Morgunblaðið - 14.09.2004, Side 29
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 29
✝ Hallgrímur GísliFærseth skipstjóri
fæddist á Siglufirði 5.
ágúst 1936. Hann lést
á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 6. septem-
ber síðastliðinn. Hall-
grímur var yngstur
fjórtán barna hjón-
anna Ágústu Pálínu
Færseth, f. 6. ágúst
1897, d. 18. júlí 1979
og Einars Færseth, f.
15. jan. 1890, d. 27.
nóvember 1955. Systk-
ini Hallgríms eru í ald-
ursröð Björgvin Vikt-
or, f. 1916, d. 1995, Óli Jóhann, f.
1917, d. 1939, Edvard Jóhannes, f.
1919, d. 1984, Þóra Lilja, f. 1921,
Elín, f. 1923, Kristín Sigríður, f.
1924, d. 1997, Einar Andreas, f.
1925, Andreas Christian, f. 1926,
Jóhandine Amelia, f. 1927, Svava, f.
1929, d. 1932, Árnína Guðbjörg, f.
1930, Svafar, f. 1932, Óskar, f. 1933,
d. 1933.
Hallgrímur kvæntist 3. septem-
ber 1960 Jónu Sigríði Benónýsdótt-
ur, f. 3. september 1934, d. 20. júlí
1984, dóttir hjónanna Sigríðar
Katrínar Sigurðardóttir, f. 26. maí,
d. 28. júní 1979 og Benóný Friðriks-
sonar frá Gröf í Vestmannaeyjum, f.
7. janúar 1904, d. 12. maí 1972. Hall-
grímur og Jóna eignuðust átta
eru Kolbrún Jóna, f. 1. desember
1993 og Baldur Ýmir, f. 24. nóvem-
ber 1997. Dóttir hans úr fyrri sam-
búð er Birgitta Ýr, f. 28 júní 1985. 6)
Sigríður Katrín, f. 7. júlí 1966, maki
Guðjón Ólafsson, f. 2. júní 1965.
Börn þeirra eru Albert Óskar, f. 24.
mars 1992 og Ágústa Pálína, f. 18.
janúar 2000. Dóttir Sigríðar Katr-
ínar er Jóna Sigríður Jónsdóttir, f.
9. september 1984. 7) Hallgrímur
Gísli, f. 28. apríl 1969, maki Gréta
Lind Árnadóttir, f. 15. janúar 1964.
Sonur þeirra er Björgvin Viktor, f.
5. mars 1996. Stjúpdóttir Sandra
Kristín Jónsdóttir, f. 8. desember
1985. 8) Andrea Olga, f. 6. október
1975, maki Pálína Guðrún Braga-
dóttir, f. 22. apríl 1974. Stjúpsonur
Jakob Þór Bergþórsson, f. 31. maí
1994. Sambýliskona Hallgríms er
Óla Björk Halldórsdóttir, f. 13. júní
1943. Dóttir hennar er Sigríður Jó-
hannsdóttir, f. 9. janúar 1974, maki
Sæþór Einarsson, f. 31. maí 1975.
Hallgrímur fór ungur til sjós.
Hann var háseti hjá tengdaföður
sínum Binna í Gröf á Gullborginni í
nokkur ár. Hallgrímur lauk skip-
stjórnarpófi frá Skipstjóra- og
stýrimannaskólanum árið 1966.
Hann var skipstjóri hjá útgerðar-
félaginu Miðnesi í Sandgerði árum
saman. Árið 1975 hóf hann útgerð á
bátnum Binna í Gröf ásamt Kjartani
Sigurðssyni vélstjóra. Árið 1987
hætti hann til sjós og síðustu árin
vann hann hjá Netaverkstæði Suð-
urnesja.
Útför Hallgríms fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
börn. Þau eru: 1) Ben-
óný Friðrik, f. 17. feb
1955, d. 31. mars 1999,
maki Stella Jónsdóttir,
f. 31. júlí 1955, d. 24.
jan 1998. Synir þeirra
eru: a) Jón Gísli, f. 22.
ágúst 1975, maki Ann-
ika Geirsdóttir, f. 28.
desember 1971. Börn
þeirra eru Geir, f. 23.
nóvember 1996 og
Helga Stella, f. 11.
september 2002. b)
Hafþór, f. 19. mars
1979, maki Arnar Þór
Viðarsson, f. 22. jan-
úar 1980 c) Sævar, f. 22. nóvember
1985. d) Óðinn, f. 4. september 1990.
2) Ágústa Pálína, f. 16. desember
1957, maki Davíð Eiríksson, f. 17.
