24 stundir - 08.03.2008, Page 24
24 LAUGARDAGUR 8. MARS 20084stundir
Quick•Step® gólfefnin eru fyrir þá sem gera kröfur og eru vandlátir á gólfefni. Við hjá Harðviðarvali
bjóðum upp á gríðarlega fjölbreytt úrval af harðparketgólfefnum með einstaklega fallegri viðaráferð.
Þau eru sérlega slitþolin og mjög auðvelt er að leggja þau og halda þeim við. Quick•Step®
gólfefnin endast svo lengi að þau ættu að geta verið þér til ánægju fyrir lífstíð.
Sum gólfefni eru ótrúleg
www.quick-step.com
- þegar þú kaupir parket!
Krókhálsi 4 • Sími 567 1010 • wwwparket.is
Mars e
r
Quick•S
tep
mánu›u
r
TILB
OÐS-
VERÐ
Í Afganistan stendur nú yfir eitt
stærsta friðargæsluverkefni sem
þjóðir Atlantshafsbandalagsins og
samstarfsþjóðir hafa tekið að sér
fyrir Sameinuðu þjóðirnar. ISAF –
alþjóðlegu öryggissveitirnar í Afg-
anistan sem starfa í umboði örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna, voru
settar á stofn með ályktun 1386 í
desember 2001. Árið 2003 tók Atl-
antshafsbandalagið við forystu
ISAF að beiðni og í umboði Sam-
einuðu þjóðanna og hefur verið
svo síðan.
Alls taka rúmlega 40 þúsund
manns frá 38 ríkjum, þar á meðal
öllum norrænu ríkjunum, þátt í
því starfi sem þarna fer fram. Ríkin
sem standa að ISAF leggja bæði til
hernaðarlega aðstoð og borgara-
lega sérfræðinga, auk þess sem
langflest styðja þau fjárhagslega við
uppbyggingarstarf og endurreisn
Afganistans.
Erfiðar aðstæður
Ísland hefur tekið þátt í ýmsum
verkefnum alþjóðlegu öryggissveit-
anna ISAF frá árinu 2004 og nú
starfa þar 13 manns á vegum ís-
lensku friðargæslunnar. Uppbygg-
ingarverkefni hafa verið styrkt,
þjálfun heimamanna og stuðning-
ur við uppbyggingu stjórnkerfisins
hefur verið í forgrunni allan þann
tíma sem íslenskir friðargæsluliðar
hafa tekið þátt í þessu starfi. Það er
hægt að deila um áherslur og val
verkefna en það er óumdeilt að
fólkið okkar sem þarna hefur starf-
að hefur staðið sig vel við erfiðar
aðstæður.
Með nýjum verkefnum í héraðs-
uppbyggingarsveit í Meymanah
verður sérstaklega horft til verkefna
á sviði heilsugæslu og heilsuvernd-
ar, styrkingar réttarfarskerfisins og
stuðnings í samstarfi við stjórnvöld
í héraði til að efla og bæta lífsgæði
heimamanna, ekki síst kvenna.
Norðmenn leiða héraðsuppbygg-
ingarsveitina í Meymanah og okkar
framlag verður í nánu samstarfi við
þá og afgönsk stjórnvöld.
Norskir og lettneskir hermenn
sjá um öryggi bækistöðvar og borg-
aralegs starfsfólks. Við teljum að
öryggi okkar fólks sé þar í bestu
mögulegum höndum. Aukinn
þungi er í samstarfi á norrænum
vettvangi um málefni Afganistans
og áhugi á að hefja fleiri verkefni og
leggja til sérfræðinga til að fylgja
slíku starfi eftir. Það fer vel á því að
norræn ríki, sem hafa langa og
góða reynslu á sviði mannréttinda,
lýðræðisþróunar og jafnréttismála,
stuðli að uppbyggingu og leggi sín
lóð á vogarskálarnar í þessu verk-
efni.
Lítið gert úr starfinu
Það er eðlilegt og algengt að ráð-
herrar og þingmenn sem um utan-
ríkismál og varnarmál fjalla í þátt-
tökuríkjum ISAF fari á vettvang til
að kynna sér málin, ræða við lýð-
ræðislega kjörin afgönsk stjórnvöld
og þátttakendur í uppbyggingar-
starfinu og fái þannig sem skýrasta
mynd af því hverjar þarfirnar eru,
hvernig við getum best stutt við
þann árangur sem hefur náðst og
aukið lífsgæði afganskra borgara
um allt landið.
Vel færi á því í framhaldi af
heimsókn utanríkisráðherra til
Afganistans nú í vor að utanrík-
ismálanefnd þingsins og þeir sem
um þessi mál fjalla, fari til Afgan-
istans eins og þingnefndir nor-
rænna samstarfsríkja okkar hafa
þegar gert og kynni sér málið af
eigin raun. Fjölmiðlar hafa þann
kost líka að senda sína fulltrúa og
kynna sér málefni og aðstæður. Svo
virðist sem sumir kjósi fremur að
fjalla um þetta alþjóðlega verkefni
með dómsdagsspám án þess að
kynna sér starfið sem þarna fer
fram með opnum huga. Það er
dapurlegt þegar lítið er gert úr
starfi íslenskra friðargæsluliða á
þennan hátt.
Ekki skorast undan
Öll verkefni friðargæslunnar fela
í sér dvöl á stöðum þar sem ákveð-
in hætta er fyrir hendi. Þetta á við
um Beirút, Líberíu, Palestínu og
Kósóvó, þar sem íslenska friðar-
gæslan er einnig að störfum. Ör-
yggi starfsmanna okkar er ævinlega
í fyrirrúmi og öryggismál eru end-
urmetin reglulega þar sem aðstæð-
ur geta breyst.
Engum dylst að Afganistan er
erfitt verkefni og til langs tíma. Það
var verkefni NATO á Balkanskaga
líka, þar sem enn er liðsafli þótt ríf-
lega áratugur sé síðan friður komst
á. Alþjóðasamfélagið á ekki að
hlaupa frá verkefnum sem takast
þarf á við. Ísland á ekki að skorast
undan að taka þátt í uppbygging-
arstarfi sem hægt er sinna og styðja
með því lögmæt stjórnvöld, sem
hafa beðið alþjóðasamfélagið um
aðstoð í landi sem þarfnast stöð-
ugleika og stuðnings til að ná aftur
fyrri reisn.
Höfundur er fjölmiðlafulltrúi
utanríkisráðuneytisins
Afganistan þarf
stuðning okkar
UMRÆÐAN aUrður Gunnarsdóttir
Svo virðist
sem sumir
kjósi fremur
að fjalla um
þetta al-
þjóðlega
verkefni með
dómsdagsspám án þess
að kynna sér starfið sem
þarna fer fram með opn-
um huga.
Afganistan „Ísland á ekki að skorast undan að
taka þátt í uppbyggingarstarfi sem hægt er
sinna og styðja með því lögmæt stjórnvöld.“