Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 16

Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 16
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Veröldin hefur sinn gang, takturinn svip- aður frá ári til árs þótt ætíð sé einhver blæ- brigðamunur. Vetur er genginn í garð sam- kvæmt dagatalinu og vart er hægt að neita því að árstíð þessi minnir svolítið á sig. Það sem setur svip sinn á haustið í Húnaþingi og bæjarbraginn á Blönduósi er sauð- fjársláturtíðin. Á þessum tíma fjölgar fólki nokkuð í bænum og um það bil tveir þriðju hlutar starfsmanna Sölufélags A-Húnvetn- inga (SAH) eru komnir yfir hafið til að vinna að þessu tveggja mánaða átaksverk- efni. Flest er þetta fólk frá Svíþjóð og Pól- landi og það skemmtilega við þetta allt saman er að ekki þarf lengur að auglýsa eftir þessu erlenda starfsfólki því ýmist er þetta fólk sem hefur starfað áður hjá SAH eða vinir og kunningjar þeirra.. Gert er ráð fyrir því að slátra um 77 þúsund kindum á þessu hausti, uþb10–12 þús. fleiri kindur en í fyrra og lætur nærri að nú sé slátrað svip- uðum fjölda fjár og þegar flest var á ár- unum á milli 1970 og 1980.    Byrjað er að þvo ull á Blönduósi á einni vakt í nýrri ullarþvottastöð þótt ekki sé formlega búið að taka hana í notkun. Eftir er að ganga frá örfáum lausum endum áður en hún verður formlega tekin í notkun en ekki er langt í það að sögn forsvarmanna Ámundakinnar ehf. sem á og rekur hús- næðið sem stöðin er í. Gert er ráð fyrir að þegar rekstur er kominn í fullan gang verði vaktirnar þrjár og tíu ársverk skapist og munar um minna. Þá hefur Mjólkursamlag Húnvetninga fengið ESB-leyfi en með því telja menn að fyrirtækið hafi tryggt rekstr- argrundvöll sinn til mikilla muna. Þetta tryggir ekki einungis það að fyrirtækið get- ur flutt út framleiðslu sína til Evrópu held- ur getur Mjólkursamlagið selt innlendum fyrirtækjum sem hafa útflutningsleyfi stolt sitt, þurrmjólkurduftið.    Eins og margir muna varð stórbruni á Blönduósi í lok september þegar stórt iðn- aðarhúsnaði brann og margir urðu fyrir veraldlegu og kannski ekki síður tíma- bundnu sálartjóni. Nú er um mánuður lið- inn og er ekki annað að heyra en að þetta sé nýtt tækifæri frekar en endalok. Svona er blessaður Blönduósbær í byrjun vetrar. Úr bæjarlífinu BLÖNDUÓS EFTIR JÓN SIGURÐSSON FRÉTTARITARA Námskeiðið Öflugtsjálfstraustverður haldið hjá Símenntun Háskól- ans á Akureyri dagana 5. og 6. nóvember næst- komandi. Á námskeiðinu verður áhersla lögð á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja það upp og efla. Sjálfstraust er und- irstaða margra færn- isþátta, svo sem því hvernig okkur vegnar í samskiptum við aðra, hvernig við setjum markmið, tökum ákvarðanir og vinnum undir álagi segir í til- kynningu um nám- skeiðið. Kennarar eru Jóhann Ingi Gunnarsson og/eða Sæmundur Hafsteinsson sálfræðingar. Skráning á nám- skeiðið fer fram hjá Sí- menntun Háskólans á Akureyri. Sjálfstraust MenningarvikanBjart er yfirRaufarhöfn hófst í fyrradag. Hátíðin var sett við messu í Rauf- arhafnarkirkju og var ritningarlestur á pólsku, spænsku og íslensku í til- efni af þjóðadeginum sem var fyrsta atriði menning- arvikunnar. Í félagsheimilinu Hnit- björgum tóku á móti gest- um nýbúar úr Öxarfirði og frá Raufarhöfn. Kynntu þeir löndin sín og buðu gestum að smakka mat frá heimahögum sín- um. Meðal þeirra sem tóku á móti gestum voru konur frá Tælandi, klæddar á viðeigandi hátt. Opnuð var sýning hannyrða, myndlistar og ljósmynda í Hnitbjörgum. Í tilefni af menningarvik- unni er höfnin lýst upp og þar logar á bjartsýnis- kyndlum. Morgunblaðið/Erlingur Thoroddsen Bjart yfir Raufarhöfn Í Skímu, málgagnimóðurmálskennara,rifjar Ragnar Ingi Aðalsteinsson upp