Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Page 5

Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Page 5
geta séð skipið, en fara skaltu sem hljóðlegast, svo að þeir verði þín ekki varir. Er ekki þitt meðfæri að eiga við þá, en hitta skalt þú Hálfdán prest og biðja hann fulltingis, því að svo er hann fjölkunnugur, að það er á hans eins færi að eiga við þá.” Síðan hvarf mað- urinn inn í fellið. Næstu nótt fór bóndi á kænu sinni, hann geymdi hana í Gjávík, inn með Löngufjöru, og utan að Raufarbergi, og fór að öllu sem hljóðlegast. Náði hann í raufina og sér þá, að þar liggur við bergið skip citt mikið; verður hann þess var, að þar eru tveir menn á verði, en ekki verða þeir lians varir. Hverfur liann síðan heim aftur. Daginn eftir fer hann á fund prests og segir honum, hvers hann hafi orðið vísari; biður hahn prest að leggja til sitt fulltingi, að ránsflokkur þessi verði af dögum ráðinn. Prestur kvaðst þegar hafa fengið grun um, hvemig standa mundi á hvörfum þeim, er þar hefðu orðið í svcitinni, ÞEGAR Hálídán prestur Narfason var prestur í Felli í Sléttuhlíð (t 1568), bjó bóndi sá, er Jón hét, á Fjalli; sá bær stendur vestan undir felli því, er prestsetrið er kennt við. Jón þessi var auðugur að grip- um og gangandi fé; þar á meðal átti hann graðung og uxa; voru þeir báðir gamlir og feitir og metfé. Eitt sumar bar svo við, að þá vantaði báða, og fundust hvergi, þótt leitað væri. Höfðu nautin gengið þá um daginn, er þau vantaði, niðri á Gjávíkurbökkurh, en þaðan sést glöggt frá bænum. Um sömu mundir var stúlka frá Klappastöðum, næsta bæ, á. gangi utarlega á Hrolleifs- liöfða, og sá þar mann, sem hún þekkti ekki; var hann ó- vanalega búinn. Maður þessi véitti henhi eftirför, en hún flýði upp Gjávíkurflóa, náði þar í röskan hest, og dró því undan, en engir aðrir urðu hans aðrir varir. Þetta þótti undarlegt. Jón bóndi undi illa nautahvarfinu, og þótti það skaði mikill. Einhverju sinni dreymir hann, að hann þykist úti staddur; sér hann þá fellið opn- ast, og kemur út maður mikill vexti, gengur í leið fyrir hann og segir við hann: „Þú unir illa tjóni þínu, og er þér vor- kunn; lengi hefi ég haft gætur á fénaði þínum, en nú get ég ekki við ráðið, því að þar eiga þeir hciðingjar hlut að máli, er svo cru göldróttir, að ég fæ ei við ráðið. Liggja þeir í skútu sinni inni á Selvík, sunn- an við Raufarberg. Hafa þeir vafpað huliðsblæju yfir skip sitt, svo að þeir sjást ekki. En ef þú ferö hljóðlega utan að berginu á kænu þinni, og kemst inn í raufina, muntu og mundu illræðismenn þessir vera búnir að gera meira tjón, en menn vissu almennt um. — Reyndar liafa þeir ekkert frá mér tekið, og óvíst að þehn tækist það, en full nauðsyn bæri til að stemmá stigu fyrir ránskap þeirra, enda mundu þeir ekki hlífast við að drepa menn, ef þeir kæmust í færi við þá; „mun ég gera hvað ég get til þess að ráða þá af dög- um,” sagði prestur, „en eigi er dælt við þá að eiga.” Nú eru það mín ráð, að all- ir sveitarmenn komi sér upp vopnum, hið fyrsta og þeim cr auðið, svo að allir vopnfær- ir menn í sveitinni hafi vopn nokkurt. Mun ég síðan gera boð um sveitina, þegar ég hygg færi á þeim.” Líða svo nokkr- ir dagar, þar Ul prestur heimt- ar saman alla fulltíða menn f Sléttuhlíð, og mælir svo fyrir, að þeir skuli saman komnir árdegis næsta dag i flóa þeim, er liggur vestan við Klappa- staðavatn. Sveitamenn brugðu skjótt við og eru þar komnir á tilsett- um tírna. Sjá þeir þá, að þar eru fyrir um 30 manna; fara þeir mjög rasandi, og hrökkl- ast aftur og fram um flóann sem blindir væru, nema tveir, sem reyndu að halda hópnum saman. Frh. á bls. 135.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.