Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 19

Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 19 MINNSTAÐUR AUSTURLAND Djúpivogur | Austan við Djúpavog, í landi Teigarhorns, er nú að rísa sexhundruð fermetra byggða- línustöð. Það er Austverk ehf. sem sér um að byggja stöðina fyrir Rarik en fyrirtækið er í eigu Egils Egilssonar og Snjólfs Gunnarsson- ar. Þrettán manns hafa unnið hörðum höndum við framkvæmd- irnar síðan í júní og hefur verkið gengið vel að sögn Snjólfs Gunn- narssonar, framkvæmdastjóra Austverks. Áætluð verklok eru í byrjun desember. Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Við rætur Búlandstinds Verið er að reisa nýja byggðalínustöð við Djúpavog. Austurverk reisir byggðalínustöð LANDIÐ Laugarvatn | Áætlaður er að kostnaður við uppbyggingu 1200 fermetra heilsulindar á bökkum Laugarvatns kosti yfir 300 millj- ónir kr. Bláa lónið kemur að fag- legri uppbyggingu og rekstri heilsulindarinnar. Búist er við að gestum svæðisins fjölgi mjög, að þeir verði um 90 þúsund á ári þegar allt verður tilbúið en nú koma um 25 þúsund gestir í gufu- baðið og sundlaugina á Laug- arvatni. Hollvinasamtök gufubaðs og smíðahúss á Laugarvatni kynntu áform sín á fundi í sal Mennta- skólans á Laugarvatni síðastlið- inn laugardag. Þar kom fram að í heilsulindinni verða gufuböð, yl- strönd, heitir pottar, buslpottar og sundlaug, auk aðstöðu fyrir nudd og slökun. Jafnframt kom fram að unnið er að miklum breytingum á deili- skipulagi byggðarinnar á Laug- arvatni til að tryggja umferð- aröryggi og flæði umferðar að íþróttasvæðum og um íbúð- arbyggðina. Er í þessu sambandi verið að skipuleggja allan vatns- bakkann með hverunum þremur og norður fyrir Vígðulaug í einni heild með samspil náttúru, forn- minja og sögu staðarins í huga. Hollvinasamtökin hafa gert leigusamning við mennta- málaráðherra um afnot af land- inu til 30 ára. Þórtak ehf. mun reisa bygginguna og sjá um fjár- mögnun hennar. Stórhuga menn Á fundinum lýsti mennta- málaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, því yfir að hér væri um að ræða „stórhuga menn með alvöruhugmyndir sem styrkja myndu ferðaþjónustuna á svæðinu í heild“. Hún sagði mik- ilvægt að ýta undir framtakssemi sem þessa og ekki mætti láta gamla og úrelta eignaskiptingu hamla vexti staðarins. Í því sam- bandi nefndi hún hitaréttindi sveitarfélagsins og landskiptingu á Laugarvatni. Ólafur Proppe, rektor KHÍ, rakti aðkomu skólans að upp- byggingu á Laugarvatni eftir að Íþróttakennaraskóli Íslands sam- einaðist KHÍ 1998. Lýsti hann fullum stuðningi skólans við þess- ar skipulagsbreytingar og upp- byggingaráform. Hann sagði einnig frá því að námsbrautin á Laugarvatni væri stöðugt að taka meira mið af heilsurækt fólks á öllum aldri auk íþróttakennslu í skólum. Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra ávarpaði fundinn og gladdist yfir því að nú hillti undir að Laugarvatn losnaði und- an fjötrum ríkisins. „Þetta er eins og í ævintýri þar sem prinsessan fallega kemur og heggur á rembihnútinn og álögin losna.“ Grímur Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri Bláa lónsins, lýsti því að í þeirra huga væri allt til staðar á Laugarvatni sem til þyrfti til að reisa góða heilsulind. Markmiðið væri að markaðssetja Ísland sem heilsuland. Tólf hundruð fermetra heilsulind rís við Laugarvatn Búist við 90 þúsund gestum á ári Morgunblaðið/Kári Jónsson Kynningarfundur um fyrirhugaða stækkun gufubaðs á Laugarvatni var haldinn á laugardaginn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra voru meðal gesta á fundinum. NÚ ERU fjórir til fimm mán- uðir framundan af steypuvinnu við Kárahnjúkastíflu, ef veður og óvæntir atburðir hamla ekki verkinu. Richard Greyham, tæknileg- ur forstjóri Impregilo við Kára- hnjúkavirkjun, segir að unnið sé hörðum höndum við gerð tá- veggjar stíflunnar, en hann er sá hluti hennar sem stöðvar vatnið í Hálslóni. „Veggurinn er gerð- ur úr þremur stórum steypu- stykkjum“ segir Greyham. „Eitt þeirra er þegar risið við vestur- hlið stíflunnar. Veggurinn verð- ur í heild u.