Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MENNING CHICAGO Á LAUGARDAGINN! Stóra svið Nýja svið og Litla svið Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00 Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? e. E. Albee Fi 30/9 kl 20, Fö 1/10 kl 20, Fö 8/10 kl 20, Su 10/10 kl 20 Fi 14/10 kl 20, Fö 15/10 kl 20 BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Su 3/10 kl 20, Fi 7/10 kl 20, Su 17/10 kl 20 Fi 21/10 kl 20, Su 31/10 kl 20 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Lau 2/10 kl 20, Su 3/10 kl 20 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Aðalæfing mi 6/10 kl 20 - kr. 1.000 Frumsýning fö 8/10 kl 20 - UPPSELT 2. sýn su 10/10 kl 20 - Gul kort 3. sýn fi 14/10 kl 20 - Rauð kort 4. sýn fö 15/10 kl 20 - Græn kort 5. sýn su 24/10 kl 20 - Blá kort CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir. Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20 Lau 16/10 kl 20 Lau 23/10 kl 20, Fö 29/10 kl 20 Aðeins örfáar sýningar í haust ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR: ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500) TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER - AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700) VERTU MEÐ Í VETUR LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 3/10 kl 14, Su 10/10 kl 14, Su 17/10 kl 14 Su 24/10 kl 14, Su 31/10 kl 14 Stóra sviðið kl. 20:00 ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur Fim. 30/9 örfá sæti laus, lau. 9/10 nokkur sæti laus, fim. 14/10 nokkur sæti laus, lau. 23/10 nokkur sæti laus. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Fös. 1/10 örfá sæti laus, lau. 2/10 örfá sæti laus, mið 6/10 uppselt, fim. 7/10 örfá sæti laus, fös. 8/10 örfá sæti laus, fös. 15/10 örfá sæti laus, lau. 16/10 uppselt, fim. 21/10 nokkur sæti laus, fös. 22/10 nokkur sæti laus, lau. 30/10 örfá sætil laus. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner Sun. 3/10 nokkur sæti laus, sun. 10/10 nokkur sæti laus, sun. 17/10 örfá sæti laus, sun. 24/10 nokkur sæti laus. Smíðaverkstæðið kl. 20:00 SVÖRT MJÓLK – Vasílij Sígarjov Fös. 1/10, lau. 2/10, fim. 7/10, sun. 10/10. Miðasalan er opin kl. 13:00-18:00 mánudaga og þriðjudaga. Aðra daga kl.13:00- 20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga. www.leikhusid.is – midasala@leikhusid.is. Þjóðleikhúsið sími 551-1200 EDITH PIAF ÖRFÁ SÆTI LAUS NÆSTU HELGI! Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20 Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20 ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20 Miðasala á Netinu: www.opera.is Rakarinn morðóði Óperutryllir eftir Stephen Sondheim Fös . 1 .10 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Lau . 2 .10 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Fös . 8 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI Fös . 15 .10 20 .00 LAUS SÆTI Lau . 16 .10 20 .00 LAUS SÆTI „Ekk i spurn ing að þet ta er e inn best i söng le ikur sem ég hef séð . Ég át t i e r f i t t með að ha lda mér í sæt inu og stökkva ekk i upp á sv ið og vera með“ -B i rg i t ta Haukda l , söngkona- . “ Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is Hræðilega fyndið, rokkað og flugbeitt: ELDAÐ MEÐ ELVIS eftir Lee Hall • Föstudag 1/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS • Laugardag 2/10 kl. 20 LAUS SÆTI Sýningin hlaut tilnefningu sem vinsælasta leiksýningin á Grímunni 2004. Aðeins nokkrar aukasýningar í haust. Tryggið ykkur miða strax! 552 3000 ☎ 552 3000 ☎ “Skemmtileg leikhússupplifun” VS Fréttablaðið. HINN ÚTVALDI eftir Gunnar Helgason • Sunnudag 3/10 kl. 14 LAUS SÆTI • Sunnudag 10/10 kl. 14 LAUS SÆTI “Kærkomið tækifæri til að fara með börnin á eitthvað óvænt og nýstárlegt... sýning sem óhætt er að mæla með fyrir börn á öllum aldri” SAB Morgunblaðið. 