Morgunblaðið - 26.10.2004, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 11
FRÉTTIR
LANDVERND vill gera verndun
Þjórsárvera að forgangsverkefni.
Nýleg úttekt tveggja virtra erlendra
sérfræðinga gefur ástæðu til að ætla
að Þjórsárver geti átt heima á heims-
minjaskrá UNESCO. Sem kunnug er
voru Þingvellir nýlega samþykktir á
heimsminjaskrána. Þá vinnur Land-
vernd að undirbúningi stofnunar
náttúruskóla í Reykjavík. Þetta var
kynnt á blaðamannafundi sem hald-
inn var á 35 ára afmælisdegi Land-
verndar í gær.
Kvíslaveita 6 gengur aftur
Úrskurður setts umhverfis-
ráðherra, Jóns Kristjánssonar, í jan-
úar í fyrra kvað á um að Norð-
lingaölduveita yrði færð út fyrir mörk
friðlandsins í Þjórsárverum. Um leið
voru heimilaðar mótvægisaðgerðir
sem m.a. felast í vatnslónum og veitu-
mannvirkjum við Arnarfell. Að sögn
Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur,
formanns Landverndar, eru þessi lón
nánast sama hugmynd og áður hét
Kvíslaveita 6 og var hafnað á sínum
tíma.
Landvernd leitaði til tveggja er-
lendra sérfræðinga, sem báðir njóta
alþjóðlegrar viðurkenningar, um að
leggja mat á alþjóðlegt verndargildi
Þjórsárvera. Kanadamaðurinn Jack
D. Ives á að baki margar Íslands-
ferðir. Hann kom fyrst hingað til
lands 1952 og skrifaði doktorsritgerð
sína um landmótun og jökla í Öræf-
um. Hann er mikilsmetinn sérfræð-
ingur um fjöll og hefur m.a. starfað
mikið fyrir Sameinuðu þjóðirnar.
Roger Crofts frá Skotlandi var fyrsti
forstjóri Náttúruverndarstofnunar
Skotlands. Hann er nú varaformaður
í heimsnefnd Alþjóðanáttúruvernd-
arsamtakanna (IUCN), sem Land-
vernd á aðild að. Crofts á að baki
margar Íslandsferðir. Þeir Ives og
Crofts voru m.a. fengnir til að veita
umsögn þegar Þingvellir voru skráðir
á heimsminjaskrá UNESCO.
Tveir könnunarleiðangrar voru
farnir í Þjórsárver síðastliðið sumar
með sérfræðingana, hvorn í sinni
ferð. Einnig var efnt til funda með ís-
lenskum sérfræðingum, vís-
indamönnum, embættismönnum og
fulltrúum hagsmunaaðila.
Mikið verndargildi veranna
Niðurstöður úr skýrslum þeirra
Ives og Crofts voru kynntar á fundi
Landverndar í gær. Þær eru:
Að náttúruverndargildi Þjórs-
árvera er afar mikið, jafnt á landsvísu
og alþjóðlega. Líta ber sérstaklega til
landslagsins sem umlykur svæðið.
Núverandi mörk friðlandsins í
Þjórsárverum eru algjörlega ófull-
nægjandi og endurspegla ekki þau
verðmæti sem er að finna á svæðinu.
Sérfræðingarnir leggja áherslu á
mikilvægi Hofsjökuls fyrir svæðið og
telja að hann eigi að njóta friðunar.
Einnig þurfi að friða gljúfrin með
fossunum í Þjórsá að Sultartangalóni.
Mannvirki þau sem eru áformuð
undir Hofsjökli, einkum stíflur skurð-
ir og veitur (sem áður gengu undir
heitinu Kvíslaveita 6), hafi afar nei-
kvæð áhrif á náttúru og landslag.
Þjórsárver geta komið til greina á
heimsminjaskrá UNESCO, verði
svæðinu ekki raskað frekar og verði
verndarsvæðið stækkað. Stjórn
Landverndar tekur undir sjónarmið
þeirra Crofts og Ives, að því er fram
kemur í tilkynningu frá samtökunum.
