Morgunblaðið - 28.09.2004, Side 38

Morgunblaðið - 28.09.2004, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 NOTEBOOK Miðasala opnar kl. 15.30 Hann gerði allt til að verja hana Nú gerir hann allt til að bjarga henni Mögnuð spennumynd með Denzel Washington í fantaformi Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára. Sýnd kl.10. B.i. 16 ára. Punginn á þér 1. okt. Dodgeball Kr. 450 Kr. 450  J.H.H KVIKMYNDIR.COM  H.L. MBL COLLATERAL TOM CRUISE JAMIE FOXX Hörkuspennumynd frá Michel Mann leiksjóra Heat Fór beint á toppinn í USA! FRÁ LEIKSTJÓRA SCARY MOVIE Tveir þeldökkir FBI menn ætla að missa sig í næsta verkefni...og dulbúa sig sem hvítar dívur!! Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 8 og 10.20.  J.H.H KVIKMYNDIR.COM  H.L. MBL Sýnd kl.6. ísl tal. Sýnd kl. 6. ísl tal. DENZEL WASHINGTON kl. 5, 8, og 11. B.i. 16 ára Yfir 30.000 gestir! Sýnd kl. 4. ísl tal. Sýnd kl. 10.40 Sýnd kl.5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl.4 og 6 ísl tal. Sýnd kl. 8 DENZEL WASHINGTON Ný íslensk mynd gerð eftirsamnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu. Dodgeball Punginn á þér 1. okt. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS óvenjulega venjuleg stelpa www.borgarbio.is Sýnd kl. 8. BUBBI og félagar hans í endurreistri Egó eru sannarlega stórir strákar norðan Staðarskála. Egó hélt ballvæna tónleika í Sjallanum á laugardag og troðfyllti húsið. Stemningin ku hafa verið engri lík eins og myndirnar gefa til kynna en Egó hafði þurft að fresta tónleikum sem stóð til að halda um þarsíðustu helgi á Sjallanum, vegna veikinda Bubba í raddböndum. Nú geta íbúar sunnan Staðarskála farið að setja sig í stellingar því Egó ætlar að spila tvisvar sinnum, á föstudag og laugardag, á Nasa við Aust- urvöll. Sjallagestir sungu hástöfum með Ególögunum sígildu. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Bubbi náði vel til norðanmanna sem endranær. Stórir strákar Á FIMMTUDAGINN kemur verða haldnir minningartónleikar í Iðnó um Fróða Finnsson tónlistarmann og bera þeir yfirskriftina Vinir Fróða. Fróði lést 30. september árið 1994, fyrir tíu árum síðan, eftir erf- iða baráttu við krabbamein. Fróði var einkar umsvifamikill í íslensku tónlistarlífi á meðan hann lifði og hafði mikil áhrif á samferðamenn sína. Hann starfaði í mörgum hljóm- sveitum, þeirra þekktust er dauða- rokkssveitin Sororicide (Infusoria) sem sigraði Músíktilraunir árið 1991. Síðar átti hann t.d. eftir að starfa með hinni goðsagnakenndu nýrokk- sveit SSSpan sem kemur saman aft- ur þetta kvöldið af tilefninu. Vinir og kunningjar Fróða eru margir hverjir starfandi tónlist- armenn í dag og ætla að heiðra minningu hans á tónleikunum. Hljómsveitirnar/listamennirnir eru Bacon, Ghostigital, Hot Damn!, Ívar Páll, Drep, Singapore Sling, Skand- inavia, SSSpan og Trabant. Á milli atriða verður brugðið upp mynda- sýningu með svipmyndum frá ævi Fróða. Kynnir og sögumaður verður Arnar Eggert Thoroddsen. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og að- gangur er ókeypis fyrir 18 ára og eldri, svo lengi sem húsrúm leyfir. Vildi taka þátt með einhverjum hætti Ein af þeim sveitum sem munu troða upp á tónleikunum er Skandin- avia, ný hljómsveit Elízu Geirs- dóttur Newman, sem eitt sinn var í Kolrassa krókríðandi/Bellatrix. Sveitin kemur hingað sérstaklega vegna tónleikanna og greiddi Ice- land Express m.a. götu sveitarinnar hingað til lands. Með Skandinaviu kemur blaðamaður frá Kerrang! en þessi breska þungarokksbiblía ku vera afar áhugasöm um sveitina. Elíza þekkti Fróða vel, var unn- usta hans um skeið og góð vinkona. Kolrassa krókríðandi varð til í miðju dauðarokks- fárinu og lék oft sam- hliða þess háttar sveitum og sigraði svo í Músíktilraunum árið 1992, ári eftir að Fróði og félagar í Sororicide höfðu hampað þeim titli. „Ég hafði lýst því yfir að mig langaði til að taka þátt í þessum minningartónleikum, hvernig svo sem ég færi að því,“ segir Elíza við blaðamann. „Ég hlakka til að taka þátt í þessu og minnast góðs drengs. Það verður líka gaman að hitta allt gamla gengið um leið.“ Elíza hefur ekki leikið hérlendis í þrjú ár og segist því spennt að geta troðið upp í þessu já- kvæða umhverfi sem verði á minningartón- leikunum. Fyrsta plata Skandin- aviu, samnefnd sveit- inni, kom út í gær en áð- ur hafa komið út tvær smáskífur. Tónlistin er kraftmikið og epískt rokk og vísar m.a. í nor- rænan þjóðlagaarf. „Mig langaði til að taka u-beygju frá því sem ég var að gera með Bellatrix,“ segir Elíza. „Þetta er búið að ganga nokkuð vel, við erum að byggja upp aðdáenda- hóp í London og höfum fengið jákvæðar umfjallanir að und- anförnu í blöðunum. Það eru anna- samir mánuðir fram undan því að nú er stóra platan komin út og þá fer vonandi allt í gang.“ Tónleikar | Minningartónleikar um Fróða Finnsson Skandinavia spilar Elíza og félagar í Skandinaviu eru meðal þeirra sem ætla að heiðra minn- ingu Fróða Finnssonar á fimmtudaginn. Fróði Finnsson fæddist 12. júní 1975 og lést 30. september 1994.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.