Morgunblaðið - 15.09.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
stýrði sínum síðasta ríkisstjórn-
arfundi í gærmorgun eftir rúm-
lega þrettán ára samfellt starf sem
forsætisráðherra. Hann tekur við
starfi utanríkisráðherra af Hall-
dóri Ásgrímssyni á ríkisráðsfundi
á Bessastöðum í dag, samkvæmt
samkomulagi ríkisstjórnarflokk-
anna. Halldór tekur hins vegar við
embætti forsætisráðherra.
Siv Friðleifsdóttir umhverf-
isráðherra lætur þá af ráðherra-
dómi en Sigríður Anna Þórð-
ardóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, verður um-
hverfisráðherra í hennar stað.
Ákveðið var á ríkisstjórnarfund-
inum í gær að Halldór og Davíð
myndu leysa hvor annan af eins og
þeir hafa lengst af gert hingað til.
„Þetta var mjög skemmtilegur
fundur og góður andi á honum,“
sagði Davíð við fréttamenn eftir
ríkisstjórnarfundinn. „Það er auð-
vitað kátt eftir þennan langan tíma
að geta lokið störfum af þessu tagi
með þá tilfinningu að það sé sterk
og góð sátt og samstarfsvilji innan
ríkisstjórnarinnar.“
Aðspurður sagði hann að auðvit-
að væri dálítil eftirsjá að forsætis-
ráðherraembættinu. „Hún hlýtur
þó að víkja fyrir því, sem maður er
þakklátur fyrir, að hafa fengið að
starfa hér svona lengi.“
Til Slóveníu í næstu viku
Davíð sagði aðspurður að sitt
fyrsta verk sem utanríkisráðherra
yrði að skoða húsakynni ráðuneyt-
isins og hitta starfsfólk þess. Ut-
anríkisráðuneytið væri, ólíkt for-
sætisráðuneytinu, stórt og
fjölmennt ráðuneyti.
Davíð greindi einnig frá því að
hann myndi fara í tíu daga heim-
sókn til Slóveníu eftir helgi, en for-
seti Slóveníu, Janez Drnovšek,
hefði boðið sér fyrir löngu. „Ég
ætla að vera í vinnuheimsókn hjá
honum og dvelja hjá honum í tíu
daga,“ útskýrði hann.
Þá upplýsti Davíð að hann
myndi „fara í það sem kallað er
geislavirkt joð,“ sagði hann, í októ-
ber, vegna skjaldkirtiltökunnar
fyrr í sumar. „Þá er ég geymdur í
tvo til þrjá daga í einangruðum
klefa í Landspítalanum – ég verð
svo geislavirkur – og fæ svo næstu
fimm daga þar á eftir ekki að sofa í
sama herbergi og konan mín.“
Bætti hann því við að hann yrði
því líklega aðeins slappari fyrir
vikið í októbermánuði. „Svo mun
ég halda áfram á nýjan leik að
safna styrk.“
Flokkarnir fái að takast á
Þegar Davíð var spurður hvort
stjórnarsamstarfið við Framsókn-
arflokkinn hefði einhvern tíma
staðið tæpt sagði hann: „Ég átta
mig ekki alveg á því. Það hefur
sjálfsagt stundum verið þannig að
menn hafi velt fyrir sér í báðum
flokkum hvort þetta væri samstarf
til frambúðar. Ég skal ekkert um
það segja.“ Hann sagði að auðvitað
hefði fjölmiðlamálið verið erfitt.
„En ég hafði aldrei á tilfinning-
unni, eins og sumir höfðu, að
stjórnin væri að springa út af því
máli. Ég held að hvorugur flokk-
anna hefði viljað að svoleiðis mál
yrði til stjórnarslita. Það var ekki
af þeirri stærðargráðu.“
Davíð var einnig spurður hvort
hann gæti nefnt hápunktana á
rúmlega þrettán ára ferli sínum
sem forsætisráðherra. „Ég er ekk-
ert farinn að meta það. Kannski á
ég ekkert að vera að meta það.“
Að síðustu var Davíð spurður
hvort hann gæti gefið Halldóri Ás-
grímssyni eitt hollráð, áður en
hann tæki við forsætisráð-
herrastólnum. „Sýna festu, stöð-
ugleika og sanngirni,“ svaraði
Davíð. Í samsteypustjórn þyrfti að
sýna tillitssemi. „Jafnframt þurfa
menn að leyfa flokkunum svolítið
að takast á. Þetta eru ólíkir flokk-
ar og það má ekki pirrast þó að
komi smá sjónarmið upp, sem eru
öðruvísi. Flokkarnir vilja gjarnan
halda til haga að þetta eru ekki
sömu flokkarnir. Ég er sann-
færður um að Halldór, jafn-
reyndur sem hann er, átti sig al-
gjörlega á því. Það er engin
tilviljun að hann sé búinn að vera í
þessu svona lengi. Það er vegna
þess að hann hefur mikla reynslu
af stjórnmálum. Hann hefur nátt-
úrlega setið í fleiri ríkisstjórnum
en ég. Miklu fleirum.“
Davíð Oddsson stýrði sínum síðasta ríkisstjórnarfundi á kjörtímabilinu í gær
„Þakklátur fyrir að hafa
fengið að starfa hér svo lengi“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Davíð Oddsson sat sinn síðasta ríkisstjórnarfund sem forsætisráðherra
í gær og er hér ásamt Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og Halldóri
Ásgrímssyni, sem tekur við embætti forsætisráðherra í dag.
