Morgunblaðið - 15.09.2004, Page 40
Það má segja að þetta sé fyrir milli-göngu ræðismannsins BjörgólfsThors Björgólfssonar. Þetta hefurstaðið til lengi en við höfum þurft
að fresta þessu í tvígang, tímasetningin ekki
hentað fyrr en nú,“ segir Jakob Magnússon,
talsmaður Stuðmanna, um þrenna tónleika
sem Stuðmenn halda í Sankti Pétursborg í
Rússlandi nk. föstudag, laugardag og sunnu-
dag.
Upptökur fyrir Stuðmannamynd
Tónleikar Stuðmanna í þessari sögufrægu
borg í austri, sem kennd hefur verið bæði
við Lenín og Stalín, verða gerólíkir. Fyrstu
tónleikarnir verða hreinræktaðir djass-
tónleikar, aðrir tónleikarnir verða teknir
upp í sjónvarpssal og að lokum mun svo
sveitin halda þessa hefðbundnu Stuðmanna-
tónleika á sunnudag. Tónleikarnir verða
haldnir í tengslum við íslenska menning-
ardaga sem standa yfir í Pétursborg um það
leyti.
Undanfarið hafa Stuðmenn verið að vinna
að gerð kvikmyndarinnar Í takt við tímann
og er nú tökum og vinnslu á myndinni að
mestu lokið. Aðeins er eftir að skjóta nokk-
ur útiatriði sem verða skotin í Pétursborg.
„Við erum búnir að taka öll inniatriði sem
eiga að gerast þar í Pétursborg og eigum
bara eftir að taka útiatriðin,“ segir Jakob.
Það vekur athygli að nú loksins, þegar fé-
lagar Rússar fá að upplifa Stuðmenn á sviði,
þá verði um djasstónleika að ræða.
„Já, eins einkennilega og það hljómar þá
verða fyrstu tónleikar Stuðmanna í Rúss-
landi djasstónleikar. Við erum búin að æfa
upp djassskotna dagskrá þar sem við njót-
um aðstoðar tveggja djassleikara, Helga
Svavars Helgason ásláttarleikara og Davíðs
Þórs Jónssonar saxófón- og hljómborðsleik-
ara. Auk þess höfum við tvær dansmeyjar
með okkur, auk tækniliðs. Þetta er 15
manna hópur í allt. Við leikum í Jazz Phil-
harmonic Hall, einu frægasta djasshúsi Pét-
ursborgar. Opnum djasshátíð sem þar mun
standa yfir í nokkra daga.“
En hvað kemur til að Rússar vilja hafa
Stuðmenn í djassgeggjaragírnum?
„Egill Ólafsson hafði áður farið til Rúss-
lands og sló þá í gegn sem djasssöngvari
með Tríói Björns Thoroddsens. Hann lofaði
að snúa einhvern tímann aftur og efnir það
loforð núna. Við Stuðmenn tökum þessa
áskorun alvarlega. Við skiptum prógramm-
inu í tvennt; tökum djassskotið efni sem
aðrir meðlimir í bandinu hafa komið nálægt,
Egill og Ásgeir með Birni Thoroddsen og
Þursunum og það sem Ragnhildur hefur
flutt áður opinberlega, einnig lög af mínum
sólóplötum og kembum ull nýja. Nokkur
Stuðmannalögin, sem standa næst djass-
inum, fylgja svo með. Þá tökum við lög úr
nýju myndinni sem eiga sér sum hver afr-
ískar rætur.“
Á laugardeginum ætla Stuðmenn að taka
upp síðasta myndskeiðið fyrir kvikmyndina
en munu síðan að sögn Jakobs leika í beinni
sjónvarpsútsendingu fyrir rússneska sjón-
varpsstöð í heila klukkustund.
Tileinkað minningu Péturs
Á sunnudagskvöldið verða svo haldnir
„ekta“ Stuðmannatónleikar á þekktum tón-
leikastað í Pétursborg The Red Club.
Jakob segist engan veginn geta gert sér í
hugarlund hverjar viðtökurnar verða. En
miðað við hversu vel þeir Egill og Ásgeir
féllu í kramið er þeir léku þarna með Birni
Thoroddsen þá virðist áhuginn á íslenskri
tónlist vera talsverður. Stuðmenn fljúga til
Pétursborgar á morgun, fimmtudag.
„Okkur finnst það einkennileg tilviljun að
við séum að svífa í loftfari til Pétursborgar
sama dag og Pétur vinur okkar Kristjánsson
verður borinn til grafar í Grafarvogi. Við
höfum því ákveðið að tileinka honum djass-
tónleikana í Jazz Philharmonic Hall í Sankti
Pétursborg enda var hann einkasonur eins
frægasta djassgeggjara og hljómsveit-
arstjóra Íslandssögunnar. Hann verður því
okkar Sankti-Pétur í þessari ferð.“
Tónlist | Stuðmenn spila í fyrsta sinn í Rússlandi
Sannkallaðir djass-
geggjarar í Pétursborg
Morgunblaðið/Þorkell
Hinir alíslensku Stuðmenn ætla að bræða djass fyrir músíkþyrstan Pétursborgarlýðinn.
skarpi@mbl.is
40 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 3.
