Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ KENNARAVERKFALLIÐ ÞÓTT deilt sé um mörg atriði í kjaradeilunni er meginatriðið það að deiluaðilar eru ekki sammála um hvað nýr kjarasamningur má kosta. Kennarar hafa sett fram kröfur sem fela í sér 35% hækkun á samn- ingstímanum, sem yrði til ársloka 2007. Launanefnd sveitarfélaganna hefur boðið 16,3% hækkun, en kennarar telja það alls ekki nóg. Sveitarfélögin hafa einnig boðið samning til ársloka 2008 sem fæli í sér 18,6% hækkun. Þarna er því verið að takast á um nokkra millj- arða. Þess ber að geta að Launanefnd sveitarfélaganna telur að kostnaður við ítrustu kröfur kennara sé meiri en 35%. Nefndin telur að ef fallist yrði á kröfurnar myndi yfirvinna kennara hækka sem leiddi til þess að heildarkostnaður sveitarfélag- anna myndi hækka um meira en 35%. Vilja lækka kennsluskyldu Kennarar krefjast breytinga á launatöflu og vilja að sú breyting skili að meðaltali 13,5% hækkun í upphafi samnings. Þeir vilja jafn- framt að þessar breytingar skili allt að 30% hækkun til yngstu kenn- aranna. Launanefndin hafnar þessu, en hefur lýst sig tilbúna til að gera breytingar á launatöflu sem m.a. feli í sér „verulega“ hækkun á laun- um yngstu kennaranna. Nefndin hefur einnig boðið launaþrep við 35 ára aldur. Kennarar leggja mikla áherslu á að kennsluskylda verði lækkuð um tvær stundir. Formaður KÍ hefur talað um að lægri kennsluskylda sé eitt af skilyrðum fyrir samningum. Sveitarfélögin hafa boðið umsjón- arkennurum einnar stunda lækkun í lok samningstímans, en auk þess hafa þau opnað á viðræður um frek- ari lækkun gegn því að fá kostn- aðinn sem af því hlýst bættan með öðrum hætti. Sveitarfélögin segja að þessi breyting kalli á aukna yf- irvinnu í skólunum. Kennarar hafa svarað því með því að segja að sveitarfélögin ráði hversu mikla yf- irvinnu þau kaupi af kennurum. Kennarar hafa einnig lagt mikla áherslu á að svokallaður launapott- ur skólastjóra verði lagður niður og hann færður inn í grunnlaun kenn- ara. Það sem kallað er launapottur er nánar tiltekið 3 launaflokkar sem skólastjórar útdeila til kennara. Það gera þeir með tilliti til ábyrgð- ar, álags og sérhæfingar. Ákvæði um þetta kom inn í samninga árið 2001. Sveitarfélögin hafa lýst sig tilbúin til að breyta þessu, en vilja eftir sem áður halda í þann sveigj- anleika sem stefnt var að því að ná fram með þessu ákvæði. Vilja breyta verkstjórnarþættinum Í síðustu samningum var einnig aukinn verkstjórnarþáttur skóla- stjóra, en hann er 9,14 klukku- stundir á viku. Kennarar vilja gera breytingar á þessum þætti á þann hátt að meiri tími verði á forræði kennaranna sjálfra. Kennarar vilja einnig fá aukinn tíma til undirbúnings kennslu. Í gildandi samningi voru kennurum ætlaðar 20 mínútur til undirbún- ings, en kennarar vilja að þessi tími verði 30 mínútur að lágmarki. Sveitarfélögin vilja að meginreglan verði 27 mínútur. Óbreyttur kostnaður Í tillögum sem Launanefndin lagði fram daginn áður en verkfall kennara hófst segir að tillögurnar séu settar fram „innan sama kostn- aðarramma og tilboð LN dags. 13. maí 2004. Samninganefndin er reiðubúin að ræða nánari útfærslu á þessum breytingum og eftir at- vikum meiri hækkanir á heildar- kostnaði ef samið er til lengri tíma.