Morgunblaðið - 14.09.2004, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
DRENGUR, sem var ásamt hópi leikskólabarna á göngu um skrúðgarð-
inn í Hveragerði í liðinni viku, fann 13 ónotuð 22 kalibera riffilskot sem
lágu við bakka
Varmár.
Að sögn Sesselju
Ólafsdóttur, leik-
skólastjóra Undra-
lands, voru börnin
látin tína í poka ým-
islegt til að nota við
föndur í vetur.
Drengurinn tók skot-
in og setti þau í pok-
ann sinn og fór með
þau aftur á leikskól-
ann þar sem leik-
skólakennarar ráku
augun í þau.
Lögreglan á Sel-
fossi segir að engin
skýring hafi fengist á
því hvers vegna skot-
in voru á þessum
stað. Hún biður þá sem geta veitt upplýsingar um þessi skot að hafa
samband við lögreglu í síma 480 1010.
Þá eru þeir sem hafa skotvopn og skotfæri í fórum sínum hvattir til að
geyma þau á öruggum stað eins og lög kveða á um.
Barn fann riffilskot við bakka Varmár
Lögreglan hefur skotin í vörslu sinni og rannsakar
tildrög þess að þau voru skilin eftir við ána.
Setti skotin í föndurpoka
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
NIÐURSTÖÐUR rannsókna og
þróunar fyrirtækisins Lyfjaþróunar
á nýjum nefúða gegn mígreni gefa
tilefni til að ætla að nefúði, sem slær
á mígrenikast einum til tveimur mín-
útum eftir innúðun, geti verið kom-
inn á markað eftir um það bil þrjú ár.
Sveinbjörn Gizurarson, fram-
kvæmdastjóri Lyfjaþróunar, segir
að fyrirtækið hafi verið að rannsaka
mígreninefúðann frá lyfjafyrirtæk-
inu GlaxoSmithKline (GSK) í nokk-
urn tíma, en gallinn við þann nefúða,
sé sá að hann virki ekki nógu hratt
og örugglega.
„Við tókum þennan nefúða sem
GSK hefur verið að búa til og bætt-
um út í hann efnum, sem við höfum
verið að þróa. Rannsóknir okkar
sýna að við náum fram sömu hegðun
á endurbætta nefúðanum og ef um
stungulyf væri að ræða. Engu fyr-
irtæki hefur tekist það áður.“ Svein-
björn segir að Lyfjaþróun hafi þar
með stórbætt lyfið frá GSK og þar af
leiðandi meðferð við mígreniköstum.
„Þetta er stór áfangi,“ segir hann
ennfremur. Lyfið hefur verið prófað
á heilbrigðum einstaklingum, eins og
venja er í fyrsta fasa lyfjaþróunar-
ferlis, að sögn Sveinbjörns, en næstu
skref felast í því að prófa lyfið á
mígrenisjúklingum. „Við ætlum að
fara á fullt yfir á næsta fasa og erum
að vonast til þess að koma lyfinu í
skráningarferlið eftir um það bil tvö
ár.“
Óánægðir með framboðið
Sveinbjörn upplýsir að í nýrri al-
þjóðlegri skýrslu um mígreni komi
fram að 80% mígrenisjúklinga séu
óánægð með þá meðferð sem nú sé í
boði gegn mígreni. Hann útskýrir í
því sambandi að í fyrsta lagi sé hægt
að taka inn töflur, í öðru lagi sé hægt
að fá sprautu og í þriðja lagi sé hægt
að fá nefúða. Af þessu sé sprautu-
lyfið það eina sem virki strax gegn
mígreninu, en einungis sé hægt að fá
það á sjúkrahúsum. „Við vildum hins
vegar gera eitthvað alveg nýtt sem
uppfyllti kröfur markaðarins,“ út-
skýrir hann. „Því höfum við reynt að
búa til lyfjaform sem sjúklingurinn
getur tekið inn sjálfur og slær strax
á verkinn.“
Hann segir að önnur fyrirtæki í
sama geira og Lyfjaþróun hafi ekki
náð sama árangri í þessum efnum.
„Ef við lítum til annarra fyrirtækja,
sem eru að vinna innan sama geira,
kemur í ljós að eitt fyrirtæki, skráð á
Nasdaq, sendi út fréttatilkynningu
fyrir ári þar sem það reyndi að end-
urbæta sama mígrenilyf. Rannsókn-
ir okkar sýna að við erum með níu
sinnum öflugra lyf en það og sautján
sinnum öflugra en GSK.“
Nefúði gegn mígreni
gefur mjög góða raun
RANNSÓKNARSKIPIÐ Bjarni Sæmunds-
son RE liggur þessa dagana við Faxaskála í
Reykjavíkurhöfn þar sem það fær andlits-
lyftingu í formi nýrrar málningar. Vafa-
laust verður Bjarni því enn glæsilegri þegar
hann leggur upp í næsta leiðangur.
