursson, Ásdís Jónsdóttir Schultz, Donald Schultz, Guðbjörg Jónsdóttir, Þórður Ragnarsson, Dröfn Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT GUÐMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR, Akralandi 3, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti, laugardaginn 11. september. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 20. september nk. kl. 13.30. Sigríður Sigurðardóttir, Erla Jónsdóttir Stensby, Hilmar Jónsson, Helga Guðjónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Sigurjón Einarsson, Guðmundur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL GUNNAR JÓHANNSSON, Hæðargarði 35, Reykjavík, sem lést á hjartadeild Landspítalans mánu- daginn 6. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. september kl. 15.00. Jóhanna Þórhallsdóttir, Rögnvaldur Gunnarsson, Þorbjörg Kolbrún Ásgrímsdóttir, Jónína Ingibjörg Gunnarsdóttir, Steinþór Gunnarsson, Inga Hlíf Ásgrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, BJARKI HAFÞÓR VILHJÁLMSSON, Íshússtíg 5, Keflavík, lést fimmtudaginn 9. september. Vilhjálmur H. Snorrason, Anna Björg Þorbergsdóttir, Gígja Rafnsdóttir, Jón Olgeir Ingvarsson, Ágúst Vilhjálmsson, Gyða Björk Jóhannsdóttir, og frændsystkini, Hafrún Anna Sigurbjörnsdóttir og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.