Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 41

Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 41
Atriði úr kvikmyndinni Ástaraldin. KVIKMYNDIN Ástaraldin hefur verið í sýningu hér á landi að und- anförnu í tengslum við hollenska bíódaga en hún er byggð á sam- nefndri skáldsögu hollenska rithöf- undarins Karel Glastra van Loon. Kvikmyndin er ágætlega gerð, en fyrst og fremst byggist hún á áhugaverðri sögu sem hrífur mann með sér í flókið sálfræðilegt ferða- lag manns sem uppgötvar að hann er í raun ekki faðir sonar síns. Að- alsöguhetjan er Armin Minderhout og kemst hann að því að hann hef- ur alltaf verið ófrjór þegar sonur hans er kominn á unglingsaldur, og móðirin látin fyrir mörgum ár- um. Hann tekur þá að rifja upp skrautlega fortíð sína og eiginkon- unnar Moniku í örvæntingarfullri tilraun sinni til þess að komast að því hver raunverulegur faðir son- arins sé, og hvaða leyndarmálum Monika hafi búið yfir. Skáldsagan sem myndin styðst við kom nýlega út í íslenskri þýðingu og ætti áhuginn á henni að glæðast með þessari eftirminnilegu og vel leiknu kvikmynd. Í föðurleit KVIKMYNDIR Regnboginn – hollenskir bíódagar Leikstjórn: Maarten Treurnet. Aðal- hlutverk: Peter Paul Muller, Carice van Houten, Halina Reijn og Jan Decleir. Hol- land, 2003. Ástaraldin (De Passievrucht)  Heiða Jóhannsdóttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 41 ÞEIR sem á ann- að borð hafa dá- læti á rokksöng- leikjum meta mikils tónlistina úr rokksöng- leiknum Hárinu. Hún hefur lifað lengi, þótt rígbundin sé í ákveðinn tíma, ákveðna tísku og strauma sem ríkjandi voru á tímum svokallaðrar hippakynslóðar. Reglu- lega hefur söngleikurinn verið settur upp hér á landi og mætti segja að hver og einn gæti bent á „sína“ upp- færslu, gjarnan þá fyrstu sem við- komandi sér. Fyrsta uppfærslan sem ég sá var á vegum nemenda Verslunarskólans árið 1988 og hreifst ég af, þótt þá hafi einungis lögin verið tekin. Sex árum síðar sá ég vel heppnaða uppfærslu í Ís- lensku óperunni. Nýjasta upp- færslan, sú sem var frumsýnd í Austurbæ 9. júlí sl., hefur fengið misjafnar viðtökur. Gagnrýnendur áttu erfitt með að greina verkið og meint innihaldsleysi þess frá upp- færslunni sjálfri og hvernig þar tókst til. Býsnuðust svo heil ósköp yfir því hversu stutt er síðan Hárið var sett upp þótt það sé síður en svo einsdæmi að áratugur líði á milli uppfærslna á vinsælum verkum – verk Egners eru t.d. sett reglulega upp í Þjóðleikhúsinu, enginn kvartar sama hversu oft Hamlet og Rómeó og Júlía eru sett upp og nú ætlar Þjóðleikhúsið sjálft meira að segja að setja upp Jesus Christ Superstar. En þótt gagnrýnendur hafi verið pirraðir út í enn eina uppfærlsu á Hárinu virðist almenningur hafa tekið henni fagnandi og líkað vel því aðsóknin ku hafa verið jöfn og góð og nú hefur verið ákveðið að sýna verkið áfram í vetur. Um tónlistina í Hárinu þarf vart að fjölyrða, sagan hefur dæmt hana. Flest lögin sterk og bjóða upp á mik- il tilþrif sem að mestu eru nýtt til hins ýtrasta af flytjendum nýjustu uppfærslunnar. Það var vel við hæfi hjá Rúnari Frey Gíslasyni leikstjóra að velja blöndu af reyndum leikurum og söngvurum og minna reyndum. Það er alltaf ánægjulegt þegar nýtt hæfileikafólk er uppgötvað í sýn- ingum sem þessari. Það gerðist fyrir tíu árum er Emilíana Torrini söng sig inn í hjörtu landsmanna í litlu hlutverki og segir manni svo hugur að það kunni að endurtaka sig nú upp að vissu marki því Helgi Rafn úr Idol-keppninni fetar í hennar fót- spor, syngur „Frank Mills“ og svo að segja stelur senunni, í það minnsta á plötunni. Mjög fróðlegt verður að fylgjast með honum í framtíðinni því hrein og silkimjúk röddin kemur af- ar vel út á plötu. Það er einmitt málið þegar hlust- að er á plötu með tónlist úr söngleik. Útkoman er hreint ekki sú sama, því málið er bara að þótt einhver svín- virki á sviði, sé fullur af orku, út- geislun og sannfæringarkrafti þá er ekki þar með sagt að það skili sér alla leið í hljóðverið, á plötu. Það er tilfellið hér. Þeir sem best koma út á plötunni eru þeir sem reynslu hafa af plötugerð, eru vanir stúdíóvinnu. Regína Ósk, Sverrir Bergmann og einkum Selma Björnsdóttir eiga þannig skínandi spretti. Hilmir Snær kemur svo glettilega sterkur inn sem söngvari, en þótt hann sé óumdeildur sem leikari hefur hann ekki farið mikinn hingað til á söng- vellinum. Í hlutverki hins svart-hvíta Hud nýtir hann kraftmikla og djúpa röddina til hins ýtrasta og minnir jafnvel á Egil Ólafs, – ekki leiðum að líkjast þar. Hvað útsetningar varðar er ég ekki