Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 2

Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KENNARAR VILJA FUND Grunnskólakennarar hafa óskað eftir fundi með sveitarstjórum nokk- urra stærstu sveitarfélaga landsins á morgun til að ræða stöðuna en svo virðist sem sveitarfélögin ætli ekki að þekkjast boð kennara. Sveit- arstjórum finnist umboðið vera hjá launanefnd sveitarfélaga og meðan viðræður standi yfir ætli þeir sér ekki að trufla samningaferlið. Kosið verði í öllu landinu Richard Armitage, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að kjósa bæri í öllum héruðum Íraks í fyrirhuguðum þingkosn- ingum þar í janúar. Hann sagði að uppreisnarmenn í Írak myndu án efa reyna að hafa áhrif á þingkosn- ingarnar og forsetakjörið vestra í nóvember. Menningarhátíð í París Menningar- og vísindakynningin Ísland – íss og elds var opnuð í París í gærkvöldi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ávarpaði viðstadda við opnunina. Sýningin stendur í tvær vikur og koma á annað hundrað íslenskir listamenn þar við sögu. Múslími veldur reiði Danskur múslími, sem sleppt hef- ur verið úr haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo-herstöðinni, segir að danskir ráðamenn geti orðið lögmæt skotmörk hryðjuverkamanna vegna þátttöku Dana í Íraksstríðinu. Um- mæli mannsins hafa vakið hörð við- brögð og reiði í Danmörku. Gagnrýni Carters Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist óttast að hart verði deilt um kosningaúrslitin í Flórída í nóvember. Gagnrýnir Carter m.a. að ekki skuli vera skipuð óháð kjörstjórn. Carter er demó- krati en repúblikanar ráða Flórída. Y f i r l i t Í dag Viðskipti 12 Viðhorf 25 Úr verinu 13 Minningar 25/29 Erlent 14/15 Brids 30 Höfuðborgin 17 Dagbók 32 Akureyri 17 Víkverji 32 Austurland 18 Velvakandi 33 Landið 18 Staður og stund 34 Daglegt líf 19 Menning 35/41 Umræðan 20/24 Ljósvakamiðlar 42 Bréf 24 Veður 43 Forystugrein 22 Staksteinar 43 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #          $         %&' ( )***                           ÓGLEYMANLEG SAGA UM VINÁTTU GYÐINGADRENGS VIÐ ARABAKAUPMANNINN IBRAHIM ÚTGEFANDI SÖGUNNAR AF PÍ KYNNIR: HERRAIBRAHIMOGBLÓMKÓRANSINS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN EFTIR ERIC-EMMANUELSCHMITT LÖGREGLAN í Reykjavík hefur farið fram á að tæplega fertugur Ís- lendingur sem er í haldi lögreglunnar í Rotterdam verði framseldur til Ís- lands vegna meintrar aðildar hans að smygli á um ellefu kílóum af amfeta- míni, 2.000 LSD-skömmtum og kók- aíni til landsins. Ekki er ljóst hvernig hinn Íslend- ingurinn sem handtekinn var ytra tengist málinu og er óvíst hvort farið verður fram á framsal hans. Hvor- ugur hefur verið yfirheyrður vegna málsins. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfir- manns fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, er ekki víst hvenær get- ur orðið af framsalinu. Það fari m.a. eftir því hvort maðurinn fellst á að verða sendur til landsins. Neiti hann því geti málsmeðferð hugsanlega tekið margar vikur og jafnvel mán- uði. Grunaður um morð Maðurinn á að baki verulegan sak- arferil og hefur legið undir grun lög- reglu um að hafa orðið Valgeiri Víð- issyni, sem hvarf árið 1994, að bana. Í maí 2002 framseldu hollensk yfirvöld hann til Íslands vegna rannsóknar á hvarfinu en hann hafði þá nýlokið við að afplána fjögurra ára fangelsisdóm vegna smygls á um sextán kílóum af kókaíni frá Þýskalandi til Hollands. Maðurinn neitaði alfarið sök og hafði lögregla ekki aðra kosti en að sleppa honum úr haldi. Hann fór seinna í mál við ríkið og krafðist bóta fyrir að hafa setið saklaus í fangelsi í 400 daga vegna framsalskröfunnar. Krafðist hann þess að fá 100.000 krónur í bætur fyrir hvern dag og með málskostnaði námu kröfur hans því rúmlega 40 milljónum. Héraðsdómur Reykjavíkur og síð- ar Hæstiréttur töldu hann hafa setið í gæsluvarðhaldi að ósekju í fjórtán daga og dæmdu ríkið til að greiða honum 350.000 krónur í skaðabætur og 300.000 króna málskostnaður var greiddur úr ríkissjóði. Dómur Hæstaréttar féll 19. maí sl. um tveimur mánuðum eftir að lagt var hald á fyrri amfetamínsending- inguna í því máli sem nú er til rann- sóknar. Farið fram á framsal vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Hefur áður verið fram- seldur frá Hollandi HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra fundaði með Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakk- lands, í gær í París. „Við töluðum um samskipti landanna fyrst og fremst, möguleika á að auka sam- skipti Íslands og Frakklands, sér- staklega í framhaldi af þessari sýn- ingu. Það er mikill áhugi á Íslandi fyrir Frakklandi og við vitum að það er líka mikill áhugi hér,“ sagði Halldór við blaðamenn eftir fund- inn. Ráðherra sagði Raffarin mundu koma í heimsókn til Ís- lands, vonandi á næsta ári. „Síðan ræddum við um samskipti landanna á pólitíska sviðinu, bæði innan Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins. Við ræddum um stöðuna í Miðausturlöndum, Ísrael, Palestínu og Írak og svo Afganistan og fleiri alþjóðleg mál. Við ræddum líka samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og vorum sam- mála um það að það væri mjög mikilvægt að halda traustum bönd- um yfir Atlantshafið,“ sagði Hall- dór Ásgrímsson. Franski forsætisráðherrann sagði eftir fundinn að sýningin, sem opnuð var í gær, væri gott tækifæri til þess að auka gildi þeirrar menningarlegu fjölbreytni sem báðar þjóðirnar væru svo stoltar af. „Báðar þjóðir vilja berj- ast, innan UNESCO, fyrir menn- ingarlegri fjölbreytni og um þessi atriði vorum við sammála. Við fór- um yfir sviðið í alþjóðamálum og fjölluðum um samvinnu landanna á sviði efnahagsmála,“ sagði Raffarin. „Nú þegar hafa stórfyrirtæki í löndunum tveimur samvinnu og svo virðist sem jafnvel lítil og meðal- stór fyrirtæki hafi tækifæri til þess að vinna saman, að frönsk fyrir- tæki fjárfesti á Íslandi og taki þannig þátt í þeim mikla hagvexti sem þar á sér stað.“ Raffarin sagði að ráðherrarnir hefðu rætt Íraksmálið. „Við virðum skoðanir hvor annars. Við höfum sameiginleg sjónarmið þó svo að- ferðirnar hafi skilið okkur að í for- tíðinni.“ Raffarin væntan- legur í heimsókn til Íslands Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, funduðu í dag í emb- ættisbústað Raffarins og ræddu þeir meðal annars alþjóðamál og samvinnu landanna á sviði efnahagsmála. TÓLF íbúar á Norður-Héraði hafa stefnt félagsmálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, og sveitar- stjórn Norður-Héraðs fyrir héraðs- dóm Austurlands vegna sameining- ar sveitarfélagsins við Austur- Hérað og Fellahrepp. Krefjast íbú- arnir þess að ákvörðun sveitar- stjórnar Norður-Héraðs um sam- eininguna verði ógild og sömuleiðis úrskurður félagsmálaráðuneytisins um staðfestingu á ákvörðun sveit- arstjórnarinnar um sameininguna. Kosið var um sameiningu fjög- urra sveitarfélaga 26. júní sl., en íbúar í Fljótsdalshreppi felldu sam- eininguna í kosningum í sumar. Telja stefnendur að málsmeðferð vegna sameiningarinnar hafi verið andstæð stjórnsýslulögum. Telja þeir að sveitarstjórn Norður-Hér- aðs hefði átt að leggja hina nýju til- lögu um sameiningu sveitarfélag- anna þriggja undir tvær umræður með viku millibili, án atkvæða- greiðslu, áður en ákvörðun um sam- eininguna var tekin en það hafi ekki verið gert. Því hafi ákvörðun sveit- arstjórnarinnar verið tekin með ólögmætum hætti og sé hún því ógild. Þá telja íbúarnir að grundvelli sameiningarinnar hafi verið veru- lega raskað við synjun Fljótsdals- hrepps þar sem samþykki íbúanna hafi byggst á þátttöku allra fjögurra sveitarfélaganna. Segja grundvöll sam- einingar hafa brostið Íbúar stefna félagsmálaráðherra og sveitarstjórn Norður-Héraðs HVORKI var flogið til né frá Gard- ermoen-flugvelli við Osló í gær vegna skyndiverkfalls flugumferðar- stjóra í Noregi og hafði það áhrif á áætlunarflug Icelandair. Vél frá Keflavík sem átti að lenda í Osló kl. 10 í gærmorgun varð að lenda í Bergen. Ekki var flogið í hádeginu í gær frá Osló til Íslands eins og venj- an er. Var áætlað að vél Icelandair myndi fljúga frá Osló kl. 6 nú í morg- un að íslenskum tíma, samkvæmt upplýsingum Guðjóns Arngrímsson- ar, upplýsingafulltrúa Icelandair. Um 100 manns voru í vélinni sem lenda varð í Bergen í gær. Farþeg- arnir fóru ýmist með rútum til Osló- ar eða flugi til annarra staða. 150 manns áttu bókað í flug Icelandair frá Osló til Keflavíkur í gær. Voru þeir margir hverjir á leið vestur um haf. Að sögn Guðjóns verður reynt að greiða götu þeirra í dag. Verkfall í Osló raskar flugi Icelandair

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.