Telur stjórnin mikilvægt að viðkom-
andi sveitarstjórnir, umhverfis-
ráðherra, Umhverfisstofnun, um-
hverfisnefnd Alþingis og Lands-
virkjun taki málið til skoðunar í ljósi
greinargerðanna sem nú liggja fyrir.
Þá telur stjórn Landverndar að mat
þeirra Crofts og Ives sé staðfesting á
mati faghóps I, sem fram kemur í
skýrslu um 1. áfanga Rammaáætlunar
um nýtingu vatnsafls og jarðhita. Þar
lenda samvegin verðmæti náttúru og
minja Þjórsárvera í efsta sæti í sam-
anburðarmati á 41 svæði á Íslandi.
Stjórn Landverndar lítur svo á að
það sé eitt brýnasta verkefnið í nátt-
úruvernd á Íslandi í dag að stækka
verndarsvæði Þjórsárvera svo að það
falli að náttúrulegum mörkum ver-
anna. Eins telur stjórnin mikilvægt að
litið sé til hugmynda þeirra Crofts og
Ives um vernd fjalla og jökla sem
mynda umgjörð svæðisins, það er
Kerlingafjalla í vestri og Hofsjökuls í
norðri. Stjórn Landverndar telur
ástæðu til að teknar séu upp við-
ræður við skrifstofu heimsminjaskrár
UNESCO til að kanna hvort Þjórs-
árver eigi þar heima. Þá telur stjórn
Landverndar að leggja beri til hliðar
öll áform um frekari virkjanafram-
kvæmdir á þessu svæði meðan athug-
unin er gerð. Stjórnin bendir á að
engin brýn þörf sé fyrir orkuna og
reynslan sýni að mæta megi hugs-
anlegri eftirspurn eftir raforku með
öðrum kostum.
Tryggvi Felixson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, benti á að mörk
friðlandsins í Þjórsárverum væru illa
merkt eða alls ekki. Þá væri um-
gengni í næsta nágrennis svæðisins
ekki nógu góð, augljós merki um ut-
anvegaakstur væru dæmi um það. Þá
sagði Tryggvi að Landvernd telji
mjög mikilvægt að fyrirhugaðar
framkvæmdir við lón og veitumann-
virki undir Hofsjökli fari í lögform-
legt umhverfismat. Þar eð kveðinn
hefði verið upp úrskurður ráðherra
um framkvæmdirnar þurfi ef til vill
að fara fyrir dómstóla til að knýja á
um umhverfismat.Ólöf Guðný for-
maður sagði að málið hafi verið kynnt
nýjum umhverfisráðherra. „Við verð-
um að spyrja okkur að því hvort við
erum reiðubúin að fórna landi, sem
hefur svo hátt verndargildi á al-
þjóðavísu, þegar aðrir virkjanakostir
eru í boði,“ sagði Ólöf Guðný.
Náttúruskóli í Reykjavík
Bæta þarf aðstöðu reykvískra
barna til að fræðast um umhverfi sitt
og náttúru, að mati Landverndar.
Samtökin hafa leitað eftir samstarfi
við fræðsluyfirvöld Reykjavíkur og
Skógræktarfélag Reykjavíkur um
stofnun Náttúruskóla Reykjavíkur.
Sigrún Helgadóttir, líffræðingur
og verkefnisstjóri Grænfána-
verkefnis Landverndar, og Hjördís
B. Ásgeirsdóttir, staðarhaldari í Al-
viðru, sögðu frá fræðslustarfi Land-
verndar fyrir skólabörn. Meira en tíu
þúsund skólabörn hafa notið um-
hverfisfræðslu í Alviðru frá 1993 og
koma þangað um tvö þúsund börn á
ári. Nú er hugmyndin að opna nátt-
úruskóla sem hafi aðstöðu innan
borgarmarka Reykjavíkur. Vonast er
til að hann taki til starfa á 36. starfs-
ári Landverndar.
Að sögn Sigrúnar hefur dregið
mjög úr leikjum barna utandyra og
sitja þau þess í stað við tölvur og sjón-
varp daga langa. Í náttúruskóla fái
þau að kynnast nánasta umhverfi
sínu og náttúru af eigin raun.
