Morgunblaðið - 15.09.2004, Qupperneq 34
DAGBÓK
34 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Tónlist
Prikið | Jóhann Gunnarsson og Arnar Þór
Gíslason halda tónleika í kvöld. Leikin verð-
ur frumsamin tónlist, meðal annars á
heimatilbúin hljóðfæri.
Ýmir | Söngtónleikar með Gunnari Guð-
björnssyni tenórsöngvara og Önnu Guð-
nýju Guðmundsdóttur píanóleikara. Ís-
lensk, sænsk og ítölsk lög og aríur.
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 12, handavinna kl. 9–
16.30, heilsugæsla kl. 10.30, smíði kl. 13–
16.30, spil kl. 13.30, keila kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Brids og vist kl. 13–
16.30.
Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Opnað
kl. 9, blöðin, rabb og kaffi á könnunni. Sam-
verustund, línudans kl. 11, pílukast kl. 13.30,
pútt á Ásvöllum kl. 15 til 16.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Sam-
félagið í nærmynd kl. 11 þáttur um málefni
eldri borgara á RÚV. Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Línudanskennslan fellur niður í
kvöld en verður nk. mánudagskvöld. Þeir
sem eiga eftir að greiða fargjald fyrir
Haustlitaferð 18. sept. greiði fyrir hádegi í
dag á skrifstofu FEB, s. 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf | Vinnustofur opn-
ar kl. 9–16.30 m.a. tréútskurður og almenn
handavinna, frá hádegi spilasalur opinn, kl.
14.30 kóræfing, á morgun kl. 13 byrjar
myndlist.
Gjábakki, félagsstarf | Kl. 9 handavinna,
kl. 9.30 boccia og glerlistahópur, kl. 13 gler-
listahópur, kl. 17 bobb.
Hraunbær 105 | Kl. 9–16.30 handavinna –
bútasaumur, kl. 9–12 útskurður. kl. 10–15
fótaaðgerð, kl. 9–16.30 hárgreiðsla, kl. 11–
11.30 banki, kl. 13 brids. Miðvikud. 22. sept.
verður farin Þórsmerkurferð. Leiðsögum.
Hólmfríður Gíslad. Þátttakendur hafi með
sér nesti. Verð 3.600. Brottför kl. 10.
Skráning í s. 587 2888.
Hvassaleiti 56–58, | Opin vinnustofa.
Samverustund kl. 10.30. Hárgreiðslustofa
og fótaaðagerðarstofa opnar. Jóga kl. 9 til
12, opin vinnustofa frá kl. 9. Samverustund
kl. 10.30, myndlistarnámskeið kl. 15, kaffi-
veitingar, blöð liggja frammi. Hárgreiðslu–
og fótaaðgerðarstofur opnar.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun fimmtu-
dag 16. sept. Keila í Mjódd kl. 10.
Norðurbrún 1, | Opin vinnustofa kl. 9–16, kl.
11.30–12.45, hádegismatur, kl. 13–13.30.
Bankaþjónusta fyrsta miðvikudag í mánuði
kl. 14. Félagsvist kaffi verðlaun.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45,
bókband og hárgreiðsla kl. 9, morgunstund
kl. 10, handmennt almenn kl. 9 - 16, fótaað-
gerðastofan kl. 10, kóræfing kl. 13, versl-
unarferð kl. 12.30.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12 alla
miðvikudaga. Orgelleikur, hugleiðing, fyr-
irbænastund. Léttur málsverður eftir
stundina.
Bústaðakirkja | Vetrarstarf aldraðra í Bú-
staðakirkju hefst miðvikudaginn 22. sept
með haustferð. Farið verður frá kirkjunni
kl. 13. Nánari upplýsingar og skráning er
hjá kirkjuvörðum í síma 553 8500 fyrir
20. september.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstundir í hádegi
kl. 12 alla miðvikudaga í Grafarvogskirkju.
Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á
léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir
altari, orgelleikari Hörður Bragason. Allir
velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjölskyldu-
samveran hefst með léttri máltíð, „súpa og
brauð“ á kostnaðarverði 18–20. Kl. 19 er
biblíulestur og mun Vörður Leví Trausta-
son tala til okkar um „Hverjir verða fyrir
freistingu“ og „Hvernig stenst ég freist-
inguna?“ Einnig er starf fyrir börn á aldr-
inum 5–17 ára.
Kristniboðssambandið | Samkoma mið-
vikudag 15. september kl. 20 að Háaleit-
isbraut 58. „Að auðsýna miskunn“, Lúk
10,25–37. Ræðumaður Kjartan Jónsson.