þ.b. 49 þúsund rúm- metrar af steypu.“ Greyham lýsir Kárahnjúka- stíflu sem einni stórri grjót- hrúgu sem hlaðin sé upp á ákveðinn hátt. „Vatnsþéttingin er lónmegin og neðst gífurlega stór steyptur klumpur sem kall- ast táveggur. Síðan tekur við steypt kápa framan á stíflunni, eitthvað um 70-80 cm þykk neðst og 30 cm þykk efst. Þetta er járnbent steypa sem verður dregin á stífluna með skriðmót- um, á u.þ.b. 15 m breiðum flek- um. Vandasamasta verkefnið við byggingu stíflunnar er teng- ing vatnskápunnar á gljúfur- veggi og -botn. Vatnsþrýsting- urinn frá lóninu verður gífurlegur og því er áríðandi að þessi tenging takist fullkom- lega, ekki síst neðan til, þar sem þrýstingurinn verður mestur. Stíflan er hönnuð með það í huga að beina vatnsþrýstingn- um að bergveggjunum sín hvor- um megin stíflunnar sjálfrar.“ Stíflan verður 490 m á hæð og er reiknað með að hún verði tilbúin skömmu fyrir áramót 2006–7. Steypt með- an gefur Ufsarveita | Arnarfell hefur hafið undirbúning fyrir byggingu inntaks og 3 km aðrennslisganga frá Ufs- arlóni, þar sem Jökulsá á Fljótsdal er stífluð austan undan Snæfelli. Arnarfellsmenn hafa nú flutt búðir sínar frá Kárahnjúkum og inn að Hafursárufs og munu ætla að reyna að komast inn í fjallið fyrir veturinn. Um 100 manns eru við störf í búð- unum. Arnarfell annaðist gerð hjá- veituganga, hreinsun undir stæði Kárahnjúkastíflu, gröft fyrir inntak aðalganga, efnisvinnslu, steypu- framleiðslu og umtalsverða vega- gerð á meginvirkjunarsvæðinu við Kárahnjúka. Jökulsá á Fljótsdal verður stífluð norðan votlendisins á Eyjabökkum og austur af Hafursárufs, um 2 kíló- metrum neðan Eyjabakkafoss, og þar myndast Ufsarlón, um 1 ferkíló- metri að flatarmáli. Þremur þverám á Múla og Hraunum austan Jökulsár á Fljótsdal verður veitt í Ufsarlón, þ.e. Kelduá, Grjótá, Innri-Sauðá, ásamt útrennsli úr Sauðárvatni. Á virkjunarsvæðinu eru nú sjö vinnubúðir vítt og breitt. Aðrennsl- isgöng eru byggð á þremur stöðum og búðir þar, stórar búðir eru vegna stöðvarhússbyggingar í Fljótsdal, Arnarfell með búðir fyrir austan Snæfell, búðir Impregilo við Kára- hnjúka norðan Jökulsár og Suð- urverk er með stórar vinnubúðir austan ár við Desjarárstíflu. Um 1.400 manns eru að störfum við virkjunina eins og er. Húsavík | Það var mikil sönggleði á veitingahúsinu Sölku síðastliðið fimmtudagskvöld þegar þar var haldin söngkeppni starfsbrauta framhaldsskólanna. Fullt var út að dyrum þegar keppnin fór fram. Hefð er fyrir því að keppnin er haldin á vegum þess skóla sem vann hana ár- ið áður og það gerði einmitt starfs- braut Framhaldsskólans á Húsavík í fyrra. Að þessu sinni mættu keppendur frá sex skólum, Verkmenntaskólan- um á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, Menntaskólanum í Kópavogi, Fjöl- brautaskóla Suðurnesja í Keflavík, Borgarholtsskóla í Reykjavík ásamt gestgjöfunum í Framhaldsskólanum á Húsavík. Eftir að keppendur höfðu lokið flutningi sínum var ljóst að dóm- nefnd var vandi á höndum og tók það hana drjúga stund að komast að nið- urstöðu. Menntaskólinn í Kópavogi stóð uppi sem sigurvegari. Í öðru sæti var Borgarholtsskóli og það þriðja hreppti Fjölbrautaskóli Suð- urnesja. Það var fjölmennt stúlkna- band sem keppti fyrir Menntaskól- ann í Kópavogi. Þær heita Rakel Anna Róbertsdóttir, Ramóna Lísa Valgeirsdóttir, Heiða Skúladóttir, Ása Rakel Ólafsdóttir, Aðalbjörg Þóra Hjartardóttir, Katrín Helga Guðjónsdóttir, Sigríður Ósk Ingv- arsdóttir, Astrid Rún Guðjónsdóttir og Gígja Garðarsdóttir. MK sigraði í söngkeppni Morgunblaðið/Hafþór Söngvakeppni MK-stúlkur sungu lagið Frægð úr samnefndum söngleik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.