Landvernd vill stofna náttúruskóla og stækka friðland Þjórsárvera
Þjórsárver fari á skrá UNESCO
Morgunblaðið/RAX
Samkvæmt skýrslum Ives og Crofts er náttúruverndargildi Þjórsárvera afar mikið.
SIF Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri hjá óbyggða-
nefnd, segir það alveg tvímælalaust að staða
óbyggðanefndar hafi styrkst í kjölfar þjóðlendu-
dómanna sem kveðnir voru upp í síðustu viku.
Þetta kom fram á málfundi sem Orator, félag
laganema við Háskóla Íslands, hélt í gær. Á mál-
fundinum var rætt um þjóðlendudómana svoköll-
uðu og auk Sifjar fluttu erindi hæstaréttarlög-
mennirnir Ólafur Björnsson, sem flutti málið
fyrir hönd landeigenda, og Ólafur Sigurgeirsson,
sem flutti málið fyrir hönd ríkisins.
„Niðurstöður Hæstaréttar eru þær sömu og
óbyggðanefndar í nánast öllum atriðum en það er
náttúrulega einhver blæbrigðamunur á rökstuðn-
ingi óbyggðanefndar og Hæstaréttar fyrir þess-
um niðurstöðum,“ segir Sif og bætir því við að
það sé óbyggðanefndar að leggja mat á það og
skoða framhaldið út frá því. Hún segir það hins
vegar alveg ljóst að meginniðurstöður óbyggða-
nefndar, þau atriði sem nefndin hafi lagt til
grundvallar, haldi.
„Þar að auki tekur Hæstiréttur mjög skýra af-
stöðu til þeirra atriða sem menn hafa haldið fram
að væri áfátt við þjóðlendulögin og málsmeðferð
óbyggðanefndar. Afstaða Hæstaréttar er sú að
það sé ekki ástæða til að gera athugasemdir við
málsmeðferð óbyggðanefndar,“ sagði Sif.
Ólafur Björnsson sagði það sigur fyrir landeig-
endur að fá viðurkennt að svo stórar jarðir, sem
nái inn á hálendi Íslands, hafi verið viðurkenndar
sem eignarland. „Ríkið hafði haldið því fram að
slíkt væri ómögulegt. Að það væri ómögulegt að
nema slíkt land, slík há fjöll hefðu aldrei verið
numin og annað þess háttar. Það er auðvitað ekki
fallist á að þetta sé svona heldur verða menn auð-
vitað að leggja fram gögn fyrir eignartilfellum
sínum. Í þessu tilfelli tókst landeigendum þessi
sönnun,“ segir Ólafur og bætir því við að skýrsla
sérfræðinga óbyggðanefndar hafi legið fyrir en
þeir mátu sem svo að umdeilt land, sem hafi verið
í um 700 metra hæð, hafi verið að langstærstum
hluta algróið um landnám. „Það skiptir máli.
Þannig að það er sigur fyrir okkur. Kröfugerð
ríkisins gekk út á það að hirða allt að 80% af
landi jarðanna undir þjóðlendur,“ segir Ólafur.
Hann segir að í ljósi þeirra gagna sem hafi ver-
ið lögð fram, en hann vísaði meðal annars til
dóma Mannréttindadómstóls Evrópu, þá hafi vaf-
inn um það hvort landið hafi verið numið og
hversu gróið það hafi verið verið metinn sínum
skjólstæðingum í vil. „Þar með höfðum við orðið
réttmæta væntingu og sterkari um eignarhald
heldur en ríkið. Vafinn var okkur í hag, það er
stóra málið í þessu. Það fordæmisgildandi fyrir
önnur mál að þegar við förum að fjalla um það
með sama hætti þá ber að meta vafann um þetta
landeigandanum í vil í ljósi þeirra gagna sem
menn hafa lagt fram.“
Málinu ekki lokað nægjanlega
Ólafur Sigurgeirsson sagði að það væri ekki
hægt að vinna þjóðlendumál og þar með hafi rík-
ið ekki tapað málinu í sjálfu sér enda hafi það
ekkert verið að takast á við bændur sérstaklega.
