Morgunblaðið - 15.09.2004, Side 14
OSRAM flúrperur á
alla vinnustaði
Jóhann Ólafsson & Co Sundaborg, Johan Rönning Sundaborg/Akureyri,
Rekstrarvörur, Osram Perubúðir: Árvirkinn Selfossi, Faxi Vestmannaeyjum,
R.Ó. Rafbúð Reykjanesbæ, Glitnir Borgarnesi, Rafbúðin Hafnarfirði,
G.H. Ljós Garðabæ, Þristur Ísafirði, Ljósgjafinn Akureyri, S.G. Egilsstöðum,
Lónið Höfn, Straumur Ísafirði, Víkurraf Húsavík, Vírnet Borgarnesi.
Rafverkstæði Árna Elíssonar Reyðarfirði.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Haustferðalög eru nokkuð sem allir ættu
að stunda af miklu kappi. Hægt er að fara í
margvísleg ferðalög á haustin einkum þeg-
ar veðrið er bjart og fallegt eins og það get-
ur oft verið í september. Berjaferðir hafa
löngum verið vinsælar en nú eru flestir
hættir að nýta berin svo þá er sá tilgangur
ekki lengur fyrir hendi. Margir minnast
berjaferða úr æsku og muna þá sérstaklega
eftir góðu nesti sem beðið var með eft-
irvæntingu. Útsýni er sjaldan fegurra en á
haustin, litirnir verða ekki aðeins fallegir
heldur líka skarpari þegar kólna fer í veðri.
Fréttaritari er þeirrar skoðunar að hægt
væri að markaðssetja ýmiss konar haust-
ferðalög um landið og þá koma t.d. rétt-
arferðir uppí hugann. Undirrituð fór í
Tungnaréttir um helgina. Það er einstök
upplifun. Réttir í Árnessýslu eru fjörugri og
fjölmennari en gengur og gerist þótt sauð-
fénu fækki. Þá mæta menn snemma og
draga féð. Öll norm eru brotin varðandi
tímasetningar á áfengisneyslu. Pelinn er
dreginn upp snemma dags og honum haldið
á lofti meðan bjart er og allir eru uppistand-
andi. Þeir einir láta pelann fram hjá sér fara
sem þurfa að flytja fólkið milli staða. Svo er
sungið af hjartans list en allt verður samt að
fara eftir hefðinni, bæði hvað varðar lagaval
og hver á að stjórna. Réttasúpa er á hverj-
um bæ og verða það að teljast forréttindi að
vera boðinn í slíka súpu. Allir eru velkomn-
ir, ættingjar og vinir gera víðreist um sveit-
ina og sumsstaðar er slegið upp einkadans-
leikjum þar sem allir sem kunna og vilja
spila á hljóðfæri fá að láta ljós sitt skína,
hinir dansa og syngja hver sem betur getur.
Nú hafa tvær athafnasamar systur tekið
sig til og keypt eitt elsta húsið á Hvolsvelli,
gömlu kaupfélagsbúðina. Gaman er að
fylgjast með framkvæmdum við endurnýj-
un hússins. Nú státar húsið fallega smíð-
uðum gluggum og það glampar af nýrri
klæðningu hússins. Svo skemmtilega vill til
að systurnar Ingibjörg og Ásta Halla eru
dætur fyrrverandi kaupfélagsstjóra Ólafs
Ólafssonar. Þær ætla að gera húsið upp í
sem upprunalegastri mynd og vera með
rekstur í húsinu, þjónustu og krambúð. Það
verður gaman fyrir okkur sem yngri erum
að fá nú að stíga inní þetta merkilega hús og
versla þar aftur eins og gert var í gamla
daga. Þá getur gamla fólkið komið og e.t.v.
keypt sér eitthvað gott í poka og rifjað upp
gamlar minningar.
Úr
bæjarlífinu
RANGÁRÞING EYSTRA
EFTIR STEINUNNI ÓSK KOLBEINSDÓTTUR
FRÉTTARITARA
Sauðamessa er heiti áóvenjulegri fjöl-skylduhátíð sem
haldin verður í Borgarnesi
laugardaginn 9. október.
Hátíðin er helguð sauð-
kindinni og lambakjötsáti.
Í fréttatilkynningu frá for-
ystusauðum hátíðarinnar
og birt er á vef Skessu-
horns kemur fram að til-
gangurinn er að vekja at-
hygli á Borgarfirði sem
landbúnaðar- og matvæla-
vinnsluhéraði.
Hátíðin hefst með fjár-
rekstri í gegnum Borg-
arnes. Síðan er boðið upp
á dagskrá þar sem m.a.
má sjá risakjötmarkað,
vörukynningar, Íslands-
mót í fjárdrætti og sveita-
fittnessi og keppni í
sparðatíningi. Allan dag-
inn verður gestum og
gangandi boðið upp á ekta
borgfirska kjötsúpu.
Sauðamessa
Þessi ferðalangur ermeð seinni skip-unum á ferða-
vertíð ársins eystra. Nú
hverfa smám saman hjól-
andi gestir og gangandi
og við taka, ef haustið lík-
ist að einhverju leyti því í
fyrra, ferðamenn á bíla-
leigubílum sem aka sinn
síðsumar- eða snemm-
vetrarhring um landið.