Einsöngur Helga Magnúsdóttir. Kaffi eftir
samkomuna.
Laugarneskirkja | Mömmumorgunn kl. 10.
Nýjar mömmur alltaf velkomnar með börn-
in sín. Kl. 10.30 Gönguhópurinn sólarmegin
leggur upp frá kirkjudyrum. Kl. 14.10–15.30.
Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur). Kl. 16.15
TTT-fundur (5.–7. bekkur).
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur
sr. Sigurður Árni Þórðarson. 7 ára starf kl.
14.30. Skráning í síma 511 1560. Kór Nes-
kirkju, æfing kl. 19. Stjórnandi Steingrímur
Þórhallsson organisti. Upplýsingar í síma
896 8192.
Víðistaðakirkja | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá
sem vilja taka frá kyrrláta stund í erli dags-
ins til að öðlast innri ró og frið. Hægt er að
koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða
kirkjuvarðar. Súpa og brauð í safn-
aðarheimilinu að kyrrðarstund lokinni. Op-
ið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Verið
velkomin á vikulegar samverur í safn-
aðarheimili kirkjunnar í spil, spjall, góðar
kaffiveitingar og fleira.
Fyrirlestrar
Norræna húsið | Johannes de Jong flytur
opinn fyrirlestur um kristilegan grundvöll
stjórnmálaflokka klukkan 12.15
Hótel Örk | ITC samtökin standa fyrir
fræðslukvöldi fyrir þá er starfa í stjórnum
og nefndum félaga. Fræðsla hefst kl.
20.00.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert æst/ur og óþolinmóð/ur í dag.
Reyndu að sýna samstarfsmönnum þín-
um þolinmæði þó þeir vinni allt of hægt
fyrir þinn smekk.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gætir upplifað ást við fyrstu sýn í
dag. Þá gæti óvænt daður komið þér á
óvart. Foreldrar ættu hins vegar að
gæta vel að börnum sínum því það er
óvenju mikil hætta á slysum í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gætir tekið upp á því að sýna of mikla
hreinskilni í samræðum í dag. Þetta á
sérstaklega við um samræður þínar við
foreldra þína og aðra í fjölskyldunni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er óvenjumikil hætta á óhöppum í
dag og því ættirðu að fara sérlega var-
lega í umferðinni hvort sem þú ert ak-
andi, gangandi eða á hjóli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir dottið niður á nýja leið til að
afla fjár í dag. Þetta gæti orðið til þess
að þú sleppir fram af þér beislinu í
eyðsluseminni. Reyndu að standast
freistingarnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér hættir til fljótfærni í orðum og gerð-
um í dag. Þú þarft á tilbreytingu að
halda til að fá útrás fyrir alla orkuna sem
ólgar í þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú gætir komist að einhverju óvæntu
eða séð eitthvað í algerlega nýju ljósi í
dag. Líttu á þetta sem tækifæri til að
læra eitthvað mikilvægt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það eru mestar líkur á því að samskipti
þín við vini þína gangi eitthvað brösug-
lega í dag. Þú gætir eftir sem áður hitt
óvenjulegan og áhugaverðan ein-
stakling.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert ekki í skapi til að láta segja þér
fyrir verkum í dag og því er hætt við að
samskipti þín við yfirmenn þína og full-
trúa yfirvalda gangi illa. Reyndu að
halda aftur af þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óvenjulegar hugmyndir höfða mjög
sterkt til þín í dag. Líttu á þetta sem
spennandi tækifæri til að auka þroska
þinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir fengið óvænta gjöf í dag eða þá
að einhver gerir þér óvæntan greiða.
Mundu að með því að þiggja það sem þér
er boðið gefurðu öðrum tækifæri til að
sýna örlæti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þig mun líklega langa mest til að hreyta
ónotum í einhvern í dag. Þú ættir þó að
hugsa þig tvisvar um áður en þú gerir
það. Annars mun sennilega enda með því
að þú þurfir að biðjast afsökunar.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru þrautseig og eiga mjög auðvelt með
að einbeita sér. Margt nýtt og spennandi
mun koma inn í líf þeirra á árinu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TÓNLISTARSKÓLI Garðabæjar býður til hádegistónleika alla fimmtudaga í september í
tilefni af 40 ára afmæli skólans. Marta Guðrún Halldórsdóttir söngkona og Örn Magn-
ússon á píanó koma fram á þriðju hádegistónleikunum sem haldnir verða á morgun í sal
tónlistarskólans í Kirkjulundi 11. Tónleikarnir hefjast kl. 12:15 og eru um hálftíma að
lengd.
