24 stundir - 08.03.2008, Side 11
anir sem leiddu til kostnaðaraukn-
ingar voru teknar án þess að bera
þær undir framkvæmdasvið“.
Annars staðar í sama minnisblaði
segir að „aðkoma sviðsins að
kostnaðargát varð lítil sem engin“.
Því liggur alls ekki fyrir við hvern
Eggert ræddi þegar hann tilkynnti
um aukakostnað og virðist svo vera
sem enginn hafi vitað um þau
aukaverk sem samþykkt var að ráð-
ast í nema verkkaupinn, KSÍ.
Kjörnu fulltrúarnir sem áttu að
sitja í byggingarnefndinni voru
tveir: fyrst Dagur og síðar Björn
Ingi Hrafnsson. Á meðan Dagur sat
í nefndinni fundaði hún tvívegis,
síðast í apríl 2006. Skömmu síðar,
eða í lok maí, urðu valdaskipti í
Reykjavík þegar nýr meirihluti var
myndaður að loknum kosningum.
Dagur hefur sagt að í kjölfarið hafi
hann fundað með Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni, sem þá var orðinn
borgarstjóri, og sagt sig frá flestöll-
um trúnaðarstörfum sem hann
gegndi í umboði borgarstjóra.
Hann lítur því svo á að hann hafi
sagt sig frá setu í byggingarnefnd-
inni í júní 2006. Vilhjálmur virðist
ósammála þessari ályktun Dags því
að í viðtali við 24 stundir í gær sagði
hann Dag gafa látið af störfum í
nefndinni 13. september 2006,
sama dag og Björn Ingi var skipaður
í hana. Því leikur vafi á hvort kjör-
inn fulltrúi hafi setið í nefndinni
sumarið 2006, en á þeim tíma voru
flest hinna fjárfreku aukaverka
framkvæmd.
Á þessu kjörtímabili
Þá er ljóst að öll kostnaðarsöm-
ustu aukaverkin voru framkvæmd
eftir síðasta fund byggingarnefndar
þann 3. apríl 2006, þar sem bókað
var að verkið væri á áætlun, og
meginþorri þeirra á yfirstandandi
kjörtímabili. Björn Ingi sagði í 24
stundum í gær að hann hefði komið
inn í þetta ferli þegar búið var að
byggja stúkuna. „Það var haldinn
einn óformlegur fundur eftir að ég
settist í nefndina, sem var kynnis-
ferð um mannvirkið.“ En meirihluti
framkvæmda við aukaverkin fór
fram á árinu 2007, eftir að Björn
Ingi settist í nefndina. Meðal þeirra
er tólf milljóna króna framkvæmd
við VIP-stúkur, níu milljónir króna
eru vegna handriða, þrettán millj-
ónir króna vegna steinteppis í að-
komusal og tólf milljónir króna
vegna tveggja varamannaskýla.
Helgar tilgangurinn meðalið?
Mannvirkið sem er risið við
Laugardalsvöll er glæsilegt. En það
kostaði mörg hundruð milljónum
AUKAVERK VEGNA LAUGARDALSVALLAR
Lóð 16.500.000 Haust 2006
Magnaukningar 73.000.000 Mest sumar 2006
Hönnun og eftirlit, hækkun 80.000.000 júní 2006-2007
VSK af hönnun (gleymdist í kostnaðaráætlun 36.000.000
Varamannaskýli 12.000.000 Ágúst 2007
Jarðvinna 16.000.000 Nóvember 2005
Sæti 14.000.000 Ágúst 2006
VIP stúkur 12.000.000 Apríl 2007
Steinteppi í aðkomusal 13.000.000 Maí 2007
Handrið í stúku við kjallarainnganga 9.000.000 Maí 2007
Öryggis- og myndavélakerfi 8.000.000 September-Október 2007
Innréttingar í miðasölur 2.100.000 Júní 2007
Frágangur blaðamannaskýla 1.400.000 Mars 2007
Burðarfestingar fyrir lampa í þaki 1.200.000 Desember 2007
Gera við Tartan framan við steypta veggi 2.100.000 Júní 2007
Veggir undir bogaglugga 3.100.000 Apríl 2007
Ýmislegt viðhald 22.000.000 Á verktímanum
Önnur aukaverk, ósundurliðuð 50.500.000 Á verktímanum
Samtals (krafa KSÍ) 371.900.000
Umsamin upphæð 278.200.000
Krónur Framkvæmdatími
➤ Í upphafi átti verkið að kosta1.068 milljónir og hlutur
borgar að vera 428 milljónir.
