Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Af hverju getið þið ekki líka verið góðir og látið ykkur nægja að naga beinin eins og litli verkamaðurinn??? Sjóvík ehf. og SÍF hf.hafa undirritaðviljayfirlýsingu þess efnis að Sjóvík kaupi Iceland Seafood Corpora- tion, dótturfélag SÍF í Bandaríkjunum, af SÍF en félagið starfrækir verksmiðju fyrir full- vinnslu sjávarafurða í Virginíuríki. Kaupverðið er um 4,8 milljarða króna. Sjóvík og SÍF hafa um árabil átt í nánu samstarfi um framleiðslu og sölu af- urða sem framleiddar eru í Asíu og hefur Sjóvík m.a. verið einn stærsti birgir Iceland Seafood Corpora- tion. Jón Kristjánsson, stjórnarfor- maður Sjóvíkur, segir að engar breytingar séu fyrirhugaðar á rekstri Iceland Seafoood. „Með kaupum Sjóvíkur á Iceland Sea- food Corporation verður til öflugt félag. Í þeim felst sóknarfæri sem styrkja mun starfsemi félagsins umtalsvert. Kaupin breyta engu um þá stefnu félagsins að viðhalda og styrkja tengsl þess við íslenska framleiðendur.“ Sjóvík ehf. var stofnað árið 1992 og er með höfuðstöðvar í Reykjavík. Sjóvík hefur náð góð- um árangri í vinnslu og sölu sjáv- arafurða í Asíu, aðallega hvítfisks, en meirihluti afurðanna hefur far- ið á markað í Bandaríkjunum og Evrópu. Félagið rekur nú sjö verksmiðjur; fjórar í Kína, tvær í Taílandi og nú eina í Bandaríkj- unum. Félagið er einnig með skrifstofur í fimm löndum, á Ís- landi, í Kína, Taílandi, Suður-Kór- eu og Bandaríkjunum. Alls starfa um þrjú þúsund manns á vegum félagsins. Sjóvík er ennfremur í samstarfi við Kóreumenn og Rússa um veiðar í Kyrrahafslög- sögu Rússlands. Þar eru varan- legar aflaheimildir um 3.000 tonn, en með leigu og kaupum afla- heimilda hafa veiðiheimildirnar verið auknar upp í um 10.000 tonn. Um 8.000 tonn af þorski, 1.000 tonn af lúðu og ýmis samtín- ingur að auki. Þessi afli kemur til vinnslu í verksmiðjum Sjóvíkur í Kína og Taílandi. Vörumerki Sjóvíkur er Blue Ice. Stærsti hluthafi Sjóvíkur er Sund hf., sem á um helming hluta- fjár, en annað hlutafé er meðal annars í eigu lykilstarfsmanna. Ellert Vigfússon er fram- kvæmdastjóri Sjóvíkur, en hvern- ig byrjaði þetta ævintýri? „Við vorum nokkrir saman í veiðum, vinnslu og útflutningi á ígulkerum fyrir allnokkrum ár- um. Við fengum þá góða innsýn inn í fiskmarkaðina í Austurlönd- um fjær, einkum í Japan. Þegar við hættum í ígulkerunum hélt hluti eigendanna áfram í fiskivið- skiptum við Japani og í Austur- Asíu. Við hófum svo vinnslu á kaldsjávarrækju í Tælandi fyrir markaðinn í Japan árið 1998 og vinnslu á Kyrrahafsþorski hófum við í upphafi ársins 2000. Þorsk- vinnslan hefur svo aukizt mikið og hratt og við erum að vinna úr um 20.000 tonnum af hausuðum, frystum Kyrrahafsþorski á ári. Þá vinnum við væntanlega 4.000 til 5.000 tonn af Atlantshafsþorski á næsta ári, við vinnum úr 2.000 til 3.000 tonnum af Alaskaufsa, 5.000 til 6.000 tonnum af Kyrra- hafslaxi og loks töluvert af rækju. Samstarf okkar við ÍS og síðan SÍF hófst í upphafi ársins 2000 og við höfum verið stærsti birgir af frystum afurðum fyrir SÍF, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum,“ segir Ellert. Sjóvík stundar einnig alþjóðleg viðskipti með fisk og fiskafurðir og selur árlega um 100.000 tonn á þeim mörkuðum, þar af um 90.000 tonn af Alaskaufsa. Sjóvík er næst stærst í slíkum við skiptum, næst á eftir risanum Pacific And- es og er með 20 manns í vinnu við fisksölu og hráefnisöflun á skrif- stofu sinni í Suður-Kóreu. Ellert segir að vel gangi að vinna í þessum framandi heims- hluta. Lykillinn að því sé gott starfsfólk og alls staðar séu þeir með heimamenn í vinnu sem séu vandanum mjög vel vaxnir og þekki vel inn á allt viðskiptaum- hverfið. „Við litum svo á á sínum tíma að tækjum við ekki þátt í þessari framleiðslu, myndu Kín- verjarnir gleypa allan pakkann. Þeir eru vissulega stórir, en við höfum náð góðri fótfestu þarna og nýtum okkur sömu kosti og Kín- verjarnir. Reynsla okkar af fisk- vinnslu nýtist okkur mjög vel í samvinnu við hina hæfu heima- menn á hverjum stað.