Á efnisskrá tónleikanna eru ljóð eftir Mendelsohn og Atla Heimi Sveinsson og Þrjú núm-
er í íslenskum búningi eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og allir velkomnir. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við menningar- og safna-
nefnd Garðabæjar.
Marta Guðrún Halldórsdóttir og Örn Magnússon.
Ljóðrænir hádegistónleikar í Garðabæ
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 kæti, 4 hæðum, 7
garm, 8 hagnaður, 9 álít,
11 væna, 13 baun, 14
morkin, 15 þungi, 17 heiti,
20 illgjörn, 22 lýkur, 23
áþekkum, 24 geil, 25
ákveð.
Lóðrétt | 1 áfjáð, 2 örðug,
3 ekki gott, 4 skraf, 5
streymir áfram, 6 vatna-
fiskur, 10 ólyfjan, 12
óhljóð, 13 bókstafur, 15
karldýr, 16 hrotta, 18 ílát,
19 skólagangan, 20 and-
vari, 21 sundfugl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 spikfeita, 8 sækir, 9 dolla, 10 lóu, 11 merka, 13
rómur, 15 hests, 18 signa, 21 orm, 22 spónn, 23 álfur, 24
sparnaður.
Lóðrétt | 2 pukur, 3 karla, 4 eldur, 5 túlum, 6 ósum, 7 saur,
12 kot, 14 óði, 15 hæsi, 16 skólp, 17 sonur, 18 smána, 19
giftu, 20 aura.
HM í einmenningi.
Norður
♠KG5
♥KD743 A/NS
♦G
♣10982
Vestur Austur
♠Á97 ♠1083
♥ÁG82 ♥65
♦974 ♦10832
♣K73 ♣DG54
Suður
♠D642
♥109
♦ÁKD65
♣Á6
Vestur Norður Austur Suður
Mohan El Ahmady Forrester Zia
– – Pass 1 grand
Pass 2 tíglar * Pass 2 hjörtu
Pass 3 grönd Allir pass
Zia Mahmood varð í 10. sæti í Ver-
ona (af 52 keppendum), sem er góður
árangur miðað við þau spil sem birtust
með honum í mótsblaði keppninnar. Í
þætti gærdagsins sáum við hann dobla
bút sem vannst og hér klúðrar hann
illa einföldu grandgeimi.
Vestur kom út á smáan tígul og gosi
blinds átti fyrsta slaginn. Spaðinn fell-
ur 3–3, svo það virðist hrein handa-
vinna að taka níu slagi: þrjá á spaða,
fimm á tígul og einn á laufás. Zia spil-
aði spaðakóng í öðrum slag og vestur
dúkkaði. Minni spámenn hefðu spilað
spaðagosa næst, en Zia fer ekki troðn-
ar slóðir og hann spilaði litlum spaða á
drottninguna.
Það hafði afdrifaríkar afleiðingar.
Vestur drap með spaðaás og skipti yfir
í smátt lauf. Zia varð að taka gosa aust-
urs með ás og var nú inni heima í síð-
asta sinn. Ef hann tekur alla tíglana
þvingast blindur illilega þegar fimmta
tíglinum er spilað. Blindur á þá hæsta
spaða, KD í hjarta og valdið í laufinu –
1092. Zia áttaði sig auðvitað á þessu og
tók því ekki nema tvo tígulslagi og
reyndi að gera út á hjartað. En það
dugði ekki til. Vestur dúkkaði og þegar
Zia spilaði sér út á laufi tók vörnin þar
tvo slagi og spilaði blindum inn á tíuna.
Vestur fékk þannig tvo.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á „Staður og
stund“ undir „Fólkið“ á mbl.is.
Meira á mbl.is
Hlutavelta | Þessar stúlkur héldu
tombólu til styrktar Kópavogsdeild
Rauða kross Íslands og söfnuðu þær
6.500 kr. Þær heita Ásta Rún Guð-
mundsdóttir, Jónína Kristbjörg
Björnsdóttir og Sigríður Kristjana
Ingimarsdóttir. Á myndina vantar Sig-
ríði.
Hlutavelta | Þessar tvær ungu dömur
héldu tombólu laugardaginn 28. ágúst
sl. til styrktar Rauða krossi Íslands.
Tombólan var haldin fyrir utan versl-
unina 11/11 á Hvolsvelli og söfnuðust
1.600 kr. Þær heita Hervör Þórhalls-
dóttir og Katrín Rúnarsdóttir.
Fréttasíminn
904 1100
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos