Morgunblaðið - 28.09.2004, Side 12

Morgunblaðið - 28.09.2004, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Tækifæri í verslun og viðskiptum - Kynning á fríverslunarsamningum - Fundur um ný tækifæri fyrirtækja vegna í fríverslunarsamninga Íslands við önnur lönd. Fundurinn verður haldinn 30. september, kl. 8.30–10.00, í Borgartúni 35 (Húsi atvinnulífsins) á 6. hæð. Dagskrá: Setning: Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Ný viðskiptatækifæri. Mikilvægi fríverslunarsamninga. Grétar Már Sigurðsson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Hlutverk viðskiptaþjónustu utanríkisþjónustunnar - betra aðgengi að nýjum mörkuðum. Martin Eyjólfsson, forstöðumaður VUR. Canton viðskiptaráðstefnan í Kína. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins . Umræður og fyrirspurnir. Þátttökutilkynningar í svth@svth.is eða í síma 511 3000.              "# $ #  % &  ' (   '  AB C  -  & C  -  9* !$ !)A  C 1 D 1'  -'  2 1' D 1 8 $ 8$1B $9  E!*  E$ ! 7  $ * 7  9* !$ ') F )    * +   A!!* !$ !6 ? 9  D 1 9 $  +  *  +  ' *. -3 ') + ! ,)G.  ! H '  1'   &  24!"*.  #: $ * 7D9 741   7 !6 7  1 7"  7&  &  ! , ) I  I ,  &  = &  G ) ?7"'$   ,   #-# A  '  9$15,* !* 2 14D 1 I"!"  = , !6 D 1 74   )$     ?             ? ? ? ?  ?     ? ? ?  ? ? ? ? ? ? - $,!  !,  )$   ?    ?   ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? >@ >? @ >@ >@ ? > @ > @ > @ > @ ? > @ ? >@ ? >@ >?@ ? >@ ? ? ? ? >@ > @ ? ? >?@ ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? +$1   1  I' 4 1 J 7  ) )  )   ? ) ) )  )  ) ) ) )  ) ) ?  ? ? ? )   ?  )  ?  ) ? ) ? ? ? ? ? ?              ?    ? ?                    ? ?      ?      = 4%3) ) AI+)KA    9*&1     ?      ?  ?  ? ?   ?   ?   ?  ? ? ? ?  ? ? DIGITAL Reykjavík, árleg al- þjóðleg ráðstefna um gagnaflutn- ing yfir breiðband, fjarskiptanet, efnisveitur og fjárfestingar, er far- in að vekja athygli í hinum al- þjóðlega fjarskiptaheimi. Ráð- stefnan hefst á morgun á Nordica hóteli og stendur fram á föstudag. Nú þegar hafa tæplega 200 gestir skráð sig til þátttöku og koma þeir úr öllum heimsálfum að sögn Lár- usar Páls Ólafssonar fram- kvæmdastjóra ráðstefnunnar. „Skráning gengur vel. Það eru gestir að koma að hvaðanæva, frá Japan, Bandaríkjunum og Norð- urlöndunum meðal annars,“ segir Lárus. Ástæðuna fyrir hinum al- þjóðlega áhuga segir Lárus vera þá að hér sé um fagráðstefnu að ræða þar sem leiðandi aðilar í fjar- skiptaheiminum flytji erindi. „Við stimpluðum okkur vel inn með fyrstu ráðstefnunni í fyrra og hróð- urinn hefur borist víða.“ Lárus segir að 30 erlendir fyr- irlesarar verði með erindi á ráð- stefnunni og þeir séu margir hverj- ir búnir að fara í gegnum þá þróun sem er að fara af stað hér á landi, og á þá við ýmislegt varðandi breið- bandsvæðingu sem og samruna tölvu, sjónvarps og síma. „Ná- grannalöndin eru til dæmis búin að ganga í gegnum sambærilega þró- un og við erum að sjá í dag með Orkuveitu Reykjavíkur og Lands- símann og tengingu þeirra við efn- isveitur,“ segir Lárus Páll. Járnbrautarfyrirtæki vill vera fjarskiptafyrirtæki Á ráðstefnunni verður leitað svara við spurningum eins og Hvar eru ný tækifæri á fjarskiptamark- aði, af hverju eru símafyrirtæki, orkuveitur, og járnbrautarfyr- irtæki farin að skilgreina sig sem fjarskiptafyrirtæki, hvaða tækni þarf til að byggja efnisveitu og hvernig eru sjónvarp, tölva og sími að renna saman? Meðal þeirra sem fram koma á ráðstefnunni eru Francesca Mari, framkvæmdastjóri markaðssviðs og vöruþróunar ítalska breiðbands- fyrirtækisins Fast Web, en hún, ásamt Ervin Leibovici forstjóra bandaríska breiðbandsfyrirtæk- isins Bitband, mun fjalla um upp- byggingu stærsta breiðbandsnets Fast Web sem er einnig hið stærsta í Evrópu. Netið nær til 400.000 heimila í 7 borgum og styðst við ljósleiðara og DSL lagnir. Af öðrum fyrirlesurum má nefna aðila frá Cisco Systems, Telenor, RedPill Production, Playboy TV og Orkuveitu Reykjavíkur. Vekur athygli í öllum heimsálfum Morgunblaðið/Þorkell Lárus Páll Ólafsson EIGENDUR tékkneska símafyr- irtækisins Aliatel hafa hafið við- ræður við nokkra aðila um sölu á fyrirtækinu. Meðal áhugasamra kaupenda er Ceske radiokomunik- ace (CRa), tékkneska fjarskipta- félagið sem Björgólfur Thor Björgólfsson, Landsbanki Íslands og Straumur Fjárfestingarbanki eiga ásamt fleiri fjárfestum. Aliatel sérhæfir sig í þjónustu við fyrirtæki og stofnanir og býður upp á tal-, gagna- og netþjónustu. Fyrirtækið er í eigu sex tékk- neskra orkuveitna og þýsku orku- veitunnar RWE, sem á tæp 40% hlutafjár. Það mun fyrst og fremst vera hlutur RWE sem er til sölu, að því er segir á fréttavef Int- erfax. CRa hefur einnig lýst áhuga á að kaupa hlut ungverska ríkisins í ungverska útsendingar- og fjar- skiptafyrirtækinu Antenna Hung- ária. Stefnt var að því að selja hlutinn þegar hlutur Antenna í farsímafyrirtækinu Vodafone í Ungverjalandi hefði verið seldur. Sá hlutur (12,1%) hefur nú verið seldur Vodafone-samstæðunni í Bretlandi fyrir um 6,3 milljarða króna, segir í frétt Budapest Business Journal. Ætti því ekkert að vera ung- verska ríkinu að vanbúnaði að selja 73,1% hlut sinn í Antenna og áætlað er að það verði gert á þessu ári. BTC vill stærri hlut í Mobikom Af öðrum fjárfestingum Björg- ólfs Thors og félaga í Austur-Evr- ópu: Talið er að búlgarska síma- fyrirtækið BTC muni auka við hlut sinn í farsímafyrirtækinu Mobi- kom. BTC á 39% hlut í félaginu og á í viðræðum um kaup á 49% til viðbótar, að því er segir í frétt frá Sofia Morning News. En sem kunnugt er vinnur BTC nú að upp- byggingu á nýju farsímakerfi í Búlgaríu. Björgólfur og félagar vilja eignast Aliatel Líður að einkavæðingu Antenna Í GÆR tóku OMX-kauphallirnar í Finnlandi, Eistlandi og Lettlandi upp SAXESS-viðskiptakerfið sem þýðir að frá og með gærdeginum fara viðskipti með verðbréf sem skráð eru í kauphöllunum í Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Íslandi, Finn- landi, Eistlandi og Lettlandi fram í einu og sama viðskiptakerfinu, að því er fram kemur í tilkynningu Kaup- hallar Íslands. Jafnframt segir að þetta þýði að kauphallirnar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum komi fram sem einn markaður að þessu leyti. „NOREX-samstarfið er fyrst kaup- hallarbandalaga í heiminum til að taka upp sameiginlegt viðskiptakerfi fyrir hlutabréf og samræma reglur fyrir aðild og viðskipti í öllum kaup- höllunum. Þessi tilkynning staðfestir að upphaflegu markmiði um að skapa einn samræmdan markað fyr- ir verðbréf á Norðurlöndunum hefur verið náð,“ segir í tilkynningunni. „Við erum ánægð með að framtíð- arsýn NOREX um einn sameiginleg- an markað hefur ræst,“ segir Jukka Ruuska formaður NOREX í tilkynn- ingunni og bætir við: „Við munum nú einblína á að þróa markaðina á Norð- urlöndunum og í Eystrasaltsríkjun- um áfram til að auka enn hagkvæmni þeirra.“ „Við erum samkeppnishæfari sem einn markaður í Norður-Evrópu og munum áfram vinna að frekari framþróun. Við stefnum að því að gera verðbréfaviðskipti enn hag- kvæmari og skilvirkari í framtíðinni. Þetta er góður dagur í sögu NOR- EX, “ segir Þórður Friðjónsson for- stjóri Kauphallar Íslands og varafor- maður NOREX. Hlutabréf 876 félaga eru skráð í NOREX-kauphöllunum sem eru sjö talsins. Markaðsvirði allra skráðra félaga innan NOREX er u.þ.b. 50.000 milljarðar króna miðað við lok ágústmánaðar. Morgunblaðið/Sverrir Einn markaður Tilkoma SAXESS gerir kauphallirnar samkeppnishæfari. Allir í sama við- skiptakerfinu ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hækkar enn og er nú í 3.683 stigum en það er rúmlega 74% hækkun frá áramótum. Hækkunin í gær nam 0,9%. Mest hækkuðu bréf í félögum sem tengjast Burðarási; Og Vodafone 4,1%, Landsbankanum 2,3%, Burðarási 2%, Marel 1,9% og í Kaldbaki um 1,6% en auk þess hækkaði Össur um 2,8%. Mest við- skipti voru með bréf í Íslandsbanka, eða fyrir 493 milljónir króna. Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu héldu flestar áfram að lækka eftir nokkra lækkun í síðustu viku. Þá lækkuðu bandarísk verðbréf nokkuð fyrir áhrif af hækkun olíuverðs. Félög tengd Burðarási hækka ● BANKARÁÐ Íslandsbanka hefur ákveðið að auka hlutafé bankans um 200 milljónir hluta, úr 10.000 í 10.200 milljónir hluta. Fjárstýring- arsvið bankans selur bréfin í gegnum viðskiptakerfi Kauphallarinnar og gert er ráð fyrir að sölunni verði lokið nk. fimmtudag, 30. september. Í til- kynningu segir að aukningunni sé ætlað að fjármagna almennan vöxt í starfsemi félagsins. Á fyrstu 8 mán- uðum ársins nam hagnaður Íslands- banka fyrir skatta 10,6 milljörðum króna. Heildareignir í lok ágúst voru 547,6 milljarðar. Níu mánaða upp- gjör verður birt 26. október. Íslandsbanki eykur hlutafé sitt Morgunverðarfundur Versl- unarráðs verður haldinn í dag kl. 8.30 til 9.45 á Grand hóteli. Fjallað verður um vinnustaðasamninga fyr- irtækja og hvort sjávarútvegur sé að dragast aftur úr hvað þá varðar. Á fundinum skiptast útgerðarmenn og fulltrúar launþega á skoðunum. Í DAG ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR efnir á morg- un til fyrsta opna útboðsins á íbúða- bréfum. Stefnir sjóðurinn að því að taka tilboðum að fjárhæð 7,0 millj- arðar króna. Áskilur sjóðurinn sér rétt til að hækka fjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Þetta er þriðja útboð Íbúðalána- sjóðs frá því íbúðabréfin tóku við af hús- og húsnæðisbréfum í júlí síðast- liðnum og er heildarfjárhæð þeirra, að væntanlegu útboði meðtöldu, 19 milljarðar króna. Fyrsta opna útboðið á íbúðabréfum # 1 L 7MN     9I75 OAP        QAQ  E8P     9P #$      RQ5P O SH $      

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.