Hann skyggndist yfir
Lagarfljót þessi hjól-
reiðamaður, reykti sitt
tóbak og talaði langt eða
skammt í farsíma, umvaf-
inn kyrrð hnígandi dags.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Með seinni skipunum
á ferðavertíð
JPV hefur tekið að sérútgáfu nýrrar þýð-ingar Biblíunnar.
Þórarinn Eldjárn orti þeg-
ar hann heyrði af því:
Þetta má kalla viðskiptavit
og vörn gegn himnastraffi.
Almættið gefur nú öll sín rit
út hjá JPVaffi.
Jón Valur Jensson er
ánægður með framtak MS
að birta ljóð eftir börn á
mjólkurfernunum. Hann
tekur dæmi af Sigrúnu
Þorsteinsdóttur, „efni í
skáld“, sem fangi í knöppu
máli andblæ sumarsins:
Leggstu í grasið
andaðu að þér gróðurilminum
og búðu til ævintýri úr skýjunum.
Og vetrarins:
Á einni nóttu
hefur hann náð taki
á jörðinni,
trjánum
og fólkinu.
En sjálfur kveður Jón:
Íslenzka er okkar mál.
Enn eru ljóð á tungu.
Hugsanir fella í stuðlastál
– í starfi, í raun, í leik, við skál –
öldnu skáldin sem ungu.
Af almættinu
pebl@mbl.is
Mýrdalur | Leikur Bjólfskviðu
hefur nú borist til Danaveldis.
Tökur eru hafnar í Mýrdalnum
en þar eru tekin upp atriði sem
gerast þar sem nú er ríkið
Danmörk. Verður kvikmynda-
tökuliðið þar næstu vikurnar.
Þegar hafa þau atriði sem ger-
ast eiga á Gotlandi sem við
þekkjum betur sem Svíþjóð
verið tekin upp í Hornafirði.
Myndin var tekin í Dyrhóla-
hverfi. Hetjan sem myndin er
kennd við kom ríðandi í heim-
sókn til bústaðar persónunnar
sem Sarah Polley leikur. Hest-
ar hans eru á bak við leikkon-
una.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Leikurinn berst til Danaveldis
Grindavík | Bæjarstjórn Grindavíkur hefur
samþykkt að óska eftir viðræðum við land-
búnaðarráðuneytið um kaup á jörðinni Stað
í Grindavík. Hitaveita Suðurnesja hefur
áhuga á að eignast það land sem liggur að
virkjunarsvæði fyrirtækisins á Reykjanesi.
Staður er eyðijörð utan við Grindavík,
gömul kirkjujörð og prestsetur. Þar er golf-
völlur Grindvíkinga og grafreitur, sumar-
hús og fiskeldisstöðvar en þar hefur lítil eða
engin búseta verið síðustu áratugina.
Land jarðarinnar liggur frá byggðinni í
Grindavík og að bæjarmörkum Reykjanes-
bæjar við Reykjanes. Þar er Hitaveita Suð-
urnesja að reisa gufuaflsvirkjun og hefur
gengið frá kaupum á landi undir hana. Ómar
Jónsson, formaður bæjarráðs í Grindavík,
segir að hitaveitan hafi áhuga á að eignast
land Grindavíkurmegin við sveitarfélaga-
mörkin, til að styðja við starfsemina. Þá seg-
ir Ómar að Grindavíkurbær hafi hug á því
að skipuleggja lóðir fyrir atvinnustarfsemi á
þessu svæði. Einnig séu uppi hugmyndir um
að skipuleggja sumarhúsabyggð nær
Grindavík. Því hafi verið ákveðið að óska
eftir því að fá jörðina keypta, eða sem mest
af henni.
Vilja kaupa
jörðina Stað
Laxárdalur | Stóði verður smalað á Lax-
árdal og réttað í Skrapatungurétt dagana
18. og 19. september. Gestir eiga þess kost
að slást í för með gangnamönnum á eyði-
dalnum Laxárdal og upplifa alvöru þjóðlegt
ævintýri, eins og komist er að orði í frétta-
tilkynningu.
Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í
Langadal kl. 10 á laugardag. og síðan riðið
sem leið liggur um Strjúgsskarð og norður
Laxárdal. Ráðgert er að leggja af stað kl. 16
frá Kirkjuskarði norður í Skrapatungurétt.
Í ár hefur verið búið til nýtt embætti í
kringum þennan viðburð, ferðamannafjall-
kóngur sem annast fararstjórn. Fyrstur til
að bera þann titil er Valgarður Hilmarsson,
forseti bæjarstjórnar Blönduóss.
Skrapatungurétt er í um 15 mín. aksturs-
fjarlægð frá Blönduósi en fram að Kirkju-
skarðsrétt er aksturstími um 40 mín.
Um kvöldið kl. 20 verður haldið til grill-
veislu í reiðhöllinni við Blönduós og dans-
leikur verður í Félagsheimili Blönduóss síð-
ar um kvöldið.
Á sunnudagsmorgun hefjast réttarhöld í
Skrapatungurétt um kl. 10. Bændur ganga í
sundur hross sín og reka þau svo í lok dags
til síns heima.
Gestir geta
tekið þátt í
stóðsmölun
♦♦♦
Bíó