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 8 OG 10.40.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Lífið er bið
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
rs r l f
s t ri t J s.
Tom HanksT s Catherine Zeta Jonesi
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
Sló rækilega í gegn
í USA
Jason Bourne er kominn aftur
og leitar hefnda
í frábærum hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og
ofsafengin átakaatriði.
S.V. Mbl.
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
HP.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 3.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 14 ára.
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
Lífið er bið
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
s rs r l f
t ri t J .
FRAMHALD AF
BANDARÍSKUM
„INDÍ“ BÍÓDÖGUM
Ken Park
Sýnd kl. 8 og 10.
Before sunset
Sýnd kl. 6 og 8.
Coffe and Cigarettes
Sýnd kl. 10.10.
Super Size Me
Sýnd kl. 6.
Saved!
Sýnd kl. 10.
S.V. Mbl.
ROGER ALBERT
S.V. Mbl.
S.V. Mbl.
Ó.Ó.H. DV
H.I. Mbl.
Ó.Ó.H. DV
Ó.Ó.H. DV
S.G. Mbl.
D.V .
Ó.H.T. Rás 2
Kvikmyndir.com Tom Hanks Catherine Zeta Jonest ri Z t J s
LAGIÐ „Guiding Light“ með Singa-
pore Sling er á „Hot List“ í nýjasta
hefti hins virta tónlistartímarits
Rolling Stone. Í hverju blaði velja
blaðamenn tímaritsins fimm hluti
sem þeir telja heitasta hverju sinni
og kemst lagið á listann að þessu
sinni.
Lagið er af nýrri plötu sveit-
arinnar, Life Is Killing My Rock ’N’
Roll, sem kom út í gær í Bandaríkj-
unum og hefur sala farið mjög vel
af stað, að sögn Einars Þórs Krist-
jánssonar gítarleikara. Í síðustu
viku var byrjað að keyra útvarps-
spilun á plötunni vestra og var
Singapore Sling í áttunda sæti yfir
þær hljómsveitir, sem bætt var
mest við á spilunarlista háskóla-
útvarpsstöðva í Bandaríkjunum. Að
sögn Einars slá þeir þar „mörgum
stórum indí-böndum“ við og eru
ánægðir með það.
Hljómsveitin hyggur á tónleika-
ferðalag á næstunni til Bandaríkj-
anna til að fylgja plötunni eftir.
Morgunblaðið/Þorkell
Strákarnir í Singapore Sling eru heitir í Bandaríkjunum.
Tónlist | Life Is Killing My Rock ’N’ Roll komin út í Bandaríkjunum
Rolling
Stone mælir
með Singa-
pore Sling
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Sakleysingjarnir (The Dreamers)
Leikstjóri Bernardo Bertolucci. Aðal-
hlutverk Michael Pitt, Eva Green, Louis
Garrel. Bandarísk/bresk/frönsk/ítölsk
2003. (110 mín.) Bönnuð innan 16 ára.
Myndform VHS/DVD.
NÝJASTA mynd ítalska meist-
arans Bertoluccis er nostalgísk í
meira lagi. Hún er óður til tíma-
skeiðs ekki svo alls fyrir löngu
þegar dásamleg og heilbrigð –
reyndar misjafnlega heilbrigð –
forvitni grasseraði meðal ungs
fólks á Vesturlöndum. Blómabörn
hafa þau verið kölluð; 68-kynslóðin
og byltingarbörn líka. Eitt er víst
að á þessum tíma – á árunum fyrir
og eftir 1970 – voru vestræn ung-
menni í byltingar-
hug, ekki hvað
síst í Austur-Evr-
ópu og í Frakk-
landi. Sakleysingj-
arnir gerist í
París og fjallar
um þrjú ung-
menni, háskóla-
nema sem upplifa
og taka beinan og óbeinan þátt í
stúdentaóeirðunum. Matthew er
bandarískur skiptinemi sem fyrir
sameiginlegan áhuga á kvik-
myndasögunni kynnist systkinun-
um Isabelle og Theo. Þau þrjú,
uppfull af forvitni og tilraunagleði,
verða afar náin á skömmum tíma
en um leið fer Matthew að finnast
systkinin sýna hvort öðru heldur
of mikil blíðuhót.
Sjálfur var Bertolucci í blóma
um það leyti sem myndin á að ger-
ast, gerði þá sínar bestu og djörf-
ustu myndir, eins og Il Conform-
ista og Ultimo tango a Parigi.
Sakleysingjarnir kemst ekki í hóp
bestu mynda Bertoluccis en hún er
fallegur og viðeigandi óður til
skemmtilegra tíma.
Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Öld for-
vitninnar