Morgunblaðið - 15.09.2004, Síða 26

Morgunblaðið - 15.09.2004, Síða 26
MINNINGAR 26 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Páll Gunnar Jó-hannsson fædd- ist að Þinganesi í Nesjum 9. júní 1919. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans mánudaginn 6. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhann Pálsson, f. 24.8. 1893, d. 4.10. 1971, og Ingibjörg Pálsdóttir, f. 18.5. 1900, d. 18.12. 1970. Systkini Gunnars eru Svafa húsmóðir, f. 15.9. 1924, d. 6.11. 1994, og Óskar Guðjón flug- stjóri, f. 6.9. 1940. Eiginkona Gunnars er Jó- hanna Þórhallsdóttir, f. 11.11. 1921. Börn Gunnars og Jóhönnu eru 1) Rögnvaldur, f. 1948, kvæntur Þorbjörgu Kolbrúnu Ásgrímsdóttur, börn þeirra eru Vaka, Þrándur og Tinna Mar- grét. 2) Jónína Ingibjörg, f. 1951, giftist Finnboga Bjarna- syni sem er látinn og eru dætur þeirra Ragnhildur Hanna, Ingi- björg Sunna og Gunndís Ýr. 3) Steinþór, f. 1953, kvæntur Ingu Hlíf Ásgrímsdóttur og eru dætur þeirra Saga og Brynja. Gunnar fluttist með foreldrum sín- um til Hafnar í Hornafirði tveggja ára að aldri. Árið 1927 fór fjölskyld- an að Hofi í Öræf- um og átti Gunnar þar heimili að mestu til ársins 1947 er hann flutt- ist ásamt Jóhönnu til Reykjavíkur þar sem þau stofnuðu heimili og bjuggu síð- an, síðustu árin í Hæðargarði 35. Gunnar stundaði lengi al- menna verkamannavinnu og m.a. við skógrækt. Lengst starf- aði hann hjá Burstagerðinni hf., sem verkstjóri. Síðustu starfs- árin vann Gunnar sem húsvörð- ur á Fæðingarheimili Reykja- víkur. Útför Gunnars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku afi. Þegar við hugsum til baka streyma fram allar góðu minningarnar um þann yndislega tíma sem við áttum með þér. Um- hyggja þín og þolinmæði var ein- stök. Aldrei minnumst við þess að þú hafir reiðst okkur eða öðrum. Þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur grislingana. Þú lékst við okkur, sagðir okkur sögur og fórst með kvæði. Það var svo notalegt að koma í Langagerðið til þín og ömmu. Þegar við höfðum sett á svið leik- rit fyrir ykkur, leikið okkur í garð- inum eða ærslast uppi á lofti var gott að leggja sig í sófunum. Þá settist þú hjá okkur í stólinn þinn og kveiktir þér í pípunni, sjálfsagt hvíldinni feginn. Bílskúrinn var þitt athvarf þar sem þú smíðaðir og gerðir við alla mögulega hluti með þínu faglega handbragði. Það var svo spennandi að kíkja inn í afdrepið þitt, skoða skúffurnar og verkfærin. Þú gerðir við allt sjálfur og smíðaðir fallega gripi. Við ætluðum varla að trúa því að stóru hlýju hendurnar þínar hefðu fléttað úr hrossahárum fín- lega tauma og gjarðir. Þessar stóru hendur umluktu okkar litlu fingur og hlýjuðu þegar við komum inn úr kuldanum. Þú vildir vera viss um að okkur væri ekki kalt. Núna þegar við erum vaxin úr grasi og sjálf komin með börn kunnum við enn betur að meta það veganesti sem þú gafst okkur út í lífið. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með þér og minningin um þig mun alltaf lifa með okkur. Núna ertu kominn til Guðs og vakir yfir okkur. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Vaka, Þrándur, Saga, Tinna Margrét og Brynja. Nú, þegar ég skrifa síðustu kveðju til afa míns, koma margar minningar upp í hugann. Lítil stúlka sem kom skoppandi inn stéttina í Langagerði 70 og afi sem stóð með útréttan faðminn og tók á móti henni. Í Langagerðið átti þessi stúlka oft erindi og undi vel hjá afa og ömmu. Alltaf hafði afi tíma til að sitja og spjalla og þær voru ófáar vísurnar sem hann kenndi mér. Hann kunni fleiri vísur en nokkur sem ég hef hitt. Þegar ég flutti til Þorlákshafnar með for- eldrum mínum var ég oft um helgar hjá afa og ömmu í Langagerði og þá kom afi á móti okkur í Kleinukot og á sunnudegi ók hann mér á móti mömmu og pabba. Margar ferðir fórum við í sum- arbústaðinn í Þrastaskógi. Þar var auðséð hvað afi hafði mikinn áhuga á trjárækt. En aldrei var svo mikið að gera að hann hefði ekki tíma til að leika við okkur barnabörnin í „lautinni“. Þegar langafabörnin fæddust þá áttum við margar ánægjulegar stundir hjá afa og ömmu sem þá voru flutt í Hæðargarð. Afi kunni margar sögur úr sveitinni sem litlum langafabörnum fannst gam- an að heyra. Hann fékk fyrir þau leggi, völur og kjálka, sauð þau og verkaði og sýndi Petru, Thelmu og Gunnari hvernig leikið var með þau í gamla daga. Þegar við Rúnar fluttum í Vog- ana og fórum að gera endurbætur á húsinu okkar þá fylgdist afi vel með vinnunni. Hann hafði mikinn áhuga á því hvernig gengi og gaf góð ráð við garðræktina. Hann varð fljót- lega „eftirlitsmaður“ við bílskúrs- bygginguna og þó að hann ætti ekki heimangengt vegna veikinda var hann alltaf að spyrja frétta og hafði gaman af að fylgjast með. Það er með sárum söknuði sem ég kveð afa en veit að hann er á góðum stað með Svöfu systur sinni og fleiri ástvinum. Minningarnar lifa og hugga þar til við hittumst á ný. Hanna. Elsku besti afi, Gunnar afi, nafni minn, afi í Langó, afi í Hæðó. Þú varst enginn venjulegur afi, þú varst afinn sem gat staðið á hönd- um, varst rosalega sterkur, svo góður og varst örugglega með stærstu hendur í heimi. Stóru og fallegu hendurnar þínar sem alltaf voru tilbúnar að taka utan um mann og halda í allar litlu hend- urnar þegar þess þurfti. Þegar ég talaði við þig þá fannst mér eins og ég væri svo sérstök, þú varst svo duglegur að finna eitthvað við okk- ur öll sem var öðruvísi en í öðrum og eitthvað sem var merkilegt. Eins og þegar þú gafst okkur krökkunum aur þá var það alltaf út af einhverju sérstöku, einhverju sem maður hafði gert vel eða verið svo góður við þig og svo sagðir þú leyndarmál og þá var maður sko merkilegur. Það gerði okkur örugglega gott svona litlu krökkum að geta fundið það hjá afa að maður var bara bestur í heimi. Svo allar vísurnar og sögurnar sem þú kunn- ir, það var gott að sitja hjá þér og ömmu þegar þið rifjuðuð þær sam- an upp. Þegar þið bjugguð í Langó var bílskúrinn þinn heill ævintýra- heimur, allt smádótið sem þú áttir og Sunna systir vissi nákvæmlega hvar allt var, ég man enn þá eftir lyktinni í Langó. Það var oft svo mikið fjör í Langó þegar við frænd- systkinin vorum lítil og stundum fengu allir að gista. Ég man ekki mjög mikið eftir því þegar við bjuggum á efri hæðinni hjá ykkur en ég man það samt enn þá hvað það var gott að geta kíkt niður til ykkar ömmu og kúra hjá þér í stólnum þínum, þar sem var alltaf pláss fyrir lítið fólk. Ég gleymi því heldur aldrei þegar ég og Sunna stóðum í stórum poka og þú barst okkur á bakinu á milli sumarbú- staðanna okkar og þegar við vorum að keppast við að telja freknurnar á höndunum á þér. Þær eru ótal margar minningarnar sem koma upp í hugann núna og við erum ekki bara að kveðja afa heldur líka rosa- lega góðan og traustan vin. Það var nefnilega alltaf hægt að leita til þín og ömmu hvernig sem stóð á. Ég fékk líka að reyna það í vetur þegar þið