24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 15
á málum.“ Sjálf telur Kristín langbrýnast að bæta strax
kjör fólks í umönnunarstörfum. „Hvernig þar tekst til
hefur úrslitaþýðingu fyrir framtíð þjóðfélagsins.“
Aðrar þjóðir hafa litið til fæðingarorlofs íslenskra
feðra af miklum áhuga og víða um Norðurlönd hafa
menn lýst velþóknun. Finnar eru einna hrifnastir af ís-
lensku leiðinni en bæði í Danmörku og Noregi er
nokkur andstaða við að fæðingarorlof feðra verði lög-
bundið og réttur mæðra til að taka allt orlofið skertur.
Heimildir herma að tillaga að íslensku fæðingarorlofi
hafi verið í frumdrögum norsku jafnréttisskýrslunnar
en verið tekin út vegna andstöðu innan norsku
ríkisstjórnarinnar.
Engin furða er að fæðingarorlof sé tekið með í
reikninginn þegar hugað er að launajafnrétti
kynja. Norska rannsóknin staðfestir að enn hafa
börnin töluverð áhrif á launakjör foreldranna. En
ekki þau sömu á karla og konur.
Margir munnar að metta
Laun kvenna eru því lægri sem börnin eru
fleiri. Mun meiri líkur eru á að barnlaus kona nái
hærri launum en kona sem á eitt til tvö börn. Ef
konan á þrjú börn eða fleiri er líklegt að launin
lækki enn á meira. Þessu er algjörlega öfugt varið
með karlana. Þar er tilhneigingin því fleiri börn
því hærri laun. „Þá er viðkvæðið að þeir hafa
marga munna að metta,“ segir Kristín.
Hún segir brýnt að ráðast í rannsókn á afleið-
ingunum. „Við vitum ekki hvaða áhrif orlofið
hefur haft til dæmis á stöðu kvenna á vinnumark-
aði eða jafnrétti í launum. „Orlofið hefur varpað
ljósi á launamun kynjanna. En við verðum að vita
meira, ekki síst vegna mikils áhuga erlendra þjóða
á okkar leið,“ segir Kristín sem stefnir að því að
ýta rannsókninni úr vör á þessu ári.
beva@24stundir.is
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Laun kvenna eru því lægri
sem börnin eru fleiri. Þessu
er algjörlega öfugt varið
með karlanna. Þar er til-
hneigingin því fleiri börn því
hærri laun. Þeir hafa marga
munna að metta.
24stundir LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 15
Það hefur tekið sig upp gamall
söngur í efnahagsmálum. Fellum
gengið og leyfum verðbólgunni að
ganga yfir, en hverfum frá háum
vöxtum. Og þótt það hljómi vel að
gagnrýna háa vexti Seðlabankans
er í því fólgið að senda eigi al-
menningi reikninginn í formi
verðbólgu.
Enn einn grátkórinn
Á síðum blaðanna hafa sumir
framámenn í stjórnmálum og við-
skiptum þannig verið að segja
okkur að vegna alþjóðlegrar
lausafjárkreppu eigi Seðlabankinn
að endurskoða vaxtastefnu sína,
m.ö.o. að lækka stýrivexti. Þó
blasir það við hverjum manni að
ef lausafjárskortur er vandamálið
þá er vaxtalækkun ekki svarið.
Á viðsjártímum á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum er trúverðug-
leiki mikilvægur. Hringlandahátt-
ur með peningamálastefnu er við
þær aðstæður fráleitur. Talsmenn
aðhaldsleysis hafa því þurft hug-
myndaauðgi til að renna rökum
undir mál sitt. Þannig kom í vik-
unni fram hagfræðingur sem taldi
að Seðlabankinn ætti að byggja
ákvarðanir sínar um vaxtalækkan-
ir á sömu sjónarmiðum og sá
bandaríski. Brosleg hugmynd í
besta falli, því þótt við Íslendingar
séum mestu snillingar veraldar í
viðskiptum þá telur þjóðin enn
aðeins 0,3 milljónir manna.
Vaxtaákvarðanir bandaríska
bankans taka auðvitað mið af því
að þær hafa áhrif á aflvél heims-
viðskiptanna, bandarískt atvinnu-
líf, en 0,75 prósent vaxtalækkun
Seðlabanka Íslands mun seint
verða talið svar við fjármálavanda
þeim sem heimurinn glímir við.
Auk þess var yfirlýst forsenda
lækkunar vestra trúverðugleiki
sem agalausir Íslendingar hafa
ekki.
