Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 23 BANDARÍKJAMENN taka ferðamönnum vel og meta að verðleikum menningarlegt, vits- munalegt og persónulegt fram- lag þeirra námsmanna og kaup- sýslumanna sem til landsins koma. Í sögunnar rás hefur milljónum innflytj- enda og ferða- manna verið vel tekið í Bandaríkj- unum. Samskipti Bandaríkjamanna og þegna annarra ríkja hafa orðið til þess að koma á gagnkvæmum skilningi og var- anlegri samvinnu milli þjóða okkar og siðmenninga. Þessi tengsl hafa bætt og auðgað bandarísku þjóðina sem sækist ætíð eftir að fagna þeim sem heimsækja land okkar. En eins og ör- yggismálum er nú háttað þarf sífellt að leitast við að auka öryggi þeirra sem búa, starfa og ferðast í Banda- ríkjunum. Af þessu tilefni hafa banda- rísk stjórnvöld gripið til ýmissa ráða í samvinnu við önnur ríki í því að færa ferðagögn og aðferðir inn í staf- rænu öldina. Alheimskerfi um öryggi ferðagagna gerir þau öruggari og betur varin fyrir fölsunum og misnotkun hryðju- verkamanna, eiturlyfjasala og þeirra sem hafa illt í hyggju. Ferðamönnum frá löndum sem undanþegin eru árit- unarskyldu (VWP), þ.á m. frá Íslandi, er heimilt að dvelja í Bandaríkjunum í allt að 90 daga án vegabréfsáritunar að því til- skildu að þeir uppfylli þau skil- yrði sem í þessu felast. Ferða- menn án vegabréfsáritunar munu kynnast nýju ferli á næstu vikum þegar Bandaríkin bæta og uppfæra öryggisþætti við landamæri sín. Ferðamenn sem koma til Bandaríkjanna án vegabréfs- áritunar sér til skemmtunar eða í viðskiptaerindum kynnast fyrstu breytingunni 30. sept- ember. Þegar þessir ferðamenn koma á flugvelli eða í hafnir verða þeir skráðir í svonefnda heimsóknarskrá (US-VISIT program). Í þessari skrá er not- uð bleklaus, stafræn skönnun fingrafara og stafræn ljósmynd til að bera saman mynd ferða- manns sem fengið hefur vega- bréfsáritun hjá sendiráðum og ræðismönnum Bandaríkjanna erlendis. Öll gögn, sem aflað er fyrir heimsóknarskrána, eru tryggilega varðveitt og hafa ein- ungis viðurkenndir starfsmenn bandarískra yfirvalda sem starfa að öryggi og vernd bandarískra ríkisborgara og er- lendra ferðamanna aðgang að þeim. Ríkisborgarar þeirra landa sem undanþegin eru árit- unarskyldu en ferðast hafa með vegabréfsáritun eftir 5. janúar 2004 hafa þegar kynnst þessu skjótvirka og auðvelda ferli. Síð- an heimsóknarskráning (US- VISIT) var innleidd hafa tæpar 8 milljónir ferðamanna farið um kerfið. Til þessa hefur kerfið gert bandarískum yfirvöldum kleift að hindra komu rúmlega 600 afbrotamanna og þeirra sem brotlegir eru við innflytjenda- löggjöfina. Frá 26. október í ár þurfa ferðamenn án vegabréfsáritunar einnig að hafa vegabréf sem hægt er að lesa vélrænt til að fá inngöngu í Banda- ríkin. Í vegabréfi sem lesa má vél- rænt eru lífsýni í sérhæfðu formi en þau uppfylla al- þjóðlega staðla um innihald og hönn- un. Ferðamenn með vegabréf sem ekki hafa tvær tölvulesanlegar lín- ur (optical type- face lines) neðst á síðunni þar sem ljósmyndin er skulu hafa sam- band við Útlend- ingastofnun og óska eftir að fá vegabréf sem lesa má vélrænt áður en lagt er í ferð til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar. Í október 2005 verður bætt við ör- yggisþætti í al- þjóðleg ferðaskil- ríki farþega frá löndum sem undanþegin eru vegabréfsárit- un. Notaður verður alþjóðlegur staðall sem Alþjóðaflug- málastofnunin, Bandaríkin og þau ríki sem undanþegin eru áritunarskyldu hafa samþykkt og verða þá innleidd lífkenni (biometric indicators,) og notk- un andlitsauðkenna (facial re- cognition technology) við vega- bréfin. Þannig er kleift að bera saman vegabréfið og handhafa þess á óvefengjanlegan, sjón- rænan og tölvuvæddan hátt. Í vegabréfum með lífkennum verður tölvuflaga með stafrænni mynd af handhafa þess. Landa- mæraverðir geta lesið gögn úr tölvuflögunni sem verða síðan borin saman á rafrænan hátt við stafræna ljósmynd af handhafa vegabréfsins. Ferlið er nákvæm- ara en núverandi aðferðir við samanburð á hver handhafi vegabréfsins sé og hver sýndur er á sjálfu vegabréfinu. Viðbót lífkenna verður enn einn þáttur í að hindra falsanir á vegabréf- um og þjófnað á ferðaskilríkjum. Þar sem þessum breytingum er komið á stig af stigi ættu þær að bæta tæpri mínútu við núver- andi inngönguferli í Bandaríkin. Nokkrir vankantar gætu komið í ljós á breytingatímanum en ég vona að Íslendingar og aðrir sem heimsækja Bandaríkin muni styðja okkur í þessari við- leitni við að bæta árangur landa- mæravörslu til hagsbóta fyrir alla ferðamenn og ríkisborgara okkar. Til að afla frekari upplýsinga um undanþágu frá vegabréfs- áritun og aðrar reglur um ferða- lög til Bandaríkjanna er bent á heimasíðu sendiráðsins, www.usa.is, eða ferðasíðu utan- ríkisráðuneytisins, www.trav- el.state.gov. Farþegar án vega- bréfsáritana leggja Bandaríkjunum lið við að auka öryggi um allan heim James I. Gadsden fjallar um ferðamál Íslendinga til Bandaríkjanna James I. Gadsden ’En eins og ör-yggismálum er nú háttað þarf sífellt að leitast við að auka ör- yggi þeirra sem búa, starfa og ferðast í Banda- ríkjunum.