vísur úr helgarþáttum sem birtust í DV á árunum 2001 til 2003. Þar er limra sem Rögnvaldur Rögnvaldsson orti um ónefnda konu: Hún var háleitust hvar sem hún stóð og háfættust þegar hún óð elginn um bæinn samt endaði hún daginn á endanum lárétt og hljóð. Einnig limra eftir Pál Ás- geir Ásgeirsson um fal- lega stúlku vestan úr Döl- um sem hét Hallgerður: Af elskhugum átti hún gnótt allir þó dæju þeir skjótt. Á fimmtánda ári hún flæktist í hári og lagðist í langbrókarsótt. Loks limra sem Hákon Aðalsteinsson orti þegar Bandaríkjamenn voru að reyna að finna út hvor væri forseti, Gore eða Bush: Ekki skal almúgann kvelja þeir ættu að hætta að telja. Hollast mun vera að hátta þá bera og láta svo Lewinski velja. Af Hallgerði pebl@mbl.is NEMENDUR í grunnskólum landsins hafa haft frekar lítið fyrir stafni í verkfalli kennara undanfarnar vikur. Hann Gest- ur Kristján var þó að aðstoða föður sinn Jón Gestsson við vinnu sína í Fiskihöfninni á Ak- ureyri í gær. Jón er með fyrir- tækið JL-suðuplast á Hauga- nesi og þeir feðgar voru að plötusjóða plaströr í nýjar þorskkvíar fyrir Brim hf. „Það er ágætt að nota tímann til að kenna stráknum, svo hann geti þá tekið við í framtíðinni,“ sagði Jón og ekki var annað að sjá en Gestur væri bara nokkuð efni- legur. Morgunblaðið/Kristján Hjálpar pabba í vinnunni Feðgar FJÖLDI gistinátta á norðanverðum Vest- fjörðum á síðasta ári voru um 145 þúsund, 27 þúsund Íslendingar gistu á þessum slóð- um í alls um 120 þúsund nætur og 11 þúsund erlendir ferðamenn í um 25 þúsund nætur. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu um ferðamenn á svæðinu sem unnin var af fyr- irtækinu Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjón- ustunnar (RFF) og sagt er frá á vef Bæj- arins besta. „Athygli vekur að í skýrslu Hagstofunnar um gistinætur 2003 er áætlað að á öllum Vestfjörðum séu gistinætur um 67 þúsund. Samkvæmt rannsóknum eru gistinætur á Vestfjörðum hins vegar nærri því að vera um 250 þúsund. Tölur hagstof- unnar segja því ekki til um nema 20–25% af gistingu Íslendinga og um helming af gisti- nóttum erlendra ferðamanna í landshlutan- um ef miðað er við niðurstöður kannana meðal ferðamanna,“ segir á vefnum. Haft er eftir Rögnvaldi Guðmundssyni hjá RFF að skýringin liggi m.a. í því að Ís- lendingar skrá ekki gistingu hjá vinum, á víðavangi;, í tjöldum, fellihýsum, húsbýlum, eigin sumarhúsum eða leigðum. Hann segir þetta benda til að skil á gisti- náttum séu ekki fullnægjandi. Mikill munur á gistitölum Hagstofunnar og á rannsókn- arniðurstöðum eigi við um landið allt, ekki eingöngu Vestfirði. 145 þúsund gistinætur á norðanverðum Vestfjörðum „SVEITARSTJÓRN Þingeyjarsveitar telur verkfall grunnskólakennara óásættanlegt og jafnframt að það verk- lag sem notað er við samningaviðræður virðist augljóslega ekki til þess fallið að skila niðurstöðu,“ segir í bókun sem samþykkt var á fundi nýlega. „Verkfall í fimm vikur hefur staðið fimm vikum of lengi,“ segir ennfremur. Því beinir sveit- arstjórn þeirri ósk til deilenda að ljúka nú þegar samningi sem gildi a.m.k. til 1. ágúst nk. og að um leið verði hafin vinna við heildarendurskoðun á kjaraumhverfi grunnskólakennara til að fyrirbyggja að það ástand, sem nú hefur skapast, end- urtaki sig. Samningur til 1. ágúst ♦♦♦ Soffía Theodórsdóttir löggiltur fasteignasali Breiðumörk 19, Hveragerði, www.byr.is sími 568 9800 HVERAGERÐI Stórglæsileg bjálkaeinbýlishús á góðum stað í Hveragerði. Skilast tilbúin að utan með fínjafnaðri lóð. Að innan eru eignirnar fullmálaðar með innihurðum, tilbúnar til innréttinga. Verð kr. 27,9 millj. Nánari upplýsingar á skrifstofu Byr fasteignasölu. Hraunbær 22Hraunbær 24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.