Hin ósýnilega hönd
Það er út af fyrir sig eðlilegt að
nú þegar þrengir að brjótist menn
um og biðji um öðruvísi veru-
leika. Hér varð gríðarleg auð-
myndun þegar fjármálafyrirtækin
fengu lán á lágum vöxtum til fjár-
festinga í áhættu- og ábatasömum
verkefnum, en nú eru lágu vext-
irnir ekki lengur í boði, hvorki á
heimsmarkaði né í Seðlabankan-
um. Af þessu breiðstræti brost-
inna vona hrópa sumir að Seðla-
bankinn sé í öngstræti. En hann
gerir ekki annað en það sem hann
boðaði og allir vissu að yrði og er
bráðum að fara að bíta. Og það er
mikilvægt að við hægjum á.
Við þurfum að draga úr neyslu
okkar og fyrirtækin þurfa að leyfa
hinni ósýnilegu hönd markaðar-
ins að taka til áður en hlaupið er
undir pilsfald ríkisins. Því við vit-
um öll að það er allskonar rugl í
gangi í neyslu og stöku fjárfest-
ingum og því þarf að vinda ofan
af með aðhaldi til þess að við get-
um svo aftur hafið uppgangstíma-
bil. Suðaustur-Asía var ágætt
dæmi um hvernig fer ef það er
ekki gert.
Hvernig sem menn berja höfð-
inu við Arnarhólinn komast þeir
ekki framhjá því að í áratugi hafa
sveiflur, mikil verðbólga og háir
vextir einkennt íslensku krónuna.
Á því er engin skyndilausn til og
síst sú að hækka skuldir heim-
ilanna með verðbólgu. Verðtrygg-
ingin hefur líka gert krónuna að
lélegu hagstjórnartæki. Ef við vilj-
um breytingar til framtíðar er
augljóslega líklegra að við náum
stöðugleika og lágum vöxtum í
Evrópusamvinnu og með þeim
aga sem þarf að fylgja upptöku
evru, fremur en með aðferðum og
aðhaldsleysi gærdagsins. Bara yf-
irlýsingin um að við ætluðum í
evrópska myntbandalagið myndi
strax auka trúverðugleika okkar á
alþjóðamörkuðum.
Sterkar stoðir
Í öllu krepputalinu eigum við
að hafa í huga að Ísland er ótrú-
lega auðugt samfélag og sterkt.
Mannauður okkar, auðlindir og
sterkt atvinnulíf eru stoðir undir
lífskjörum okkar sem ekki á að
örvænta um. Þeir erfiðleikar sem
við fáumst við eru tímabundnir
og sagan sýnir að við erum fljót að
ná okkur aftur á strik. Og þegar
samdráttur verður munu ríki og
Seðlabanki auðvitað með aðgerð-
um milda lendinguna svo sem
kostur er. En allt hefur sinn tíma.
Höfundur er alþingismaður.
Talsmenn aðhaldsleysis
VIÐHORF aHelgi Hjörvar
Bara yfirlýs-
ingin um að
við ætluðum
í evrópska
myntbanda-
lagið myndi
strax auka
trúverðugleika okkar á
alþjóðamörkuðum.
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Þvottavél
frá Siemens,
sem lætur
blettina hverfa.
Þetta er vél sem hefur
algera sérstöðu.
Fjórtán blettakerfi fyrir
ólíka bletti, t.d. vínbletti,
blóðbletti og grasgrænku.
Tromlan er óvenjustór,
tekur 65 l og hægt er að
þvo í henni allt að 8 kg.
Innra byrði tromlunnar er
með droplaga mynstri
sem fer sérlega vel með
þvottinn. Vélin er mjög
snör í snúningum: 15
mín. hraðkerfi og 60
mín. kraftþvottakerfi
fyrir meðalóhreinan þvott.
Snertihnappar. Stór og
öflugur skjár. Vélin hefur
mjög góða hljóðeinangrun
og er í orkuflokki A+.
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið sunnudagskvöldið 9. mars,
kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal
Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Boðin verða upp um það bil 110 listaverk.
Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
föstudag 10–18, laugardag 11–17 og sunnudag 12–17.
Hægt er að skoða uppboðsskrána
með myndum á vefslóðinni myndlist.is.
Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is
Jóhannes S. Kjarval
24 stunda
Auglysingasimi
Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is
Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is
Serblad
Born
og
uppeldi
12.mars 2008