Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT T ilb o ð in g ild a ti l 1 2. 10 . 2 00 4 G O T T F Ó LK M cC A N N · 2 7 1 5 0 Ertu með eitthvað gott fyrir húðina og fæturna? L´ORÉAL Perfect Slim frá L’Oréal er frábært grenningarkrem sem gerir húðina stinnari og vinnur á appelsínuhúð. TEA TREE OIL Australian Bodycare Tea Tree húðvörulínan er með 30% afslætti núna. Náttúrulegt sótthreinsiafl. Dekraðu við fæturna – þeir eiga það skilið! SCHOLL TASKA Taskan inniheldur: Mýkjandi krem fyrir þurra og sprungna húð á fótum og fótleggjum. Rakagefandi og nærandi krem á fætur sem mýkir húðina sérstaklega á hælum. Fótaþjöl úr málmi og þvottastykki. 15% 30% 999 ALVARLEGT slys varð í Aþenu í gær er sjö skólabörn létust í bílslysi. Ætl- uðu þau að vera viðstödd lokaathöfn Ólympíuleika fatlaðra. Vegna slyssins var öllum skemmtiatriðum á lokaathöfninni aflýst. Myndin sýnir bíl barnanna eftir að hann lenti í árekstri við stóran flutningabíl. AP Hörmulegt slys í Aþenu PERVEZ Musharraf, forseti Pakist- ans, fagnaði í gær dauða háttsetts foringja í al-Qaeda-hryðjuverkasam- tökunum, Amjads Farooqis, en Far- ooqi er sagður hafa skipulagt og staðið fyrir tilræðum við Musharraf í fyrrahaust og þá er hann sagður hafa verið höfuðpaur hóps manna sem myrti bandaríska blaðamanninn Daniel Pearl í janúar 2002. „Í hvert sinn sem hryðjuverka- maður yfirgefur þennan heim gleðst ég mjög,“ sagði Musharraf á frétta- mannafundi í Haag í Hollandi en hann átti þar fund með hollenskum embættismönnum. „Þessi maður reyndi að ráða mig af dögum svo ég er mjög ánægður,“ bætti hann við. Pakistanar segjast hafa veitt al- Qaeda mjög öflugt högg með aðgerð- um sínum en Farooqi var drepinn í tveggja klukkustunda löngum skot- bardaga norður af borginni Karachi. „Ég vel dauðann,“ er hann sagður hafa hrópað meðan á skotbardagan- um stóð en hann er sagður hafa bar- ist með talibönum í Afganistan og þá komið sér upp tengslum við Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda. Segjast hafa drepið hátt- settan al- Qaeda-liða Haag, Islamabad. AFP. UMMÆLI dansks múslíma þess efnis að forsætisráðherra og varn- armálaráðherra landsins og danskir hermenn í Írak séu lögmæt skot- mörk hryðjuverkamanna hafa vakið sterk viðbrögð í Danmörku. Dani þessi sat í tvö ár í varðhaldi í Guant- anamo-herstöðinni á Kúbu en var látinn laus fyrr á þessu ári. Slimane Hadj Abderrahmane, sem látinn var laus í febrúar, sagði í viðtölum við dönsku ríkissjónvarps- stöðvarnar á sunnudag, að ef land ætti í stríði við múslímaríki og þar með múslíma þá gætu leiðtogar landsins orðið skotmörk í heilögu stríði. Þegar fréttamaður TV 2 spurði Abderrahmane hvort hann teldi for- sætisráðherra og varnarmálaráð- herra Danmerkur lögmæt skotmörk svaraði hann: „Já, þeir geta orðið það, já.“ Abderrahmane, sem er strangtrú- aður múslími, lét þess þó getið að hann myndi ekki sjálfur taka frum- kvæði í þessum málum. „Forsætis- ráðherrann þarf ekki að hafa neinar áhyggjur út af mér,“ sagði hann skv. frétt Jyllands-Posten. Sætir eftirliti Abderrahmane, sem er 31 árs, var handtekinn í Pakistan í febrúar árið 2002 og sendur til Guantanamo grunaður um tengsl við talibana í Afganistan. Hann á danska móður og alsírskan föður en var að mestu alinn upp í Danmörku. Abderrahm- ane segist hafa verið að búa sig und- ir að berjast með íslömskum að- skilnaðarsinnum í Tétsníu þegar hann var handtekinn. Hann hefur ekki verið ákærður í Danmörku en sætir eftirliti. Ummæli Abderrahmanes hafa vakið hörð viðbrögð í Danmörku en 501 danskur hermaður er nú í Írak. Anne Baastrup, þingmaður Jafnað- armannaflokksins, sagði að ummæl- in jafngiltu því að hvatt væri til of- beldis. „Ég get verið ósammála forsætisráðherranum en maður get- ur ekki gefið til kynna, að líf hans sé í hættu eða að drepa eigi danska hermenn,“ sagði hún. Helge Adam Møller, þingmaður dansa Íhaldssflokksins, tók í sama streng. „Ummælin eru hneyksli og maður skilur betur og betur hvers vegna Bandaríkjamenn héldu hon- um föngnum,“ sagði hann. Hvatti Peter Skaarup, þingmaður danska Þjóðarflokksins, dómsmála- ráðuneyti landsins í gær til að rann- saka hvort Abderrahmane hefði gengið of langt með ummælum sín- um. Ekki lögbrot Flestir þingmenn voru þó sam- mála um að Abderrahmane hefði ekki brotið nein lög. Jørn Vester- gaard, sérfræðingur í lögum hjá Kaupmannahafnarháskóla, sagði að þótt yfirlýsingarnar væru ógeðfelld- ar teldust þær ekki brjóta í bága við landslög. Abderrahmane sagði í viðtali við Berlingske Tidende í gær, að hann hefði viljað vekja dönsku þjóðina til umhugsunar um ofbeldisverkin í Írak. „Ég get ekki setið þegjandi hjá og horft á hermenn bandalags- hersins ráðast á konur og börn í Írak.“ Ummæli fyrrum fanga í Guantanamo vekja hörð viðbrögð í Danmörku Sagði danska ráðamenn lög- mæt skotmörk Kaupmannahöfn. AP. Anders Fogh Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur. JIMMY Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að þrátt fyrir breytingar sem ætlað sé að koma í veg fyrir kosningavandamál í Flór- ída – þar sem deilt var hart um at- kvæði er réðu úrslitum forsetakosn- inganna árið 2000 – séu forsendur sanngjarnra kosninga í ríkinu ekki enn fyrir hendi. „Það er óþægileg staðreynd en endurtekning vandamálanna frá árinu 2000 virðist líkleg,“ segir Carter í grein sem birtist í The Washington Post í gær. Segir hann m.a. að „klaufaleg til- raun“ hafi verið gerð til þess ný- verið að hafa kosningaréttinn af 22 þúsund blökkumönnum, sem líklegir eru til að vera stuðningsmenn Demókrataflokksins, á þeirri for- sendu að þeir séu glæpamenn. Í kosningunum 2000 greiddu kjós- endur atkvæði með aðstoð göt- unarvéla en harðar deilur spruttu um gildi atkvæða þar sem merkin eftir vélarnar þóttu misjafnlega greinileg. Eftir mikil málaferli um gildingu og ógildingu atkvæða var niðurstaða kosninganna sú að George W. Bush hefði hlotið 537 at- kvæðum fleiri en mótframbjóðand- inn Al Gore og þar með unnið for- setakosningarnar á landsvísu. Nú hefur verið ákveðið að í kosn- ingunum í nóvember skuli brúkaðir snertiskjáir. Carter skírskotar til reynslu stofnunar sinnar við eftirlit með kosningum á alþjóðavísu og segir: „nokkrar alþjóðlegar grund- vallarforsendur fyrir sanngjörnum kosningum vantar í Flórída“. Harris var „einkar hlutdræg“ Áhyggjum veldur, að mati Cart- ers, að ekki skuli gert ráð fyrir að óháð kjörstjórn framkvæmi kosn- ingarnar. Þá verði fyrirkomulagið ekki hið sama alls staðar. Hann seg- ir að kjörstjórinn árið 2000, Kather- ine Harris innanríkisráðherra, hafi verið „einkar hlutdræg“ í starfi og arftaki hennar, Glenda Hood, sýnt „sömu kröftugu tilhneigingar“. Óttast vandræði í Flórída Jimmy Carter

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.