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími SVIK e. Harold Pinter frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT 2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 UPPSELT 3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 örfá sæti laus 4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 UPPSELT 5. sýn. sun. 10/10 kl. 20 UPPSELT 6. sýn. sun. 24/10 kl. 20 Þú getur tryggt þér kort til 1. okt. Áskriftarkort! Nú þegar fyrsti vetrardagurrennur brátt upp og birtufer að bregða hefst sá tími ársins þar sem bóklestur verður mikilvæg dægradvöl – og reyndar einnig mikilvæg verslunarvara þegar nær líður jólum. Það er því einstaklega ánægjulegt að enn skuli efnt til bókmenntahátíðar á þessu hausti, að þessu sinni barna- og unglingabókahátíðarinnar Galdur úti í mýri. Hátíðin hefst í Norræna húsinu næstkomandi fimmtudag og stendur fram yfir helgi. Gestirnir koma víða að, frá Bretlandi, Þýskalandi, Kanada og Bandaríkjunum – auk Íslands og hinna Norðurlandaþjóðanna. Þema hátíðarinnar er, eins og nafn hennar bendir að sjálfsögðu til, tengt göldrum og fantasíu sem viðfangsefni í bókmenntum barna og unglinga, enda ekki úr vegi eft- ir þá miklu sigurför sem slíkar bókmenntir hafa farið á síðustu árum, með galdrastrákinn Harry Potter fremstan í flokki. Á boð- stólum verður ýmislegt markvert bæði fyrir yngri sem eldri; höf- undarnir munu m.a. lesa upp, árita bækur og mæta þeim Dag- nýju Kristjánsdóttur og Önnu Heiðu Pálsdóttur í samræðum um verk sín. Einnig mun Ásatrúar- félagið kynna arfleifð þá sem þeir vaka yfir og galdramenn frá galdrasýningunni á Ströndum kenna ýmislegt tengt íslenskum rúnum.    Í upplýsingum um hátíðina ergreint frá því að í það minnsta einn höfundanna sem sækja okkur heim hefur sótt söguefni sitt í ís- lenskar þjóðsögur og draugasög- ur, en það er Arthur Slade frá Kanada. Hann mun hafa eytt mikl- um tíma á bókasafni heimabæjar síns þegar hann var lítill og lengi vel ekki náð upp í efri hillurnar þar. Það sem við honum blasti var íslenskur fróðleikur í neðri hill- unum (sem tæpast hefur þá verið lyft á háan stall í því samfélagi) og hafi hann verið innblástur hans við sumt af því sem hann hefur skrifað síðan, svo sem við ritun bókarinnar Draugr. Margir munu eflaust vilja heyra framlag danska höfundarins Lene Kaaberbøl, en hún hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin á þessu ári, fyrir ritröðina Skammerens børn, en fyrsta bókin í þeirri röð er væntanleg á íslensku nú í haust. Sömuleiðis hlýtur heimsókn Georgiu Byng að vekja eftirvænt- ingu, en hún er höfundur bókanna um Molly Moon. Fyrsta bókin um hana er þegar komin út á íslensku og sú næsta væntanleg. Einhverjir kunna að þekkja verk Mary Hoff- mann, sem á rúmlega 80 bækur að baki, en eftir hana er nýútkomin hér á landi fyrsta bókin í sagna- flokknum Stavaganza, þar sem flakkað er á milli ólíkra tíma og vídda á ævintýralegu sögusviði. Íslensku höfundana þekkja öll íslensk börn og væntanlega flestir foreldrar, en þeir eru; Kristín Helga Gunnarsdóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Iðunn Steins- dóttir, Sigrún Eldjárn og Þorvald- ur Þorsteinsson – sem væntanlega munu höfða til sinna dyggu les- enda meðal yngri bókaorma. Ið- unn Steinsdóttir var reyndar rétt að koma frá sér bók sem fellur vel undir þema bókahátíðarinnar; Galdur vísdómsbókarinnar, en þess má geta að Ragnar Gíslason var einnig að ljúka við bók sem nefnist Nornafár, en efniviður hennar virðist einnig falla vel að hátíðinni, þótt hann sé ekki meðal skráðra þátttakenda.    