Morgunblaðið - 14.09.2004, Page 36
MENNING
36 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DANSVERK Sveinbjargar Þórhalls-
dóttur og Margrétar Söru Guðjóns-
dóttur fjallar um það að gera hugar-
heim sýnandans sýnilegan, kryfja
sýningarferlið og komast að því hver
sýnandinn er. Verkið hefst á því að
Sveinbjörg skiptir um stellingar/
pósur á palli miðsviðs. Margrét Sara
í gulum tjullkjól í Marlyn Monroe-stíl
fer afturábak brú yfir sviðið. Hún
hneigir sig klökk fyrir áhorfendum
og þakkar hrósið. Stöllurnar hlykkj-
ast hvor um aðra á sviðinu og syngja
á víxl þekkt stef úr amerísku ástar-
poppi. Boltanum er kastað til áhorf-
enda og þeir spurðir álits og krafðir
svara um hvernig þær hafi staðið sig
í verkinu: „Hvernig fannst ykkur ég
vera?“ Danskafli í verkinu var kynnt-
ur og dansstíll beggja sýndur á hráan
ófægðan máta. Með því að kasta bolt-
anum til áhorfenda og spyrja þá álits
taka höfundar ráðin í sínar hendur og
verða stjórnendur í gagnrýni á eigið
verk. Dansverkið var á margan hátt
athyglisvert og vel framkvæmt. Inni-
haldið, taugaspennan sem fylgir því
að verða eða verða ekki samþykktur
fyrir list sína komst með ágætum til
skila. Þeim tókst að gera tilfinninga-
líðan sýnendanna sýnilega á skond-
inn máta. Hvort líðan sýnenda eða
höfunda listaverka almennt sé at-
hyglisverð og til þess fallin að semja
heilu listaverkin um tel ég þó hæpið.
Metropolitan
Verkið er ádeila á kvennablöð
samtímans. Kona á besta aldri með
hrúgu af tímaritum sér við hlið herm-
ir eftir líkamsæfingamyndum úr
tískutímariti. Hún les upphátt „sál-
fræðimat“ á svefnstellingum karla
sem eiga að segja konum allt um per-
sónuleika þeirra. Cameron Corbett
dansar undir og fer í gegnum ólíkar
svefnstellingar. Farið er yfir „pick
up“-línur sem gott á að vera að hafa í
handraðanum. Jóhann Freyr dansar
undir. Kynlífsráðleggingar eru lesn-
ar undir flæðandi dúett Cameron og
Jóhanns Freys þar sem reifað er
mikilvægi þess að prófa framandi
stellingar en umfram allt muna að
vera maður sjálfur. Verkið var ekki
einungis fyndið heldur lýsti á einfald-
an máta þeim tvískinnung og
ranghugmyndum sem „kvennablöð“
samtímans eru stútfull af. Hugmynd-
in að verkinu var einföld og vel unn-
in. Hreyfingarnar mjúkar og flæð-
andi og skilaboðin grátbrosleg og
skýr.
Græna verkið
Hvítur ferhyrndur dúkur er á gólf-
inu. Glösum með neongrænum vökva
er stillt upp allt í kring. Þrír hvít-
klæddir dansarar koma sér fyrir á
stólum undir hvítri skærri lýsingu.
Dansararnir hreyfa höfuðin með
snöggum litlum og vélrænum hreyf-
ingum sem minntu á skordýr. Tón-
listin var vélræn eins og hreyfing-
arnar. Verkið fjallar um sköpunar-
kraft mannskepnunnar án tillits til
afleiðinga eða útkomu. Það sem máli
skiptir er andartakið þegar sköpunin
á sér stað. Dansararnir herða á
hreyfingunum, veltast um á dúknum
og sprengja hylki með grænum lit
sem þeir bera innanklæða. Þeir
drekka vökvann úr glösunum og
spýta út úr sér og áfram litast dúk-
urinn. Lítið samband var á milli
dansaranna nema þegar þeir kreistu
vökvann hver út úr öðrum. Verkið
hafði yfir sér allsérstakan blæ gjörn-
ings og dans. Vélræn tónlistin varð
þreytandi þegar til lengdar lét en
annars var verkið myndrænt í græn-
um og hvítum einfaldleikanum.
