Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.09.2004, Blaðsíða 34
Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Í dag er fullt tungl í merkinu þínu, svo þú gætir verið full tilfinn- inganæm/ur. Reyndu að lenda ekki í átökum við aðra. Slappaðu af. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú verður að sýna samstarfsfólki þínu og viðskiptavinum þolinmæði. Það er fullt tungl og það gæti skapað erfiðar aðstæður á vinnustað. Taktu á honum stóra þínum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er ekki þess virði að vera að pirra sig út í vini sína í dag. Enginn er fullkominn og við þurfum öll vini. Þú verður að læra að taka vinum þín- um einsog þeir eru. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú munt líklega lenda í valdabaráttu við yfirmann eða foreldri í dag. Reyndu að lenda ekki í þeirri leið- inlegu aðstöðu. Ef aðrir eru að ganga yfir þig hlauptu þá bara í burtu og láttu sem ekkert sé. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ekki reyna að verja stjórnmála- og trúarlegar skoðanir þínar í dag. Mis- jafnar skoðanir munu takast á í dag! Bíddu í nokkra daga með að ræða það sem er mikilvægt fyrir þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Fulla tunglið lendir ekki jafn harka- lega á þínu merki og hinna í dag. Hins vegar finnst þeir einhver pen- ingamál vera komin í hnút, og þeim skaltu greiða úr hið snarasta. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Fulla tunglið í dag er beint á móti merkinu þínu. Þess vegna skaltu ekki vera með neina frekju í dag, og ekki reyna að sannfæra fólk um að þú haf- ir rétt fyrir þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ekki stofna til uppreisna á vinnustað í dag með því að reyna að koma þínu fram. Þetta er ekki rétti dagurinn. Nú er það kurteisin sem virkar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Foreldrar verða að vera þolinmóðir við börnin sín. Ekki lenda í valdabar- áttu. Vini gæti langað að rífast smá- vegis, en ekki láta það eftir honum. Haltu áfram að brosa. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Fulla tunglið í dag krefst þolinmæði og tillitssemi, sérstaklega þegar kem- ur að fjölskyldumeðlimum, for- eldrum, yfirmönnum og jafnvel lög- reglunni. Mundu bara að það þarf tvo til að slást. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Einhver óhöpp munu gerast í dag. Passaðu þig þegar þú ekur, gengur eða hjólar. Fulla tunglið gerir fólk óábyrgt og þar á meðal þig. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu að komast hjá því að rífast um peninga við fólk í dag, ekki held- ur um eignir. Þú getur stefnt ein- hverjum seinna ef þig langar en þetta er ekki góður dagur til að þræta. Stjörnuspá Frances Drake Vog Afmælisbörn dagsins: Hafa mjög mikið aðdráttarafl og laða að sér fólk. Að hluta til þar sem þau eru rómantísk og með góðan smekk. Fólki þykir auðveldlega vænt um það og þau eru bestu vinir sem hægt er að hugsa sér. Þau ættu að reyna að vera meira ein þetta árið og það mun gefa þeim tækifæri til að læra eitthvað mjög mikilvægt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 34 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 heimkynni guð- anna, 8 höggva, 9 skyld- menni, 10 fálátu, 11 litlu mennirnir, 13 kvabba, 15 óvættur, 18 éta, 21 rödd, 22 hrópa, 23 styrkir, 24 skyndilega. Lóðrétt | 2 hræðsla, 3 fugl, 4 angan, 5 mergð, 6 far, 7 hey, 12 greinir, 14 bók- stafur, 15 árna, 16 blóð- sugan, 17 vofu, 18 hvell, 19 heiðarleg, 20 siga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 bölva, 4 sefar, 7 gotan, 8 ólatt, 9 inn, 11 rönd, 13 mana, 14 ætinu, 15 