Morgunblaðið - 15.09.2004, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÞRJÁR akreinar verða fyrir beina umferð í
hvora átt og tvær fyrir allar vinstri beygjur
á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar samkvæmt tillögum sem
samþykktar voru í samgöngunefnd Reykja-
víkur í gær. Sérstök áhersla verður sam-
kvæmt tillögunum lögð á að tryggja al-
menningsvögnum og leigubílum forgang að
gatnamótunum auk þess sem hefja á und-
irbúning að breytingum á Miklubraut frá
Kringlumýrarbraut í austri og að Snorra-
braut í vestri. Formaður samgöngunefndar,
Árni Þór Sigurðsson, vonar að hægt verði
að hefja framkvæmdir á næsta ári.
Strætisvagn-
ar í forgang
Þrjár/15
VAL Sinfóníuhljómsveitarinnar á verkefn-
um í vetur var gert að umtalsefni í greinum í
Morgunblaðinu í síðustu viku. Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, sem á sæti í verkefna-
valsnefnd hljómsveitarinnar, sagði þegar
leitað var eftir viðbrögðum hennar að Sin-
fónían mætti ekki fara of geyst í þá átt að
mæta markaðssjónarmiðum. Kjartan Ólafs-
son, formaður Tónskáldafélags Íslands,
benti á að æskilegt væri fyrir tónlistarlífið
að hún legði meiri áherslu á íslensk sinfón-
ísk verk, þegar haft var samband við hann
vegna málsins.
Verkefnaval
vekur umhugsun
Verkefnavalið/35
„ALMENN skoðun meðal Íslend-
inga er að við getum ekki gerst að-
ildarríki Evrópusambandsins án
þess að sérstaða okkar, alveg sér-
staklega að því er lýtur að sjávar-
útvegi og fiskveiðiauðlindinni, verði
metin og tryggð til frambúðar í að-
ildarsamningi með varanlegu fyrir-
komulagi. Forráðamenn Evrópu-
sambandsins hafa aldrei gefið
neinar vísbendingar um að sam-
komulag gæti orðið um slíka skil-
mála.“
Þetta segir meðal annars í
skýrslu starfshóps um fiskveiðiauð-
lindina, Ísland og Evrópusamband-
ið, sem skipaður var af ráðuneytum
utanríkis- og sjávarútvegsmála og
hagsmunasamtökum í íslenskum
sjávarútvegi.
Það sem vegur þyngst í þessu
máli er að mati skýrsluhöfunda eft-
irfarandi: „Íslendingar munu ekki
leggja forræði yfir auðlindum og
lífsafkomu sinni í hendur annarra,
hvorki í bráð né lengd, og telja að
sameiginleg fiskveiðistefna Evr-
ópusambandsins, sem mótuð var
með aðrar þjóðir og aðrar aðstæður
í huga, geti ekki átt við gagnvart Ís-
landi eða Íslendingum.
Íslendingar stjórna Íslandsmið-
um sjálfstætt og Íslendingar munu
áfram fara með fiskveiðistjórnun og
stjórnun annarrar auðlindanýtingar
í efnahagslögsögu Íslands.
Íslendingar hafa mikilla hags-
muna að gæta varðandi úthafsveið-
ar og deilistofna og munu ekki af-
sala sér eigin samningsforræði í
þeim efnum.“
Munu ekki
afsala
sér eigin
samnings-
forræði
Yfirráðin/12
KENNARASAMBAND Íslands
(KÍ) lítur á það sem „klárt verk-
fallsbrot ef fyrirtæki skipuleggja
starfsemi fyrir grunnskólanem-
endur á þeim tímum dags sem börn
hefðu annars átt að vera í skóla“.
KÍ segir að allar hugmyndir í þessa
veru séu til þess fallnar að auka lík-
ur á að verkfall hefjist og það verði
langvinnara en ella. „Kennarasam-
band Íslands áskilur sér fullan rétt
til þess að bregðast við hugmynd-
um af þessu tagi með öllum þeim
ráðum sem tiltæk eru,“ segir í til-
kynningu sem sambandið sendi frá
sér í gær.
Meðal þeirra sem eru að undir-
búa daggæslu er Íslandsbanki og
Sjóvá-Almennar sem ætla að
stofna Heilsuskóla fyrir börn
starfsmanna sinna. En fleiri fyrir-
tæki eru nú með slíkt á prjónunum.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að daggæsla skipulögð af stór-
fyrirtækjum væri til þess fallin að
draga úr áhrifum verkfalls. „Það
kann að vera lagalega séð einhver
munur á því hvort svona starfsemi
fari fram í skólahúsnæði eða öðru
húsnæði. Tilgangurinn er sá sami,
að draga úr áhrifum verkfalls. Með
þessu er Íslandsbanki orðinn beinn
þátttakandi í þessari kjaradeilu.
Við lítum á þetta sem inngrip.