ágúst 1957. 3) Óskar Andreas, f. 11.
nóvember 1958, maki Ásdís Guð-
brandsdóttir, f. 8. maí 1961. Börn
þeirra eru a) Guðbrandur Óskar, f.
20. maí 1978, d. 21. maí 1978, b)
Sylvía Þóra, f. 6. september 1981.
Börn hennar eru Sædís Ósk, f. 7.
september 1998 og Benóný Einar, f.
11. september 2002. c) Andrea
Dögg, f. 28. nóvember 1986. d) Ósk-
ar Andreas, f. 29. janúar 1994. 4)
Óskírður, f. 19. júlí 1962, d. 8 ágúst
1963. 5) Björgvin Viktor, f. 27. júlí
1964, maki Tinna Björk Baldurs-
dóttir, f. 18. mars 1969. Börn þeirra
Haustið kom fyrr en ég átti von á í
líf mitt og hreif þig frá mér. Fyrir ári
greindist þú með illvígan sjúkdóm,
sem að lokum bar þig ofurliði, þrátt
fyrir mikinn baráttuvilja og lífslöng-
un. Þú kvartaðir ekki og varst þakk-
látur fyrir það, sem fyrir þig var gert.
Margs er að minnast frá ótalmörg-
um ferðum okkar innanlands og utan.
Minningarnar munu lifa í hjarta
mínu.
Sumarbústaðurinn þinn í Gríms-
nesi var aðaláhugamál þitt síðastliðin
níu ár. Þú varst stöðugt með hugann
við hann, vetur, sumar, vor og haust,
og ófáar ferðir fórum við til að líta eft-
ir að allt væri í lagi yfir veturinn.
Vorið og sumarið voru þinn tími, þá
var bjartur dagur allan sólarhringinn.
Þú rifjaðir stundum upp minningar
frá æskuárunum á Siglufirði, er þú
fékkst að vaka fram eftir og sjá sólina
síga í sæinn og koma síðan upp aftur.
Þú fékkst aldrei nógu langan tíma í
bústaðnum að þínu mati og hefðir vilj-
að gróðursetja enn fleiri tré og hlúa
enn betur að gróðrinum þínum. Liðið
sumar dvöldum við eins mikið þar og
heilsa þín leyfði.
Þú áttir langa og stranga starfsævi
á sjónum. Mönnum ber saman um að
þú hafir verið duglegur sjómaður og
fengsæll skipstjóri.
Stundum nefndirðu að þú hefðir
viljað vera meira heima hjá konu og
börnum, en hefðir þurft að vinna fyrir
þér og þínum. Það var aðalsmerki þitt
að sjá vel fyrir fjölskyldunni.
Að leiðarlokum þakka ég samfylgd-
ina og votta aðstandendum samúð
mína og bið þeim blessunar Guðs.
Minningin um góðan dreng lifir.
Óla Björk Halldórsdóttir.
Elsku Halli frændi, já Halli frændi
eins og ég hef alltaf kallað þig alveg
frá því ég man eftir mér. Ég kveð þig
með þakklæti í huga, þakklæti að hafa
verið tengdur þér. Ég vil þakka þér
fyrir að hafa í gegnum árin gefið mér
og fjölskyldu minni af þér sjálfum,
fyrir að hafa haft jákvæð áhrif á barn-
æsku mína og unglingsár. Fyrir alla
þá væntumþykju sem þú gafst af þér
mér til handa alla tíð, ég tel mig betri
mann fyrir vikið.
Hugur minn hefur síðustu daga
leitað til þeirrar dagsferðar sem við
fórum saman fyrir ekki svo löngu upp
í bústaðinn þinn, þar sem þú undir
hag þínum einna best. Sá dagur verð-
ur þegar fram líða stundir, sennilega
einn eftirminnilegasti dagur ævi
minnar, þar sem við keyrðum saman
austur, helltum upp á kaffi og röbb-
uðum svolítið saman, áttum fínan dag
upp í Grímsbæ.
Einnig sækja á mig þær minningar
þegar Óskar og ég fengum að fara á
sjóinn með þér á m/b Víði þegar við
vorum smástrákar, drullusjóveikir og
þú að stumra yfir okkur þegar færi
gafst til þess, og þau voru sko ófá
skiptin sem við fórum á sjóinn með
þér. Fullt af minningum um þig og
þínar velgjörðir mér og mínum til
handa, mun ég varðveita og geyma í
hjarta mínu um ókomna framtíð.
Það var alla tíð gott að eiga þig að
sem fyrirmynd og ég trúi að hvar sem
þú ert, sértu hjá góðum á góðum stað.
Megi góður Guð varðveita sálu þína
um alla framtíð og veita Ólu þinni,
börnum þínum og öðrum ástvinum
styrk í sorg sinni og trega. Mikill er
missir þeirra.