stóðuð sem klettar við bakið á mér þegar pabbi veiktist og ég þakka ykkur það, góðu vinir mínir, og ég á örugglega eftir að leita áfram til ykkar beggja. Það hefur alltaf verið erfitt að kveðja þegar við höfum farið til Hollands eftir frí á Íslandi en aldrei eins erfitt og nú, það er erfitt að trúa því að þú sért ekki lengur hjá okkur og hjá henni ömmu þegar við komum aftur um næstu jól. Við erum samt ofboðs- lega þakklát fyrir það að hafa feng- ið tíma til þess að kveðja góða vin- inn okkar sem alltaf á stóran stað í hjörtum okkar. Þú átt áreiðanlega eftir að líta til með okkur og leið- beina okkur í lífinu. Elsku amma, mamma og allir heima, við erum hjá ykkur í huganum hverja stund. Bless í bili, elsku hjartans afi. Gunndís og Kjartan, Rotterdam. Fyrstu kynni okkar Gunnars voru þegar hann var ráðinn til Burstagerðarinnar, Laugavegi 96, vorið 1955. Ég var þá að hefja mitt hefðbundna sumarstarf í Bursta- gerðinni. Þátt fyrir aldursmun, tókst með okkur ágætur kunnings- skapur. Kynni okkaráttu eftir að eflast og rofnuðu ekki þrátt fyrir oft langa fjarveru mína erlendis. Eftir nám í Englandi og Noregi í bursta- og penslagerð, sneri ég aft- ur til starfa í Burstagerðinni haust- ið 1959 Þá hófst farsælt samstarf okkar Gunnars við innleiðingar nýjunga í bursta- og penslagerð og í kjölfarið endurnýjun vélakosts og húsnæðis verksmiðjunnar. Atorka Gunnars við að koma verkunum áfram, var ódrepandi og alltaf hélt hann sínu jafnaðargeði hvað sem á dundi. Á fyrrihluta um- breytingatímans urðu mannabreyt- ingar í fyrirtækinu, Gunnar tók við verksmiðjustjórn fyrirtækisins, en ég hóf störf í daglegum rekstri þess með Sigurbergi Árnasyni, föður- bróður mínum, sem hafði tekið við framkvæmdastjórn fyrirtækisins að föður mínum lánum árið 1952. Ytri aðstæður reksturs fyrir- tækja á þessum tímum hafta og banna innflutnings á vélum og nauðsynlegum hráefnum og rekstr- arvörum, gerði rekstur fyrirtækja vægast sagt afskaplega erfiðan- .Viðreisnarstjórnin létti þó róður fyrirtækjareksturs til muna. Um vorið 1966 fórum við Gunnar í eftirminnilega ferð á vörusýningu í Leipzig í A-Þýskalandi. Tilgangur ferðarinnar var fyrst og fremst að kynna okkur nýjungar á sviði bursta- og penslagerðar og ræða við hráefnabirgja víðsvegar í Evr- ópu. Var förinni haldið áfram til nokkurra af stærstu borgum í Evr- ópu. Í þessari ógleymanlegu þriggja vikna ferð okkar Gunnars um Evrópu kynntist ég Gunnari á nýjan hátt Fyrir utan að vera ein- staklega þægilegur ferðafélagi, hafði hann til að bera sérstakt skopskyn og mátti oft greina gletti- lega stríðni í tilsvörum hans, Hann var gætinn en ákveðinn og fastur fyrir í sínum skoðunum, en raun- góður og sanngjarn. Sigurbergur dró sig smátt og smátt úr rekstri fyrirtækisins,og þannig færðist reksturinn á mínar hendur og Friðriks bróður míns, sem síðan tók alfarið við rekstr- inum haustið 1966 þegar ég hætti störfum og hóf framhaldsnám í Englandi. Gunnar hélt hinsvegar áfram starfi sínu í Burstagerðinni. Ófáar voru heimsóknir mínar til Gunnars og Jóhönnu næstu áratug- ina. Alltaf var ég velkominn og andrúmið fylltist vinaþeli í minn garð á þeirra fallega heimili. Það er mér mikils virði að hafa átt Gunnar sem samferðarmann og traustan vin öll þessi ár. Ég sendi Jóhönnu, börnum þeirra, tengdabörnum og barna- börnum, mínar dýpstu samúðar- kveðjur við fráfall Gunnars. Árni Hróbjartsson. PÁLL GUNNAR JÓHANNSSON Elsku besti pabbi minn, hann Lýður