➤ Krafa KSÍ á borgina í verklokhljóðar upp á 1.020,5 millj-
ónir, 553,1 milljón hærra en
upphaflega var samið um, og
kostnaður er alls orðinn
1.639 milljónir.
KOSTNAÐUR króna meira en það átti að gera.
Þeir sem áttu að sinna eftirliti með
verkinu brugðust þeim skyldum
sínum, með þeim afleiðingum að
aukaverk hrönnuðust upp og
greiðslur vegna þeirra voru sam-
þykktar án vitneskju kjörinna full-
trúa og embættismanna borgarinn-
ar.
Þá ábyrgð bera allir sem komu að
málinu, hvort sem þeir voru á veg-
um R-listans sem gerði samning-
inn, eða seinni meirihluta, sem svaf
klárlega líka á vaktinni.
En KSÍ var líka treyst til þess að
sjá um framkvæmdina. Samband-
inu var treyst til þess að láta reikn-
inga vegna verksins fara í gegnum
sitt bókhald, treyst til að ráða bygg-
ingarstjóra yfir verkið og því var
treyst til að fara með formennsku í
byggingarnefnd. KSÍ var treyst til
þess að standa við kostnaðaráætlun,
en það tókst sambandinu ekki.
Spurningin sem skattgreiðendur
hljóta að spyrja, er hvort tilgang-
urinn helgi meðalið í þessu efni og
réttast sé að vera bara glöð með nýja
og glæsilega stúku eða hvort rétt sé
að einstaklingar taki ábyrgð á gjörð-
um sínum í málinu.
24stundir LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 11
EYKJAVÍK!
Reykjavíkurborg hvetur alla borgarbúa til að færa hugmyndir
um betra borgarumhverfi inn á nýjan ábendingavef. Þar er
einnig hægt að kynna sér aðrar tillögur og veita þeim stuðning.
EINN, TVEIR OG REYKJAVÍK!
www.reykjavik.is sími: 411 11 11
enn frekari verðhækkunum. „Það
verður að koma í ljós hvernig þró-
unin verður. Maður veit ekkert
um það.“
Verð á olíu er nú nálægt 106
dölum á hverja tunnu. Magnús
segir að skýringar hækkunarinnar
sé fyrst og fremst að finna í veikri
stöðu Bandaríkjadals. „Hann er
svo veikur gagnvart evrunni og
öðrum meginmyntum, hefur
veikst jafnt og þétt um nokkurt
skeið og er nú í botni. Við þurfum
að fylgjast með þróun efnahags-
mála í Bandaríkjunum upp á
framhaldið. Það er ákveðið
áhyggjuefni ef dollarinn styrkist
ekki, þar sem menn eru að leita úr
því að kaupa verðbréf og dollara-
bréf yfir í að kaupa ýmsar hráaf-
urðir, eins og hráolíu og gull. Slíkt
leiðir af sér hærra verð.“
Ofurskattheimta
Runólfur segir FÍB skora á
stjórnvöld að draga úr þeirri of-
urskattheimtu sem sé á bensín og
dísilolíu. Fáar ef nokkrar neyslu-
vörur beri jafn-há gjöld til ríkis-
sjóðs. Runólfur bendir á að farið
var af stað með olíugjaldið á sín-
um tíma með því fororði að breyta
neyslumynstrinu. Ætlunin hafi
verið að fá fleiri til að aka um á
dísilbílum sem hafi þann kost að
eyða minna eldsneyti. „Ef verð-
munurinn á dísil og bensíni er
orðinn þetta mikill þá er mjög erf-
itt fyrir fólk að sannfæra sjálft sig
um að það borgi sig að kaupa spar-
neytinn dísilbíl umfram bensínbíl.