ManWoman
Í ManWoMan, verki Ólafar og
Ismo-Pekka, er dásemd þess að vera
öðruvísi lofuð. Þar heiðra höfundar
fjölbreytni mannlegrar tilveru. Sum-
ir vita ekki eða er sama hvort þeir
eru karlkyns eða kvenkyns en eitt er
víst að það þarf allar gerðir í lifandi
heimi. Höfundarnir/dansararnir birt-
ust áhorfendum klæddir fjörlegum
búningum, hvítum samfestingum
með skrautlegu mynstri. Kúlur
hengu utan á mjöðmum þeirra og á
mjóbaki upprúllaðir efnisstrangar. Í
þessu 50 mínútna verki sýndu dans-
ararnir meðal annars þekktar kven-
kyns og karlkynspósur, rúlluðu út
efnisströngunum og táknuðu kyn-
færi. Strútar, pumpur klæddar
bleiku dönsuðu um sviðið. Í lokin
vöfðu dansararnir sig saman á svið-
inu, opnuðu pokana á mjöðmunum og
slepptu kúlunum út.
Það var gleði og gáski í verkinu og
búningarnir gáfu því fígúrutívt yfir-
bragð. Verkið fór vel af stað og
hreyfingar og hugmyndir þess voru
áhugaverðar. Kóríografían krefst
töluverðrar hreyfifærni og voru 50
mínútur full mikið af því góða fyrir
dansarana sem erfiðuðu á köflum og
kom það niður á dansinum. Í seinni
hluta verksins var sem dansararnir
væru að fylla upp í langdregna tón-
listina og teygðist verkið óþarflega.
Samvafningur dansaranna undir lok
verksins var fallega myndrænn,
táknandi samruna kynjanna. Eins
var endirinn vel til fundinn, þar sem
kúlurnar sem gátu táknað sæði var
sleppt úr pokunum. Það var margt
gott í dansverkinu þó dansinn sé
akkilesarhæll þess.
Reykjavík Dance Festival á heiður
skilið fyrir framtakið. Hátíðin skilaði
að þessu sinni bæði vönduðum og
metnaðargjörnum dansverkum.
Dansverkum sem flest vöktu upp
spurningar og voru áhugaverð.
Lilja Ívarsdóttir
Hvernig var ég?
LISTDANS
Borgarleikhúsið
Nútímadanshátíð 2004
3.–11. september
LÍT ÉG ÚT FYRIR AÐ VERA
PALLÍETTUDULA?
Eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Mar-
gréti Söru Guðjónsdóttur. Tónlist: David
G. Kiers. Lýsing: Kári Gíslason. Búningar:
Hildur Hafstein. Dansarar: Sveinbjörg
Þórhallsdóttir og Margrét Sara Guðjóns-
dóttir.
METROPOLITAN
eftir Cameron Corbett. Tónlist: A.C.
Jobim, V. De Moreas, G. Jaques, H.
Barbosa, J. Ben, S. Neto, O. Castro-
neves, N. Mendonca. Lýsing: Kári Gísla-
son. Dansarar: Inga María Valdimars-
dóttir, Jóhann Freyr Björgvinsson, Cam-
eron Corbett.
GRÆNA VERKIÐ
eftir Jóhann Frey Björgvinsson. Listrænn
ráðunautur: Filippía Elísdóttir. Tónlist:
Bernard Parmegiani de natura sonorum
og Helgi Hauksson. Lýsing: Kári Gísla-
son. Leikmynd og búningar: Jóhann
Björgvinsson og Filippia Elísdóttir. Dans-
arar: Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir og Steve Lorenz.
ManWoMan
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur og Ismo-Pekka
Heikinheimo. Tónlist: Hallur Ingólfsson.
Leikmynd/búningar: Marja Uusitalo. Lýs-
ing: Jukka Huitila. Förðun: Ásta Hafthórs-
dóttir. Dansarar: Ólöf Ingólfsdóttir og
Ismo-Pekka Heikinheimo.
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
F im. 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Fös . 24 .09 20 .00 AKUREYRI
Fös . 1 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 2 .10 20 .00 LAUS SÆTI
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
„G l imrand i ! F rábær uppsetn ing ,
óg leyman legar senur og tón l i s t in
er f rábær . . .að e i l í fu . “
-S te fán Hi lmarsson söngvar i -
CHICAGO Á LAUGARDAGINN!
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
e. E. Albee
Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT
Fi 30/9 kl 20
Fö 1/10 kl 20
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 16/9 kl 20,
Fö 17/9 kl 20
Su 19/9 kl 20,
Fi 23/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
Su 3/10 kl 14, Su 10/10 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Grímuverðlaunin:
Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20,
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
Aðeins örfáar sýningar í haust
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN
SIGURRÓS ofl. Afmælis- og útgáfuhátíð
Mi 15/9 kl 20 - Aðeins einir tónleikar
ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR:
ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER -
AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700)
VERTU MEÐ Í VETUR
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI SÍÐUSTU SÝNINGAR:
ATH. 2 AUKASÝNINGAR
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar
Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á
að hægt er panta miða með tölvupósti í
miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is.