ILLUGI Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, fylgir Davíð í
utanríkisráðuneytið. Það sama gera þau Albert Jónsson, sem verið hef-
ur skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, Kristján Andri Stefánsson,
sem verið hefur deildarstjóri í ráðuneytinu, og Margrét Hilmisdóttir,
ritari Davíðs Oddssonar.
Fylgja Davíð í nýtt ráðuneyti
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sem tekur við embætti for-
sætisráðherra í dag, sagði við fréttamenn eft-
ir ríkisstjórnarfund í
gærmorgun að hann léti
af embætti utanrík-
isráðherra með ákveðnum
trega. Það væri þó til-
hlökkunarefni að takast á
við ný verkefni. Að-
spurður sagði hann að sitt
fyrsta verk, sem forsætis-
ráðherra, yrði að koma
dótinu sínu fyrir í stjórn-
arráðinu „og átta mig á
tilverunni hér,“ bætti hann við. „Ég ætla að
fara fremur hægt af stað og undirbúa næstu
daga.“
Inntur eftir því hvort einhverjar stefnu-
breytingar yrðu með komu hans í forsæt-
isráðuneytið sagði hann að þær yrðu sjálfsagt
einhverjar þegar fram liðu stundir. „Þetta
hefur gengið svo vel. Ég tel nú enga ástæðu
til að gera einhverja byltingu. En auðvitað
breytist eitthvað. Það breytist eitthvað í for-
sætisráðuneytinu og það mun að sjálfsögðu
breytast eitthvað í utanríkisráðuneytinu
líka.“
Styrkur að hafa Davíð með
Halldór kvaðst aðspurður ánægður með að
Davíð Oddsson yrði áfram í ríkisstjórninni.
„Ég er feginn því,“ sagði hann, „því við höfum
starfað mjög vel saman í þessi rúmu níu ár.
Ég er viss um að við munum gera það áfram.
Ég hefði talið það slæmt ef Davíð Oddsson
hefði farið úr ríkisstjórninni. Ég tel að það
styrki hana mjög mikið að hann verði áfram.
Og ég hlusta ekkert á þær kenningar að fyrr-
verandi forsætisráðherra geti ekki tekið að
sér annað hlutverk í ríkisstjórn. Davíð Odds-
son verður að sjálfsögðu áfram í forystu ís-
lenskra stjórnmála sem formaður stærsta
stjórnmálaflokksins í landinu, með gífurlega
reynslu og það er mikill styrkur fyrir rík-
isstjórnina og mig líka að hafa hann með.“
Ætlar að fara
hægt af stað
og undirbúa
næstu daga
Halldór
Ásgrímsson
SIV Friðleifsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir ríkisstjórnarfund í gær, að það væri auðvit-
að mjög sérstök tilfinning að láta af ráðherradómi. „Hér er mjög
gott starfsfólk sem mér hefur gengið mjög vel að vinna með í gegn-
um þennan tíma,“ sagði Siv, en hún var að pakka niður í ráðuneyt-
inu þegar Morgunblaðið náði tali af henni.
Siv varð umhverfisráðherra í maí 1999. Hún mun láta af því emb-
ætti á ríkisráðsfundi eftir hádegi í dag. Sigríður Anna Þórð-
ardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður umhverfisráðherra í
hennar stað.
Siv segist stolt af þeim tíma sem hún hafi gegnt embættinu. Mörg
verkefni í umhverfismálum hafi orðið að veruleika. Hún ítrekar þó
að hún hefði kosið að vera áfram ráðherra. Þrátt fyrir það líti hún
fram á veginn. „Ég mun snúa mér af fullum krafti að störfum á Al-
þingi. Það er mjög góður starfsvettvangur og mörg verkefni þar
sem þarf að vinna líka.“ Hún minnir líka á að fyrirhugaðar séu
breytingar á ríkisstjórninni u.þ.b. ári fyrir næstu þingkosningar.
