Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Qupperneq 7

Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Qupperneq 7
GUJA VERZLUNARMÆR. Tízkan er það vald, sem flest verður að lúta á sérhvern hátt, jafnvel voldugustu menn veraldar- innar, enda þótt sagt sé; að eitt og annað af tízkunnar fyrirbærum sé harla lítils virði og geri fegurð- arsmekkinn næsta einkennilegan með köflum. Það er ekki efamál, að á öllum timum hafa manneskjurnar fórn- að miklu af kröftum sinum og f jármunum til þess að geta toJlað í tízkunni, eins og komizt er að orði, og líklega eru dæmi þcss fleiri en margan grunar, að menn hafi, bæði beint og óbeint lagt sjálfsvirðingu sína og æru i hættu, til þess að geta farið eftir boðorð- ur þessarar voldugu mannheims drottningar. Kvenþjóðin hefur löngum þótt liðtæk í ríkj tízk- unnar og líklega ekki að ástæðu- lausu. Þó oít hafi skort fjármuni til þess að fylgja tízkunni, hefur aldrei þorrið hrifningin af ágæti liennar né löngunin til þess að ganga lienni á hönd^ gera sem aðr ir gerðu, vera ckki annarra eftir- bátur, og helzt að skara ft'am úr. værj þess nokkur kostur. Hefur þá kunnað svo að fara, að .ivötin til þess að svala þetrri ástríðu hafi verið látin sitja í fyrirrúmi fyrir hugsun um efnahag og aðrar ytri kringumstæður. Og hvcrjum skyldi vera það láandi þó hann vilji láta á sér bera, t d. ungu kon- unni, þótt hún óski þess, að auka yndisþokka sinn með nýtízku klæðnaðj og skartgripum: Þó henni sé það áhugamál, að standa kynsystrunum jafnfætis í þeim efnum, vekja þannig athygli til jafns við þær og njóta ávaxtanna af því? Ung stúlka i afskekktri byggð hefur orðið að búa þar öll sín uppvaxtar- og þroskaár við lítil efni og fá lífsþægindi — öllu held- ur cngin lifsþægindi á nútiðar- mælikvarða — en mikið annríki og erfiði. Hún hefur orðið að sjá á bak cldri systur fíinni alfarinui til liöfuðstaðarins, þar sem hún settist í húsfreyjusæti við efnahag og aðstöðu borgarans, sem taldist sjálfum sér nógur. Unga stúlkan varð að búa áfram við sinn deilda vefö og dauflega upihverfi eu hug ann því fyllri af framtíðardraum- um og fjarlægri angan af irjáls- ræði og möguleikum borgarbúans til lífsþæginda, góðra klæða sam- kvæmt (tízkunnar farskriftum, skartgriþa til aukins yndisþokka, og margra góðra kosta, sem því hlaut að fylgja. Anganin af þess um eftirsóknarverðu hlutum barst stúlkunni með ýmsum hætti, en þó einkum í brófum, sem systirin í höfuðstaðnum ritaði vandafólk- inu heima. Vonir manna rætast öðru hvoru og svo fór hér. Unga stúlkan fékk uppfyllta þá ósk sína; að komast til höfuðborgarinnar, og sjá mcð cigin augum margt af þvi, er hinn langþráði staður hafði til síns á- gætis. Og vissulcga var þar margt sem gladdi augað og hugurinn girntist, til aukinnar fegurðar og yndisþokka. En pyngjan liafði ver ið létt, þegar haldið var að beim an og fyrr en varði var hún orðin galtóm, án þess að óskunum væri fullnægt nema að litlu leyti. Sýningargluggar tizkuverzlan- airna í höfuðstaðnum báru það Frh. á bls. 136, ALÞ'ÍBUBIíASIÐ - 6UNRXTOAG£BLíAí>

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.