“ Blása til sóknar Ellert segir að hann telji að kaupin á Iceland Seafood muni styrkja bæði fyrirtækin og ætl- unin sé að blása til sóknar. Starf- semi Iceland Seafood standi vel og þeir vonist til þess að helztu stjórnendur muni starfa við fyrir- tækið áfram. En hvernig snara menn út 4,8 milljörðum króna? „Við tæmdum alla sparibaukana okkar. Nei, það var nú ekki svona einfalt. Þetta er reyndar aðeins viljayfirlýsing enn sem komið er, áreiðanleikakönn- unin er enn eftir og það er fyrir- vari um fjármögnun. Ég vil ekki segja neitt um það hvernig að henni verður staðið, en það liggur þó fyrir.“ Fréttaskýring | Sjóvík kaupir starfsemi Iceland Seafood í Bandaríkjunum Tæmdum sparibaukana Félagið rekur nú sjö verksmiðjur; 4 í Kína, 3 í Taílandi og 1 í Bandaríkjunum Tvífrystur fiskur er ódýr og nokkuð góður. Ódýri fiskurinn frá Kína sækir stöðugt í sig veðrið  Vinnsla á frystum fiski eykst stöðugt í Austurlöndum fjær, í Kína og Taílandi. Íslenzka fyrir- tækið Sjóvík er umsvifamikið í þeirri vinnslu, vinnur úr um 20.000 tonnum af Kyrrahafs- þorski á þessu ári, en einnig Atl- antshafsþorsk, Kyrrahafslax og rækju. Það stundar einnig al- þjóðleg viðskipti með fisk og fiskafurðir. Meðal annars selur það um 90.000 tonn af Alaska- ufsa á ári og fleiri fisktegundir. hjgi@mbl.is NÝ DÖNSK könnun bendir til þess að bólefni gegn inflúensu veiti um 70% vörn gegn þeirri inflúensu sem bólusett er fyrir. Á hinn bóginn veikjast um 75% hinna bólusettu af öðrum pestum sem geta minnt á ein- kenni inflúensu. 59.566 manns sem létu bólusetja sig í Danmörku tóku þátt í rannsókninni og í ljós kom að bólusetningin gagnaðist aðeins ein- um af hverjum fjórum í baráttu við aðrar umgangspestir en inflúens- una. Hinir þurftu að leggjast undir sæng með aðrar pestir, að því er m.a. kemur fram í Politiken og á heimasíðu Sóttvarnarstofnunar Danmerkur, Statens Serum Institut. Haft er eftir Ásbirni Hróbjarts- syni, lækni og vísindamanni hjá Cochrane Center sem gerði rann- sóknina, að það leiki vafi á hvort það borgi sig að fara í bólusetningu ef áhrifin eru svo lítil. Heilbrigðisyfir- völd mæla yfirleitt með að fólk yfir 65 ára aldri láti bólusetja sig þar sem það er viðkvæmt fyrir sýking- um. Í Danmörku hefur einkarekin læknastofa, Danske Lægers Vacc- inations Service, í auknum mæli mælt með því að ungt og frískt fólk láti bólusetja sig og í bæklingi frá henni er vísað til Spænsku veikinnar sem kostaði 50 milljónir lífið 1918. Dönsku neytendasamtökin telja óforsvaranlegt að nýta sér ótta fólks við að smitast af alvarlegri veiki. Guðrún Sigmundsdóttir, yfir- læknir á sóttvarnarsviði landlæknis, hafði ekki séð könnunina og gat því ekkert tjáð sig um hana. Hún segir að áhrif bólusetninga gegn inflúensu hafi verið margkönnnuð og sýnt hafi verið fram á virkni þeirra. Það sé varasamt að taka mikið mark á einni könnun sem sýni hið gagnstæða. Lægri dánartíðni Guðrún segir að almennt sé talið að um 70% þeirra sem láti bólusetja sig veikist ekki af inflúensu og jafn- vel þó þeir veikist skili bólusetningin árangri. Veikindin verði ekki jafn al- varleg og þá hafi komið í ljós að dán- artíðni meðal eldra fólks sé lægri meðal hinna bólusettu en þeirra sem ekki hafa látið bólusetja sig. Ný dönsk könnun á áhrifum bólusetningar gegn inflúensu Niðurstöðurnar sýna um 70% virkni gegn inflúensu Þrír af hverjum fjórum veikjast af öðrum pestum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.