Ef við setjum dæmið upp þannig
að öll fyrirtæki landsins gerðu
þetta þá mun þrýstingur á okkar
viðsemjendur hverfa. Þeir geta
setið í rólegheitunum á meðan
verkfallssjóðir okkar tæmast.
Þetta er litið mjög alvarlegum aug-
um og fer illa í félagsmenn og full-
trúa annarra samtaka. Allar svona
sprengjur, sem menn henda inn,
stuðla að því að verkfall dragist á
langinn,“ segir Eiríkur.
Viðbrögð KÍ komu forsvars-
mönnum Íslandsbanka í opna
skjöldu og sögðust þeir ekki hafa
átt von á neikvæðum viðbrögðum
KÍ. „Okkur sýnist KÍ vera að mis-
skilja málið,“ segir Jón Þórisson,
aðstoðarforstjóri bankans. „Með
þessu erum við eingöngu að
tryggja börnum starfsmanna ein-
hvern samastað.“
Ásmundur Stefánsson ríkis-
sáttasemjari sagði í gærkvöld að
fulltrúar kennara og viðsemjendur
hefðu lokið fimm klukkustunda
löngum fundi með sáttasemjara án
þess að fundurinn hefði skilað nið-
urstöðu í samkomulagsátt. Næsti
fundur verður haldinn síðdegis í
dag, miðvikudag, auk þess sem
innbyrðis fundir verða hjá deiluað-
ilum.
Kennarasamband Íslands átelur daggæslu fyrirtækja í verkfalli
Þrýstingur á viðsemj-
endur mun hverfa
Fleiri fyrirtæki/4
Morgunblaðið/Sverrir
Fimm klukkustunda fundur fulltrúa kennara og sveitarfélaganna hjá
ríkissáttasemjara í gær skilaði engum árangri.
SLASAÐUR skipverji af rúss-
neska herskipinu Admiral Chab-
anenko var sóttur á haf út um
230 mílur suðsuðaustur af
Reykjavík í gær og fluttur á
Landspítalann. Aðstoðarbeiðni
kom frá rússneskum yfirvöldum
og fékk stjórnstöð Landhelg-
isgæslunnar tilkynningu um
hana frá Varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli. Læknir um borð í
herskipinu hafði gert aðgerð á
hinum slasaða en nauðsynlegt
var að flytja hann á sjúkrahús.
Varnarliðið var reiðubúið að
senda tvær þyrlur af stað en
óskaði eftir fylgdarflugvél frá
Gæslunni þar sem um langa
vegarlengd var að ræða. Þyrlur
Varnarliðsins fóru af stað um
kl. 13.50. Fokker-flugvél
Gæslunnar, TF-SYN, var í
gæsluflugi þegar tilkynningin
barst og lenti á Reykjavík-
urflugvelli til að taka eldsneyti
en hélt síðan af stað til fylgdar
þyrlunum kl. 15.24.
Varnarliðsþyrlan lenti með
hinn slasaða við Landspítala –
háskólasjúkrahús í Fossvogi kl.
17.50 og lenti TF-SYN á
Reykjavíkurflugvelli um svipað
leyti.
Ljósmynd/Páll Geirdal
Skipverji af rússnesku
herskipi sóttur á haf út
Önnur þyrla Varnarliðsins hífir slasaða sjómanninn af rússneska herskipinu Admiral Chabanenko um borð.
HUGMYNDIR eru uppi um að reisa þrjár
60 metra háar íbúðabyggingar á svoköll-
uðum Sjallareit á Akureyri. Þetta yrðu
jafnframt hæstu íbúðarhús landsins með
samtals um 150–200 íbúðir, að sögn Sig-
urðar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra SS
Byggis, sem hyggst byggja á Sjalla-
reitnum. Sigurður sagði að hugmyndir um
bygginguna hefðu fengið góðan hljóm-
grunn innan bæjarkerfisins. Zeppelin arki-
tektar í Garðabæ unnu 10 ólíkar tillögur á
Sjallareitnum, sem kynntar voru á fundi
með umhverfisráði en þar kom fram ein-
róma stuðningur við byggingu háhýsanna
á umræddu svæði. Sigurður sagði að hug-
myndin væri að þrjár neðstu hæðir hússins
yrðu 3.200 fermetrar hver hæð, með bíla-
kjallara, verslunarhúsnæði þar fyrir ofan
og bílastæðahúsi á þriðju hæðinni. Ofan á
þessar þrjár hæðir yrðu svo byggðir þrír
17 hæða turnar með íbúðum og garði á
milli ofan á bílageymslu- og versl-
unarhúsnæðinu og myndi nýtast íbúum
hússins. Sigurður sagði að ef allar áætlanir
gengju eftir yrði hægt að hefja bygginga-
framkvæmdir eftir um eitt ár.
Sextíu metra
háir turnar?
Líkan af byggingunni og 17 hæða turn-
unum þremur sem hugmyndin er að
byggja á Sjallareitnum á Akureyri.
♦♦♦