Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. BROTIST var inn í Byggðasafnið í Gömlu- búð aðfaranótt laugardags og óbætanlegt tjón unnið á safngripum. Að sögn Björns Arnarsonar safnvarðar var engu stolið nema gulum sjóhatti merktum sveitarfélaginu. Ekkert virðist því hafa vakað fyrir þeim sem brutust inn annað en skemmdarfýsn. Skemmdarvargarnir höfðu reynt að opna útidyr en gefist upp á því og brotið glugga og farið þannig inn. Aðkoman var hroðaleg; glerbrot á gólfinu og allt á tjá og tundri. Stórum glerskáp var velt um og allt lauslegt sem í honum var féll á gólfið og margt af þeim gripum er brotið eða ónýtt. Meðal muna sem eru skemmdir eru gripir eftir Rík- harð Jónsson og Guðmund frá Miðdal. Elsti gripurinn í skápnum var þúsund ára gamall altarissteinn sem talinn er vera úr kirkjunni á Horni en hann er sem betur fer óskemmd- ur. Björn segir skemmdarvargana lítið hafa farið um húsið nema í anddyrið þar sem mestu spjöllin voru unnin. Ekkert virðist hafa verið farið upp á efri hæð safnahússins þar sem náttúrugripasafn er til húsa. Þar er meðal annars fágætt skordýrasafn Kví- skerjabræðra og fleiri gripir undir gleri. Innbrotið uppgötvaðist á laugardag þegar vegfarandi varð var við ummerki og gerði viðvart. Enginn hefur enn verið kallaður til yfirheyrslu vegna innbrotsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Höfn sem fer með rannsókn málsins. Ljósmynd/Sigurður Mar Halldórsson Björn Arnarson skoðar ummerkin eftir skemmdarvargana sem unnu óbætanlegt tjón á byggðasafninu á Höfn um helgina. Innbrot í byggðasafnið á Höfn í Hornafirði Óbætan- legt tjón Hornafirði. Morgunblaðið. UMFANGSMIKIL íslensk vísinda- og menn- ingarkynning var sett í gærkvöldi í vís- indahöllinni Palais de la Découvert í París. Kynningin stendur í tvær vikur þar sem hver menningarviðburðurinn rekur annan á sviði tónlistar jafnt sem bókmennta, kvikmynda og myndlistar svo eitthvað sé nefnt. Á annað hundrað íslenskir listamenn koma við sögu kynningarinnar. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra opnaði sýn- inguna formlega síðdegis í gær og fylgdust Renaud Donnedieu de Vabres, menningar- málaráðherra Frakklands, og Xavier Darcos, aðstoðarráðherra þróunarsamvinnu og franskrar tungu, með./Miðopna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ísland íss og elds á kynningu í París FJÓRÐUNGUR íslenskra karl- manna reykti daglega á árinu 2003 og 19% kvenna, að því er fram kemur í samnorrænni rann- sókn þar að lútandi. Hvað reykingar karlmanna snertir er hlutfallið hér mjög svipað og í Finnlandi og Noregi þar sem 26% og 27% karlmanna reykja. Mestar eru reykingarnar í Danmörku þar sem 30% karl- manna reykja, en langminnst er reykt í Svíþjóð þar sem 17% karl- manna reykja og litlu fleiri konur eða 18%. Margir þeirra sem hætta að reykja þar hins vegar fara yfir í neftóbak (snus) og nú er svo komið að fleiri karlmenn í Svíþjóð nota neftóbak en reykja. Þegar það var síðast mælt var hlutfall þeirra sem nota neftóbak 20% og þar af hafði rúmur helm- ingur, 51%, reykt áður. Svíþjóð er fyrsta iðnvædda landið sem nær því markmiði Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar að innan við 20% af hvoru kyni reyki. Í könnuninni kemur jafnframt fram að reykingar hafa aukist mest á meðal finnskra kvenna, en norskar konur reykja mest. Frá 1980 hafa reykingar meðal finnskra kvenna aukist úr 17% í 19%. Reykingar íslenskra kvenna hafa minnkað um tíu prósentu- stig frá árinu 1991, úr 29% þá í 19% á síðasta ári. Reykingar danskra kvenna hafa minnkað úr 30% 1997 í 24% í fyrra og í Nor- egi hafa reykingar kvenna minnkað úr 30% árið 1980 í 25% í fyrra. Neftóbakið, eða snusið, er langalgengast í Svíþjóð eins og fyrr sagði. 20% karlmanna nota neftóbak og 1% kvenna. Hins vegar koma íslenskir karlmenn næst þar á eftir, en 12% karla og 1–2% kvenna notuðu neftóbak ár- ið 2000. Í Noregi notuðu 7% karl- manna neftóbak og 1–2% kvenna. Finnland og Danmörk skera sig úr að þessu leyti. Í Finnlandi not- uðu 1,7% karlmanna neftóbak og 0,1% kvenna og í Danmörku 1% karla og 0,4% kvenna. Fjórðungur íslenskra karlmanna reykir daglega 19% kvenna reykja daglega samkvæmt norrænni rannsókn MAÐUR lenti í vinnuslysi í Malbik- unarstöð Suðurnesja í Helguvík í gærmorgun. Hafði maðurinn verið uppi á þaki traktorsgröfu og verið að háþrýstiþvo aftari gröfuarm. Datt hann ofan af þaki gröfunnar. Hann úlnliðsbrotnaði og marðist á mjóbaki. Tilkynnt var innbrot í húsnæði Golfklúbbs Suðurnesja í gær en spennt hafði verið upp hurð og skjá- varpa stolið. Þá var lögreglunni í Keflavík einnig tilkynnt innbrot í húsnæði Verktaka- sambandsins við Grófina. Þaðan var stolið myndbandstökuvél. Einnig var tilkynntur þjófnaður í Úra- og skartgripaversluninni í Keflavík í gær. Tveir karlmenn höfðu verið inni í búðinni og hafði annar þeirra stolið silfurhring og hlaupið síðan út. Telur lögregla sig vita hvaða menn voru þar á ferð. Vinnuslys í Helguvík ÁRÓÐUR virðist ekki hafa nein áhrif til lækkunar á hámarkshraða í um- ferðinni. Þannig er umferðarhraði í sumar svipaður eða nánast sá sami og hann var í fyrrasumar, þrátt fyrir áróður Umferðarstofu í blöðum, sjón- varpi og útvarpi að undanförnu. Þetta kemur fram í grein eftir Rögnvald Jónsson, framkvæmda- stjóra framkvæmdasviðs Vegagerð- arinnar, í nýju tölublaði af Fram- kvæmdafréttum. Þar kemur fram að meðalhraðinn í sumar samkvæmt þrettán umferðargreinum Vegagerð- arinnar á þjóðvegum var 94,7 km á klukkustund, en meðalhraðinn í fyrra á sömu stöðum var 94,9 km á klukku- stund. Sambærileg niðurstaða kemur út þegar hraði þeirra 15% sem hrað- ast aka er skoðaður en þá kemur í ljós að hann var yfir 105 km í fyrra en yfir 104,7 km í ár. Rögnvaldur segir jafnframt að rannsóknir hafi sýnt að áróður án annarra aðgerða skili litlu. Áróðurinn breyti viðhorfi, en það sé ekki þar með sagt að hann breyti atferlinu. Það hafi sýnt sig í gegnum árin að til þess að breyta hegðun manna í um- ferðinni dugi best virkt eftirlit og við- urlög sem hafi áhrif. Segir hann við- urlög við umferðarlagabrotum lítil hér á landi og virki ekki sem forvörn. Rögnvaldur sagði í samtali við Morgunblaðið að umferðarlagasektir í Noregi, til dæmis, færu eftir efna- hag manna, þannig að þeir sem væru betur launaðir fengju hærri sektir en hinir sem væru á lægri launum. Um- ferðarhraðinn væri langmikilvægasti áhættuvaldurinn í umferðarslysum og fjölmargar rannsóknir sýndu að með lægri meðalhraða væri unnt að fækka alvarlegum slysum mjög. „Til þess að ná árangri þarf virkt samstarf allra aðila sem koma að um- ferðaröryggisstarfinu og þá sér- staklega samgönguráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins, þannig að saman fari áhrifaríkur áróður, virkt eftirlit, réttlát viðurlög og betri vegir og þjónusta,“ segir í greininni. Áróður einn og sér minnkar ekki umferðarhraða Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.