alveg viss um að það sé rétt leið sem Þorvaldur Bjarni hefur valið að rokka þetta svona mikið upp. Kulda- legur Rammsteinskotinn rafmagns- gítarhljómurinn er bara ekki alveg að gera sig með þessum blómum stráða hippisma sem einkennir tón- smíðar og texta. Platan með tónlistinni úr Hárinu er þegar allt kemur til alls eigulegur gripur fyrir þá mörgu sem skemmtu sér vel á uppfærslunni nýju í Aust- urbæ. Vel snyrt Hár TÓNLIST Íslenskar plötur Tónlist úr rokksöngleiknum Hárinu. Höf- undar Galt MacDermont, James Rodo, Gerome Ragni. Þýðing Davíð Þór Jóns- son. Tónlistarstjóri Þorvaldur Bjarni Þor- valdsson. Söngvarar Sverrir Bergmann, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Hilmir Snær Guðnason, Regína Ósk, Benedikt Einarsson, Björn Thors, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Selma Björnsdóttir, Helgi Rafn Ingvarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Alma Rut og kór. Hljóðfæraleikur: Ólafur Hólm, Friðrik Sturluson, Vignir Snær Vig- fússon, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Pálmi Sigurhjartarson, Roland Hartwell, Guðmundur Kristmundsson, Olga B. Ólafsdóttir og Sigurður Bjarki Gunn- arsson. Útsetningar Þorvaldur Bjarni og Vignir Snær. Stjórn upptöku Þorvaldur Bjarni. Útgefandi Skífan/Culture 2112. Rokksöngleikurinn Hárið  Skarphéðinn Guðmundsson MÍNUS eru rokkband með rentu, vill vera það og lifir sig inn í það hlutverk af öllu hjarta. Jafnframt því er bandið mjög áhugavert og í sífelldri framþróun. Leikstjórinn hefur elt bandið á röndum og myndað það á ólíklegustu stundum. Myndefnið er mjög fjölbreytt, lifandi og persónu- legt. Strákarnir greinilega vanir því að leikstjórinn sé með þeim veifandi myndavélinni og láta allt flakka. Ef taka má mark á titlinum, er hann enn að vinna að myndinni, og ef svo er ætti hann að reyna að hafa byggingu í henni. Myndin virðist meira samtín- ingur á efninu hans raðað saman á til- viljunarkenndan hátt. „Kill your darlings“ er orðatiltæki notað þegar þarf að fórna myndefni sem er manni kært en þjónar ekki beint tilgangi myndarinnar. Með meira vali og betri klippingu yrði myndin miklu þéttari, kröftugri og hreinlega miklu meira rokk og ról. (Hluta myndefnisins mætti nota til að búa til sérmynd um Þröst bassaleikara – hann einn er efni í heila mynd.) Ég hefði viljað sjá meira af tón- leikum, einhverja tónlist verða til og tónlistarpælingar. Viðtölin við þá Thoroddsen-bræður, upptökustjór- ann Birgi Örn og tónlistargagnrýn- andann Arnar Eggert, eru mjög upp- lýsandi, því strákarnir eru sjálfir ekki mikið að rýna í músíkina sína, nema kannski Frosti og Bjössi smávegis, og þá í hálfkæringi. Krummi fílósóf- erar aðallega um tilveru bandsins og það að vera rokkari. En það er nú líka sagt um snillinga að þeir ræði ekki verkin sín, þau bara verði til og ekki alltaf vitað af hverju. Myndin er áhugaverð, lifandi og skemmtileg. Mætti þó vera meiri tón- list, minna fyllirísrugl og styttri. Rokk og ról. Alvörurokk og rugl HEIMILDARMYNDIR Regnboginn – Nordisk Panorma Leikstjórn: Frosti Runólfsson. 110 mín. Ísland 2004. Mínus – verkefni í vinnslu (Mínus – Work in Progress)  Hildur Loftsdóttir Krummi sýnir hollustu sína og trúnað við rokkið og bandið sitt. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 Ísl tal. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.15.  G.E. Ísland í bítið/Stöð 2  Kvikmyndir.com S.K., Skonrokk KRINGLAN Sýnd kl. 6. AKUREYRI Sýnd kl. 10. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. Lífið er bið Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir meistaraleikstjórann, Steven Spielberg. Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom Hanks og Catherine Zeta Jones. r r ftir i il i ftir i t r l i tj r , t i l r . s rs r l f t ri t J .  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. Rás 2 Tom HanksT s Catherine Zeta Jonesi GEGGJUÐ GRÍNMYND  Kvikmyndir.comvi y ir.c Rómantísk spennumynd af bestu gerð Ástríða sem deyr aldrei KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8. Frá leikstóra The Princess Diaries og Pretty Woman JULIE ANDREWS ANNE HATHAWAYJ I Hún þarf að setja upp hringinn til að taka við rf ún a að tj se a u ri i tilh ng nn t iað aka v ð Frá leikstóra The Princess Diaries og Pretty Woman JULIE ANDREWS ANNE HATHAWAYJ I Hún þarf að setja upp hringinn til að taka við rf ún a að tj se a u ri i tilh ng nn t iað aka v ð Ein steiktasta grínmynd ársins ÁLFABAKKI kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10 ára. KRINGLAN kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.