‘ Höfundur er sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. nnar fyrir Morg- ví að t ein- m þáttum í þetta allt brotið þá sam- því, alveg ulífið hef- a verk- ssu til- arlega að ásamt rík- ta og rkynning ð fyrir. ngar í með hin- ldrei með þessum hætti. Nú er þetta á rík- isstjórnargrundvelli og Frakkar hafa síðasta orðið með valið; við er- um ekki að troða okkur inn á þá, heldur hefur þeim verið kynnt hvað er í boði og velja sjálfir.“ Sveinn segir óvenju mikið hafa verið fjallað um Ísland í frönskum fjölmiðlum upp á síðkastið. „Það gleður okkur og sýnir okkur að allt er þetta ómaksins vert. Ísland er á kortinu. París er gömul heimsborg menningar og hér keppast menn um athygli alveg stanslaust og sjálfsagt líta um 200 þjóðir okkur öfund- araugum vegna þess að við fáum þetta tækifæri. Við erum nefnilega á bestu stöðunum; atburðirnir fara fram þar sem fólk veit að ekki er boðið upp á annað en eitthvað sem hefur gildi. Við erum í bestu tón- leikahöllunum, á góðum stöðum í söfnum eins og hér. Það skiptir gríð- arlega miklu máli að við séum ekki að pukrast í einhverjum hornum,“ sagði Sveinn Einarsson. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra flutti ávarp fyrir hönd ut- anríkisráðherra, Davíðs Oddssonar, í gærkvöldi. „Við, sem störfum að því að fá Frakka til að ferðast til Ís- lands, teljum okkur þekkja hug- myndir Frakka um Ísland. Þar leik- ur náttúra landsins okkar stórt hlutverk, ísinn og eldurinn; jökl- arnir, hraunið, fjöllin og heita vatn- ið. En þeir sem ferðast um land okk- ar hljóta að komast í snertingu við menningu okkar og sögu,“ sagði Sturla. „Við Íslendingar erum, eins og Frakkar, stoltir af landi okkar og menningu og í auknum mæli reyn- um við að gera menningu okkar sýnilega og aðgengilega til að ferða- menn fái notið hennar. Við viljum halda á lofti því sem gerir þjóð okk- ar sérstaka, – bæði í augum þjóð- arinnar sjálfrar og þeirra sem sækja hana heim. Fjölmargir ferðamenn koma árlega til Íslands og þeim hef- ur fjölgað ár frá ári. Aukning sem nemur 10–15% milli ára er einstök í Evrópu.“ Vísindin efla alla dáð Það var svo Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sem opnaði vísindasýninguna og lýsti jafnframt menningarkynn- inguna formlega opnaða. „Við erum þakklát fyrir að fá þetta stórkost- lega tækifæri til að sýna ykkur margt af því besta sem við höfum upp á að bjóða og ég vil þakka frönskum stjórnvöldum góða sam- vinnu við að láta þennan draum verða að veruleika,“ sagði Þorgerð- ur Katrín meðal annars. „Vísindin eru í öndvegi á sýning- unni sem nú er að hefjast hér í þessu glæsilega safni. Við erum stolt af henni enda í fyrsta sinn sem Ísland heldur jafnviðamikla kynningu á vísindum sínum og tækniþekkingu. Vísindi okkar eru orðin að mik- ilvægri útflutnignsvöru og fyrirtæki okkar eru leiðandi í sumum greinum – til dæmis á sviði erfðafræðirann- sókna.“ Hún sagði ennfremur: „Það er hins vegar ekki síður við hæfi að samhliða opnun sýningarinnar hefj- ist viðamikil menningarkynning. Vísindi og menning tvinnast nefnilega víða saman í sögu sam- skipta Íslands og Frakklands. Má þar nefna Íslandsleiðangur franska vísindamannsins Josephs Pauls Gaimards á fyrri hluta nítjándu aldar. Með í för voru franskir listamenn og vísindastarf Gaimards hafði sterk áhrif á ís- lenska listamenn. Þessi leiðgangur varð einu helsta skáldi Íslendinga, Jónasi Hallgrímssyni, yrkisefni eins og lesa má um í ljóði sem ort er til Gaimards þar sem skáldið bendir réttilega á að vísindin efla alla dáð – en það varð síðar að kjörorði Há- skóla Íslands,“ sagði mennta- málaráðherra. enningar- og vísindakynningar sem stendur í hálfan mánuð í París g i Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson aði jakann ásamt Sigríði Snævarr sendiherra. Hér afhendir Sturla Jacques Cuchard, jakann formlega. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri, Cherif Khaznadar, verkefnis- arinnar fyrir hönd Frakka, Ari Trausti Guðmundsson og Sigríður Snævarr. Íslenska menningarkynningin í París var opnuð með fjölbreyttri dagskrá og líflegri í gærkvöldi. skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.