24 stundir - 08.03.2008, Page 26
26 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
Ég verð að hrósa DV fyrir að
hafa síðustu daga vakið máls á
hlutskipti þeirra einstaklinga sem
urðu fórnarlömb mannkynbóta-
fræðinnar sem var furðu grasser-
andi á Íslandi á fyrri hluta 20.
aldar. Meira að segja Vilmundur
Jónsson landlæknir, sá góði sósíal-
isti og harði andstæðingur þýskra
nasista, þar sem mannkynbætur
urðu alfa og ómega allrar hug-
myndafræði, hann var í reynd
hallur undir þessar kenningar
sjálfur og gekkst fyrir lagasetningu
þar sem hann fordæmdi að vísu
mestu villimennskuna í nasistum
og fylgismönnum þeirra, en fól þó
í sér að hið opinbera gat ef því
sýndist látið vana bæði börn og
fullorðið fólk ef ekki var talið
„æskilegt“ að það fjölgaði sér. Þar
kom greindarskortur eða svokall-
aður „fávitaháttur“ fyrst og fremst
til álita.
Ég hef sjálfur fjallað töluvert
um þessi mál gegnum tíðina,
bæði í útvarpsþætti og líka í rit-
uðu máli í blöðum og bókum. Sú
umfjöllun snerist fyrst og fremst
um dómsmál sem reis vegna þess-
ara mála fyrir nokkrum áratug-
um, en það er til marks um
breyttan tíðaranda að þegar ég var
að fjalla um málið, þá datt mér
aldrei í hug að reyna að nálgast
sjálft það fólk sem fyrir þessu
varð.
Andlitslaus umfjöllun
Slíkt var bara einhvern veginn
ekki hluti af fjölmiðlun þess tíma.
Fyrir vikið var umfjöllunin æv-
inlega andlitslaus og lesendur eða
hlustendur gátu ekki tengt ein-
staklinga við frásögnina.
Annað var ekki við hæfi á þeim
árum.
En fyrir vikið vakti umfjöllunin
litla sem enga athygli.
Það er mín hógvær von að sá
tími sem ég var ritstjóri DV fyrir
nokkrum árum hafi átt sinn þátt í
að breyta fjölmiðlun í þessu landi
þannig að nú þykir víðast eðlilegt
að nöfn og andlit fylgi fréttum af
einstaklingum, nema þá eitthvað
sérstakt komi í veg fyrir það. Við
DV-menn vorum þá harðlega
gagnrýndir fyrir þá stefnu að birta
nöfn og myndir og vissulega
kunnum við sjálfir ekki alltaf með
þessa nýju stefnu að fara. Slys
urðu þá nokkrum sinnum í fram-
setningu frétta sem ég held reynd-
ar að hafi ekki alltaf komið við-
komandi fólki verulega illa – en
vöktu andúð hjá fólki sem ekki
var vant svona löguðu, og hlaut
að telja allar breytingar af hinu
illa.
Vel að verki staðið
Eftir að útgáfa DV hafði legið
niðri um hríð hafa nýir stjórn-
arherrar verið að feta sig smátt og
smátt inn á svipaða braut en á
mun kurteislegri hátt en þegar
mest gekk á – og viðtölin við fólk-
ið sem varð fyrir vönunum hins
opinbera held ég að séu mjög góð
birtingarmynd þess. Þarna er vel
að verki staðið og vonandi að
þessi umfjöllun verði til þess að
varpa enn frekara ljósi á þennan
smánarblett á íslensku samfélagi.
Umfjöllun um Breiðavíkur-
strákana (sem DV gerði líka af-
skaplega vel, sem og Kastljós
Sjónvarpsins) er líka angi af þeim
gagnlegu breytingum sem eru að
verða á fjölmiðlun í landinu þar
sem æ minna ber á „karlmanni á
fertugsaldri“ eða „konu á þrítugs-
aldri“ en áður var, þegar einstak-
lingar áttu í hlut. „Karlmaður á
fertugsaldri“ og „kona á þrítugs-
aldri“ eiga enn bólstað í Morg-
unblaðinu en jafnvel þar eru
breytingar að verða.
Glansmyndin blekking
Það er vel, því of lengi hafa
skúmaskotin verið ósópuð í þessu
þjóðfélagi – það kemur gleggst í
ljós þegar upp rísa mál eins og
Breiðavíkurmálið og nú þetta
vönunarmál. Við verðum að horf-
ast í augu við að sú glansmynd af
góðu og vinalegu samfélagi sem
við gerðum okkur í hugarlund að
hefði ríkt með blóm í haga á Ís-
landi á 20. öld, sú glansmynd á
hreint ekki við rök að styðjast í
öllum atriðum. Hér tíðkaðist fúl-
mennska hin mesta, eins og sést
af Breiðavíkurmálinu, meðferð á
fórnarlömbum kynferðisglæpa-
manna og vönunarmálinu. Það er
sárt að horfast í augu við það, en
það er nauðsynlegt því engum er
greiði gerður með því að mynd
okkar á fortíðinni sé byggð á því
sem í besta falli verður að teljast
misvísandi en í versta falli tóm
lygi.
Sópað úr skúmaskotum
aIllugi Jökulsson skrifar um fjöl-miðlun
Það er sárt að
horfast í augu
við það, en
það er nauð-
synlegt því
engum er
greiði gerður
með því að mynd okkar á
fortíðinni sé byggð á því
sem í besta falli verður að
teljast misvísandi en í
versta falli tóm lygi.
Breiðavík „Hér tíðkaðist fúl-
mennska hin mesta, eins og sést
af Breiðavíkurmálinu, meðferð á
fórnarlömbum kynferðisglæpa-
manna og vönunarmálinu.“
24stundir/Ómar
Club Paradise Park & Glarus íbúðahótelin
Frábærar íbúðir
Frá kr. 49.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í
íbúð á Paradise Park í viku, 26. maí eða 25. ágúst. Gisting
á Glarus íbúðahótelinu kr. 3.000 aukalega.
Hotel Kristal
m/allt innifalið
Frá kr. 55.195
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í fjölskyldu-
herbergi með allt innifalið á Hotel Kristal í viku, 25. ágúst.
Búlgaría
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
24
46
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
T
er
ra
N
o
va
á
sk
ilu
r
sé
r
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
BEINT MORGUNFLUG
Golden Sands – Perla Svartahafsins
Terra Nova býður frábærar sumarleyfisferðir til perlu Svartahafsins, Golden Sands
í Búlgaríu. Þú fær hvergi meira frí fyrir peninginn en í ferð til Golden Sands. Stað-
urinn ber svo sannarlega nafn með rentu því ströndin er ein sú allra besta í Evrópu,
4 km. löng og allt að 100 metra breið með gullnum sandi, hlýjum og tærum sjó.
frá 49.995 kr.
Frábært verðlag í Búlgaríu!
• Veisla í mat og drykk
• Endalausir afþreyingarmöguleikar
• Frábært næturlíf
• Gott að versla
• Spennandi kynnisferðir
• Frábært verðlag
• o.fl., o.fl.
Bókaðu núna!
www.terranova.is
Þú færð hvergi meira frí fyrir peninginn!