“ Tillögurnar fela sem sé í sér sama kostnað og tilboðið sem Launanefndin lagði fram í vor, en því tilboði höfnuðu kennarar. Í framhaldi af því lét KÍ fara fram atkvæðagreiðslu um verkfall sem yfir 90% kennara samþykktu. Mikið ber á milli deiluaðila                               ! "  #$  % $  &! ! '   '$   !   (!  "  )* ))* ) )* ) )* ))* ) )* ) +" , $  -*.   " /$ $ 0  , $   $ ,1 2" * *. $    1)3 2"3 !4 4 ( !" $ ,1 ,!  5,   $ !6) !7$ !6)   $   ,!  %   2  1 '34 8$ $ $ "4) 4)!,   $ * $  1 2    . *. 9 ' $$$  :  ! $ ;$ " $ ,1 ) 9 '  $    <   =$ *.  % . *. + 4 $ $  4 1 &! - $,%  $ 4$  ! " $ 51 $  51 $ !  1 $!,!  !"  $ ' 1    %& 44$ .  51 $  !  !*&   !, >? @ = '. 4!$,   8.!  $ !6)$ $   1" &    8.!  $ !6)$  Helstu deiluatriðin í kennaradeilunni eru launahækkanir, kennsluskylda og vinnutími kennara. Egill Ólafsson skoðaði ágreiningsefnin. egol@mbl.is Afhenda ekki kennslubækur VEGNA opins bréfs til Skóla- stjórafélags Íslands (SÍ) frá Heim- ili og skóla, þar sem skorað var á skólastjórnendur að afhenda þeim foreldrum sem þess óska skóla- bækur barna sinna vill stjórn SÍ taka fram eftirfarandi: „Skólastjórafélag Íslands stend- ur heils hugar með félögum í FG og SÍ sem eru í verkfalli, og munu félagar innan SÍ sem ekki eru í verkfalli, þar af leiðandi ekki ganga í störf þeirra. Þessu til áréttingar er vísað til bréfs frá verkfallsstjórn FG og SÍ, dagsettu 16. september sem hljóðar svo: „Til skólastjórnenda. Verkfalls- stjórn FG og SÍ beinir því til skólastjórnenda að ganga ekki inn í störf kennara með því að af- henda kennslugögn og bækur úr kennslustofu eða af vinnusvæðum kennara, þar sem það er hlutverk kennara.“ VERKFALL er lýjandi og leiðinlegt og von- andi að því ljúki sem fyrst svo kennarar komist aftur í vinnuna og nemendur í skólana. Kennarar eru gagnrýndir, verða jafnvel fyrir aðkasti, fyrir að vera í verkfalli en sumir sjá teikn á lofti um að umræðan sé að snúast á þeirra band. Þetta er meðal þess sem kom fram þegar litið var í heimsókn í verkfallsmiðstöð kennara í Borgartúni í gær. Páll Þórsson og Sæmundur Helgason hafa líkt og aðrir kennarar tekið þátt í verkfalls- vörslu og hafa m.a. farið á þá staði þar sem fyrirtæki hafa skipulagt gæslu fyrir börn starfsmanna. Páll sagði engan vafa leika á að í þessu fælist verkfallsbrot. Með gæslunni væri grafið undan verkfallinu, þessu neyð- arvopni, og yki jafnvel líkur á að verkfallið drægist á langinn. Hann sagði að í upphafi verkfalls hefði verið barið á kennurum með neikvæðri umræðu en nú væri tónninn held- ur að breytast kennurum í vil. Sæmundur benti á að flestir væru sam- mála um að kennsla í stærðfræði, sögu eða íslensku væri verkfallsbrot en af einhverjum ástæðum víluðu fyrirtæki ekki fyrir sér að kenna íþróttir, leiki og föndur. Með því væri þó klárlega farið inn á verksvið íþrótta- og verkmenntakennara. Hann bætti við að svo virtist sem stórlega hefði dregið úr fjölda barna í fyrirtækjagæslu. Ástæðan væri m.a. sú að gjarnan gengi illa að hafa ofan af fyrir börnunum sem yrðu þá sum hver óvær og óþekk, það væri greinilega ekki fyrir hvern sem er að gæta barna. Páll og Sæmundur hafa báðir áhyggjur af yfirlýsingum fulltrúa sveitarfélaganna um að ekki séu gerðar kröfur um sérstaka launahækkun fyrir byrjendur. Yngri kenn- arar hafi farið mjög illa út úr síðustu samn- ingum og nauðsynlegt sé að bæta þar úr. Annars sé hætta á fjöldauppsögnum. „Viss um að allir myndu vilja leysa þetta með öðrum hætti“ Hljóðið var ekki betra í þeim Þuríði Þor- steinsdóttur, Stefaníu Ragnarsdóttur og Björgu Jónsdóttur sem ræddu um verkfalls- mál og fleira við stallsystur sínar í gær. Að vera í verkfalli væri bæði leiðinlegt og öm- urlegt. Þegar talið barst að undanþágum fyrir fatlaða nemendur kom á þær nokkurt hik. Þær sögðust að sjálfsögðu standa með sinni stétt en eðli málsins samkvæmt bitnaði verk- fallið á mjög mörgum. Bentu þær á að aftur hefði verið sótt um undanþágur og hugsan- lega yrði niðurstaðan þá önnur. Þær sögðu talsvert um að fólk gagnrýndi kennara, jafnvel með persónulegum árásum, fyrir að hafa farið í verkfall. Kennarar þyrftu m.a. að svara spurningum um hvers vegna þeir væru „á móti börnum“. Þetta væri auðvitað fráleitt enda vildi enginn fara í verkfall. Launin yrðu hins vegar að hækka. „Ég er viss um að allir myndu vilja leysa þetta með öðrum hætti ef það væri hægt. Ég sé það bara ekki gerast,“ sagði Þuríður. Segja að launin verði að hækka Morgunblaðið/Kristinn Þeir Sæmundur Helgason, Páll Þórsson, Óskar Jósúason og Haraldur Einarsson prófuðu þekk- ingu sína í flestu öðru en kjaramálum kennara í verkfallsmiðstöðinni í gær. Þorgerður Magnúsdóttir, Dagbjört Þorsteinsdóttir, Kitty Ásgeirsdóttir, Þuríður Þorsteins- dóttir, Stefanía Ragnardóttir, Björg Jónsdóttir og Sigrún Logadóttir ræddu verkfallsmál yfir kaffibollum og kökum. Logey Rós Waagfjörð og Aron Elí Gíslason fylgdust með. Karlar með hærri laun en konur KARLAR sem kenna við grunn- skóla Reykjavíkur eru með hærri laun en konur sem kenna við sömu skóla. Munur á dagvinnulaunum er 6,7% og 14,9% ef litið er á heild- arlaun. Þetta má lesa út úr tölum Kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna. Meðaldagvinnulaun karla sem kenna í Reykjavík voru um 226 þús- und um síðustu áramót, en 282 þús- und ef litið er á heildarlaun. Meðal- dagvinnulaun kvenna sem kenna í Reykjavík eru hins vegar 212 þús- und, en 245 þúsund ef horft er á heildarlaun. Tölurnar byggjast á launum um 300 karla og tæplega 1.200 kvenna sem kenna við grunn- skólana í Reykjavík. Inni í tölum Kjararannsókn- arnefndar eru ekki aðeins grunn- skólakennarar í Reykjavík heldur einnig skólastjórar. Þeir eru að sjálf- sögðu miklu færri en kennararnir en engu að síður ná þeir að hækka með- altalslaunin. Ekki er hægt að fá töl- urnar brotnar meira niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.