En frá íslenskum bókmennta-viðburði og út í hinn víða heim; í síðustu viku var sagt frá þeim sem hefðu komist á „stutta“ lista (í einskonar undanúrslit) Manbooker-verðlaunanna í Bret- landi, en tilnefningar til þeirra vekja jafnan mikla athygli. Að þessu sinni ekki síst vegna þess hversu mörgum kom val dóm- nefndarinnar á óvart. Á listanum eru þau Gerard Woodward, með bókina „I’ll go to Bed at Noon, Sarah Hall, höfundur „The Electric Michelangelo“, Achmat Dangor með „The Bitter Fruit“, Alan Hollinghurst, sem skrifaði „The Line of Beauty“, David Mitchell, höfundur „Cloud Atlas“, og Colm Toibin, höfundur „The Master“. Þrátt fyrir að þeir þrír höfundar sem fyrst eru nefndir hafi allir hlotið góða dóma fyrir verk sín áttu fáir von á að þeir næðu tilnefningu til úrslitanna – aðallega vegna þess hversu lítt þekktir þeir eru. Flestir virðast því veðja á að einhver þeirra þriggja, Mitchell, Toibin eða Holl- inghurst, vinni verðlaunin í ár, þótt sagan hafi reyndar sannað að erfitt er að segja fyrir um vinn- ingshafa þessara verðlauna. Galdur úti í mýri … ’Þema hátíðarinnar er,eins og nafn hennar bendir að sjálfsögðu til, tengt göldrum og fant- asíu sem viðfangsefni í bókmenntum barna og unglinga, enda ekki úr vegi eftir þá miklu sig- urför sem slíkar bók- menntir hafa farið á síð- ustu árum, með galdrastrákinn Harry Potter fremstan í flokki.‘ AF LISTUM Fríða Björk Ingvarsdóttir fbi@mbl.is Georgia Bynge Lene Kaaberböl mbl.isFRÉTTIR VINNUVEITENDASAMBAND Íslands starfaði í rétt 65 ár, frá 1934 til 1999, en nefndist Vinnu- veitendafélag Íslands fyrstu árin. Allan þennan tíma voru samtökin brjóstvörn íslenskra atvinnurek- enda og önnuðust samningagerð og sitthvað fleira fyrir félagsmenn sína, ýmist alla eða hluta þeirra. Framan af voru þó fráleitt allir atvinnurekendur aðilar að sam- tökunum og lengst af stóðu nokkrar stórar atvinnugreinar ut- an þeirra. Í þessari bók er saga Vinnuveit- endasambands Íslands og forvera þess rakin frá upphafi til loka. Í upphafsköflum kemur fram, að stofnun samtakanna var svar við vaxandi áhrifum verkalýðshreyf- ingarinnar og þeim erfiðleikum, sem heimskreppan olli á 4. áratug 20. aldar. Síðan er saga samtak- anna rakin í tímaröð, fjallað ræki- lega um helstu stefnumál og átök, samskipti við verkalýðshreyf- inguna, stjórnvöld og einstaka stjórnmálamenn og -flokka. Glögg grein er einnig gerð fyrir helstu forystumönnum samtakanna á hverjum tíma, stjórnunarstíl þeirra og áherslum. Er sú lýsing öll giska fróðleg aflestrar. Fátt hefur jafnmikil áhrif á daglegt líf alls þorra manna og gengi atvinnulífsins og má þá í raun einu gilda hvort um er að ræða einkarekstur eða atvinnu- starfsemi á vegum opinberra að- ila. Á vinnumarkaði ráðast kaup og kjör og flestir eiga lífsafkomu sína að miklu leyti undir því hvernig þar tekst til. Af einhverjum mér ókunnum ástæðum hefur saga þessa merka þáttar þjóðlífsins á 20. öld aldrei verið skrifuð í heild, a.m.k. ekki svo nokkur mynd sé á. Rann- sóknir á íslenskri hagsögu 20. ald- ar eru skammt á veg komnar og margt er þar enn óljóst. Engin heildarsaga verkalýðshreyfing- arinnar er til, svo mér sé kunn- ugt, og þau rit sem til eru um sögu einstakra félaga og fyr- irtækja bera flest (þó ekki öll) meiri svip tyllidagarita en eig- inlegra rannsóknarverka. Hér er því mikið starf óunnið. Þessi bók er um margt nýlunda, bætir úr brýnni þörf og er að minni hyggju besta verk sem hingað til hefur komið út um sögu íslensks vinnumarkaðar og þróun hans á 20. öld. Hún tekur þó eng- an veginn til allra þátta vinnu- markaðarins, stundum vekur hún fleiri spurningar en hún svarar og ekki dettur mér í hug að halda því fram að hún sé með öllu hlutlaus, enda vart við því að búast. Sagan er sögð af sjónarhóli vinnuveit- enda og samtaka þeirra, en bygg- ir engu að síður á traustri rann- sókn margra og fjölbreytilegra heimilda og hlýtur að auka til muna þekking lesenda á viðfangs- efninu. Þegar á heildina er litið verður að teljast góður fengur að þessari bók. Hún er og ágætlega skrifuð, læsileg og að öllu leyti vel úr garði gerð. Vinnumarkaðssaga BÆKUR Sagnfræði Samtök atvinnulífsins, Reykjavík 2004. 341 bls., myndir. Höfundur: Guðmundur Magnússon. Frá kreppu til þjóðarsáttar. Saga Vinnu- veitendasambands Íslands 1934–1999. Jón Þ. Þór Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.