Aðalatriðið hafi verið að fá úr því skorið að skil-
greina lögfræðilega hvað þjóðin eigi af landinu og
hvað einkaaðilar eigi. Þar hafi óbyggðanefnd
komið til sögunnar til að leysa það verk af hendi
sem úrskurðaraðili. „Þessi hæstaréttardómur var
ekki til þess að slást um land. Fjármálaráðherra
er ekki að reyna að seilast inn í nein lönd. Hann
er bara með þetta hlutverk samkvæmt lögum að
fara með fyrirsvar fyrir þetta land þjóðarinnar
og þessa vinnu sem þarf að vinna til að koma á
hreint hvar þessi mörk eru, því það á að búa við
þessi mörk um ókomin ár á Íslandi,“ segir Ólafur.
Hann segir það hafa verið talin ástæða fyrir því
að skjóta úrskurði óbyggðanefndar og niðurstöðu
héraðsdóms til hæstaréttar um lögfræðileg atriði
sem gott væri að fá línur í til þess að byggja á við
framtíðarmeðferð þjóðlendumála. „Það er alveg
ljóst að það er ekkert af lögfræðilegu sjónarmið-
um ríkisins rekið ofan í ríkið þannig lagað, að rík-
ið hafi farið með rangt mál og túlkað lögfræðina
á rangan veg. Hinsvegar er málið kannski opnara
en við áttum von á. Við áttum von á að hæstirétt-
ur lokaði lögfræðilegum deilumálum í meira mæli
en orðið var við,“ segir Ólafur Sigurgeirsson.
Málfundur á vegum Orators um dóm hæstaréttar í þjóðlendumálinu
Staða nefndarinnar sterk
Morgunblaðið/Kristinn
Talið ofan frá: Róbert R. Spanó, dósent við laga-
deild HÍ og fundarstjóri, Sif Guðjónsdóttir, skrif-
stofustjóri óbyggðanefndar, Ólafur Sigurgeirs-
son hæstaréttarlögmaður og Ólafur Björnsson
hæstaréttarlögmaður.
Niðurstaða hæsta-
réttar nánast sú sama
og óbyggðanefndarMAÐUR sem óttaðist um líf sitt ogheilsu þegar honum var ógnað af öðr-
um manni við verslunarmiðstöð í
Reykjavík í fyrrasumar var, að mati
héraðsdómara, heimilt að beita tals-
verðu valdi til að afstýra árás sem
hann taldi yfirvofandi. Samkvæmt
dómnum gekk hann ekki of langt þeg-
ar hann sló manninn ítrekað með
þeim afleiðingum að hann nef- og
kinnbeinsbrotnaði, marðist í andliti.
Lögreglustjórinn ákærði manninn
fyrir líkamsárás en hann var sýknað-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Ákærði í málinu hélt því fram að
maðurinn hafi byrjað á því að sparka í
hurð á bíl sínum. Á leiðinni inn í versl-
unarmiðstöðin hafi hann hótað honum
lífláti, tjáð honum að hann vissi hvar
hann ætti heima, hvar börnin hans
gengju í skóla og hótað því að skera
þau á háls. Hann hafi að endingu farið
úr jakkanum og tekið upp hníf, sem
var lokaður, og otað honum að hon-
um. Kvaðst hann hafa talið sig í lífs-
hættu og því ákveðið að slá manninn í
sjálfsvörn. Þrjú vitni tóku í meginat-
riðum undir þessa lýsingu. Eitt þeirra
kvaðst hafa tekið eftir því að maður-
inn hafi í sífellu otað fingri upp að
andliti þess ákærða og, þrátt fyrir
talsverðan stærðarmun honum í
óhag, „argað og gargað“ að honum.
Sá sem varð fyrir höggunum lýsti
atburðum á allt annan veg og sagði að
maðurinn hafi tilefnislaust ráðist á
sig. Dómarinn taldi hann hins vegar
ótraust vitni og framburð hans ýkju-
kenndan og losaralegan.
Sýknaður af ákæru um
nef- og kinnbeinsbrot
Valdbeit-
ingin ekki
óhófleg