„Þannig að það eru mörg tækifæri fram undan.“
Siv birti á vef sínum, siv.is, í gær lista yfir verkefni í umhverf-
ismálum sem orðið hefðu að veruleika í ráðherratíð sinni. Sagði
hún í samtali við Morgunblaðið að til dæmis hefði miklum árangri
verið náð varðandi þjóðgarða og náttúruvernd. Hún nefnir einnig
fleiri verkefni, s.s. samþykkt íslenska ákvæðisins í Kyoto-bókuninni
og þá ákvörðun að takmarka losun geislavirkra efna í hafið frá
Sellafield. Þá hefði olía úr flaki El Grillo verið hreinsuð árið 2001.
„Það hefur líka náðst góður árangur í jafnréttismálum hér í
ráðuneytinu,“ útskýrir hún, „en á þessum tíma hefur okkur tekist
að nær tvöfalda hlutfall kvenna í nefndum og ráðum. Ég hef lagt
mikla áherslu á það. Og núna eru konur í fyrsta skipti hér í ráðu-
neytinu frá upphafi í meirihluta í yfirstjórninni.“
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
Morgunblaðið/Árni Torfason
Siv Friðleifsdóttir lætur af embætti umhverfisráðherra í dag og sat
því sinn síðasta ríkisstjórnarfund í gær.
Tækifæri framundan
GERT er ráð fyrir því að Jón Sveinsson
lögmaður taki við formennsku í einkavæð-
ingarnefnd. Kom þetta fram í máli Hall-
dórs Ásgrímssonar,
verðandi forsætisráð-
herra, er hann ræddi við
fréttamenn eftir rík-
isstjórnarfund í gær.
Ólafur Davíðsson,
ráðuneytisstjóri í forsæt-
isráðuneytinu, hefur
gegnt formennsku í
nefndinni frá því í febr-
úar 2002. Hann kvaðst, í
samtali við Morg-
unblaðið í gær, gera ráð fyrir því að láta af
formennsku á næsta fundi nefndarinnar,
sem líklega yrði haldinn í næstu viku. Á
þeim fundi tæki Jón jafnframt við foryst-
unni.
Síminn stærsta verkefnið
Halldór sagði í samtali við fréttamenn í
gær að Jón hefði starfað mjög lengi í
einkavæðingarnefnd. Því væri eðlilegt að
hann yrði formaður. „Hann hefur reynsl-
una til þess. Og það er mikilvægt að sömu
menn haldi þessu að verulegu leyti áfram
vegna þess að það er ekki svo mikið eftir í
þessu; það er eftir að ljúka þessu fyrst og
fremst með Símann. Það er stærsta verk-
efnið sem eftir er,“ sagði hann.
Aðspurður sagði Halldór að sala Símans
hefði ekki verið sett á ís, eins og það var
orðað. „Við erum fyrst og fremst að bíða
eftir hentugu tækifæri og gera okkur grein
fyrir því hvernig best er að fara í það [...]
Ég held að það sé mál sem við þurfum að
reyna að flýta – að selja að minnsta kosti
einhvern hluta af Símanum. Ég mun reyna
að setja eins mikinn kraft í þetta á næst-
unni og mögulegt er,“ sagði hann.
Jón Sveinsson
formaður
einkavæðing-
arnefndar
Jón Sveinsson
HALLDÓR Ásgrímsson, verð-
andi forsætisráðherra, segir ekki
búið að ganga frá því hver verði
ráðuneytisstjóri í forsætisráðu-
neytinu, eftir að Ólafur Davíðsson
lætur þar af störfum 1. nóvember
nk. Ólafur verður þá sendiherra í
Þýskalandi, að því er Davíð Odds-
son forsætisráðherra upplýsti í
gær. „Ég er lítið farinn að hugsa
um það,“ sagði Halldór spurður
um nýjan ráðuneytisstjóra. Hann
sagði að það biði hans hins vegar
að taka á því. „Ég þarf að fara í
það næstu daga að átta mig á því
hvernig verður farið í þetta. Ég
þarf á því að halda að fá mjög góð-
an einstakling til þeirra verka.“
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoð-
armaður Halldórs, mun fylgja
honum í forsætisráðuneytið.
Það sama gerir ritari hans,
Helga Þórarinsdóttir. Auk þess
mun Bergdís Ellertsdóttir sendi-
herra taka til starfa í ráðuneyt-
inu.
Ólafur Davíðsson
verður sendiherra
Enn óvíst um ráðuneytisstjóra