24 stundir - 08.03.2008, Page 41
24stundir LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 41
Þitt atkvæði skiptir máli
Taktu afstöðu!!!
Munið að atkvæðagreiðslu lýkur á hádegi 10. mars
Boðinn
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Helga Rós Indriðadóttir sópran-
söngkona og Guðrún Dalía Salóm-
onsdóttir píanóleikari halda söng-
tónleika í Salnum í Kópavogi á
morgun, sunnudaginn 9. mars
klukkan 16. Þar munu þær, ásamt
Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara,
flytja sönglög Jórunnar Viðar og
þjóðlög í útsetningum hennar, en
tónleikarnir eru haldnir í tilefni af
því að Jórunn verður níræð á
árinu.
Fengu styrk frá Hlaðvarpanum
Helga Rós og Guðrún Dalía
fengu styrk frá Hlaðvarpanum til
verkefnisins og hafa unnið náið
með Jórunni að undirbúningi tón-
leikanna undanfarið. „Við höfum
átt gott samstarf við Jórunni,“ segir
Guðrún Dalía. „Hún hefur sagt
okkur sögurnar á bak við hvert lag
og unnið með okkur að túlkun
þeirra. Við höfum helgað undan-
farnar vikur og mánuði þessu verk-
efni og lært ýmislegt nýtt og for-
vitnilegt um Jórunni og hennar
verk. Hún sagði okkur til dæmis frá
því þegar hún heillaðist af ljóðun-
um sem hún samdi lögin við og svo
gaf hún okkur mjög góða leiðsögn
þegar við vorum að æfa lögin um
hvernig hún hafði hugsað sér að
þau yrðu flutt og útsett. Jórunn er
sjálf mjög góður píanóleikari og
það gefur lögunum hennar
ákveðna sérstöðu og það er ekki
síður spennandi og krefjandi fyrir
píanóleikara að spreyta sig á lögum
hennar en fyrir söngvara.“
Afmæli í desember
Jórunn fæddist 7. desember árið
1918 og á afmælisdaginn sjálfan
hyggjast Guðrún Dalía og Helga
Rós gefa út geisladisk með lögum
hennar og í framtíðinni stendur til
að fara með prógrammið út fyrir
landsteinana. Tónlist Jórunnar
Viðar hefur notið mikillar hylli en
þetta er þó í fyrsta skipti sem
haldnir eru tónleikar þar sem ein-
göngu verða flutt lög eftir hana.
Samstarf Helgu Rósar og Guð-
rúnar Dalíu hófst í Stuttgart í
Þýskalandi þar sem Helga Rós var
fastráðin við óperuhúsið þar í borg
á árunum 1999 til 2007 og Guðrún
Dalía lauk píanónámi frá Tónlist-
arháskólanum þar í borg sumarið
2007.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 á
morgun og er hægt að nálgast miða
í miðasölu Salarins og á salurinn.is.
Guðrún Dalía Salómonsdóttir og Helga Rós Indriðadóttir
Spila verk Jórunnar Viðar
Sópransöngkonan Helga
Rós Indriðadóttir og pí-
anóleikarinn Guðrún
Dalía Salómonsdóttir
leiða saman hesta sína í
Salnum á morgun.
Píanóleikari og
sópran Guðrún
Dalía og Helga Rós.➤ Er afkastamikið tónskáld ogbrautryðjandi í íslensku tón-
listarlífi.
➤ Auk fjölda sönglaga og kór-verka hefur hún meðal ann-
ars samið tónlistina við fyrstu
íslensku kvikmyndina, Síðasti
bærinn í dalnum
JÓRUNN VIÐAR
Börnum verður
boðið í skrímsla-
og kynjaveruleik
í Þjóðminjasafn-
inu á morgun,
sunnudaginn 9.
mars. Helga Ein-
arsdóttir safnfræðslufulltrúi tek-
ur á móti börnunum og spjallar
um skrímsli og síðan fá þau að
leita að ófreskjum og kynjaverum
í safninu. Einnig verður sérstakt
teiknihorn þar sem börn geta
teiknað myndir af skrímslum.
Skrímsli í Þjóð-
minjasafni
Almenningi verður boðið að
koma með forngripi eða gamla
muni í skoðun og greiningu í
Þjóðminjasafninu á morgun. Sér-
fræðingar safnsins verða á staðn-
um milli klukkan 14 og 16 og
munu þeir taka á móti gripunum
og reyna að greina þá með tilliti
til aldurs, efnis og uppruna, en
ekki verðmætis.
Áttu forngrip?
Útgáfuhátíð vegna útgáfu heild-
arverka Steinars Sigurjónssonar
skálds verður á Háskólatorgi
klukkan 15 á sunnudag, en í
blaðinu í gær misritaðist stað-
setningin og er beðist velvirð-
ingar á því.
Leiðrétting
MENNING
menning@24stundir.is a
Við höfum helgað undanfarnar
vikur og mánuði þessu verkefni
og lært ýmislegt nýtt og forvitnilegt
um Jórunni og hennar verk.