Sunnudagsblaðið - 16.05.1965, Page 5

Sunnudagsblaðið - 16.05.1965, Page 5
iwhimruhmii m-rmnumhr mmnmrtm rRTMW+iARi’RWRRf’RT mrnmrnm rmwM-|ii\imm i . tthrRRlTHiWWR RmrnrMmii!hRn\T BN'niBRRt'RtMrM RR!\t>wf\ir+rrrt rMim+rritm M+Mt^HTÍWRmh hrirnmrwíAin RHRirHRBirirRMtt Niðvisur Egils skráðar rúnaletri er þar annars ekki getið; aðrir fræðimenn hafa talið átt við Óð- in eða jafnvel Ull. Nú er Óðinn nefndur áður á nafn í vísunni, og Því ólíklegt, að við hann sé átt, þótt á hinn bóginn fari ekki milli mála, að hann hafi verið Agli hjart fólgnastur allra goða. Rökin fyrir því að við Ull sé átt eru ekki sterk, og margt mælir gegn því, að Egill sé með þessum orðum að ákalla Þór. Sé gengið út frá því að átt sé við sömu veru með báð- um heitunum (landás og landálfr) liggur það reyndar í augum uppi, því að það má lieita útilokað að nokkrum heiðnum manni, jafnvel að sér um goðafræði og Egill var, dytti í hug að kalla Þór álf. Þór er liklegast sá guðanna, sem ólíkast Ur var álfum, (en á hinn bóginn virðast þeir hafa verið nátengdir Prey og öðrum frjósemigoðum.) Þá er greinilegt, að Þór stóð ekki naerri hjarta Egils. Hvergi í sam- anlögðum skáldskap , hans er minnzt á Þór, ekki einu sinni not aðar kenningar, sem endurspcgla goðsögur af Þór. Almquist telur, tvímælalaust með réttu, að orðin landás og land- álfur eigi hér við landvættir, eða nánar tiltekið foringja eða fyrir- liða landvættaskarans. Og það má sjá af níðformála sögunnar, að ein- mitt landvættirnir voru ákallaðar og þeim stefnt gegn konungnum. Af öðrum beimildum má einnig ráða, hvc mikla þýðingu landvætt- irnir höfðu fyrir velgengni manna; þeim manni var ekki vært, sem landvættirnar snerust gegn. Af Þessu sama eámir eftir í íslenzkri Þjóðtru síðari alda í þeim reglum, sem menn notuðu við umgengni sína við huldufólk (en það er í mörgu tilliti framhald landvætt- anna fornu.) í GULAÞINGSLÖGUNUM norsku segir; „Engi maður skal gera tunguníð um annan né tréníð.“ Egill Skallagrírosson brýtur báða liði þessarar greinar, þegar hann níðir Eirík konung og Gunnhildi drottningu. Hann reisir níðstöng (tréníð) og yrkir níðvísur um þau hjón (tunguníð). Með því er niðkrafturinn tvöfaldur, enda fór það svo, að níðið hreif: Eiríkur varð að hröklast úr landi við Iít- inn sóma. Bo Almquist telur í riti sínu engan vafa leika á, að umræddar vísur Egils séu réttnefndar níð- vísur, og því verður niðurstaðan sú, að hann hafnar skilgreiningu Noreens, sem vikið var að hér að framan. Hins vegar neitar Alm- quist því ekki, að ásakanir um ergi hafi oft verið þýðingarnjikill þáttur níðsins, jafnvel aðalatriðið, en hann telur ekki að það hafi veriö ómissandi. í staðinn rifjar hann upp skilgreiningu Fritzners gamla, sem margir fræðimenn, þar á meðal Noreén, virðast hafa gleymt, en Fritzer bendir á, að sá sem níddur var hafi þar með oröið hvers manns níðingur. Niðið er fólgið i þvi að bera mönnum á brýn slíkar svfvirður, að ekkj.varð AÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUÐAGSBLAÐ 373

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.