Dísilbílarnir eru gjarnan dýrari í
grunninn og það tekur langan
tíma að ávinna sparnaðinn í elds-
neytisnotkun, sérstaklega þegar
lítrinn á dísil er orðinn þetta mikið
dýrari.“
Hækkanir utan frá
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagði á Alþingi fyrir um
tveimur vikum að engar ákvarð-
anir hefðu verið teknar um að
lækka álögur ríkisins á eldsneyti,
eftir að Guðjón Arnar Kristjáns-
son, formaður Frjálslynda flokks-
ins, hafði beint fyrirspurn til ráð-
herrans þar um. Þá sagði Geir að
hafa yrði í huga að hækkanir
kæmu utan frá, væru í raun skatt-
ur á þjóðarbúið og að ekki hægt að
víkjast undan honum.
Skuldsettir Bandaríkjamenn
Magnús segir að eins og mál
standi nú sé það ekki framboðið
gagnvart eftirspurn eða fram-
leiðsla OPEC-ríkja sem skýri
hækkandi eldsneytisverð, heldur
veik staða Bandaríkjadals og
hreyfingar á fjármálamörkuðum
og kauphöllum erlendis. „Banda-
ríkjamenn eru mjög skuldsettir og
það er meginskýringin á þessu.“
Í hæstu hæðum Dís-
illítrinn kostar nú um 150
krónur í sjálfsafgreiðslu
en lítri af 95 oktana
bensíni um 142 krónur.
Sigurður Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs, syrgir
þann mun sem við sjáum á dísil
og bensíni og telur hann mjög
varasaman. „Dísilvæðingin virðist
að vissu leyti komin á gott ról, þar
sem við vorum farin að sjá aukn-
ingu í innkaupum á nýjum,
smærri dísilbílum. Helmingur
nýrra bíla í Evrópu eru nú dís-
ilbílar, en þeir eru hagstæðari í
rekstri þar sem þeir eyða minna.
Ég held þó að ef verð á dísil verði
áberandi hærra en bensín mun
það fæla neytendur frá kaupum á
dísilbílum.“
Að sögn Sigurðar má þó líta
hækkanirnar jákvæðum augum
að því leyti að vonandi fari menn
að hugsa sinn gang. „Ég tel að Ís-
lendingar verði að skilja að þeir
eigi langflestir mikið inni í að
minnka eldsneytiskostnað sinn.
Þó lítraverðið sé alltaf að hækka
þá eiga menn mikið inni hvað
varðar að nota minna af eldsneyti.
Vissulega hefur orðið aukning í
nýskráningu á stórum bílum
fyrstu mánuði ársins, en ég vona
ég að nýskráðir bílar verði í aukn-
um mæli eldsneytisnýtnari.“
Sigurður varar við að ríkið
lækki álögur á eldsneyti, líkt og
margir hafa krafist. Því miður sé
fátt sem bendi til að um tíma-
bundið sé að ræða. „Með því að
grípa eitthvað inn í væri líklega
verið að rugla neytendur í ríminu
og skekkja þá mynd sem virðist
vera að birtast.“
Varasamur verðmunurÞRÓUN ELDSNEYTISVERÐS
110
115
120
125
130
135
140
145
Jan
07
Feb
07
Mar
07
Apr
07
Maí
07
Jún
07
Júl
07
Ágú
07
Sep
07
Okt
07
Nóv
07
Des
07
Jan
08
Feb
08
Mar
08*
111,75 kr.
113,09 kr.
140,60 kr.
146,60 kr.
*Fyrstu sex dagarnir í mars 2008.
Upplýsingar frá FÍB.
Útsöluverð með afslætti (kr.)
Dísilolía Bensín (95 okt.)