þræl, 17 nefs, 20 kal, 22 galli, 23 iðnað, 24 lærði, 25 dáður. Lóðrétt | 1 bugur, 2 látin, 3 asni, 4 spón, 5 flana, 6 rotta, 10 neita, 12 dæl, 13 mun, 15 þögul, 16 ætlar, 18 ennið, 19 siður, 20 kimi, 21 lind. 1. d4 g6 2. e4 Bg7 3. Rc3 d6 4. Be3 Rd7 5. f4 a6 6. Rf3 b5 7. e5 Bb7 8. Bd3 e6 9. De2 Re7 10. O-O-O Rb6 11. g4 Dd7 12. Re4 O-O-O 13. Hhf1 Kb8 14. Rg3 f5 15. exf6 Bxf6 16. Rg5 Red5 17. Bd2 Hhe8 18. Df2 b4 19. R5e4 Da4 20. Kb1 Bh8 21. f5 exf5 22. gxf5 gxf5 23. Rxf5 Staðan kom upp á ungstjarnamótinu í Lausanne sem lauk fyrir skömmu. Luke McShane (2643) hafði svart gegn David Navarra (2616). 23... Hxe4! 24. Bxe4 Rc3+ 25. Bxc3 bxc3 svartur hót- ar nú senn biskupnum á e4 og Db4. 26. Hd3 Bxe4 27. Hxc3 Hf8 28. Dh4 Db5 29. Hf4 Bxf5 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Úrslitaleikur Bikarkeppninnar. Norður ♠ÁG1087 ♥ÁK106 A/NS ♦10874 ♣– Vestur Austur ♠KD ♠96532 ♥92 ♥D85 ♦52 ♦DG6 ♣K987642 ♣G3 Suður ♠4 ♥G743 ♦ÁK93 ♣ÁD105 Sveit Orkuveitu Reykjavíkur undir for- ystu Páls Valdimarssonar varð bik- armeistari á sunnudaginn, en sveitin lagði að velli Júlíus Sigurjónsson og fé- laga í sveit Sláturfélags Suðurlands í 64 spila úrslitaleik. Spilaðar voru fjórar 16 spila lotur og vann OR þá fyrstu með 29 IMPa mun, tapaði tveimur næstu naumlega, en vann síðustu lotuna stórt og leikinn með 207 IMPum gegn 148. Í sigursveitinni spiluðu: Páll, Sævar Þor- björnsson, Anton Haraldsson, Sig- urbjörn Haraldsson og Þröstur Ingi- marsson. Bjarni H. Einarsson er einnig liðsmaður sveitarinnar, en var fjarver- andi um helgina. Spilið að ofan er úr síðustu lotunni. Sævar og Þröstur eru í NS gegn Hrólfi Hjaltasyni og Sigurði Vilhjálmssyni: Vestur Norður Austur Suður Hrólfur Sævar Sigurður Þröstur – – Pass 1 tígull 3 lauf 3 spaðar Pass 3 grönd Pass 4 tíglar Pass 5 lauf * Pass 6 tíglar Allir pass Slemman hangir vægast sagt á þunnum þvengjum. Útspilið var hjartanía og Þröstur gaf sér góðan tíma í úrspilið. Þegar hann hafði loks gert upp hug sinn drap hann á hjartaás og spilaði trompi á níuna. Það var spor í vinningsátt þegar nían hélt, en fleira gott þurfti að gerast. Þröstur spilaði næst laufdrottningu að heiman – kóngur og trompað. Tígull heim á ásinn var næsta skref og lauf- fimma stungin. Gosinn kom annar úr austrinu, en það var einmitt staðan sem Þröstur var að gera út á. Nú var bara eitt eftir, að taka hjartakóng og gefa austri á hjartadrottningu. Tólf óvæntir slagir og 16 IMPar til Orkuveitunnar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is  Kvikmyndir Bæjarbíó | Kvikmyndasafn Íslands sýnir Skyggen af Emma eftir Søren Kragh- Jacobsen, kl. 20. Aðgangseyrir kr. 500. Regnboginn | Kl. 10, Shorts 7: Always on a Tuesday, Woody, Dem Derovre og de andre, Polaris, Are you sleeping, Wine of the House, Echo. Docs 5: The Russel Tribunal, Gunnar goes comfortable. Kl. 12, Shorts 6: Who is Barði?, Solitude, Money, Goldfish Tradis, Descent, Grubby Girls, Home Game, My Head, Last words of Hreggviður. Docs 8: Louise&Papaya, Be- tween Rooms, Father to Son. Kl. 14, Barnadagskrá. Shorts 5: Waiting For Rain, The Yellow Tag, Without Words, Nightshift, Precious Brother. Docs 7: You were there with your friend Frank, V.O.I.T.K.A. Kl. 16, Balkan 2. Docs 1: Rehearsals. Kl. 20, The Day I’ll Never Forget, The man who stole my mother’s face. Tónlist Salurinn | Pi-Kap strengjakvartettinn frá Tékklandi leikur kl. 20. Selfosskirkja | Septembertónleikar kl. 20.30. Séra Gunnar Björnsson, Jörg Sond- ermann og Haukur Guðlaugsson leika. Að- gangur ókeypis. Dans Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Fyrsta opna hús vetrarins verður annað kvöld, 29. sept. í sal félagsins að Álfabakka 14a og hefst kl. 20.30. Allir velkomnir. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Haustfagnaður verður haldinn 1. október kl. 14, bingó, nemendur Söngskólans syngja, tískusýning og Hjóna- bandið leikur fyrir dansi, veislukaffi. Árskógar 4, | Bað kl. 8–14, handavinna kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45, smíði, útskurður kl. 13–16.30, línudans kl. 20.30. Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 böðun, kl. 9–14 vinnustofan op- in, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–17 fótaaðgerð. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dag- blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45 hár- greiðslustofan opin, kl. 10–11 sam- verustund, kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi. Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Opnað kl. 9, blöðin, rabb, kaffi á könnunni, frjáls prjónastund, leikfimi kl. 11.30, saumar og bridge 13, pútt á Hrafnistuvelli kl. 14 til 16. Félag eldri borgara Kópavogi | „Opið hús“ fyrir félaga FEBK og gesti þeirra verður í félagsmiðst. Gjábakka laugard. 2. okt. kl. 14. Dagskrá: Formaður ræðir starfsemi fél. o.fl. Gísli J. Ástþórsson, fv. ritstj., flytur efni í léttum dúr. Lagið tekið. Kaffiveitingar. Dansa-Skvetturnar stjórna. Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Lagt af stað fimmtudaginn 30. sept- ember í haustlitaferðina. Brottfararstaðir: Félagsmiðst. Gjábakka kl. 13.15 og Gull- smára kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Stafganga kl. 11 undir leiðsögn Halldórs Hreinssonar, skák kl. 13. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Glæisbæ kl. 10. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Málun kl. 9.30, karlaleikfimi og bútasaumur kl. 13. Gjábakki, félagsstarf | Brids í kvöld kl 19. Hraunbær 105 | Kl. 9 Postulínsmálun, glerskurður, hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 versl- unarferð, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Kl. 9.30–10.30 boccia. Kl. 9–13 opin vinnustofa, umsjón Sigrún. Kl. 13.30 helgistund,umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Fótaaðgerðir– hársnyrting. Hæðargarður 31 | Opin vinnustofa/ tréskurður kl. 9–16, hárgreiðslustofa kl. 9– 12. s. 568–3139. Leikfimi kl. 10–11. bókabíll- inn kl. 14.15–15. Verslunarferð/Bónus kl. 12.40, hádegismatur og síðdegiskaffi. Mið- ar á Vínarhljómleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands 7. janúar 2005. Opið öllum aldurs- hópum. Sími. 568 3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun miðviku- dag 29. sept. Fundur Miðgarði kl. 10. Norðurbrún 1, | Kl. 9 myndlist, kl. 9 smíði, kl. 9 opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 13 postulínsmáling, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13– 16 bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, handmennt almenn kl. 9 til 16, hárgreiðsla kl. 9, fótsnyrting kl. 10, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, félagsvist kl. 14. Haust- litaferðin á morgun kl. 13, upplýsingar í síma 561 0300, allir velkomnir. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Fermingarfræðsla kl. 15– 17. Hópur 1 (Oddeyrarskóli og 8.B Brekku- skóla). Morgunsöngur kl. 9. Áskirkja | Opið hús kl. 14.00–17.00 í dag. Kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.00. Boðið er upp á léttan hádegisverð. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta alla þriðjudaga kl. 18.30. Bænarefnum má koma til presta í síma 587 1500. Digraneskirkja | Leikfimi IAK kl. 11.15. Kl 12.00 léttur málsverður, helgistund, kaffi, KFUM&KFUK. Fyrir 10–12 ára börn kl 17.00–18.15, húsið opnað kl. 16:30. Alfa námskeið kl 19.00. Hver er Jesús ? Grafarvogskirkja | Opið hús þriðjudaga fyrir eldri borgara kl. 13.30–16.00. Helgi- stund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveit- ingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Starf með öldruðum er þriðju- daga og föstudaga kl. 11–15 í kórkjallara. Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrðarstund verður í kirkjunni kl. 12.10. Laugarneskirkja | Kl. 19.45 Trúfræðsla. Gott samfélag. Gengið inn um litlar dyr á austurgafli kirkjunnar. Kl. 20.30 kvöld- söngur í kirkjunni, gengið inn um aðaldyr. Kl. 21 Fyrirbænaþjónusta í umsjá bæna- hóps kirkjunnar og kaffispjall í safn- aðarheimilinu. Neskirkja | Barnakór kl. 15. 7 og 8 ára. Stúlknakór kl. 16. 9 og 10 ára. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. S. 8968192. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórn- andi Inga Backman. S. 5522032. Nedó unglingaklúbbur. 8. bekkur kl. 17. 9. bekkur og eldri kl. 19.30. Alfa kl. 19. Víðistaðakirkja | Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar stundir fyrir hressa krakka á hverjum þriðjudegi. Víðistaðakirkja | Æskulýðsfélagið Megas heldur vikulegan fund kl. 19.30–21.00. Fyrirlestrar Háskóli Íslands | Jóhanna B. Guðjóns- dóttir flytur fyrirlestur á vegum SVF kl. 12.15 í stofu 102 í Lögbergi. Fjallað verður um ýmislegt sem lýtur að mismunandi málsniðum frönsku í kennslu, sér í lagi mál- sniðum talaðs máls, þekkingu íslenskra nemenda á þeim o.fl. Listaháskóli Íslands | Katherine E. Nelson, blaðamaður búsett í New York, fjallar um skandinavíska hönnun kl. 17. Aðgangur frjáls og ókeypis. Málþing Grand Rokk | Karlahópur Femínistafélags- ins heldur málþing kl. 20. Fjallað verður um karla sem hafa látið að sér kveða. Kornhlaðan | Alþjóðahús boðar til mál- þings í kvöld kl. 20 í Kornhlöðunni, Banka- str. Umræðuefnið er tengsl tungumáls og samfélags. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is NÚ VANTAR einn í tvo tugi Skáldaspíru- kvöldanna, sem hafa vakið nokkra athygli undanfarið. Í kvöld kl. 21.00 hittast skáldin í nítjánda skipti á Kaffi Reykjavík og lesa upp úr verkum sínum. Upplesarar kvölds- ins eru þau Ingibjörg Haraldsdóttir, Hrafn Jökulsson, Björg Þorgrímsdóttir og Rut Gunnarsdóttir, sem fagnar nýútkominni ljóðabók sinni, Orðin sem liggja í loftinu. Benedikt S. Lafleur, útgefandi og listamað- ur, sem stendur að Skáldaspírukvöldunum ásamt félaga sínum Gunnari Randverssyni píanókennara og skáldi, segir skálda- spírukvöldunum hvergi nærri lokið, þó þau séu að verða tuttugu talsins. „Það hefur verið mikil eftirspurn eftir þessu framtaki og margir sem vilja lesa og margir sem hafa komið til að njóta upplestursins. Mað- ur hefur séð það að fleiri upplestrarkvöld hafa fylgt í kjölfarið,“ segir Benedikt og bætir við að nú sé aðalupplestrartíðin að hefjast, með útgáfu jólabókanna. „Ég vil þó vekja athygli á því að Skáldaspírukvöldin eru allt árið um kring.“ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Nítjánda Skáldaspírukvöldið Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Kjalarnessprófastsdæmi hefur gefið út bókina Þjónar í húsi Guðs – hand- bók fyrir meðhjálpara og kirkju- verði, sóknar- nefndir og starfsfólk kirkj- unnar. Ritið hefur að geyma hagnýtan og sögulegan fróð- leik um embætti meðhjálparans, en meðhjálparar gegna lykilhlut- verki í helgihaldi þjóðarinnar. Einn- ig er í bókinni fjallað um ýmis emb- ætti önnur, sem að kirkjulegri þjónustu koma, svo sem starf kirkju- varðar, hringjara og önnur störf. Trú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.