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni fær andlitslyftingu
STJÓRN Sambands sveitarfélaga á Norð-
urlandi vestra, SSNV, hefur óskað eftir
formlegum fundi með Valgerði Sverris-
dóttur iðnaðarráðherra til að ræða við
hana um byggða- og atvinnumál á svæðinu,
m.a. virkjun fallvatna.
Á nýlegu ársþingi SSNV var samþykkt
ályktun þess efnis að brýnt væri að koma á
fót iðnaði á Norðurlandi vestra sem nýtti
orku fallvatna á svæðinu. Skoraði ársþing-
ið á stjórnvöld að hefja nú þegar leit að
hentugum iðjukosti fyrir Norðurland
vestra í samvinnu við sveitarfélög á svæð-
inu.
Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri í
Skagafirði, er formaður SSNV. Hann segir
við Morgunblaðið að aukinn þrýstingur sé
á það á svæðinu, Skagafirði og Húnaþingi,
að virkjanir eins og Blönduvirkjun og
möguleg Skatastaðavirkjun verði notaðar
til atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Ársæll
segist vilja ræða við iðnaðarráðherra aug-
liti til auglitis í stað þess að munnhöggvast
í fjölmiðlum. Í Morgunblaðinu á laugardag
sagði Valgerður Sverrisdóttir um vilja
sveitarstjórnar Skagafjarðar, að setja
Skatastaðavirkjun á aðalskipulag, að
„batnandi mönnum væri best að lifa“.
Sagði hún Skagfirðinga til þessa ekki hafa
sýnt áhuga á virkjunarkostum fyrir stór-
iðju. „Ég heyri að iðnaðarráðherra er að
hugsa til Norðurlands vestra og við viljum
setjast niður með Valgerði og ræða málin,“
segir Ársæll.
Einnig spurt um Jökulsá á Fjöllum
Fleiri vilja ná athygli iðnaðarráðherra
því Náttúruverndarsamtök Íslands hafa
sent Valgerði bréf og spurt um afstöðu
hennar til verndunar Jökulsár á Fjöllum
innan marka nýs þjóðgarðs norðan Vatna-
jökuls.
Tilefni fyrirspurnarinnar er sagt um-
mæli ráðherra um áhuga álfyrirtækja á að
reisa nýtt álver á Norðurlandi og að
Landsvirkjun telji orkuöflunina erfiðleik-
um bundna, bæði hvað varðar kostnað og
afhendingartíma á orkunni.
Sveitarfélög á
Norðurlandi vestra
Fréttaskýring/8
Vilja fund með
ráðherra um
byggða- og
atvinnumál
„ÉG er nú stundum að monta
mig af því að vera líklega eini
fjallkóngurinn sem er
langamma,“ segir Valgerður
Lárusdóttir, bóndi á Fremri-
Brekku í Saurbæ í Dalasýslu,
sem mun stýra sínum 25. leitum
í Brekkudal í Saurbæ um næstu
helgi.
Valgerður segir að litið hafi
verið á það sem sjálfsagðan hlut
að hún tæki við þessu hlutverki
af föður sínum þegar hún tók
við búskap. Hún segist
þó alltaf hafa kallað sig
fjallkóng frekar en
fjalldrottningu. „Ég
titla mig nú alltaf bónda,
ef ég er spurð um
starfsheiti og hef alla tíð
gert. Ég hef aldrei verið
húsmóðir – enda er ég
það ekki í raun og veru.“
Valgerður segir óvíst
hversu lengi hún og eiginmaður
hennar haldi áfram að reka bú-
ið að Fremri-Brekku.
„Við erum búin að
fækka fénu og höfum
gert þetta viðráðan-
legra fyrir okkur, þar
sem við erum bara tvö
eftir. En ég hef bara
svo gaman af kindum,
þess vegna held ég
áfram búskapnum. Svo
held ég líka að þessi
sveit hljóti að vera sú fallegasta
á landinu.“ /10
Valgerður
Lárusdóttir
„Líklega eini fjallkóngur-
inn sem er langamma“
GERT er ráð fyrir miklu slagviðri á
landinu á miðvikudag og fimmtu-
dag með hvassri austanátt og rign-
ingu. Samkvæmt nýjustu spám fer
að hvessa fyrir alvöru sunnanlands
annað kvöld og gæti vindhraði orð-
ið um og yfir 20 m/sek. aðfaranótt
fimmtudags. Veðrið gengur norður
og austur yfir landið á fimmtudag
og fer að lægja á föstudag.
Spáð stormi
Morgunblaðið/Ómar