John S. Berry.
Okkur langar að minnast látins fé-
laga, Hallgríms Færseth, nokkrum
orðum. Við gleymum því ekki hve vel
hann tók á móti okkur þegar við flutt-
um í fjöleignahúsið á Vallarbraut 6 í
Njarðvík. Við höfðum þá selt húsið
okkar í Keflavík og keypt íbúð í þessu
húsi. Hallgrímur var einn af þeim
fyrstu sem keyptu íbúð í húsinu og
einn af stofnendum húsfélagsins sem
stofnað var 7. maí 1997. Lét hann sig
málefni húsfélagsins miklu varða og
bar ávallt hag íbúanna mjög fyrir
brjósti. Hann var líka mjög vel liðinn í
húsinu enda einstaklega ljúfur í allri
framkomu.
Hann átti sínar þungbæru stundir
en alltaf var stutt í brosið. Vallarbraut
6 er fjöleignahús í eigu eldri borgara.
Flestir eigendanna höfðu áður átt ein-
býlishús og því vanir að ráða sínum
málum sjálfir án afskipta annarra.
Lyndiseinkunnir Hallgríms komu sér
vel í þessu umhverfi. Við höfum um
skeið fylgst með hetjulegri baráttu
Hallgríms við illvígan sjúkdóm sem
nú hefur lagt hann að velli og fyllst að-
dáun á því æðruleysi sem hann hefur
sýnt á þessum erfiðu stundum. Við
vitum að við tölum fyrir hönd annarra
í húsfélaginu þegar við þökkum sam-
fylgdina og vottum Ólu, börnum hans
og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
Hallgríms Gísla Færseth.
Elísabet Vigfúsdóttir,
Guðmundur Jóhannsson.
HALLGRÍMUR
GÍSLI FÆRSETH
Fleiri minningargreinar um Hall-
grím Gísla Færseth bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Svanhvít og
Jóhann, Þórunn og Axel.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LAUFEY ÓLAFSDÓTTIR,
Skriðustekk 1,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 16. september kl. 13.30.
Ólafur Rúnar Árnason, Ása Ásgrímsdóttir,
Guðmundur Árnason, Guðrún Ólafía Samúelsdóttir,
Sigurður Árnason, Guðbjörg Skjaldardóttir,
Þráinn Árnason, Unnur Vilhjálmsdóttir,
Már Árnason, Valdís Axfjörð,
ömmubörn og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlý-
hug og samúð við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tendamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
ÞÓRDÍSAR KATARÍNUSDÓTTUR,
Vesturgötu 111,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks E-deildar á
Sjúkrahúsi Akraness.
Fjóla Katrín Ásgeirsdóttir, Gylfi Reynir Guðmundsson,
Hannesína Ásgeirsdóttir, Björgvin Þorleifsson,
Sólveig Ásgeirsdóttir, Robert Hausler,
Guðrún Ásgeirsdóttir, Einar Haraldsson,
Þorgerður Sigurðardóttir, Gunnar Guðlaugsson,
Gunnfríður Sigurðardóttir, Bragi Valdimarsson,
Jón B. Ólafsson,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Þökkum af alhug öllum þeim sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
bróður okkar og mágs,
GUÐMUNDAR EIRÍKSSONAR
frá Þingeyri
Engihjalla 3
Kópavogi.
Virðingin sem þið sýnduð minningu hans
gleymist ekki.
Jónína Eiríksdóttir, Sigurður Kristjánsson,
Katrín Eiríksdóttir, Magnús Yngvason,
Þórey Eiríksdóttir, Lúðvík Emil Kaaber,
Jón Eiríksson, Karen Marie Jensen,
Kári Eiríksson,
Eiríkur Eiríksson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, bróður,
afa og langafa,
GUNNARS G. SCHRAM
prófessors,
Frostaskjóli 5.
Elísa St. Jónsdóttir,
Valgerður Gunnarsdóttir, Bjarni Daníelsson,
Jón Gunnar Schram, Laufey Böðvarsdóttir,
Kári Guðmundur Schram, Íris Huld Einarsdóttir,
Þóra Björk Schram, Gunnar Rafn Birgisson,
Kristján Schram, Elizabeth J. Nunberg,
Margrét G. Schram, Helgi Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför okkar ástkæru,
ÓLAFAR JÓNU BJÖRNSDÓTTUR,
Ásvallagötu 65,
sem andaðist laugardaginn 4. september, fer
fram frá Neskirkju föstudaginn 17. september
kl. 15.00.
Stjúpbörn og systkinabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er
á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út-
för hefur farið fram eða grein
berst ekki innan hins tiltekna skila-
frests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein.
Minningar-
greinar