er dáinn, hann er farinn upp til Guðs. Og ég veit að núna er hann engillinn minn, sem vakir yfir mér og verndar mig. Og hann verður alltaf hjá mér í hjart- anu mínu. En hann er farinn frá mér og ég á aldrei eftir að sjá hann aftur. Út af því er mér illt í hjart- anu mínu, og líka því að ég sakna pabba míns svo rosalega mikið. Ég fékk bara að hafa hann þar til ég var níu ára, það finnst mér rosalega leiðinlegt. Þegar ég hugsa um pabba þá verður mér bara meira illt í hjartanu mínu og líka maganum og fæ tár í augun mín. Því að ég get ekki sagt honum allt sem mig langar að segja honum. En þá reyni ég líka að hugsa hvað hann var allt- af rosalega góður við mig. Hann gerði allt fyrir mig. Við fórum í bíó, keilu og gerðum svo margt skemmtilegt saman. Og við sem LÝÐUR ÞRASTARSON ✝ Lýður Þrastar-son fæddist á Blönduósi 14. júlí 1974. Hann lést á heimili sínu 13. ágúst síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Bú- staðakirkju 23. ágúst. ætluðum að gera svo mikið meira skemmti- legt þegar við hitt- umst næst. Núna hef ég bara myndir og minningar eftir af honum. Elsku besti pabbi í öllum heiminum. Ég vona að þér líði vel uppi hjá Guði. Ég elska þig rosalega mikið, og þú verður alltaf hjá mér í hjart- anu mínu. Þar ætla ég að hugsa vel um þig þar til ég dey og við hittumst aftur eftir mörg ár. Og elsku Guð, viltu passa pabba minn. Og viltu láta ömmu minni og afa mínum, Bebbý og Öggu líða betur aftur. Ég elska þig pabbi. Þinn sonur Sólon. Elsku hjartans Lýður minn. Ég trúi því bara ekki að þú sért búinn að yfirgefa þennan heim. Yfirgefa okkur öll. Alla þá sem þykir svo óumræðilega vænt um þig. Fjöl- skyldu þína, son þinn, vini og alla þá sem þú hefur snert með nær- veru þinni á þinni alltof stuttu lífs- tíð. Ef þú bara sæir hversu sárt þín er saknað. Það er svo margt sem liggur ósagt. Við bíðum ennþá eftir að þú hringir og eigum eflaust eftir að bíða lengi eftir því. Þá sérstak- lega Sólon, sem saknar elsku besta pabba síns svo sárt og hefur núna verið skilinn eftir með risastórt skarð í hjarta sínu, sem við Jörgen munum auðvitað gera okkar allra besta til að fylla með góðum og fal- legum minningum um þig. Það eru ótal margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um okkar kynni. Þá helst þegar við kynntumst, þegar Sólon sonur okk- ar fæddist og svo margar góðar stundir sem við áttum saman. Og ég þakka þér góðan vinskap þessi síðustu ár þín. Það var alveg sama hvað það var, þú varst alltaf tilbú- inn að rétta hjálparhönd. Tala nú ekki um ef það var eitthvað í tengslum við tölvur, sem hefur aldrei verið mín sérgrein. Þá leið- beindir þú mér í gegnum allt frá a-ö og ekkert mál. Ó, elsku hjartans Lýður minn, ég vona svo sannar- lega að þér líði vel í þínum nýja heimi. Við munum halda minningu þinni á lífi með hugsun og umtali um þig við Sólon á hverjum degi. Segja honum allt um þig og hversu mikið þú elskaðir hann, og kæfa hann í ást og umhyggju fyrir þína hönd. Elsku Klara, Þröstur, Bebbý og Agga. Við Jörgen sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur og hjálpi ykkur á þess- ari sorgarstundu. Elsku Lýður, Guð blessi þig og varðveiti. Og með þessum orðum kveð ég þig með söknuði. Hvíl í friði. Jóna Mjöll. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar Kársnesbraut 98 • Kópavogi • 564 4566 • www.solsteinar.is SÓLSTEINAR erum fluttir á KÁRSNESBRAUT 98

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.