Fös. 17. sept. kl. 19.30
Sun.19. sept. kl. 19.30
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni
fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi
Áskriftarkort!
4 sýningar á
aðeins 6.500 kr.
VETRARVERTÍÐ Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands 2004–05 gekk í garð í
fyrradag fyrir fullu húsi. Hlustendur
reyndust öllu blandaðri hópur en al-
gengast er, enda verkefnavalið að
þessu sinni samsettara en á klass-
ískari tónleikum – kvikmyndatónlist
frá gullöld Hollywoods, íslenzk þjóð-
lög, brezk postrómantík, hinn vand-
flokkanlegi Jón Leifs, Breiðvangs-
söngleikir og þýzk síðrómantík á
breiðtjaldi tónaljóðsins. Mesta eftir-
væntingu vakti eftir viðbrögðum að
dæma hin ört rísandi íslenzka söng-
leikastjarna Maríus Sverrisson sem
kvað hafa gert það gott á leikhúsfjöl-
um í Þýzkalandi að undanförnu. Var
honum tekið með kostum og kynjum.
Í fljótu bragði hefði mátt ætla að úr
skrautlegum samtíningi kvöldsins
yrði í bezta falli svæsin súpa, ef ekki
vita sundurlaus. En burtséð frá ljóð-
rænt angurværri íslenzkri þjóðlaga-
þrennu Jóns Þórarinssonar, er hann
útsetti sérstaklega fyrir þetta tilefni
skv. kynningu söngvarans, féll samt
flest hvert furðuvel að öðru. Ekki sízt
fyrir seiðandi kvikmyndamúsík
Erichs Korngolds við Hróa hött
(1938), tápmikla hljómsveitarfantasíu
Malcolm Arnolds um skozka
drykkjusvolann Tam O’Shanter
(1955) og sinfóníska adrenalíns-
sprengju Richards Strauss um háð-
og gálgafuglinn Ugluspegil frá 1894
er setti lokapunktinn.
Í því samhengi stóðu söngleikjalög
eins og Kyndarasöngurinn úr „Tit-
anic“ eftir Maury Yeston, Broadway
Baby eftir Stephen Sondheim úr
„Follies“ og Somewhere úr „West
Side Story“ eftir Leonard Bernstein,
sem tekið var textans vegna í stað
Makka hnífs í tilefni nýliðinna hörm-
unga í Beslan, ekki eins mikið út úr
og ella. Né heldur gamalkunnur Berl-
ínarslagari Leonellos Casucci, Schön-
er Gigolo í prýðilegri orkestrun SÍ-
sellistans Hrafnkels Orra Egilssonar,
eða Björn að baki Kára úr Sögu-
sinfóníu Jóns Leifs, einn af fáum
gamansömum hljómsveitarþáttum
þessa sérstæða tónskálds.
Þótt einsöngvaranum tækist sýnu
bezt upp í síðasta laginu, Úti ert þú
við eyjar blár, virtust Þrír man-
söngvar Jóns Þórarinssonar (tveir
hinir fyrri voru Blástjarnan og Sökn-
uður) í mínum eyrum eiga betur við
klassískan bel canto söngvara en
söngleiksstíl Maríusar Sverrissonar,
er þurfti að auki að sæta frekar lit-
daufri hljóðmögnun, a.m.k. fyrir hlé.
Hins vegar var hann á algerum
heimavelli í Titanic, og vakti einnig
mikla hrifningu í lögum Sondheims
og Bernsteins.
Sinfóníuhljómsveitin var í merki-
lega hressu formi þegar í fyrsta atriði
kvöldsins, þá Erroll Flynn sveif létti-
lega á grænum sokkabuxum um Skír-
isskógarlimið í óskarsverðlauna-
tónlist Korngolds. Þótt agnarögn
kynni stundum að skorta upp á rak-
vélablaðsnákvæmnina í síhryn-
breyttum Birni á Mörk, varð fersk og
frumleg orkestrun Malcolms engu
minna en eitilspræk, og Rumon
Gamba og hljómsveit allra lands-
manna gerðust gersamlega ósigrandi
í vaskri og víðfeðmri túlkun þeirra á
110 ára gömlu snilldarverki Richards
Strauss, sem enn heldur fullu æsku-
fjöri í góðra manna höndum.
Sitt af hverju tagi
TÓNLIST
Háskólabíó
Verk eftir Korngold, Jón Þórarinsson
(frumfl.), Yeston, Arnold, Jón Leifs,
Casucci, Sondheim, Bernstein og R.
Strauss. Einsöngvari: Maríus Sverrisson.
Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj.
Rumons Gamba. Fimmtudaginn 9.
september kl. 19:30.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn